Kosningar 2013

Fréttamynd

Sjálfstæðisflokkurinn hefur baráttuna

Meðfylgjandi myndir voru teknar á fundi forystu Sjálfstæðisflokksins sem fram fór á Hilton Nordica síðustu helgi þar sem kosningabaráttu flokksins var ýtt úr vör. Þar kynntu Bjarni Benediktsson formaður flokksins og Hanna Birna varaformaður áherslur Sjálfstæðisflokksins fyrir fimm hundruð félagsmönnum.

Lífið
Fréttamynd

Hús minna drauma varð hús martraða

"Tilhugsunin að borga með sér út úr húsinu eftir að hafa tapað öllu í því, það bara kom ekki til greina að borga eina krónu með húsinu," segir júdóþjálfarinn Ódi Waage.

Innlent
Fréttamynd

Bullandi óánægja innan Sjálfstæðisflokksins

Fjölmennt var á fundi Sjálfstæðra Evrópusinna í húsnæði Sterkara Íslands við Síðumúla í Reykjavík í dag. Mikil óánægja er meðal ESB-sinna innan sjálfstæðisflokks eftir að Landsfundur flokksins ályktaði að hætta eigi viðræðum um aðild að ESB.

Innlent
Fréttamynd

Telur samstarf við Sjálfstæðisflokkinn ósennilegt

Varaformaður Samfylkingarinnar telur stjórnarsamstarf við Sjálfstæðisflokkinn ósennilegt ef flokkurinn gerir skýlausa kröfu um að aðildarviðræðum við ESB verði ekki haldið áfram nema að lokinni sérstakri þjóðaratkvæðagreiðslu. Hún segir samstarf til miðju og vinstri vera fyrsta valkost að loknum kosningum.

Innlent
Fréttamynd

Vill klára málið eftir kosningar

Árni Páll Árnason leggur til að hluti stjórnarskrárfrumvarpsins verði kláraður nú og að það verði síðan verkefni næsta þings að klára málið.

Innlent
Fréttamynd

Illugi óánægður með fylgislækkun Sjálfstæðisflokksins

"Ég er auðvitað ekkert ánægður með það að Sjálfstæðisflokkurinn skuli lækka í fylgi,“ segir Illugi Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Ný könnun sem birtist í morgun bendir til þess að Sjálfstæðisflokkurinn sé einungis með 29% fylgi. Framsóknarflokkurinn sé með 26,1% fylgi en aðrir flokkar með minna.

Innlent
Fréttamynd

Sigmundur Davíð: Raunhæfur möguleiki á að hafa veruleg áhrif

"Ég vona að þetta sé tilkomið vegna þess að fólk hefur trú á við náum árangri og getum gert hlutina vel,“ segir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, en flokkurinn er mælast með 26,1 prósent í könnun Fréttablaðsins sem birtist í dag.

Innlent
Fréttamynd

Fylgi Sjálfstæðisflokksins dalar

Stuðningur við Sjálfstæðisflokkinn mælist minni í kjölfar landsfundar en í lok janúar. Framsóknarflokkurinn þarf lítið að bæta sig til að verða stærsti flokkurinn. Fylgi Bjartrar framtíðar hrynur milli skoðanakannana. Vinstri græn virðast heldur vera að ná vopnum sínum.

Innlent
Fréttamynd

Skilin hafa skerpst í afstöðu til viðræðna

Að loknum landsfundum um helgina hafa þeir stjórnmálaflokkar sem notið hafa mests fylgis birt stefnu sína í Evrópumálum. Tveir vilja ljúka viðræðum um Evrópusambandsaðild og tveir stöðva þær. Línur virðast dregnar í stjórnarmyndun.

Innlent
Fréttamynd

Besta gengi Bjarna í formannskjöri

Bjarni Benediktsson var endurkjörinn formaður Sjálfstæðisflokksins með 79 prósentum atkvæða á landsfundi. Hanna Birna Kristjánsdóttir er nýr varaformaður. Umdeild tillaga um að hætta viðræðum við Evrópusambandið samþykkt. Flokksmenn deildu um verðtrygging

Innlent
Fréttamynd

Lækka skatta og afnema höftin

41. landsfundur Sjálfstæðisflokksins vill losa þjóðina undan gjaldeyrishöftum, lækka skatta og hætta aðildarviðræðum við ESB. Ályktun þess efnis var samþykkt á fundinum sem lauk í Laugardalshöll í dag.

Innlent
Fréttamynd

VG vill ljúka aðildarviðræðum

Landsfundur Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs samþykkti í dag ályktun þess efnis að ljúka skuli aðildarviðræðum við Evrópusambandið. Setja á ákvörðunina um aðild í hendur þjóðarinnar með þjóðaratkvæðagreiðslu.

Innlent
Fréttamynd

Utanríkisstefna VG til umræðu

Landsfundur Vinstri grænna heldur áfram í dag. Það helsta sem liggur fyrir fundinum er kosning í flokksráð og niðurstöður hópastarfs og afgreiðsla ályktana.

Innlent
Fréttamynd

Íslandi betur borgið utan ESB

Landsfundur Sjálfstæðisflokksins telur að hagsmunum Íslands sé betur borgið með því að standa fyrir utan Evrópusambandið. Í drögum að ályktun landsfundar um utanríkismál kemur fram að gera skuli hlé á aðildarviðræðunum við sambandið og þær ekki hafnar að nýju nema það verði samþykkt í þjóðaratkvæðagreiðslu.

Innlent
Fréttamynd

Krónan líklegust til að verða að bitbeini

Fertugasti og fyrsti landsfundur Sjálfstæðisflokksins hefst í dag og stendur í fjóra daga. Fyrir fram er líklegast talið að gjaldmiðilsmál verði málefnið sem hvað harðast verði tekist á um. Ekki er vitað til þess að formaðurinn fái mótframboð.

Innlent
Fréttamynd

RÚV ritstýrir flokkakynningum

"Við treystum RÚV til að ritstýra og framleiða efnið og gera öllum jöfn skil,“ segir Björgvin G. Sigurðsson, formaður allsherjar- og menningarmálanefndar Alþingis, um tillögu nefndarinnar um tilhögun kynninga í sjónvarpi á framboðum fyrir kosningar.

Innlent
Fréttamynd

Fái ókeypis útsendingar í RÚV

Nefnd fulltrúa þingflokka vill að framboðslistar fái ókeypis útsendingartíma hjá Ríkisútvarpinu. Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu gagnrýndi árið 2009 að rótgrónir flokkar gátu útilokað nýja frá kynningu í sjónvarpi.

Innlent
Fréttamynd

Íslendingar mega aldrei sætta sig við yfirgang

Sigmundur Davíð gerði deiluna í Icesave-málinu að umtalsefni á flokksþingi Framsóknarflokksins í Gullhömrum í Grafarvogi í dag. "Íslendingar eru, og verða vonandi alltaf, herlaus þjóð. En við sættum okkur ekki við yfirgang. Við heyjum baráttu okkar á grundvelli laga og réttar, vegna þess að við vitum að með lögum skal land byggja. Við megum aldrei láta undan ofríki sama hversu mikið ofurefli kann að vera við að etja,“ sagði Sigmundur Davíð.

Innlent
Fréttamynd

Flokksþing Framsóknarflokksins hefst á morgun

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Framsóknarflokksins flytur setningarræðu sína á flokksþingi flokksins klukkan 14 á morgun en flokksþingið hefst í Gullhömrum í Grafarvogi og stendur til sunnudags.

Innlent
Fréttamynd

Fylgi Framsóknarflokks rýkur upp

Framsóknarflokkurinn sækir verulega í sig veðrið í kjölfar dóms í Icesave-málinu, samkvæmt nýrri skoðanakönnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2. Stuðningur við Samfylkinguna hefur hrunið á tveimur vikum.

Innlent
Fréttamynd

Icesave skýrir fylgismun milli kannana

Icesave málið skýrir fylgismun á stjórnmálaflokkunum milli kannana. Þetta kom fram í máli formanna stjórnmálaflokkanna þegar fréttastofa ræddi við þá í dag.

Innlent