Erlent

Mjanmarskur hershöfðingi á svarta listann og eignir hans frystar

Þórgnýr Einar Albertsson skrifar
Rúm hálf milljón Róhingja hefur flúið til Bangladess.
Rúm hálf milljón Róhingja hefur flúið til Bangladess. Nordicphotos/AFP

Ríkisstjórn Bandaríkjanna tók í gær ákvörðun um að frysta eignir þrettán einstaklinga sem grunaðir eru um alvarleg mannréttindabrot og spillingu.

Einna mesta athygli vakti nafn mjanmarska hershöfðingjans Maung Maung Soe á listanum. Í tilkynningu frá bandaríska fjármálaráðuneytinu segir að Soe hafi haft yfirumsjón með aðgerðum hersins gegn Róhingjum í Rakhine-héraði. Hann beri ábyrgð á alvarlegum mannréttindabrotum gegn Róhingjum.

Bandaríkjamenn hafa áður sagt mjanmarska herinn standa að þjóðernishreinsunum á Róhingjum. Þeir drepi saklausa borgara og brenni bæi Róhingja til grunna. Því hafa mjanmörsk yfirvöld þó neitað.

Á meðal annarra sem fá sömu meðferð og Soe eru fyrrverandi Gambíuforsetinn Yahya Jammeh. Hann steig til hliðar fyrr á árinu og segir í tilkynningunni að hann eigi sér „langa sögu alvarlegra mannréttindabrota og spillingar“. Jammeh­ hafi stofnað hryðjuverka- og dauðasveitir sem hafi ráðist á þá sem hann taldi ógna valdi sínu.

Þá hafa eignir pakistanska skurðlæknisins Mukhtar Hamid Shah verið frystar. Læknirinn er sagður hafa framið mannrán, haldið fórnar­lömbum gegn vilja sínum, fjarlægt líffæri þeirra og selt á svörtum markaði.

Gulnara Karimova, dóttir úsbekska leiðtogans fyrrverandi, Islams Karimov, er einnig á listanum. Hún er sögð hafa verið í forsvari fyrir skipulögðum glæpasamtökum sem mútuðu og hótuðu kjörnum fulltrúum. Karimova hefur áður verið sakfelld fyrir þjófnað, fjárdrátt og skattsvik.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×