Innlent
FL Group íhugar olíuinnflutning Stærsti kaupandi eldsneytis á landinu íhugar að hefja innflutning sjálfur og hefur fest sér lóð fyrir birgðastöð. Forsvarsmenn FL Group útiloka ekki að hefja sölu á flugvélabensíni til annarra flugfélaga. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:08
Nýta sér forkaupsrétt í Mogganum Hluthafar í <em>Morgunblaðinu</em> hafa skrifað sig fyrir þeim hlut sem var til sölu í blaðinu og er því útlit fyrir að ekkert verði af sölu hans til hóps tengdum Íslandsbanka. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:08
Telur ÁTVR brjóta áfengislög Hróbjartur Jónatansson hæstaréttarlögmaður telur að séu niðurstöður nýfallins dóms Héraðsdóms Reykjavíkur um útstillingu og umfjöllun um tóbaks heimfærðar upp á áfengislöggjöfina megi draga þá ályktun að Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins brjóti þá löggjöf. Innlent 13.10.2005 19:08
Þjófur fúlsar við græjum Brotist var inn í og kveikt í bifreið í Höfðahverfi í Reykjavík aðfaranótt föstudags. Þjófurinn reif úr græjurnar og fúlsaði svo við þeim. Innlent 13.10.2005 19:08
Egg verður að vera boðið Það er ekki hægt að biðja einhvern um egg til frjóvgunar, það verður að vera boðið, segir Anna Þorvaldsdóttir, sem þarf á eggi frá annarri konu að halda til að geta eignast barn. Fjöldi eggjagjafa hefur aukist lítillega síðan tæknifrjóvgunarstofan Art Medica hóf að bjóða gjöfunum greiðslu, en biðlistarnir eru enn langir. Innlent 13.10.2005 19:08
Ofbeldi mótmælt á Akureyri Mótmæli gegn ofbeldi hefjast á Ráðhústorginu á Akureyri klukkan fimm í dag. En efnt var til mótmælanna í kjölfar hrottalegra líkamsárása sem orðið hafa í bænum að undanförnu og gefa bæjarbúar ofbeldismönnum rauða spjaldið. Innlent 13.10.2005 19:08
Vinna saman að tilboði í Símann Hópur fjárfesta vinnur nú að tilboði í Símann. Í hópnum eru Atorka Group, Frosti Bergsson, Jón Helgi Guðmundsson, Jón Snorrason og Sturla Snorrason. Hópurinn útilokar ekki samstarf við aðra, en í fréttatilkynningu frá þeim segir að fjárfestarnir hafi ekki starfað saman áður. Þeir vonast til að einkavæðingarferlið verði gagnsætt þannig að allir sitji við sama borð. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:08
Blásið á athugasemdir dómara Umfjöllun fjölmiðla kann að hafa þrýst á um að máli var áfrýjað. Hæstiréttur taldi mann ekki eiga sér málsbætur fyrir að berja eiginkonu sína. Héraðsdómur tók áður fram að hún hefði reitt hann til reiði. Innlent 13.10.2005 19:08
Tíu sveitarfélög undir eftirliti Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga hefur sent tíu sveitarfélögum boð um samning um fjárstyrk vegna fjárhagsvanda. Byggist þetta á reglum sem samþykktar voru í tengslum við sérstakt 200 milljóna króna framlag ríkisins í jöfnunarsjóð sveitarfélaga. Innlent 13.10.2005 19:08
Tók áminningu til baka Ólína Þorvarðardóttir, skólastjóri Menntaskólans á Ísafirði, segir dómssátt hafa náðst í máli sem komið var fyrir Héraðsdóm Vestfjarða, en enskukennari við skólann höfðaði mál gegn Menntaskólanum á Ísafirði. Enskukennarinn ítrekaði afsökunarbeiðni og í framhaldinu felldi Ólína áminningu úr gildi sem hún hafði veitt kennaranum vegna yfirferðar á prófum. Innlent 13.10.2005 19:08
Súrrealískt ástand Gríðarleg bjartsýni ríkir í Fjarðabyggð nú þegar framkvæmdirnar eru þar í fullum gangi en ástandið er auðvitað ekki "eðlilegt". Stríður straumur er af þungavinnuflutningum um bæinn á hverjum degi. Fasteignaviðskipti hafa aldrei við blómlegri og samkeppni er í matvöruverslun. Innlent 13.10.2005 19:08
Ekki lengra gengið í aðhaldi Háskólaráð og deildarforsetar við Háskóla Íslands telja að til þess að skólinn geti áfram staðið undir þeim kröfum og væntingum sem til hans séu gerðar verði ekki gengið lengra í aðhaldi og sparnaði. Þetta er meðal þess sem kemur fram í ályktun Háskóla Íslands vegna skýrslu Ríkisendurskoðunar um stofnunina. Innlent 13.10.2005 19:08
Keahótel reka Hótel Borg Keahótel og Hótel Borg undirrituðu í gær samning um að fyrrnefnda félagið taki við rekstri Hótel Borgar við Austurvöll. Ekki er um kaup á hótelinu að ræða heldur var gerður leigusamningur til næstu 15 ára. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Keahótelum. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:08
Ver hagsmuni sína í kjölfar dóms Eva Magnúsdóttir, upplýsingafulltrúi Símans, segir ljóst að Síminn muni verja hagsmuni sína í framhaldi af Hæstaréttardómi yfir þremur sakborningum í Landssímamálinu sem féll í gær. Lögfræðingar fyrirtækisins eru nú að kanna málið en eftir að dómur féll í héraðsdómi á síðasta ári segir hún grunn hafa verið lagðan að bótaskyldu. Innlent 13.10.2005 19:08
Friðargæsluliðar aldrei í fríi Friðargæsluliðar eru aldrei í fríi, segir Davíð Oddsson utanríkisráðherra, í tengslum við umræðu um tryggingarmál þeirra sem særðust í árásinni á Kjúklingastræti í Kabúl í fyrra. Innlent 13.10.2005 19:08
Annþór fékk 3 ára dóm Dómur féll í Hæstarétti í dag yfir Annþóri Kristjáni Karlssyni og Ólafi Valtý Rögnvaldssyni fyrir hrottalega árás á mann á heimili hans; hann var meðal annars barinn með kylfu svo að hann handleggsbrotnaði. Annþór fékk þriggja ára dóm, Ólafur tveggja ára dóm. Dómurinn tekur mið af löngum ofbeldisferli hinna dæmdu. Innlent 13.10.2005 19:08
Segja spurningum ekki svarað Fjárlaganefnd Alþingis ákvað á fundi sínum í gær að Sigurður Þórðarson ríkisendurskoðandi hefði ekki gefið fullnægjandi svör við spurningum nefndarmanna um einkavæðingu á Búnaðarbanka og Landsbanka á árunum 2002 til 2003. Því var fallist á að kalla framkvæmdanefnd um einkavæðingu, og fyrrum nefndarmenn hennar, á fund nefndarinnar að tíu dögum liðnum. Innlent 13.10.2005 19:08
Misræmi í vörugjöldum bifreiða Landvernd segir misræmi gilda í álagningu vörugjalda á bifreiðir þar sem álagning á pallbíla sé margfalt lægri en á aðra bíla sem standa fólki til boða til einkanota. Innlent 13.10.2005 19:08
Atvinnurekendur hafna frumvarpi Samtök atvinnulífsins telja að frumvarp menntamálaráðherra um Ríkisútvarpið brjóti bæði gegn samkeppnislögum og reglum Evrópska efnahagssvæðisins um ríkisstyrki. Það feli í sér óhóflega mismunun í skilyrðum til útvarpsrekstrar. Innlent 13.10.2005 19:08
Friðargæsluliðarnir fá ekki bætur Íslensku friðargæsluliðarnir, sem særðust í sprengjuárás í Kjúklingstræti í Kabúl í Afganistan í fyrra, fá ekki bætur frá Tryggingastofnun. Ástæðan er sú að þeir voru ekki í vinnunni þegar ráðist var á þá. Einn friðargæsluliðanna segist hafa talið sig vera í vinnunni alla dvölina. Innlent 13.10.2005 19:07
Greiðslubyrði af íbúðum hækkar "Greiðslubyrði af húsnæðislánum ætti að hækka miðað við spárnar og húseigendur munu finna fyrir því," segir Ingunn S. Þorsteinsdóttir, hagfræðingur Alþýðusambands Íslands, vegna spár efnahagsskrifstofu Fjármálaráðuneytisins um horfur í efnahagsmálum næstu misserin. Innlent 13.10.2005 19:07
Byggð á uppfyllingu í hættu Forstöðumaður á Siglingastofnun telur að byggð á uppfyllingum geti verið í hættu vegna hamfaraflóða eins og þess sem reið yfir Básenda árið 1799. Hann hélt fyrirlestur á ráðstefnu um áhrif sjóflóða í dag. Innlent 13.10.2005 19:08
Fjarri stefnu stofnunarinnar Sigurður Thorlacius, tryggingayfirlæknir hjá Tryggingastofnun ríkisins, segir það af og frá að starfsfólk hjá stofnuninni sé að ráðleggja öryrkjum að skilja til að fá hærri bætur. Innlent 13.10.2005 19:08
Viðskipti ferðamanna minnka um 10% Viðskipti erlendra ferðamanna á svonefndum Tax Free kjörum, þar sem virðisaukaskattur fæst endurgeiddur, minnkuðu um tíu prósent á fyrsta ársfjórðungi þrátt fyrir að erlendum ferðamönnum hafi fjölgað um tuttugu prósent á sama tímabili. Innlent 13.10.2005 19:07
Sauðfé fjölgar í Garðabæ Sauðfé hefur fækkað í Kópavogi og Hafnarfirði, en því hefur heldur fjölgað í Garðabæ og á Álftanesi, samkvæmt nýjustu tölum frá heilbrigðiseftirliti svæðisins. Ekki er þó hægt að segja að stórbúunum sé fyrir að fara á þessu svæði. Innlent 13.10.2005 19:07
Braust inn um glugga Brotist var inn í blokkaríbúð á Kleppsvegi aðfaranótt fimmtudags og þaðan stolið farsíma, skartgripum og lítilræði af peningum. Þjófurinn braust inn um glugga en hvarf á brott þegar húsráðendur urðu hans varir. Innlent 13.10.2005 19:08
Listaverk Dieters Roths komin Það þurfti fimm 40 feta gáma til þess að flytja hingað til lands listaverk listmálarans Dieters Roths sem verða sýnd á Listahátíð Reykjavíkur. Gámarnir sem um ræðir engin smásmíði og þegar flutningarnir stóðu sem hæst í morgun þurfti að loka hluta af Laufásvegi um tíma. Lífið 13.10.2005 19:08
Dómur í stórum málum Nú klukkan fjögur mun Hæstiréttur kveða upp dóma í tveimur af helstu málum undanfarinna missera hér á landi: annars vegar Landssímamálinu svokallaða og hins vegar Líkfundarmálinu. Innlent 28.4.2005 00:01
Dæmdur fyrir þjófnað og ofsaakstur 25 ára gamall maður var í Héraðsdómi Reykjavíkur á miðvikudag dæmdur í þriggja mánaða fangelsi, auk ökuleyfissviptingar í þrjá mánuði fyrir þjófnaði og ofsaakstur á undan lögreglu á síðasta ári. Innlent 13.10.2005 19:08
Skilorð fyrir að berja konu Maður fékk þriggja mánaða fangelsisdóm skilorðsbundinn í þrjú ár í Hæstarétti í gær fyrir árás á eiginkonu sína. Dómurinn er nær samhljóða fyrri dómi Héraðsdóms Reykjaness, en hann vakti mikið umtal því látið var að því liggja að konan hefði verið valdur að bræði mannsins, en hann sakaði hana um framhjáhald. Innlent 13.10.2005 19:08