Krafa um ævilangt fangelsi eða vistun á öryggisgeðdeild Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 5. maí 2021 12:10 Kolbrún Benediktsdóttir varahéraðssaksóknari sækir málið fyrir hönd embættisins. Vísir/Vilhelm Kolbrún Benediktsdóttir varahéraðssaksóknari fer fram á að Marek Moszczynski verði dæmdur í ævilangt fangelsi fyrir að verða valdur að dauða þriggja í eldsvoða við Bræðraborgarstíg í júní í fyrra.
Marek hefur verið metinn ósakhæfur og krafðist Kolbrún vistunar á öryggisgeðdeild féllist dómurinn á niðurstöðu geðlækna um ósakhæfi. Fjórði og síðasti dagur aðalmeðferðar í máli ákæruvaldsins gegn Marek Moszczynski, pólskum karlmanni á sjötugsaldri, fer fram í dag. Marek er ákærður fyrir brennu, manndráp og tilraun til manndráps. Marek er ákærður fyrir að hafa lagt eld að húsi við Bræðraborgarstíg 1 þann 25. júní síðastliðinn þar sem þrír fórust og fjórir slösuðust. Marek Moszczynski í dómsal í síðustu viku þegar aðalmeðferð málsins hófst.Vísir/vilhelm Dagurinn byrjaði á vitnisburði lögreglumanns sem tók þátt í rannsókn málsins. Stefán Karl Kristjánsson, verjandi Mareks, spurði hann hvers vegna íslenskt par, sem bjó á Bræðraborgarstíg 1, hafi ekki verið rannsakað nánar en fram kom í síðustu viku að það hafði keypt bensínbrúsa daginn fyrir brunann. Lögreglumaðurinn svaraði því til að myndbandsupptökur frá bensínstöðvum á höfuðborgarsvæðinu hafi verið rannsakaðar og þá sérstaklega kaup á bensínbrúsum. Það hafi hins vegar ekki leitt neitt. Gekk um miðbæinn í óeðlilegu ástandi Á myndbandsupptöku úr öryggismyndavélum sem sýnd var fyrir dómi sést Marek ganga um miðbæ Reykjavíkur og eiga í orðaskiptum við fólk á Austurstræti og haga sér ógnandi. Þetta var um klukkustund áður en eldur kviknaði á Bræðraborgarstíg. Þaðan gengur hann yfir Ingólfstorg og upp Vesturgötu þar sem hann á í orðaskiptum við mann sem situr á bekk. Marek virðist taka af honum mat og rétta honum peningaseðil í staðinn. Stefán Karl Kristjánsson er verjandi Mareks. Vísir/Vilhelm Á annarri myndbandsupptöku sem tekin er fyrir utan rússneska sendiráðið við Garðastræti, um 10 mínútum eftir að eldur kviknaði, sést Marek kasta af sér fötum sem hann kasta af sér fötum sem hann bar frá Bræðraborgarstíg á baki sínu. Þá sést hann kasta frá sér seðlaveski sínu og seðlum sem í því voru og dreifa um götuna. Þá tekur hann upp fána með mynd af Vladimír Pútín Rússlandsforseta, leggja hann niður á gangstéttina fyrir framan sendiráðið og kyssa myndina. Með kveikjara í annarri og sígarettupakka í hinni Einnig voru myndbandsupptökur úr búkmyndavélum lögreglumanna, sem handtóku Marek, sýndar þar sem hann sést berja þá með gúmmímottu. Stuttu síðar er hann færður í járn og sést á upptökunni að hann hélt á kveikjara í annarri hendi og sígarettupakka í hinni. Sjá má á upptökunni áverka sem lögreglumennirnir hlutu á handleggjum eftir mottuna og heyrist annar þeirra segja að hann sé með skrámu í andliti eftir atvikið. Í myndbandsefni sem tekið var í lögreglubílnum eftir að Marek var handtekinn heyrast lögreglumenn spyrja hann hvað hann heiti og hvar hann búi. Marek svaraði því að hann héti Dimitri og svaraði svo ekki meiru heldur söng á pólsku. Í málflutningi Kolbrúnar Benediktsdóttur, varahéraðssaksóknara, rakti hún tímalínu málsins ítarlega. Allt frá því að nágranni Mareks átti í orðaskiptum við hann og taldi hann haga sér undarlega og þar til nágranninn varð var við reyk í húsinu. Frá starfi slökkviliðs á vettvangi þann 25. júní í fyrra.Vísir/Vilhelm „Þegar maður horfir á þetta og rannsókn á eldinum og dreifingu hans er það mat sérfræðinga að það hafi liðið um tvær mínútur frá því að eldur er kveiktur og þar til hringt er í neyðarlínuna,“ sagði Kolbrún. Mesti óvissuþátturinn í málinu sé hvenær eldurinn sé kveiktur, hvar og hver hafi kveikt eldinn. Rannsóknargögn sýni það hins vegar að eldur hafi fyrst verið kveiktur í herbergi Mareks og á stigapalli á annarri hæð hússins. Sagðist hafa verið í góðu skapi en upptökur sýna annað Hún sagði fram hafa komið við framburð Mareks, sem hann gaf lögreglu 17. júlí eða rúmum þremur vikum eftir eldsvoðann, að hann myndi greinilega mjög skýrt eftir atburðum dagsins. Sá framburður stangist hins vegar á við það sem sjá megi á myndbandsupptökum sem náðust af honum í miðbæ Reykjavíkur fyrr um daginn. Þar sást hann eiga í orðaskiptum við aðila við Austurstræti þar sem hann kastaði til hlutum og virtist æstur. Sama mætti segja um framburð hans um það sem gerist fyrir utan rússneska sendiráðið þar sem hann segist hafa verið í góðu skapi en annað sjáist á upptökum þar sem hann virðist æstur og í uppnámi. Þá rakti Kolbrún framburð Mareks um það sem gerðist þennan dag, hann hafi ekki sagst muna hvort hann hafi komið heim þennan dag en eftir að nágrannakona hans hafi borið vitni um það hafi hann allt í einu munað eftir því að hafa hitt nágrannakonuna fyrir á Bræðraborgarstíg 1. Slökkviliðsmaður lýsti því við aðalmeðferðina í síðustu viku hvernig hann hefði horft á eftir íbúa í húsinu hverfa inn í eldinn og sjást ekki aftur.Vísir/Vilhelm Framburður Mareks komi ekki heim og saman við frásögn nágrannakonunnar. Hún hafi borið vitni um að hann hafi hagað sér undarlega og verið í uppnámi en hann hafi sagst hafa verið í góðu skapi. Þá benti saksóknari á að umræða um um eldvarnir skiptu ekki máli varðandi verknað Mareks. Hann hefði búið í húsinu við Bræðraborgarstíg svo mánuðum skipti og hann hafi vitað að þarna væri bara ein flóttaleið. Það kæmi honum ekki til varnar. Þá nefndi Kolbrún að ekkert benti til þess að hann hefði skipulagt brunann. Kolbrún velti sakhæfi Mareks fyrir sér í málflutningi sínum. Þótt ákæruvaldið gerði aðalkröfu um refsingu væri það hlutverk dómstóla að meta sakhæfi á þeim tíma sem atvikið átti sér stað. Það væri samdóma álit geðlækna að Marek hefði ekki verið viðstaddur á verknaðarstundu. Upptökur sýni vel ástandið sem var á honum þennan dag. Þá hafi ekki verið hægt að taka skýrslu af honum fyrr en rúmum þremur vikum eftir atburðinn.
Bruni á Bræðraborgarstíg Dómsmál Tengdar fréttir Lokavitni, myndband og málflutningur á lokadegi Síðasti dagur aðalmeðferðar í máli ákæruvaldsins gegn Marek Moszczynski, pólskum karlmanni á sjötugsaldri, er í dag. Marek er ákærður fyrir brennu, manndráp og tilraun til manndráps. Þrír fórust í brunanum að Bræðraborgastígi 1 í fyrrasumar. Hann hefur neitað sök og hefur jafnframt verið metinn ósakhæfur. 5. maí 2021 09:01 Krefjast kyrrsetningar eigna eiganda hússins við Bræðraborgarstíg Lögmaður aðstandenda þeirra sem létust í brunanum við Bræðraborgarstíg hefur krafist þess að eignir eiganda hússins verði kyrrsettar til tryggingar fullnustu bótakrafna umbjóðenda sinna. 3. maí 2021 06:48 Síðasta degi aðalmeðferðar frestað Síðasta degi aðalmeðferðar í máli ákæruvaldsins gegn Marek Moszczynski, pólskum karlmanni á sjötugsaldri sem ákærður er fyrir að hafa banað þremur með íkveikju að Bræðraborgarstíg í fyrrasumar, hefur verið frestað fram í næstu viku. 30. apríl 2021 10:35 Mest lesið Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Innlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Innlent Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent Fleiri fréttir Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Ítalski baróninn á ekki vatnið Tvö umferðarslys og þrír fluttir á sjúkrahús Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Skúmaskotum Mjóddarinnar fækkað í forvarnarskyni Segir flugeldasöluna ekki í hættu Tilkynning um kæru óskýr og Bandero fer ekki fet Mál sonar þingmannsins komið til héraðssaksóknara „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Bein útsending: Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm? Vill bæta eftirlit með lyfjagjöfum aldraðra Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Gríðarleg sjúkdómsbyrði meðal niðurstaðna Eftirsjá að Eggerti: „Lífið heldur áfram“ Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Dóttir Kolbrúnar skrifar undir harða viðvörun um leigubremsuna Árásir hófust áður en gallarnir voru lagfærðir Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Telur rök Háskólans á Akureyri ekki haldbær Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Breytingar í Mjódd til að bregðast við ofbeldi Þarf að leita annað eftir að hafa ekki fengið fangaklefa Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Vantar sex milljónir til að halda Edduna Guðmundur Ingi lét fjarlægja blett af fæti Kveður Víetnam og heldur áfram til Kína Seðlabankinn lagði Þorstein Má Fólk upplifi óttastjórnun hjá Reykjavíkurborg Sjá meira
Lokavitni, myndband og málflutningur á lokadegi Síðasti dagur aðalmeðferðar í máli ákæruvaldsins gegn Marek Moszczynski, pólskum karlmanni á sjötugsaldri, er í dag. Marek er ákærður fyrir brennu, manndráp og tilraun til manndráps. Þrír fórust í brunanum að Bræðraborgastígi 1 í fyrrasumar. Hann hefur neitað sök og hefur jafnframt verið metinn ósakhæfur. 5. maí 2021 09:01
Krefjast kyrrsetningar eigna eiganda hússins við Bræðraborgarstíg Lögmaður aðstandenda þeirra sem létust í brunanum við Bræðraborgarstíg hefur krafist þess að eignir eiganda hússins verði kyrrsettar til tryggingar fullnustu bótakrafna umbjóðenda sinna. 3. maí 2021 06:48
Síðasta degi aðalmeðferðar frestað Síðasta degi aðalmeðferðar í máli ákæruvaldsins gegn Marek Moszczynski, pólskum karlmanni á sjötugsaldri sem ákærður er fyrir að hafa banað þremur með íkveikju að Bræðraborgarstíg í fyrrasumar, hefur verið frestað fram í næstu viku. 30. apríl 2021 10:35