

Yfir 700 þúsund Róhingjar hafa lagt á flótta til Bangladess og lifa við erfiðar aðstæður. Íslensk kona sem starfaði í flóttamannabúðum skammt frá landamærunum segir aðstæður skelfilegar og óttast að þær muni versna nú þegar rigningatímabilið er gengið í garð.
Mannréttindasamtökin Amnesty International segja að sækja eigi foringja í her Myanmar til saka fyrir glæpi gegn mannkyninu.
Dómari í máli gegn Reuters-blaðamönnunum Wa Lone og Kyaw Soe Oo í Mjanmar sagðist í gær meta framburð lögreglustjórans Moe Yan Naing sem áreiðanlegan.
Yfirlýsing stjórnvalda í Mjanmar um að fimm manna Róhingjafjölskylda hafi snúið aftur heim til Rakhine-héraðs er fáránleg og farsi.
Stutt er síðan stjórnarher Búrma viðurkenndi fyrst að hermenn hans hefðu tekið þátt í morðum á þjóðernisminnihlutanum.
Ursula Mueller, aðstoðarframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna á sviði mannúðarmála, segir stjórnvöld í Mjanmar ekki reiðubúin til að taka á móti flóttafólki úr þjóðflokki Róhingja.
Undanfarið hálft ár hafa Róhingjar verið beittir ofbeldi í Rakhine-héraði Mjanmar og hefur mannréttindastjóri SÞ meðal annars notað hugtökin þjóðernishreinsanir og þjóðarmorð um aðgerðir hersins.
Ríflega 5.000 Róhingjar sem fastir eru á landsvæði sem liggur á milli Bangladess og Mjanmar, og hvorugt ríkið gerir tilkall til, fengu í gær heimsókn frá sendiboðum beggja ríkja.
Yfirvöld í Mjanmar ætla að refsa sjö hermönnum, þremur lögreglumönnun og sex almennum borgurum sem voru viðriðnir dráp á Róhingjum í Rakhine-héraði.
Sláandi umfjöllun blaðamanna Reuters um morð á tíu Róhingjum í Mjanmar leiðir til ákalls um alþjóðlega rannsókn á meintu þjóðarmorði. Tveir blaðamannanna voru sendir í fangelsi við vinnslu umfjöllunarinnar.
Mannréttindastofnun Sameinuðu þjóðanna kallaði í gær eftir því að Wa Lone og Kyaw Soe Oo, blaðamenn Reuters, yrðu leystir úr haldi.
Aung San Suu Kyi, leiðtogi Mjanmar og handhafi friðarverðlauna Nóbels, hvítþvær ríkisstjórn sína af þjóðernishreinsunum sem ríki hennar stundar á Róhingjum og hana skortir siðferðislega stjórnarhætti.
Rúmlega 600 þúsund Róhingjar hafa flúið til Bangladess frá því ofbeldi braust út í Rakhine-héraði í Mjanmar í ágúst.
Aung San Suu Kyi er sögð hafa neitað að ræða ásakanir um kerfisbundnar nauðganir á Rohingja-konum í landinu þegar sérstakur erindreki Sameinuðu þjóðanna hitti hana fyrr í desember.
Um 22 milljónir flóttamanna eru nú í heiminum og minntist Frans páfi þeirra í aðfangadagsmessu sinni.
Ríkisstjórn Bandaríkjanna tók í gær ákvörðun um að frysta eignir þrettán einstaklinga sem grunaðir eru um alvarleg mannréttindabrot og spillingu.
Læknar án landamæra telja að rúmlega 6700 Rohingya-múslimar hafi verið drepnir á einum mánuði í haust.
Mannréttindastjóri SÞ útilokar ekki að mjanmarski herinn fremji þjóðarmorð á Róhingjum. Fulltrúi Mjanmar í Mannréttindaráði hafnar því að herinn myrði almenna borgara úr þjóðflokknum. Unnið að heimkomu Róhingja til Rakhine.
Frans Páfi hitti flóttamenn í Bangladess. Hann nefndi heiti þjóðflokks Róhingja í fyrsta sinn í Asíureisu sinni. Áður gagnrýndur fyrir að forðast heitið á meðan hann var í Mjanmar, þaðan sem Róhingjar hafa flúið í hundraða þúsunda tali.
Frans páfi fundaði með leiðtoga Mjanmar í gær og hélt ræðu þar sem hann nefndi hinn ofsótta þjóðflokk Róhingja ekki á nafn. Á hann hafði verið skorað að nota nafnið en yfirvöld þar í landi segja Róhingja ólöglega innflytjendur
Til stendur að senda hundruð þúsunda flóttamanna aftur til Mjanmar frá Bangladess. Flóttamenn margir hverjir hræddir við að snúa aftur og mannréttindabaráttusamtök gagnrýna samkomulagið harðlega.
Utanríkisráðherra Bandaríkjanna útilokar hins vegar efnahagsþvinganir gegn stjórnvöldum í Búrma vegna ofsókna gegn rohingjamúslimum.
Leiðtogi Mjanmar heimsækir nú Rakhine-hérað í fyrsta sinn síðan átök brutust út á svæðinu í lok ágúst síðastliðinn.
Matvælaaðstoð Sameinuðu þjóðanna dró til baka skýrslu sem sýndi fram á hungursneyð á meðal Rohingjia-múslima í Rakhine-héraði í Myanmar, að kröfu stjórnvalda í landinu.
Af þessum 1,2 milljónum er bróðurparturinn Rohingjar sem flúið hafa ofsóknir í Rakhine-héraði nágrannaríkisins Mjanmar.
Að minnsta kosti 23 fórust og fjörutíu er saknað eftir að báti flóttafólks af þjóðflokki Rohingja hvolfdi við strandir Bangladess.
Yfirvöld í Mjanmar hafa frestað heimsókn diplómata Sameinuðu þjóðanna til Rakhine-héraðs. Frá þessu greindi talsmaður SÞ í Mjanmar í samtali við BBC í gær.
Aung San Suu Kyi, leiðtogi Mjanmar, hefur loksins tjáð sig um atburðina í Rakhine-héraði þar sem Sameinuðu þjóðirnar telja að nýverið hafi farið fram þjóðernishreinsanir á Rohingja-múslimum.
Aung San Suu Kyi, leiðtogi Mjanmar og friðarverðlaunahafi, sætir gagnrýni fyrir að fordæma ekki ofbeldi í garð Rohingja í landi sínu.