Loftgæði

Ekki meiri bílaumferð
Upphafsatriði áramótaskaupsins var merkileg staðfesting á því hve umferðarmál höfuðborgarsvæðisins eru hugleikin landsmönnum. Ömurlegar samgöngur sungu okkar ástkærustu leikarar á meðan myndskot af götum borgarinnar stapp fullum af bílum runnu yfir skjáinn.

Þurftu að halda börnum inni vegna mengunar
Mengun hefur fjölmörgum sinnum farið yfir heilsuverndarmörk í dag og hefur mengunarský legið yfir borginni.

Árshámarki náð í dag þegar mengun fór yfir klukkustundarheilsuverndarmörk
Vegna stillu og frosts hefur styrkur köfnunardíoxíðs mælst hár í Reykjavík á dögunum. Núna síðdegis fór styrkurinn yfir klukkustundarheilsuverndarmörk í átjánda sinn á árinu. Samkvæmt reglugerð frá umhverfisráðuneytinu má aðeins fara yfir þessi mörk átján sinnum á ári.

Vantar reglugerð svo hægt sé að sporna af alvöru við útblæstri
Mengunarský er nú yfir Reykjavík og loftgæði sums staðar talin óholl. Heilbrigðisfulltrúi hjá Heilbrigðiseftirliti borgarinnar segir að reglugerð skorti svo hægt sé að grípa til róttækari aðgerða til að sporna gegn útblæstri.

Mengunarský yfir Reykjavík og fólk minnt á Strætó
Styrkur köfnunarefnisdíoxíðs mælist mjög hár í borginni í dag samkvæmt mælingum í mælistöðinni við Grensásveg. Klukkan eitt var klukkutímagildi köfnunarefnisdíoxíðs við Grensásveg 246,2 míkrógrömm á rúmmetra og var styrkurinn einnig yfir 200 míkrógrömmum klukkan ellefu og tólf.

Sinna fræðslu um skaðsemi flugelda óháð hvað björgunarsveitir selja
Forstjóri Umhverfisstofnunar segir stofnunina eiga að sinna fræðsluhlutverki varðandi loftgæði vegna flugelda. Formaður Landsbjargar segir herferð stofnunarinnar nú fyrir áramót hafa komið aftan að björgunarsveitunum og niður á flugeldasölu.

Vilja fækka flugeldum
Áramótin nálgast og eftir að samkomubönn settu strik í reikninginn síðastliðin tvenn áramót eru engin slík fyrir hendi í dag. Landsmenn geta því tekið aftur upp hefðir sem ef til vill var búið að slaufa.

Það þarf ekki alltaf að vera bíll
Byrjum þetta á léttu nótunum. Ímyndum okkur að ný matvara sé kynnt til leiks, gómsæt og seðjandi sem allt fólk þráir að prófa. Við getum ímyndað okkur að um sé að ræða nýja tegund af íspinna. Framleiðendur hans lofa neytendum ennfremur að hann auki hamingju og frelsistilfinningu.

Söguleg skýring á óheppilegri staðsetningu hausaþurrkunar Samherja
Fyrir liggur að staðsetning hausaþurrkunar Samherja á Dalvík er óheppileg og krefjandi vegna nálægðar við íbúðarbyggð. Sögulegar skýringar eru á staðsetningunni. Samherji hefur tekið ráðstafanir til að minnka lykt frá þurrkuninni.

Vill ekki leyfa sveitarfélögum að rukka ökumenn á nagladekkjum
Samgönguráðherra segir ekki standa til að veita sveitarfélögum heimild til að hefja gjaldtöku á þá sem nota nagladekk líkt og Umhverfisstofnun vill. Skiptar skoðanir eru á hugmyndum um gjaldtöku og segir ráðherra að gæta þurfi hófs í viðbrögðum.

Firra að „nagladekkjalöggur“ ætli að skattleggja sjálfsögð öryggistæki
Bæjarstjóri Ölfuss segir hugmyndir um að sveitarfélög fái heimild til að leggja gjald á notendur nagladekkja fráleitar. Hann segir nagladekk öryggisatriði og því sé firra að leggja öryggisskatt á íbúa utan höfuðborgarsvæðisins. Hann hefur enga trú á því að hugmyndirnar verði að veruleika.

Umhverfisstofnun leggur til gjaldtöku vegna nagladekkja
Umhverfisstofnun vinnur nú að því að uppfæra áætlun um loftgæði en meðal breytinga er að lagt verður til að sveitarfélög fái heimild til að leggja gjald á notkun nagladekkja.

Sandstormur og slæm loftgæði víða á Suðurlandi
Mistur sem er yfir höfuðborgarsvæðinu og víðar á Suðurlandi hefur vakið athygli margra. Þorsteinn Jóhannsson, sérfræðingur í loftgæðamálum hjá Umhverfisstofnun, segir um að ræða sandstorm eða jarðvegsfok.

Geti kallað á aðkomu lögreglu að fara með börn að gosinu
Umboðsmaður barna ítrekar að foreldrar eigi að gæta velferðar og öryggis barna sinna í tilefni barnabanns Lögreglustjórans á Suðurnesjum. Börn yngri en tólf ára gömul mega ekki ganga að gosstöðvunum í Meradölum.