Háskólar

Útskriftarnemar HR fara loksins á sína fyrstu árshátíð áður en skólagöngu þeirra lýkur
Það ríkir mikil gleði hjá nemendum Háskólans í Reykjavík um þessar mundir þar sem þeir eru loksins að halda árshátíð eftir þriggja ára bið. Veisluhöldin eru þeim án efa kærkomin en fyrir tveimur árum var árshátíðinni aflýst degi fyrir viðburðinn vegna Covid. Blaðamaður hafði samband við Alexander Ágúst, formann stúdentafélags HR, og tók púlsinn á honum.

Skyggnast inn í heim hugvíkkandi efna
Rannsakendur við sálfræðideild Háskóla Íslands feta ótroðnar slóðir og kortleggja nú notkun landsmanna á hugvíkkandi efnum. Þúsundir erlendra rannsókna og fræðigreina hafa verið skrifaðar úti í heimi um notkun hugvíkkandi efna í meðferðarskyni en rannsakendurnir segja þetta umfjöllunarefni enn vera á jaðrinum hér á landi.

Náttúrufræðingar segja stjórnvöldum að hysja upp um sig buxurnar
Félag íslenskra náttúrufræðinga (FÍN) skorar á Alþingi, stjórnvöld, rektor Landbúnaðarháskóla Íslands og skólameistara Fjölbrautaskóla Suðurlands að „hysja upp um sig buxurnar“ og ganga frá yfirflutningum Garðyrkjuskólans að Reykjum í Ölfusi svo sómi sé að.

Fagna ákvörðun ríkisstjórnarinnar eftir mikið vatnstjón: „Þetta lýsir því bara hvað aðstæður eru óviðunandi“
Tjón í húsnæði Listaháskóla Íslands í Þverholti virðist minna en á horfðist í fyrstu þegar mikill vatnsleki kom þar upp í gær. Ríkisstjórnin samþykkti í gær að vinna að húsnæðismálum háskólans og flutning þess í Tollhúsið. Eektor segir það löngu tímabært og hlakkar til að glæða miðbæinn lífi aftur.

„Megum ekki láta það gerast að garðyrkjunám á Íslandi líði undir lok“
Þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi gagnrýnir stjórnvöld harðlega fyrir að hafa ekki búið betur að málum þegar Garðyrkjuskólinn á Reykjum var skilinn frá Landbúnaðarháskólanum og færður undir Fjölbrautarskóla Suðurlands. Hann segir stjórnvöld hafa leyft skólanum að verða hornreka í íslensku menntakerfi.

Bein útsending: Framtíð líftækni á Íslandi
Alvotech og Háskóli Íslands standa fyrir þriðja fundinum í fyrirlestraröðinni „Framtíð nýsköpunar“ milli klukkan 14 og 16 í dag. Fundurinn fer fram í Hátíðasal Háskóla Íslands og verður hægt að fylgjast með honum í streymi í spilara að neðan.

Sagði „nauðgunarher“ vera á leið til samnemanda
Áfrýjunarnefnd í kærumálum háskólanema hefur staðfest ákvörðun sviðsstjóra Heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands um að víkja nemanda við sálfræðideild skólans úr skólanum að fullu eftir að hann hafði sent samnemanda skilaboð sem metin voru „óforsvaranleg“, „ógnandi“ og „til þess [fallin] að valda [ótta].“

Rebekka Karlsdóttir nýr forseti Stúdentaráðs Háskóla Íslands
Rebekka Karlsdóttir var í kvöld kjörin nýr forseti Stúdentaráðs Háskóla Íslands. Í kvöld voru einnig kjörnir fulltrúar á réttindaskrifstofa SHÍ en réttindaskrifstofan og nýkjörið Stúdentaráð taka formlega til starfa undir lok maí.

Hvar er stuðningurinn?
Íbúalistinn fór vítt og breitt um dreifbýli Ölfuss laugardaginn 7. apríl, hitti fólk og heimsótti bæði fyrirtæki og stofnanir. Það var aðdáunarvert að verða vitni að þeim krafti og eldmóði sem einkenndi allt fólkið sem við hittum. Það stakk þó mjög í augu ástandið í Garðyrkjuskólanum á Reykjum sem tilheyrir vissulega Sveitarfélaginu Ölfusi.

Sex hundar, tveir kettir og fleiri dýr búa í fjölbýlishúsi á Eggertsgötu
Í fjölbýli á Eggertsgötu búa að minnsta kosti sex hundar og tveir kettir. Þeir búa með eigendum sínum á háskólasvæðinu sem hafa tengst vináttuböndum vegna dýranna.

Stúdentar fagna stóru skrefi en segja enn áskoranir til staðar
Háskóla-, vísinda- og nýsköpunarráðherra samþykkti nýjar úthlutunarreglur hjá Menntasjóði námsmanna fyrir næsta skólaár um mánaðarmótin en þar er kveðið á um átján prósent hækkun á grunnframfærslu. Forseti Stúdentaráðs Háskóla Íslands og varaforseti Sambands íslenskra nemenda erlendis fagna breytingunni og segja að um stórt skref sé að ræða þó baráttu stúdenta sé hvergi nærri lokið.

Hólmfríður nýr rektor á Hólum
Hólmfríður Sverrisdóttir hefur verið skipuð rektor Háskólans á Hólum frá og með 1. júní 2022. Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, ráðherra háskóla, iðnaðar og nýsköpunar, tilkynnti skipun nýs rektors á starfsmannafundi Háskólans á Hólum í dag.

Ný mathöll opnar við Háskóla Íslands
Háskólanemar munu njóta góðs af uppbyggingu í Vatnsmýrinni og geta bráðlega heimsótt þar veitingastaði, kaffihús og vínbar í nýrri mathöll sem opnar í maí.

Stefán Hrafn hættur hjá Landspítalanum og kominn til HR
Stefán Hrafn Hagalín hefur látið af störfum hjá Reykjavíkurborg eftir stutt stopp á velferðarsviði borgarinnar og ráðið sig til starfa sem forstöðumaður samskipta og markaðsmála hjá Háskólanum í Reykjavík. Hann hætti hjá Landspítalanum í febrúar.

Röskva vann aftur stórsigur en missir einn fulltrúa
Röskva, samtök félagshyggjufólks við Háskóla Íslands, tryggði sér fimmtán fulltrúa af sautján í kosningum til Stúdentaráðs Háskóla Íslands en úrslitin voru tilkynnt í kvöld. Vaka – hagsmunafélag stúdenta, bætir við sig einum fulltrúa milli ára.

Tvöfalda íbúafjölda Bifrastar með flóttamönnum frá Úkraínu
Íbúafjöldi á háskólasvæðinu við Bifröst gæti tvöfaldast á næstu vikum þegar háskólinn tekur á móti flóttafólki frá Úkraínu. Nokkur vinna þarf að fara fram fyrir móttökuna og leitar skólinn nú að sjálfboðaliðum til að leggja hönd á plóg.

Stöðvum stöðnun háskólans
Í dag fara kosningar til Stúdenta- og Háskólaráðs Háskóla Íslands fram á Uglu. Á listum Vöku er fólk sem er tilbúið til þess að berjast fyrir framförum innan sem utan háskólans.

Furðar sig á öryggisleiðbeiningum sem eru einungis á ensku
Prófessor emeritus í íslenskri málfræði furðar sig á því að lífsnauðsynlegar upplýsingar við hlið nýs hjartastuðtækis í Háskóla Íslands séu einungis á ensku en ekki íslensku.

„Kæri stúdent, bíttu á jaxlinn, þetta verður betra"
Þó svo að mörg fagni styttingu framhaldsskólans standa nýstúdentar á verkfræði- og náttúruvísindasviði sem tóku styttra stúdentspróf höllum fæti. Stytting framhaldsskólans gerir nemendum á framhaldsskólaaldri erfitt fyrir að taka meiri undirbúning fyrir nám í háskóla.

Sameining háskólasamfélagsins
Þann 22. desember síðastliðinn undirrituðu ríkið og Félagsstofnun stúdenta samning um kaup á Bændahöllinni sem héðan í frá verður nýtt fyrir starfsemi Háskóla Íslands og stúdentaíbúðir. Um er að ræða mikið fagnaðarefni enda hafa fulltrúar Röskvu í Stúdentaráði beitt sér fyrir því að þessi kaup verði að veruleika.

Tæplega sextíu manns nú þegar í lyfjameðferð eftir blóðskimunarátak
Á fjórða þúsund manns hefur greinst með forstig mergæxlis í íslenskri rannsókn. Evrópska rannsóknarráðið hefur ákveðið að styrkja verkefnið um nærri þrjú hundruð millljónir króna til að hægt sé að halda því áfram.

Vikið úr Háskóla Íslands eftir að hafa sent samnemanda ógnandi skilaboð
Kærunefnd jafnréttismála hefur úrskurðað að Háskóli Íslands hafi ekki gerst sekur um brot á lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna þegar nemenda við skólann var vikið úr skólanum eftir að sá hafði sent samnemanda ógnandi tölvupóstsskilaboð.

Röskva kynnir framboðslistana
Framboðslistar Röskvu - samtaka félagshyggjufólks við Háskóla Íslands, vegna kosninga til Stúdentaráðs og háskólaráðs Háskóla Íslands voru kynntir í kvöld. Kosningar fara fram 23. og 24. mars næstkomandi.

Bergsveinn telur rektor hafa brugðist fræðasamfélaginu
Bergsveinn Birgisson rithöfundur hefur sent frá sér yfirlýsingu sem snýr að máli hans er varða ásakanir á hendur Ásgeiri Jónssyni seðlabankastjóra; að hann hafi fengið eitt og annað að láni við ritun Eyjunnar hans Ingólfs úr bók Bergsveins Leitinni að svarta víkingnum. Málið allt er nú strand.

Yfirlýsing vegna ritstuldar úr Leitinni að svarta víkingnum
Snemma í desember síðasta árs las ég bók dr. Ásgeirs Jónssonar, Eyjan hans Ingólfs. Sá ég þar tilgátur og túlkanir úr minni eigin bók, Leitin að svarta víkingnum, settar fram án þess að mín eða minnar bókar væri getið.

Fráfarandi siðanefnd HÍ telur rektor hafa gert afdrifarík mistök
Henry Alexander Henrysson, Sólveig Anna Bóasdóttir og Skúli Skúlason sem skipuðu siðanefnd Háskóla Íslands þá sem sagði af sér nýverið gagnrýna Jón Atla Benediktsson rektor harðlega vegna afskipta hans og ákvarðana sem þau þrjú telja í hæsta máta vafasamar.

Um afsögn Siðanefndar Háskóla Íslands
Eins og komið hefur fram í fjölmiðlum sagði Siðanefnd Háskóla Íslands af sér 10. febrúar 2022. Í afsagnarbréfi sem sent var á lokaðan hóp aðila var tekið fram að siðanefndin myndi ekki tjá sig frekar til að skaða ekki framgang máls 2021/4 hjá nefndinni, en það mál hefur verið rekið í fjölmiðlum.

Bein útsending: Læsi er lykill að menntun
Ráðstefna um mikilvægi læsis og lesskilnings fyrir menntun og möguleika fólks til þátttöku í samfélaginu fer fram í Skriðu, fyrirlestrarsal Menntavísindasviðs Háskóla Íslands í Stakkahlíð klukkan 15 í dag. Ráðstefnan stendur í þrjár klukkustundir og verður streymt á Vísi.

Er læsi lykill að menntun?
Læsi er ekki eingöngu grundvöllur menntunar heldur einnig lýðræðis og félagslegs réttlætis. Læsi má skilja víðum skilningi, s.s. textalæsi, miðlalæsi og tilfinningalæsi. Rannsóknir sýna að kunnátta og færni til að skilja prentaðan texta og tjá sig í rituðu máli skipti miklu og stuðli að farsælli skólagöngu og samfélagsþátttöku.

Kári segir ákvörðun rektors í siðanefndarmáli herfileg mistök
Kári Stefánsson forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar telur það mikil mistök af hálfu Jóns Atla Benediktssonar háskólarektors að telja úr vegi að siðanefnd HÍ fjalli um kæru Bergsveins Birgissonar á hendur Ásgeiri Jónssyni seðlabankastjóra.