Kosningar 2013

Fréttamynd

Þetta sagði Bjarni Ben í viðtalinu

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, ætlar að tilkynna það hvort að hann ætli að hætta sem formaður flokksins í dag eða um helgina. Í þættinum forystusætinu á RÚV í gærkvöldi sagði hann að hann væri að íhuga stöðu sína alvarlega.

Innlent
Fréttamynd

Bjarni finnur fyrir stuðningi

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, segist hafa fengið mjög mikinn stuðning og hvatningu um að halda áfram eftir að hann tilkynnti í gær að hann íhugaði að segja af sér og hvort betra væri fyrir flokkinn að Hanna Birna Kristjánsdóttir tæki við.

Innlent
Fréttamynd

Fjöldi nýliða á þingi

Einungis fjórtán þingmenn af 63 sem sátu á Alþingi fyrir bankahrunið árið 2008 myndu sitja á þingi eftir kosningar 27. apríl næstkomandi verði niðurstöður kosninganna í takti við niðurstöður skoðanakannana sem hafa birst að undanförnu.

Innlent
Fréttamynd

Bjarni Ben íhugar afsögn

"Ég er bara mannlegur," sagði Bjarni Benediktsson í viðtali á RÚV í kvöld þar sem hann tilkynnti að hann íhugaði að segja af sér sem formaður flokksins. Tíðindin koma í kjölfar könnunar Viðskiptablaðsins sem sýndi að flokkurinn nyti mun meira fylgis tæki varaformaður flokksins, Hanna Birna Kristjánsdóttir, við stjórnartaumunum.

Innlent
Fréttamynd

Um helmingur er fylgjandi könnunum á kjördag

Um helmingur er fylgjandi en um fjórðungur landsmanna andvígur birtingu skoðanakannana á kjördag og daginn fyrir kjördag, samkvæmt niðurstöðum skoðanakönnunar MMR sem gerð var dagana 5-8 apríl.

Innlent
Fréttamynd

Hugflæðiráðunautur og smiðjukarl á lista Regnbogans

Regnbogalistinn hefur verið að kynna framboðslista sína í kjördæmum landsins undanfarið, en nú liggur fyrir listi fyrir Suðurkjördæmið. Þar er Bjarni Harðarson bóksali í fyrsta sæti en hann er meðal þeirra sem stofnaði flokkinn.

Innlent
Fréttamynd

Hanna Birna myndi stórauka fylgi Sjálfstæðisflokksins

Um helmingur þeirra sem ætla að kjósa Framsóknarflokkinn í komandi kosningum myndi kjósa Sjálfstæðisflokkinn ef Hanna Birna Kristjánsdóttir væri formaður flokksins. Þetta eru niðurstöður könnunar sem MMR vann fyrir Viðskiptablaðið.

Innlent
Fréttamynd

Fjórtán nýir Framsóknarþingmenn

Framsóknarmenn fá 23 þingmenn á Alþingi ef kannanir síðustu vikna ganga eftir eða fjórtán fleiri en í síðustu kosningum. MMR lagði saman niðurstöður tveggja síðustu fylgiskannana og skipti niðurstöðunum niður eftir kjördæmum fyrir Fréttastofu Stöðvar 2.

Innlent
Fréttamynd

Skorar á formennina

Sigurjón M. Egilsson, þáttastjórnandi á Bylgjunni segir þá Árna Pál Árnason, formann Samfylkingarinnar, og Sigmund Davíð Gunnlaugsson, formann Framsóknarflokksins, mega fá útvarpsþáttinn Sprengisand til afnota í kappræður á sunnudag.

Innlent
Fréttamynd

Árni Páll ítrekar áskorun sína til Sigmundar

Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar, ítrekar áskorun sína til Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, formanns Framsóknarflokksins, um kappræður þeirra í milli. Sigmundur Davíð og Framsóknarmenn hafa lagt fram hugmyndir um niðurfærslu skulda heimila á kostnað kröfuhafa föllnu bankanna.

Innlent
Fréttamynd

Framsókn styrkir stöðu sína

Enn styrkir Framsóknarflokkurinn stöðu sína, samkvæmt nýrri könnun Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands fyrir Morgunblaðið.

Innlent
Fréttamynd

Rúmlega 1400 kosið utankjörfundar

1420 manns hafa kosið utankjörfundar í komandi alþingiskosningum á landinu öllu, frá því atkvæðagreiðslan hófst 2. mars síðastliðinn og fram til dagsins í dag. Eru það ívíð fleiri atkvæði en höfðu borist á sama tíma fyrir fjórum árum síðan.

Innlent
Fréttamynd

Framboðin fjórtán þurfa yfir 20.000 meðmælendur

Alls þurfa um 23 þúsund kjósendur, tæpur tíundi hver einstaklingur á kjörskrá, að skrá sig sem meðmælanda framboðslista til þess að öll framboð til komandi þingkosninga nái markmiðum sínum. Ellefu þeirra stefna að framboði í öllum sex kjördæmum, tvö í báðum Reykjavíkurkjördæmum og eitt framboð í öðru Reykjavíkurkjördæminu.

Innlent
Fréttamynd

Lúðrasveit og grillaðar pulsur - getur ekki klikkað

Björt framtíð kynnti kosningaáherslur sínar og opnaði kosningamiðstöð á Hverfisgötu 98 í góða veðrinu á sunnudag. Fullt var út úr dyrum, boðið var upp á grillaðar pylsur og Lúðrasveit verkalýðsins mætti á svæðið og tók nokkur lög við mikinn fögnuð viðstaddra — og þá sérstaklega barnanna sem sýndu túbunni mikinn áhuga.

Lífið
Fréttamynd

Flestir styðja Framsóknarflokkinn

Framsóknarflokkurinn fær 32% og er langstærsti stjórnmálaflokkurinn, samkvæmt könnun sem Reykjavík síðdegis á Bylgjunni lagði fyrir hlustendur Bylgjunnar og lesendur Vísis. Könnunin var ekki gerð með slembiúrtaki úr þjóðskrá, eins og kannanir Capacent Gallup, Fréttablaðsins og Stöðvar 2 og kannanir MMR, heldur gátu allir sem fóru inn á Vísi svarað spurningunni. 12.728 manns svöruðu spurningunni um það hverja þeir myndu kjósa í næstu Alþingiskosningum. Einungis var hægt að skrá eitt svar úr hverri tölvu.

Innlent
Fréttamynd

Hver sagði að kosningabaráttan væri óspennandi?

Meðfylgjandi myndir voru teknar þegar Sjálfstæðisflokkurinn opnaði kosningaskrifstofur um alla Reykjavíkurborg síðustu helgi. Eins og sjá má var margt var um manninn og er óhætt að segja að gleði og samstaða ríki innan hópsins.

Lífið
Fréttamynd

Fundaði með danska forsætisráðherranum

„Sköpun starfa er algjört lykilatriði,“ segir Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar, en hann átti í dag fund með Helle Thorning-Schmidt, forsætisráðherra Danmerkur.

Innlent
Fréttamynd

Gagnsæi er lykillinn að fulltrúalýðræði

Smári McCarthy segir fylgisaukingu Pírata vera viðbúna og býst við að fá fulltrúa á þing. Þeir leggi áherslu á gagnsæi og aðgang almennings að upplýsingum, sem sé grunnurinn að fulltrúalýðræði og þátttöku almennings.

Innlent
Fréttamynd

"Finnst kennitalan ónýt og ekki hjálpar til hvað ég er feit"

"Mér finnst það skipta máli hvað ég er orðin gömul, mér finnst til dæmis kennitalan mín vera ónýt. Og ekki hjálpar til hvað ég er feit. Ég fer í blóðprufur reglulega og er rosalega hraust - það er ekkert að mér,“ segir María Líndal Jóhannsdóttir, fimmtíu og tveggja ára atvinnulaus þriggja barna móðir í Reykjanesbæ.

Innlent
Fréttamynd

Svona segist Sigmundur Davíð ætla að efna kosningaloforðið

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins segist viss um að höfuðstóll skulda almennings lækki eftir að gerðir verði samningar við kröfuhafa gömlu bankana. Segir hann að heildfjármagnið sé svo mikið, hagsmunir kröfuhafana um að losna út séu svo miklir og að tæki ríkisins um að knýja fram nýja samninga séu svo sterk.

Innlent
Fréttamynd

Katrín Jakobs: Átök á erfiðu kjörtímabili

Katrín Jakobsdóttir formaður VG segist bjartsýn á að flokkurinn eigi eftir að ná vopnum sínum að nýju fram að kosningum. Hún segir erfiðar ákvarðanir á síðasta kjörtímabili og átök innan flokksins skýra fylgistap flokksins.

Innlent