
Ástin á götunni

Sigurður Bjartur líklega á förum frá KR
Það virðast ætla að verða frekari breytingar á leikmannahópi KR áður en tímabilið í Bestu deild karla í knattspyrnu hefst.

Telur sig eiga inni pening hjá KA og stefnir félaginu
Arnar Grétarsson, þjálfari Vals í Bestu deild karla, hefur stefnt fyrrverandi vinnuveitanda sínum KA vegna vangoldinna bónusgreiðslna. Málið verður tekið fyrir 1. mars næstkomandi í Héraðsdómi Norðurlands eystra.

Hætti í stjórn KSÍ og er nú aðstoðarþjálfari 2. deildarliðs
Fyrrum landsliðsmaðurinn Ívar Ingimarsson hefur ákveðið að fara í nýjar og frekar óvæntar áttir.

Vel undirbúinn Þorvaldur horfir fram veginn
Þorvaldur Örlygsson var í dag kjörinn formaður Knattspyrnusambands Íslands á ársþingi sambandsins sem haldið var í Framheimilinu. Tvær umferðir þurfti til að skera úr um sigurvegara kosninganna.

Máni meðal þeirra sem komst í stjórn KSÍ
Kosið var í stjórn Knattspyrnusambands Íslands, KSÍ, á 78. ársþingi sambandsins í dag. Alls voru sjö karlmenn sem buðu sig fram en eins og áður hefur verið greint frá var engin kvenmaður sem bauð sig fram.

Þorvaldur Örlygsson nýr formaður Knattspyrnusambands Íslands
Þorvaldur Örlygsson var nú rétt í þessu kosinn formaður KSÍ, Knattspyrnusambands Íslands, en hann hafði betur gegn Guðna Bergssyni og Vigni Má Þormóðssyni í formannskjörinu.

Leikmenn verða ekki launþegar og fá ekki fjögurra vikna frí
Leikmannasamtök Íslands fengu hugmyndum sínum ekki framfylgt á 78. ársþingi KSÍ. Tillögu um launþegasamninga leikmanna var vísað frá og tillaga um sumarfrí var felld með afgerandi hætti.

Adam Ægir tryggði Valsmönnum sigur eftir að hafa lent undir
Valur og Fram áttust við á N1 vellinum við Hlíðarenda í Lengjubikarnum í dag. Eftir að hafa lent undir tókst Valsmönnum að snúa lukkunni sér í vil og unnu leikinn að endingu 2-1.

Samdi fleiri lög með Haaland: „Þetta er banger“
Norðmaðurinn Erik Tobias Sandberg er nýjasti leikmaður ÍA á Akranesi sem leikur í deild þeirra bestu í sumar. Sandberg kom fyrir tilstuðlan Arnórs Smárasonar en hann á athyglisverða sögu að baki.

Vanda kveður: „Munaði hársbreidd að FIFA tæki yfir starfsemi KSÍ“
Á morgun, laugardag, fer ársþing Knattspyrnusambands Íslands fram. Þar mun Vanda Sigurgeirsdóttir láta af störfum sem formaður sambandsins.

Breiðablik og Breiðablik með örugga sigra í kvöld
Karla- og kvennalið unnu leiki kvöldsins í Lengjubikarnum í fótbolta örugglega.

Aron Jó framlengir á Hlíðarenda
Knattspyrnumaðurinn Aron Jóhannsson hefur framlengt samning sinn við Val og mun því spila með liðinu í Bestu deild karla í knattspyrnu næstu árin.

Gylfi Þór aftur orðaður við Val
Knattspyrnumaðurinn Gylfi Þór Sigurðsson er aftur orðaður við Val. Hann er um þessar mundir án samnings.

Tveir landsliðsmenn taka við þjálfun ÍBU
Þjálfaraskipti í 4. deild í knattspyrnu rata alla jafna ekki í fjölmiðla en fréttir af þjálfarateymi ÍBU, Íþróttabandslags Uppsveita, hafa vakið töluverða athygli enda er teymið hokið af reynslu og öllum hnútum kunnugir í landsliðsmálum.

Íslenskir dómarar lærðu á VAR í Stockley Park
Þrátt fyrir að myndbandsdómgæsla (e. VAR) sé ekki notuð í leikjum á Íslandsmótinu í fótbolta, að minnsta kosti ekki enn, þá hafa íslenskir dómarar verið að læra tökin á henni.

Konur hverfa úr forystu KSÍ og aðeins karlar í framboði
Nú er orðið ljóst að þrjár konur sem verið hafa í fararbroddi Knattspyrnusambands Íslands síðustu ár munu kveðja sambandið í þessum mánuði.

Vara við að sumarfrí valdi tekjumissi frá veðmálum
Tillaga Leikmannasamtaka Íslands um að knattspyrnufólk á Íslandi fái sumarfrí ár hvert virðist falla í nokkuð grýttan jarðveg hjá nefndum Knattspyrnusambands Íslands. Það er meðal annars talið valda tekjumissi vegna veðmálaréttinda.

„Sem betur fer er hún minn helsti stuðningsmaður“
Fótboltamaðurinn Gísli Eyjólfsson hefur yfirgefið uppeldisfélagið Breiðablik og freistar gæfunnar í atvinnumennsku með Halmstad í Svíþjóð. Hann þakkar unnustunni traustið og segir verkefnið tikka í öll box.

Tveir tvítugir tryggðu Fjölni sigur gegn HK
Lengjudeildarlið Fjölnis vann góðan sigur á liði HK í Lengjubikarnum í dag.

Leggja til sumarfrí í íslenskum fótbolta
Stjórn Leikmannasamtaka Íslands leggur til að á ársþingi KSÍ verði samþykkt að innleitt verði sumerhlé á keppnistímabili í Íslandsmóti mestaraflokka í knattspyrnu á Íslandi.

Afar ólíkar tillögur KSÍ og ÍTF um kjörgengi
Ljóst er að stjórn KSÍ (Knattspyrnusambands Íslands) er á öndverðum meiði við stjórn ÍTF (Íslensks toppfótbolta) hvað varðar kjörgengi stjórnarmanna KSÍ. Tvær ólíkar tillögur liggja fyrir ársþingi KSÍ sem fram fer eftir rúmar tvær vikur.

„Ætla ekki að vera inni á skrifstofu KSÍ milli níu og fimm alla daga“
Vignir Már Þormóðsson, sem hefur yfir að skipa mikilli reynslu af störfum innan knattspyrnuhreyfingarinnar, hefur ákveðið að bjóða sig fram til formanns KSÍ á komandi ársþingi sambandsins.

Að nálgast fertugt en tekur slaginn með Blikum
Þrátt fyrir að hafa orðið 38 ára gamall á dögunum hefur Arnór Sveinn Aðalsteinsson ákveðið að taka slaginn með Breiðabliki í Bestu deild karla í knattspyrnu á komandi leiktíð.

Þróttur sækir tvær á Selfoss
Kristrún Rut Antonsdóttir og Íris Una Þórðardóttir munu leika með Þrótti Reykjavík í Bestu deild kvenna í knattspyrnu. Þær koma báðar frá Selfossi sem féll úr deildinni á síðasta ári.

Ósátt við ÍSÍ: „Kaldar kveðjur“
Yfirmaður knattspyrnusviðs KSÍ gagnrýnir úthlutun úr Afrekssjóði ÍSÍ. KSÍ hefur ekki fengið úthlutað úr sjóðnum á sjöunda ár.

Lætur bæjaryfirvöld á Ísafirði fá það óþvegið
Formaður meistaraflokksráðs Vestra í fótbolta, Samúel Samúelsson - betur þekktur sem Sammi, er heldur betur ósáttur með bæjaryfirvöld á Ísafirði þessa dagana. Lét hann gamminn geysa á Facebook-síðu sinni.

Þróttur sækir leikmann sem hefur áður spilað hér á landi
Þróttur Reykjavík hefur samið við Caroline Murray um að spila með liðinu í Bestu deild kvenna í knattspyrnu á næstu leiktíð. Hún þekkir ágætlega til á Íslandi eftir að hafa leikið hér á landi sumarið 2017.

Valur hafnaði tilboði Breiðabliks í Aron Jó
Þrátt fyrir miklar breytingar á þjálfarateymi og leikmannahóp þá er Breiðablik stórhuga fyrir komandi tímabil í Bestu deild karla. Liðið bauð í Aron Jóhannsson, leikmann Vals, en tilboðinu var hafnað.

Valsmenn fóru létt með Fylki í Lengjubikarnum
Valsmenn fóru vel af stað í fyrstu umferð Lengjubikarsins í kvöld þegar þeir völtuðu yfir Fylki, 4-0.

Minntu á opnunartíma skrifstofunnar svo KR gæti skilað bikarnum
Víkingur og KR mættust í úrslitaleik Reykjavíkurmótsins í gær þar sem KR-ingar göfnuðu sigri eftir vítaspyrnukeppni. Víkingum var þó dæmdur sigurinn þar sem KR-ingar notuðu ólöglegan leikmann.