Innlent
Utankjörfundakosningar fara vel af stað Ríkisstjórnin samþykkti á fundi í dag að veita fé í auglýsingar á utankjörfundaatkæðagreiðslu en nú hafa rúmlega 400 manns kosið utankjörfundar. Auk þess að veita fé til auglýsinga mun ríkið veita stjórnmálaflokkunum aðgang að kjörskrárstofni sveitarfélaga og styrkja sendiráð Íslands víðs vegar um heim í að senda fólki auglýsingar sem hvetja fólk sem býr erlendis til að kjósa. Innlent 5.5.2006 19:03
Neitar að hafa verið við stjórnvölinn Jónas Garðarsson, formaður Sjómannafélags Reykjavíkur, neitar því að hafa verið við stjórnvölinn þegar skemmtibátur hans Harpa steytti á skeri á Viðeyjarsundi. Jónas, sem er ákærður fyrir manndráp af gáleysi og brot á siglingalögum, segir Matthildi Harðardóttur hafa stýrt bátnum, en hún lést í slysinu. Innlent 5.5.2006 18:49
Spá 1,1 prósents verðbólgu í maí Greiningardeild Landsbankans spáir 1,1 prósents verðbólgu í endurskoðaðri verðbólguspá sinni fyrir maí. Fyrri spá deildarinnar hljóðaði upp á 0,8 prósenta hækkun. Nýr grunnur vísitölunnar hefur einnig áhrif til hækkunnar vísitölunnar. Viðskipti innlent 5.5.2006 17:07
Vestfirðir kynntir í Perlunni Sýningin Perlan Vestfirðir verður sett í Perlunni í dag. Á sýningunni verða kynntir möguleikar á sviði ferðaþjónustu, atvinnu- og mannlífs á Vestfjörðum. Innlent 5.5.2006 16:22
Eigið fé neikvætt hjá RÚV Eigið fé Ríkisútvarpsins (RÚV) var neikvætt um 186,2 milljónir í lok síðasta árs en það nam 10,2 milljónum við upphaf árs. Í ársuppgjöri RÚV fyrir síðasta ár segir að stofnunin standi á tímamótum. Stjórnvöld áformi að breyta því í hlutafélag um mitt þetta árið. Samhliða því verða eignastaða þess metin og eiginfjarstaðan bætt með framlagi úr ríkissjóði. Viðskipti innlent 5.5.2006 14:08
Rafstuðsólar geta gert hunda árásargjarna og sálsjúka Hundaólar með rafstuði, sem seldar eru í verslun í Reykjavík, geta gert hunda árásargjarna og sálsjúka, að sögn hundaatferlisfræðings. Hann vill að bannað verði með lögum að flytja ólarnar inn og selja þær. Innlent 5.5.2006 13:29
Ríkissjóður á 50 milljarða króna Ríkissjóður er orðinn svo vel stæður að hann á 50 milljarða króna á reikningi í Seðlabankanum, sem eru umfram það sem þarf til afborgana og vaxtagreiðslna. Bankinn á andvirði Símans þar að auki. Innlent 5.5.2006 13:15
73 breytingar á bensínverði árið 2005 Talsmenn Atlantsolíu telja víst að lækkun stóru olíufélaganna á bensíni í gær megi rekja til þess að Atlantsolía hafi ekki hækkað sitt verð upp á síðkastið, eins og stóru félögin. Benda þeir á að áður en félagið kom inn á markaðinn hafi stóru félögin aðeins endurskoðað verðlagningu á mánaðar fresti, en sjötíu og þrjár verðbreytingar hafi orðið hjá þeim á síðasta ári. Innlent 5.5.2006 15:33
Hálfur annar milljarður í nefndir Nefndir ráðuneytanna kostuðu ríkissjóð nær einn og hálfan milljarð króna á síðasta ári. Rúmlega helmingur þeirrar upphæðar er vegna starfa einkavæðingarnefndar. Innlent 5.5.2006 11:56
Segist ekki hafa verið við stýri Jónas Garðarsson, formaður Sjómannafélags Reykjavíkur, segist ekki hafa verið við stýrið þegar skemmtibátur hans steytti á skeri á Viðeyjarsundi, sem leiddi til dauða karls og konu. Málflutningur hófst í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Innlent 5.5.2006 11:52
Þrettán ráðnir fyrstir til starfa Fyrstu starfsmennirnir sem Flugmálastjórn Keflavíkurflugvallar ræður til að vinna við rekstur flugvallarins verða þrettán starfsmenn snjóhreinsunar- og brautadeildar. Vinna við samningagerð og ráðningar fer fljótt í fullan gang. Innlent 5.5.2006 10:57
Kögun tapaði 100 milljónum Kögun hf. og dótturfélög fyrirtækisins töpuðu 100 milljónum króna á fyrstu þremur mánuðum ársins. Þetta er 195 prósenta viðsnúningur frá síðasta ári þegar fyrirtækið skilaði 105 milljóna króna hagnaði. Tap Kögunar fyrir skatta nam 120 milljónum króna. Kögun hf. verður skráð úr Kauphöll Íslands gangi yfirtökutilboð Skoðunar ehf. í fyrirtækið eftir. Viðskipti innlent 5.5.2006 10:52
Fimm ölvaðir við akstur Lögreglan í Reykjavík stöðvaði 120 ökumenn upp úr miðnætti í nótt. Fimm þeirra reyndust vera undir áhrifum áfengis og þar af var einn réttindalaus. Auk þess voru tveir rétt undir leyfilegum mörkum og fengu ekki að halda áfram akstri í nótt, en verða hinsvegar ekki sektaðir. Innlent 5.5.2006 08:13
Sagðir stelast inn í lögsögu Skipstjórar á íslenskum frystitogurum halda því fram að erlendir togarar eigi það til að stelast inn fyrir 200 mílna fiskveiðilögsögumörk Íslands á Reykjaneshrygg þegar Landhelgisgæslan sér ekki til, en slíkt er landhelgisbrot. Innlent 5.5.2006 08:11
Fasteignaskattar hafa lækkað um 25% í Árborg Bæjarstjórn Árborgar hefur ákveðið að lækka fasteignaskatta úr núll komma 37 prósentum í núll komma þrjátíu. Þessi lækkun bætist ofan á lækkun sem ákveðin hafði verið í desember í fyrra. Samtals hafa fasteignaskattar því lækkað um 25 prósent í Árborg. Fasteignaskattar hafa lækkað víða á suðvesturhorninu í kjölfar gífurlegrar hækkunar á fasteignaverði enda eru skattarnir reiknaðir út frá fasteignamati. Innlent 5.5.2006 09:15
Einn og hálfur milljarður í nefndastörf Heildarkostnaður ríkissjóðs vegna nefndastarfa á vegum ráðuneyta nam nær einum og hálfum milljarði króna á síðasta ári. Tæplega helmingur þeirrar upphæðar er til kominn vegna starfa einkavæðingarnefndar. Innlent 5.5.2006 08:04
Taka við Keflavíkurflugvelli 1. júlí Íslendingar taka við rekstri Keflavíkurflugvallar 1. júlí næstkomandi. Lög í þessa veru voru samþykkt frá Alþingi í gærkvöldi. Það var þó ekki hægt fyrr en þingmenn voru þrisvar búnir að greiða atkvæði með afbrigðum svo hægt væri að flýta afgreiðslu frumvarpsins. Innlent 5.5.2006 08:02
Færri bjóða í lóðir en áður Boðnar voru tíu til fjórtán milljónir króna í hverja lóð í tíu lóða útboði Reykjavíkurborgar í lóðir í Úlfarsárdal, en tilboðin voru opnuð í gær. Alls bárust 143 tilboð í lóðirnar frá aðeins sautján bjóðendum. Innlent 5.5.2006 08:00
Vilja gagnsæi í starfskjörum þingmanna og ráðherra Samtök atvinnulífsins segja að ekki skapist sátt um starfskjör kjörinna fulltrúa ef þau verði áfram ógagnsæi og ákvörðuð á mörgum stöðum. Þau vilja að þingmenn og ráðherrar deili lífeyriskjörum með öðrum í landinu en miðað við núverandi stöðu geta lífeyriskjör ráðherra umfram almenna launþega eftir þrjú kjörtímabil verið ígildi yfir 100 milljóna króna starfslokagreiðslu. Innlent 4.5.2006 22:58
Deilt um skattbyrði í ljósi nýrra útreikninga Síðustu þrír fjármálaráðherrar Sjálfstæðisflokksins eru mestu skattpíningarráðherra Íslandssögunnar fyrir fólk með lágar tekjur og meðaltekjur, sagði Jóhanna Sigurðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar í umræðum á þingi í kvöld um skattbyrði. Fjármálaráðherra sakaði Samfylkinguna um hentistefnu í skattaumræðum og sagði vitlausar fullyrðingar um skattbyrði ekki verða réttari þótt fleiri endurtækju þær. Innlent 4.5.2006 22:53
Þyrlusveit gæslunnar varla tilbúin í haust Nær útilokað er að Landhelgisgæslan hafi til reiðu fjögurra þyrlna fullmannaða sveit í haust, þegar áætlað er að herþyrlur fari af landi brott. Það tekur til að mynda lágmark fjóra til fimm mánuði að þjálfa nýjan flugmann. Innlent 4.5.2006 19:24
Heimilt að samkeyra upplýsingar lögreglu og skattayfirvalda Vinnumálastofnun er heimilt að samkeyra upplýsingar stofnunarinnar með upplýsingum lögreglu, Útlendingastofnunar og skattayfirvalda, eftir að ný lög um atvinnuréttindi útlendinga hér á landi tóku gildi 1. maí. Þetta er heimilað til að unnt sé að athuga hvort atvinnurekendur fari að lögum við ráðningu erlendra starfsmanna. Innlent 4.5.2006 18:35
Óvissu um afdrif starfsmanna á Keflavíkurflugvelli aflétt Allir starfsmenn sem sagt hefur verið upp störfum á Keflavíkurflugvelli og heyra undir nýstofnaða Flugmálastjórn þar, geta fengið vinnu hjá hinni nýju stofnun. Geir h Haarde, utanríkisráðherra, segir stofnunina setta á laggirnar til bráðabyrgða en í framtíðinni muni starfsemin á Keflavíkurflugvelli heyra undir samgönguráðuneytið. Innlent 4.5.2006 17:47
Viðskiptabankarnir þola vel skell Davíð Oddsson, formaður bankastjórnar Seðlabankans, segir að staða viðskiptabankanna sé það sterk að þeir þoli áföll. Hann segir þá hins vegar verða að hægja á vexti sínum. Seðlabankastjóri gagnrýnir bankastarfsemi ríkisins í gegnum íbúðalánasjóð og segir stöðuna á húsnæðismarkaðnum óviðunandi. Innlent 4.5.2006 17:32
Segir yfirvöld þurfa standa vörð um erlent launafólk Starfsgreinafélag Austurlands gagnrýnir yfirvöld harðlega fyrir slæleg vinnubrögð lögreglu og annarra opinberra aðila með eftirliti á kaupum og kjörum erlends launafólks. Félagið kærði fyrirtæki á Austurlandi í október fyrir að ráða erlenda verkamenn sem skráðir voru ferðamenn í landinu. Innlent 4.5.2006 17:31
Dæmdur í tólf mánaða fangelsi fyrir rán í apóteki Karlmaður á þrítugsaldri var í dag dæmdur í tólf mánaða óskilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa framið rán í Árbæjarapóteki vopnaður hnífi í febrúar á síðasta ári. Það kemur til þyngingar dómsins að maðurinn rauf skilorð þegar atburðurinn átti sér stað. Innlent 4.5.2006 17:13
Skoruðu á þýsk stjórnvöld og KSÍ vegna vændis tengdu HM Fulltrúar kvennahreyfingarinnar á Íslandi afhentu í dag Knattspyrnusambandi Íslands áskorun vegna þess vændis og mansals sem fylgja mun heimsmeistarakeppninni í knattspyrnu í sumar. Það var formaður KSÍ sem tók við áskoruninni þar sem farið er fram á að sambandið mótmæli þeirri ofbeldisvæðingu sem felist í því að flytja tugþúsundir kvenna til Þýsklands frá Mið- og Austur-Evrópu til þess að stunda vændi á meðan HM fer fram. Innlent 4.5.2006 17:00
Minni innflutningur í apríl Vörur voru fluttar hingað til lands fyrir 27 milljarða króna í síðasta mánuði ef marka má bráðabirgðatölur um innheimtu virðisaukaskatts. Þetta kemur fram í Vefriti Fjármálaráðuneytisins í dag. Þetta er 6 milljörðum krónum minna en í mars. Viðskipti innlent 4.5.2006 16:53
Vilja skýrari reglur um hljóðmengun Íbúasamtök Laugardalshverfa, Grafarvogs og Þriðja hverfis hafa farið þess á leit við borgarstjórn Reykjavíkur að settar verði reglur um mat á áhrifum framkvæmda á lífsgæði íbúa. Innlent 4.5.2006 15:11
Sakar stjórnarandstöðu um verðbólguna Stjórnarandstæðingar sökuðu stjórnarliða um að flýja af hólmi fyrir sveitarstjórnarkosningar og forðast að ræða efnahagsmál. Þingmaður Framsóknarflokksins svaraði með því að segja að stjórnarandstaðan hefði talað upp verðbólguna. Innlent 4.5.2006 15:06