Erlent
Um 300 þúsund mótmæltu í Ísrael Um það bil þrjú hundruð þúsund Ísraelar gengu um götur Tel Aviv og Jerúsalem til að mótmæla efnahagsástandinu í landinu. Mótmælendur segja skuldir hafa aukist á meðan verð á almennum neysluvörum og húsnæði hefur hækkað. Í samtali við breska ríkisútvarpið staðfesti lögreglan í Ísrael að tuttugu þúsund til viðbótar hafi komið saman í minni borgum og bæjum til að mótmæla. Erlent 7.8.2011 10:17
Bensínsprengjum kastað að lögreglumönnum Bensínsprengjum var kastað að lögreglumönnum og kveikt var í lögreglubílum og húsum í óeirðum í Tottenham í norðurhluta Lundúna í nótt. Átta lögreglumenn slösuðust í óeirðunum og voru fluttir á spítala, einn með höfuðáverka. Upphaf óeirðanna má rekja til þess að lögreglan skaut til bana 29 ára gamlan mann á fimmtudag. Um 300 manns tóku þátt í óeirðunum eftir því sem fram kemur á BBC. Erlent 7.8.2011 09:04
Skólakokkur gaf börnum rottueitur Skólakokkur í suðurhluta Brasilíu hefur játað að hafa bætt rottueitri við matinn sem hann bauð upp á í mötuneyti skólans. Erlent 6.8.2011 23:00
Ísbirnir reglulega felldir á Svalbarða Piltarnir fjórir sem sluppu lifandi frá grimmilegri árás hvítabjarnar á Svalbarða í gær þurftu allir að gangast undir skurðaðgerð vegna áverka á höfði. Um 3000 birnir halda til á Svalbarða og hafa að meðaltali þrír á ári verið felldir þegar fólki stafar hætta af þeim. Erlent 6.8.2011 22:00
Tekist á um lánshæfismat Obama Bandaríkjaforseti óskaði eftir því í ávarpi sínu í dag að þingmenn Bandaríkjanna legðust á eitt við að fjölga störfum í landinu eftir að matsfyrirtækið Standard og Poors lækkaði lánshæfismat Bandaríkjanna úr efsta þrepi í það næstefsta. Erlent 6.8.2011 19:45
Hundruð þúsunda flýja fellibylinn Muifa Yfir 200 þúsund manns í Austur-Kína hafa verið flutt brott af strandsvæðum og þúsundir skipa hafa verið kölluð aftur til hafnar vegna fellibylsins Muifa sem stefnir nú á landið eftir að hafa haft viðkomu í Filippseyjum, Taívan og Japan. Þá hafa 80 þúsund manns verið flutt brott úr Fuijan héraði. Erlent 6.8.2011 17:06
38 hermenn látinir í þyrluslysi 31 bandarískur hermaður og sjö afganskir týndu lífinu í nótt þegar þyrla bandaríska hersins brotlenti í Afganistan. Óvíst er hvað olli brotlendingunni en Talíbanar segjast hafa skotið þyrluna niður. Erlent 6.8.2011 12:08
Krefjast afsagnar fjármálaráðherrans Repúblikanar í Öldungadeild Bandaríkjaþings krefjast afsagnar Timothys Geithners fjármálaráðherra eftir að S&P lækkaði lánshæfismat Bandaríkjanna í fyrsta sinn í sögunni í gær. Lánshæfismatið var í hæsta flokki AAA en er nú komið í AA+ með neikvæðum horfum. Erlent 6.8.2011 09:58
Þjófóttir hermenn drápu sjö Sjö manns létust í gær eftir að sómalískir stjórnarhermenn hófu skothríð á mannfjölda í höfuðborginni Mógadisjú. Erlent 6.8.2011 03:30
Flugvél rýmd í Fíladelfíu Flugvél á vegum US Airways, sem var að koma frá Glasgow, var rýmd á flugvellinum í Fíladelfíu nú í kvöld. Samkvæmt fréttum Sky sjónvarpsstöðvarinnar er ástæða rýmingarinnar sögð vera „ótilgreind ógn“ en ekki hefur verið gerð frekari grein fyrir málinu. Erlent 5.8.2011 21:42
Þrjátíu og tvö fórnarlömb jörðuð í dag Monica Bosesei, oft kölluð "Mamma Úteyjar“ var borint il grafar í dag ásamt þrjátíu og einu fórnarlambi voðaverkanna í Útey og í miðborg Oslóar. Erlent 5.8.2011 16:11
Stálu tólf þúsund eggjum og köstuðu í bíla Um tólf þúsund eggjum var stolið af hænsnabúi í Sussex á Englandi á þriðjudaginn. Erlent 5.8.2011 13:32
Ísbjörn reif átján ára pilt á hol Ísbjörn á Svalbarða reif í sig átján ára breskan pilt sem þar var á ferðalagi. Fjórir aðrir eru alvarlega slasaðir eftir árás bjarnarins, að því er fréttastofa Sky greinir frá. Hópurinn var í skólaferðalagi á Svalbarða og eru hin slösuðu öll talin vera í kring um átján ára aldurinn. Alls var um 90 manna hópur á vegum skólans á Svalbarða. Breska sendiráðið í Noregi er með málið til skoðunar. Norsk yfirvöld hafa sent frá sér yfirlýsingu þar sem segir að björninn hafi verið drepinn. Hinir slösuðu hafa verið fluttir á sjúkrahús í Tromso en árásin átti sér stað nálægt jöklinum Von Post. Erlent 5.8.2011 11:55
Tvö prósent halda að Pippa sé klámstjarna Litla systir Katrínar Middleton, Pippa Middleton, hefur fengið mikla athygli eftir að stóra systir gifti sig í apríl síðastliðnum. Hún fékk mikla athygli í fjölmiðlum og höfðu sumir á orði að hún hefði stolið senunni í konunglega brúðkaupinu þar sem hún þykir vera einstaklega glæsileg stúlka. Erlent 5.8.2011 11:52
Grunar að Breivik eigi vitorðsmenn Vitni segjast hafa séð Anders Breivik í matvöruverslun í miðbæ í smábæjarins Krakö utan við Osló nokkrum dögum fyrir árásina. Hann hafi verið þar ásamt tveim mönnum Breivik hafi verið íklæddur hermannapeysu með lögreglumerkjum á. Breivik var einmitt dulbúinn sem lögregluþjónn þegar hann lét til skarar skríða í Útey. Erlent 5.8.2011 11:37
Hvítabjörn drap einn og særði fjóra Einn maður lét lífið og fjórir særðust alvarlega í árás ísbjarnar á Svalbarða í dag. Mennirnir voru Bretar en ekki er vitað hvað þeir voru að gera á þessum slóðum. Einum úr hópnum tókst að skjóta dýrið til bana. Erlent 5.8.2011 11:17
Rómverskur guð birtist fyrir tilviljun Það eru ótrúlegustu hlutir sem geta birst okkur á einn eða annan hátt. Myndband af andliti sem sést mótast í skýjum í Kanada gengur eins og eldur um sinu á veraldarvefnum þessa daganna. Erlent 5.8.2011 09:39
29 þúsund börn látin í Sómalíu Meira en 29 þúsund börn undir fimm ára aldri eru látin eftir þurrka og hungursneyð í Sómalíu síðustu þrjá mánuði. Erlent 5.8.2011 08:45
Paul McCartney telur sig fórnarlamb hlerana Bítillinn fyrrverandi Paul McCartney telur að hann sé eitt af fórnarlömbum hlerana í Bretlandi. Erlent 5.8.2011 08:11
Rowan Atkinsson á sjúkrahús eftir bílslys Breski leikarinn Rowan Atkinsson, best þekktur sem mr. Bean, var fluttur á sjúkrahús eftir að hann ók McLaren F1 ofurbíl sínum fyrst á tré og síðan á ljósastaur í Cambridgeskíri. Erlent 5.8.2011 08:00
Fundu hugsanlega FFH á botni Eystrasalts Hópur Svía sem stundar fjársjóðsleit í Eystrasaltinu hefur fundið risavaxinn dularfullan hlut á hafsbotninum milli Svíþjóðar og Finnlands. Margir telja að þarna gæti fljúgandi furðuhlutur (FFH) verið á ferð. Erlent 5.8.2011 07:45
Annar maður verið yfirheyrður Anders Behring Breivik neitar að gefa upplýsingar sem gætu skorið úr um það hvort hann hafi átt sér vitorðsmenn. Þetta segir saksóknarinn Christian Hatlo. Erlent 5.8.2011 07:45
Gífurleg óánægja með störf þingmanna í Bandaríkjunum Almenningur í Bandaríkjunum hefur ekki verið jafn óánægður með þingmenn sína síðan að mælingar á slíku hófust fyrir 34 árum. Erlent 5.8.2011 07:25
NASA finnur merki um fljótandi vatn á Mars Vísindamenn hjá bandarísku geimferðastofnuninni NASA telja að þeir hafi fundið merki um fljótandi vatn á Mars. Erlent 5.8.2011 07:23
Brutust inn í tölvur 72 stofnana Tölvuöryggisfyrirtækið McAfee fullyrðir að það hafi komist á snoðir um umfangsmestu tölvuárás sögunnar. Árásin hafi staðið yfir í fimm ár og beinst að 72 stofnunum og fyrirtækjum, meðal annars Alþjóðaólympíunefndinni, indverska ríkinu, Sameinuðu þjóðunum og öryggisfyrirtækjum. Erlent 5.8.2011 06:45
Flugfreyjunum haldið fjarri Franska blaðið Le Parisien kveðst hafa undir höndum nafnlaust bréf þar sem segir að flugfélagið Air France hafi fyrirskipað að aðeins flugþjónar en ekki flugfreyjur mættu vinna á fyrsta farrými þegar Dominique Strauss-Kahn, fyrrverandi framkvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, væri um borð. Air France vísar þessu á bug. Erlent 5.8.2011 05:45
Varar við útbreiðslu kreppu Forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, José Manuel Barroso, hefur varað við því að skuldavandi sé að breiðast út fyrir evrusvæðið. Forsetinn sendi ríkisstjórnum Evrópusambandsríkjanna bréf í gær þar sem hann kallaði eftir fullum stuðningi þeirra við evrusvæðið. Erlent 5.8.2011 04:45
Tilnefningu forsetans hafnað Öldungadeild þingsins á Haítí hafnaði nýverið ráðningu Bernards Gousse í embætti forsætisráðherra landsins. Gousse var hafnað vegna þátttöku hans í ofsóknum á hendur stuðningsmönnum Jean Bertrand Aristide, fyrrverandi forseta. Erlent 5.8.2011 04:30
Leiðtogi fjölkvænissöfnuðar sakfelldur Warren Jeffs, leiðtogi sértrúarsöfnuðar sem aðhyllist fjölkvæni, var sakfelldur í Texas í dag, meðal annars fyrir kynferðislega misnotkun á barni. Enn á eftir að ákvarða refsingu Jeffs, en hann gæti horft fram á lífstíðarfangelsi. Erlent 4.8.2011 23:45
Var fullur þegar hann skrifaði undir samningana Martin Resendiz, bæjarstjóri Sunland Park í Nýju Mexíkó hefur viðurkennt að hafa verið drukkinn þegar hann skrifaði undir níu samninga við kalifornískt fyrirtæki, Synthesis. Nú hefur Synthesis lögsótt bæinn og krefur hann um eina milljón bandarískra dollara, eða um 116 milljónir íslenskra króna. Erlent 4.8.2011 23:15