
Aðstandendur og íbúar fara fram á 162 milljónir króna bætur
Aðstandendur þeirra sem létust í brunanum á Bræðraborgarstíg 1 sumarið 2020 og aðrir fyrrverandi íbúar hússins hafa farið fram á bætur upp á 162 milljónir króna.

Hafa selt mikinn meirihluta eigna HD verks eftir brunann
Hæstiréttur hefur staðfest úrskurð Landsréttar þess efnis að sýslumanni beri að gera kyrrsetningu hjá HD verki ehf, í tengslum við skaðabótakröfur vegna brunans sem varð þegar Bræðraborgarstígur 1 brann síðasta sumar. Félagið hefur selt stóran hluta eignasafns síns.

Fara í hvert einasta atvinnuhúsnæði og kortleggja búsetu fólks
Fulltrúar slökkviliðs munu á næstu mánuðum fara í hvert einasta atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu og kortleggja búsetu fólks. Ráðist er í verkefnið í kjölfar brunans á Bræðraborgarstíg og slökkviliðsstjóri segir markmiðið að tryggja öryggi þeirra sem búa í slíku húsnæði.

Bein útsending: Á vakt fyrir Ísland
Í dag og á morgun fer fram málþingið „Á vakt fyrir Ísland“, sem Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna stendur fyrir. Á dagskrá eru ýmis erindi sem tengjast störfum slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna og umfjöllun um nokkur af stærri verkefnum þeirra síðasta ár.

Segir Marek sitja heilan heilsu inni á geðdeild
Lögmaður mannsins sem dæmdur var til að sæta öryggisvistun vegna brunans á Bræðraborgarstíg síðasta sumar segir hann sæta ómannúðlegri meðferð á réttargeðdeild. Sótt hefur verið um leyfi til að áfrýja dómi héraðsdóms til Landsréttar.

Ætla að búa saman í Nornahúsi einungis ætluðu konum á besta aldri
Fimm vinkonur ætla að búa saman í svokölluðu Nornahúsi sem mun rísa í stað hússins sem brann á Bræðraborgarstíg í fyrra. 25 íbúðir verða í húsinu og geta því fleiri bæst í hópinn en íbúðirnar verða einungis seldar konum yfir sextugt.

Vilja fjarlægja minningu um hörmulega atburði og reisa eitthvað fallegt
Framkvæmdir við að rífa brunarústirnar að Bræðraborgarstíg 1 í vesturbæ Reykjavíkur hófust í dag. Húsið brann seint í júnímánuði á síðasta ári með þeim afleiðingum að þrjú létu lífið. Talsmaður nýrra eigenda hússins segir vonir standa til að hægt verði að klára niðurrif hratt og vel.

Marek dæmdur til að sæta öryggisvistun vegna brunans á Bræðraborgarstíg
Marek Moszczynski, pólskur karlmaður á sjötugsaldri, var sýknaður af kröfu um refsingu fyrir að hafa orðið þremur að bana í bruna á Bræðraborgarstíg í júní í fyrra. Marek var metinn ósakhæfur og verður gert að sæta öryggisvistun. Dómur var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjavíkur rétt í þessu.

Dómur í Bræðraborgarstígsmálinu kveðinn upp í dag og húsið rifið fyrir 17. júní
Stefnt er að því að niðurrifi og hreinsun á brunarústunum við Bræðraborgarstíg 1 verði lokið fyrir 17. júní næstkomandi. Dómur yfir Marek Moszczynski, sem ákærður er fyrir manndráp og manndrápstilraun með því að kveikja í húsinu, verður kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag.

Segir átakanlegt að horfa daglega á persónulegar eigur hinna látnu
Íbúi sem býr á móti húsinu að Bræðraborgarstíg sem brann fyrir tæpu ári síðan segist afar ósáttur við að húsið standi enn með öllu innbúi. Hún segir átakanlegt að horfa á persónulegar eigur hinna látnu og gagnrýnir að svæðið sé ekki þrifið.

„Gæti ekki verið sennilegra að hann hafi bara verið reykingamaður?“
Stefán Karl Kristjánsson, verjandi Mareks Moszczynski, pólsks karlmanns á sjötugsaldri, segir saksóknara í málinu ekki hafa sannað að Marek hafi kveikt í húsi við Bræðraborgarstíg 1 í fyrrasumar. Það eitt hafi verið sannað fyrir dómi og það er að Marek hafi glímt við andleg veikindi í aðdraganda og kjölfar brunans.

Krafa um ævilangt fangelsi eða vistun á öryggisgeðdeild
Kolbrún Benediktsdóttir varahéraðssaksóknari fer fram á að Marek Moszczynski verði dæmdur í ævilangt fangelsi fyrir að verða valdur að dauða þriggja í eldsvoða við Bræðraborgarstíg í júní í fyrra.

Lokavitni, myndband og málflutningur á lokadegi
Síðasti dagur aðalmeðferðar í máli ákæruvaldsins gegn Marek Moszczynski, pólskum karlmanni á sjötugsaldri, er í dag. Marek er ákærður fyrir brennu, manndráp og tilraun til manndráps. Þrír fórust í brunanum að Bræðraborgastígi 1 í fyrrasumar. Hann hefur neitað sök og hefur jafnframt verið metinn ósakhæfur.

Krefjast kyrrsetningar eigna eiganda hússins við Bræðraborgarstíg
Lögmaður aðstandenda þeirra sem létust í brunanum við Bræðraborgarstíg hefur krafist þess að eignir eiganda hússins verði kyrrsettar til tryggingar fullnustu bótakrafna umbjóðenda sinna.

Síðasta degi aðalmeðferðar frestað
Síðasta degi aðalmeðferðar í máli ákæruvaldsins gegn Marek Moszczynski, pólskum karlmanni á sjötugsaldri sem ákærður er fyrir að hafa banað þremur með íkveikju að Bræðraborgarstíg í fyrrasumar, hefur verið frestað fram í næstu viku.

Gjörbreyttur eftir áfallið á spítalanum
Marek Moszczynski, pólskur karlmaður sem ákærður er fyrir að hafa orðið þremur að bana með íkveikju að Bræðraborgarstíg 1 í fyrrasumar, taldi sig vera með illkynja krabbamein þegar bruninn varð. Geðlæknar telja líklegt að áfallið við þær fréttir hafi komið andlegum veikindum hans af stað.

Komst út á hnjánum vafinn í sæng og svo haldið sofandi í mánuð
Íbúi að Bræðraborgarstíg 1, sem brann til kaldra kola síðdegis 25. júní, var tvo mánuði á sjúkrahúsi og þar af haldið sofandi í mánuð eftir brunann. Hann þurfti að gangast undir húðágræðslu vegna brunasára. Þá lýsti hann því að þegar var byrjað að skíðloga í húsinu þegar hann áttaði sig á því að kviknað væri í.

Hélt á kveikjara þegar hann var handtekinn við rússneska sendiráðið
Marek Moszczynski, sem ákærður er fyrir að hafa banað þremur með íkveikju við Bræðraborgarstíg í fyrrasumar, hélt á kveikjara þegar hann var handtekinn við rússneska sendiráðið skömmu eftir að kveikt var í húsinu þann 25. júní.

Hvarf inn í reykinn og sást ekki meir
Lögreglumenn sem voru með þeim fyrstu á vettvang brunans að Bræðraborgarstíg 1 í fyrrasumar lýsa algjöru „kaosástandi“. Fólk hafi legið í götunni eftir að hafa kastað sér út úr húsinu og ekki hafi verið unnt að hjálpa öllum; maður á þriðju hæð hafi til dæmis „horfið inn í reykinn“ og ekki sést meir.

Íslenska parið neitar því að hafa kveikt í húsinu
Íslenskt par sem bjó á fyrstu hæð hússins að Bræðraborgarstíg 1, sem brann til grunna síðasta sumar, neitar því að hafa átt þátt í íkveikjunni. Þau voru bæði heima þegar eldurinn kviknaði og lýsa skelfilegri atburðarás síðdegis 25. júní 2020.