Innlent

Fréttamynd

Íslenskt fyrirtæki verðlaunað

Íslenska fyrirtækið Industria hlaut í gær Red Herring Europe 100-verðlaunin, sem ár hvert er útdeilt af samnefndu viðskiptatímariti. Meðal þeirra fyrirtækja sem hampað hafa slíkum titli í gegnum tíðina eru til að mynda Google, eBay og Skype.

Innlent
Fréttamynd

Komu að þjófum heima hjá sér

Styggð kom að þjófum sem voru að athafna sig í einbýlishúsi á Akureyri í gærkvöldi þegar íbúarnir komu óvænt heim. Þjófarnir forðuðu sér í ofvæni út um bakdyr og náðu ekki að nema neitt á brott með sér en þeir voru búnir að safna saman og stafla upp ýmsum verðmætum sem þeir hafa ætlað að stela.

Innlent
Fréttamynd

Um sextíu togarar að karfaveiðum á Reykjaneshrygg

Rétt tæplega sextíu togarar eru að karfaveiðum á Reykjaneshrygg, suðvestur af landinu, samkvæmt talningu Landhelgisgæslunnar í gær. Þar af eru átta íslenskir togarar en í heild er þetta einhver stærsti floti sem hefur verið þarna að veiðum í einu til þessa.

Innlent
Fréttamynd

Ætla ekki að taka þátt í umfjöllun um Baug í Kastljósi

Jón Ásgeir Jóhannesson forstjóri Baugs, Hreinn Loftsson stjórnarformaður Baugs og verjendur Jóns Ásgeirs og Tryggva Jónssonar, fyrrverandi aðstoðarforstjóra Baugs, þeir Gestur Jónsson og Jakob Möller Hæstaréttarlögmenn, hafa sent frá sér yfirlýsingar vegna umfjöllunar um Baugsmálið í Kastjósi Ríkissjónvarpsins í gær.

Innlent
Fréttamynd

Slökkviliðið kallað þrettán sinnum út vegna sinuelda

Slökkviliðið í Reykjavík var kallað þrettán sinnum út í gær vegna sinuelda, einkum í Elliðaárdal en ekki hlaust þó umtalsvert tjón af svo vitað sé. Ljóst er að í mörgum tilvikanna hefur viljandi verið kveikt í en enginn hefur verið handtekinn vegna þess.

Innlent
Fréttamynd

Færður á geðdeild eftir að hafa veifað hnífi

Maðurinn, sem lögreglan í Reykjavík handtók á leikskóla í vesturborginni, eftir að hann reyndist hafa hníf undir höndum þegar hann hugðist sækja barn fyrrverandi sambýliskonu sinnar, var í gærkvöldi vistaður á geðdeild.

Innlent
Fréttamynd

Ekkert athugavert við endurgreiðsluna

Bæjarstjórinn í Mosfellsbæ segir ekki hægt að bera ákvörðun um endurgreiðslu á hluta fasteignagjalda skömmu fyrir kosningar saman við það að borgarstjórinn í Reykjavík auglýsi viðtalsfundi fáeinum vikum fyrir kosningar. Lækkunin er kosningadúsa upp í kjósendur segir oddviti Samfylkingarinnar í Mosfellsbæ.

Erlent
Fréttamynd

Skaðabætur vegna myndbirtingar DV?

Ekki verður annað séð en stúlkan á myndinni sem birt var ranglega í DV síðastliðinn laugardag eigi rétt á skaðabótum, ekki síst í ljósi dómsins í máli Bubba Morthens gegn Hér og nú. Þetta segir kennari við lagadeild Háskólans í Reykjavík.

Innlent
Fréttamynd

Brota­löm á rann­sókninni

Verjandi Jónasar Garðarssonar gagnrýndi rannsókn sjóslysins í Héraðsdómi í dag og sagði vafa í málinu það mikinn að ekki væri hægt að dæma Jónas. Saksóknari telur hins vegar óhyggjandi sannanir fyrir því að Jónas hafi stýrt skemmtibátnum Hörpu þegar hann steytti á Skarfaskeri en tvennt lést í slysinu.

Innlent
Fréttamynd

Mikið um sinuelda

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins hefur haft í nógu að gera við að slökkva sinuelda. Laust fyrir fréttir var búið að kalla slökkviliðið níu sinnum út vegna sinuelda og þykir það í hærri kantinum.

Innlent
Fréttamynd

Krónan heldur áfram að styrkjast

Krónan styrktist um 0,7% í dag og endaði gengisvísitalan í 125,3 stigum. Krónan styrktist um 2,5% í síðustu viku en þessi styrking kemur eftir útgáfu á tveimur skýrslum um fjármálastöðugleika á Íslandi.

Innlent
Fréttamynd

Ekki vera í skærlitum fötum

Fólk sem á leið nærri Ástjörn í Hafnarfirði á að forðast að klæðast skærlitum fötum og ekki vera með hávaða eða annan skarkala. Ástæðan er sú að fuglavarp er að hefjast og því er búið að takmarka umferð um friðlandið.

Innlent
Fréttamynd

Segir föður sinn hafa verið við stýri bátsins

Ellefu ára sonur Jónasar Garðarssonar, vitnaði í Héraðsdómi í dag að faðir sinn hafi verið við stýrið skömmu eftir að bátur þeirra steytti á Skarfaskeri. Það sama sagði Matthildur Harðardóttir, sem lést í slysinu, í samtali við Neyðarlínuna. Jónas heldur því fram að Matthildur hafi verið við stýrið þegar skemmtibáturinn fórst en ákæruvaldið telur öll gögn benda til sektar Jónasar og krefst þriggja ára óskilorðsbundins fangelsisdóms yfir honum.

Innlent
Fréttamynd

Slasaðist á járnstöng

Tíu ára gamall drengur féll og datt á járnstöng við Rimaskóla um klukkan hálf fjögur í dag. Önnur framtönn drengsins brotnaði við fallið og var hann fluttur til tannlæknis sem gerði að sárum hans.

Innlent
Fréttamynd

Krefst þriggja ára fangelsis­dóms

Saksóknari í málinu gegn Jónasi Garðarssyni, vegna strands skemmtibátsins Hörpunnar, fer fram á að Jónas verði dæmdur í þriggja ára óskilorðsbundið fangelsi. Bótakröfur sem settar hafa verið fram í málinu nema hátt í 20 milljónum króna.

Innlent
Fréttamynd

Ekkert minnst á álverið í Straumsvík í stefnuskránni

Öllum börnum í Hafnarfirði sem náð hafa átján mánaða aldri verður tryggð leikskólavist á næsta kjörtímabili, ef markmið Samfylkingarinnar í bænum ná fram að ganga. Ekkert er minnst á framtíð álversins í Straumsvík í stefnuskrá flokksins fyrir næstu fjögur ár.

Innlent
Fréttamynd

Jónas við stýrið, segir sonur hans

Hljóðupptökur með frásögn ellefur ára gamals sonar Jónasar Garðarssonar, formanns Sjómannasambands Reykjavíkur, voru spilaðar fyrir Héraðsdómi um klukkan þrjú í dag. Drengurinn segist hafa verið sofandi þegar báturinn strandaði á Skarfaskeri en greindi frá því að faðir hans hefði verið við stýri þegar lagt var úr höfn og í stýrissæti þegar hann kom upp eftir að báturinn steytti á skerinu. Hann sagði einnig að hann vissi ekki til þess að annar en faðir hans hefði stýrt bátnum nokkurn tímann.

Innlent
Fréttamynd

Sveitarfélagið Ölfuss dæmt til að greiða starfsmanni bætur

Sveitarfélagið Ölfus var í dag dæmt til að greiða karlmanni 2,2 milljónir króna vegna ólögmætrar uppsagnar. Maðurinn var ráðinn forsstöðumaður Egilsbúðar og bókasafns Þorlákshafnar árið 1998 en var sagt upp með vísan til skipulagsbreytinga árið 2003.

Innlent
Fréttamynd

Sjálfkjörin sveitarstjórn í Breiðdalnum

Sjálfkjörið er í sveitarstjórn í Breiðdalshreppi á Austurlandi en þar er aðeins einn framboðslisti fyrir sveitastjórnarkosningarnar. Á fréttavefnum Austurlandið.is er greint frá því að aðeins einn framboðslisti hafi verið lagður fram þegar framboðsrestur rann út á laugardaginn var.

Innlent
Fréttamynd

Hjallastefna fær hæsta styrkinn

Hjallastefnan fær hæsta styrkinn sem úthlutað er úr Þróunarsjóði grunnskóla þetta árið. Hjallastefnan fær eina milljón króna í styrk til þróunar kynjanámskrár.

Innlent
Fréttamynd

Varmársamtök stofnuð í kvöld

Svokölluð Varmársamtök verða stofnuð í Mosfellsbæ í kvöld, en þar eru á ferðinni samtök íbúa á Varmársvæðinu ofan Vesturlandsvegar. Samtökin hyggjast standa vörð um svæðið sem liggur frá upptökum að ósum Varmár en samkvæmt skipuleggjendum verður sérstaða svæðisins að engu gerð ef tillögur um lagningu umferðarmannvirkja á Varmársvæðinu verða að veruleika.

Innlent
Fréttamynd

Tugmilljóna kostnaður vegna ósættis

Íslensk flugmálayfirvöld þurfa að fjárfesta í vopnaleitarbúnaði á Keflavíkuflugvelli fyrir tugmilljónir króna vegna ósamkomulags Bandaríkjamanna og Evrópusambandsins um starfsaðferðir. Hugsanlegt er að leggja þurfi sérstakt öryggisgjald á þá sem millilenda hér vegna kostnaðarins.

Innlent
Fréttamynd

Upp­tökur herma að Jónas hafi verið við stýri

Eiginkona Jónasar Garðarssonar, formanns Sjómannafélags Reykjavíkur fullyrðir í Samtölum við Neyðarlínuna að hann hafi verið við stjórnvölin þegar Harpa fórst á Viðeyjarsundi á síðasta ári. Upptökur af samtölunum voru spilaðar í Héraðsdómi í dag. Jónas hefur sagt fyrir dómi að Matthildur Harðardóttir, sem fórst í slysinu, hafi verið við stýrið þegar báturinn strandaði á Skarfaskeri.

Innlent
Fréttamynd

Fjallað um Kauphöll Íslands á Sky News

Tveggja og hálfrar mínútu frásögn verður af Kauphöll Íslands í kvöldfréttum Sky News í kvöld, en sendingar Sky News ná til til um það bil 80 milljóna manna. Tilefnið er að Kauphöllin hlaut verðlaun Buisness Britain Magazine fyrir árin tvö 2005-2006 fyrir að stuðla að hagvexti í íslensku efnahagslífi.

Innlent
Fréttamynd

Veturinn sá fjórði hlýjasti frá upphafi mælinga

Veturinn í vetur var sá fjórði hlýjasti frá upphafi mælinga hér á landi samkvæmt tölum Veðurstofunnar, en hún skilgreinir vetur sem tímabilið frá byrjun desember til loka mars. Þrátt fyrir að úrkoma hafi verið yfir meðallagi suðvestanlands í vetur telst hann þó snjóléttur en úrkomuminna var fyrir norðan.

Innlent
Fréttamynd

Hunangsflugur á kreik vegna hlýinda

Hunangsflugur fóru á kreik víða um land í hlýindunum í gær og sönnuðu enn að þær eru komnar hingað til að vera. Að sögn kunnugra er þetta þó ekki óvenju snemmt miðað við árstíma og skilyrði en hins vegar þykja þær vel fram gengnar eftir veturinn, stórar og nánast bolta lagaðar, sem sérfróðir telja geta vitað á mikla frjósemi þeirra í sumar.

Innlent