Fótbolti
Margrét Lára: Ólýsanlega góð tilfinning að vera komin aftur á fullt Margrét Lára Viðarsdóttir er greinilega í sínu allra besta formi en hún skoraði bæði mörk Íslands í 2-1 sigri á Kína á Algarve Cup-mótinu í gær. Hún skoraði einnig í 2-1 sigri á Svíum á miðvikudag og átti þátt í sigurmarkinu þar að auki. Fótbolti 5.3.2011 10:00
Katrín jafnaði met Rúnars Katrín Jónsdóttir jafnaði í gær met Rúnars Kristinssonar er hún lék sinn 104. A-landsleik þegar Ísland vann Kína, 2-1, á Algarve Cup. Rúnar lék á sínum tíma jafn marga leiki með A-landsliði karla. Hún getur bætt metið þegar að Ísland mætir Danmörku á mánudaginn. Fótbolti 5.3.2011 08:00
Mourinho ómeiddur eftir hnífaárás Maður vopnaður hnífi er sagður hafa ráðist að Jose Mourinho, knattspyrnustjóra Real Madrid, á flugvelli á Spáni í síðustu viku. Fótbolti 4.3.2011 23:45
Spjaldaglaðasti dómari HM-sögunnar fyrirlesari hjá íslenskum dómurum Um helgina fer fram árleg landsdómararáðstefna sem er hluti af undirbúningi dómara fyrir komandi keppnistímabil í fótboltanum. Dómarar hafa verið við æfingar frá því 1. nóvember undir stjórn Egils Eiðssonar en auk þess hafa kennarar og nemendur úr Háskólanum í Reykjavík komið að undirbúningnum með einum eða öðrum hætti. Þetta kemur fram á heimasíðu KSÍ. Íslenski boltinn 4.3.2011 23:30
Dortmund enn á sigurbraut Michael Rensing átti stórleik í marki Köln í kvöld en náði þó ekki að koma í veg fyrir enn einn sigur Dortmund í þýsku úrvalsdeildinni. Fótbolti 4.3.2011 22:43
Liðsfélagi Gylfa hjá Hoffenheim má ekki mæta á æfingar Króatíski varnarmaðurinn Josip Simunic hjá Hoffenheim hefur fengið skýr fyrirmæli frá forráðamönnum félagsins að hann megi ekki lengur mæta á æfingar liðsins. Íslenski landsliðsmaðurinn Gylfi Þór Sigurðsson spilar einmitt með þýska liðinu. Fótbolti 4.3.2011 20:30
Sigurður Ragnar: Getum unnið öll lið á góðum degi Sigurður Ragnar Eyjólfsson var vitanlega hæstánægður með sína leikmenn eftir 2-1 sigur Íslands á Kína á Algarve Cup-mótinu í dag. Fótbolti 4.3.2011 18:26
Íslandi dugar jafntefli gegn Dönum Svíar unnu í dag 3-1 sigur á Dönum á Algarve Cup-mótinu í Portúgal. Þar með er ljóst að íslenska landsliðinu mun duga jafntefli gegn Dönum í lokaumferð B-riðils á mánudaginn til að komast í sjálfan úrslitaleik mótsins. Fótbolti 4.3.2011 18:15
Ancelotti búinn að ræða við Roma Fyrrum félagi Carlo Ancelotti hjá ítalska landsliðinu, Ruggerio Rizzitelli, heldur því fram í dag að Ancelotti sé þegar búinn að ræða við forráðamenn Roma um þann möguleika að taka við liðinu. Enski boltinn 4.3.2011 17:30
Margrét Lára með tvö mörk í glæsilegum sigri á Kína Margrét Lára Viðarsdóttir skoraði tvö mörk fyrir íslenska kvennalandsliðið sem vann 2-1 sigur á Kína í öðrum leik sínum í Algarve-bikarnum í Portúgal. Líkt og í sigrinum á Svíum á miðvikudaginn þá lenti íslenska liðið undir en kom til baka og tryggði sér frábæran sigur. Íslenski boltinn 4.3.2011 16:49
Carroll kostaði eina milljón árið 2009 Andy Carroll, framherji Liverpool, er dýrasti leikmaður Bretlandseyja en Liverpool keypti hann á 35 milljónir punda. Ef Liverpool hefði haft trú á honum fyrir einu og hálfu ári síðan hefði félagið sparað sér 34 milljónir punda. Enski boltinn 4.3.2011 16:45
Ronaldo gæti misst af Lyon-leiknum - frá í 10 til 15 daga Það voru skin og skúrir hjá Cristiano Ronaldo í 7-0 sigri Real Madrid á Malaga í spænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í gær. Ronaldo skoraði þrennu í leiknum en varð síðan að fara meiddur af velli. Fótbolti 4.3.2011 16:00
Ferguson ætlar að áfrýja Sir Alex Ferguson, stjóri Man. Utd, er allt annað en sáttur við kæru enska knattspyrnumsabandsins um óviðeigandi hegðun eftir leik liðsins gegn Chelsea. Enski boltinn 4.3.2011 15:30
Mancini: Mario hlustar ekkert á mig Roberto Mancini, stjóri Manchester City, er orðinn þreyttur á því að ná ekki til Mario Balotelli sem gengur illa að hlýða fyrirmælum hjá City alveg eins og var upp á teningnum undir stjórn Jose Mourinho hjá Inter Milan. Enski boltinn 4.3.2011 14:45
Wenger: Toure tók megrunartöflur eiginkonu sinnar Arsene Wenger, stjóri Arsenal, hefur greint frá því að það hafi verið megrunartöflur sem urðu þess valdandi að Kolo Toure, leikmaður Man. City, féll á lyfjaprófi. Enski boltinn 4.3.2011 14:15
Guðlaugs-áhrifin greinileg á gengi Hibernian Guðlaugur Victor Pálsson hefur slegið í gegn með skoska liðinu Hibernian en hann kom þangað frá Liverpool í janúarglugganum. Þórður Már Sigfússon á fótbolti.net hefur tekið saman ótrúlega breytingu á gengi Hibs-liðsins síðan að íslenski 21 árs landsliðsmaðurinn mætti á staðinn. Enski boltinn 4.3.2011 13:30
Samir Nasri: Miklu meiri karlmennska í Arsenaliðinu í ár Samir Nasri er sannfærður um að Arsenal geti slegið Barcelona út úr Meistaradeildinni í næstu viku en liðin mætast þá í seinni leiknum á Nou Camp. Arsenal vann fyrri leikinn 2-1 eftir að hafa lent 1-0 undir. Fótbolti 4.3.2011 13:00
Cantona: Karatesparkið var hápunkturinn á ferlinum Eric Cantona er einn dáðasti leikmaður allra tíma hjá stuðningsmönnum Manchester United og afrek hans á fótboltavellinum voru stórkostleg. Cantona gerði einnig margt sem var frekar vafasamt og þar má nefna árás hans á stuðningsmann Crystal Palace árið 1995. Cantona fékk langt keppnisbann í kjölfarið en hann segist ekki sjá eftir neinu og hinn litríki persónuleiki segir að "karatesparkið“ sé einn af hápunktum hans á ferlinum. Enski boltinn 4.3.2011 12:15
Litlar líkur á að Bale verði með í seinni leiknum við AC Milan Tottenham-menn eru nánast búnir að gefa upp alla von að Gareth Bale verði með í seinni leiknum á móti ítalska liðinu AC Milan í sextán liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Bale hefur ekki spilað síðan að hann fór meiddur af velli eftir níu mínútur í leik á móti Newcastle United í janúar. Fótbolti 4.3.2011 11:30
Sigurður Ragnar gerir þrjár breytingar fyrir Kínaleikinn Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari, hefur tilkynnt byrjunarliðið sem mætir Kínverjum í Algarve-bikarnum í dag en hann gerir þrjár breytingar á liðinu sem vann 2-1 sigur á Svíum í fyrsta leiknum á miðvikudaginn. Íslenski boltinn 4.3.2011 10:15
Sir Alex Ferguson neitar núna að tala við MUTV Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester United, er þekktur fyrir að loka á fjölmiðla ef hann er ekki ánægður með umfjöllun þeirra en nú hefur hann stigið einu skrefi lengra og neitað að fara í viðtöl hjá MUTV, sjónvarpsstöð Manchester United. Enski boltinn 4.3.2011 09:30
Robinho og Ronaldinho ekki í brasilíska landsliðinu Robinho hefur misst sæti sitt í brasilíska landsliðinu en landsliðsþjálfarinn Mano Menezes valdi í dag hópinn sem mætir Skotlandi í vináttulandsleik síðar í mánuðinum. Fótbolti 4.3.2011 08:00
Carrick hjá United til 2014 Michael Carrick framlengdi í gær samning sinn við Manchester United til loka tímabilsins 2014. Enski boltinn 4.3.2011 07:00
Smalling komin í bann hjá lúxushóteli í London Chris Smalling, varnarmaður Man. Utd, ákvað að drekkja sorgum sínum eftir tapið gegn Chelsea með stæl. Hann hélt rándýrt partý á hóteli í London. Enski boltinn 3.3.2011 23:30
Real Madrid slátraði Malaga Cristiano Ronaldo skoraði þrennu er Real Madrid fór hamförum gegn Malaga í spænsku úrvalsdeildinni í kvöld og vann 7-0 sigur. Fótbolti 3.3.2011 22:50
Beckham byrjaður að spila með Galaxy á nýjan leik David Beckham klæddist treyju LA Galaxy á nýjan leik í nótt þegar Galaxy mætti mexíkóska liðinu með stutta nafniðm Xoloitzcuintles de Caliente, í vináttuleik. Fótbolti 3.3.2011 20:30
Kolo Toure féll á lyfjaprófi Kolo Toure hefur verið settur í keppnisbann eftir að hann féll á lyfjaprófi. Þetta var tilkynnt á heimasíðu Manchester City í dag. Enski boltinn 3.3.2011 19:37
Matthías farinn frá Colchester Matthías Vilhjálmsson hefur verið kallaður aftur heim af FH-ingum eftir því sem fram kemur á heimasíðu félagsins. Íslenski boltinn 3.3.2011 19:33
Newcastle vill fá Riise Svo gæti farið að Norðmaðurinn John Arne Riise verði kominn aftur í enska boltann á næstu leiktíð. Enski boltinn 3.3.2011 19:15
Formaður Víkings: Nokkrar ástæður fyrir þessu Björn Einarsson, formaður knattspyrnudeildar Víkings, vildi ekki tilgreina með nákvæmum hætti þær ástæður sem lágu að baki þeirrar ákvörðunar að reka Leif Garðarsson, þjálfara meistaraflokks karla. Íslenski boltinn 3.3.2011 18:47