
Erlent

Heimurinn hættulegri
Heimurinn er hættulegri eftir Íraksstríðið, að mati Jacques Chiracs, forseta Frakklands. Chirac er væntanlegur í opinbera heimsókn til Bretlands á morgun, og sagði í viðtali við BBC meðal annars, að hann teldi engar líkur á að Bretar gætu miðlað málum á milli Frakka og Bandaríkjamanna. <font size="4"></font>

Skaut vopnlausan uppreisnarmann
Rannsókn er hafin á því hvernig á því stóð að bandarískur hermaður skaut særðan og vopnlausan írakskan uppreisnarmann í höfuðið í borginni Fallujah. Atvikið náðist á myndband, sem hefur farið sem eldur í sinu um heiminn.

Frá Alabama til heimsáhrifa
Condoleezza Rice hefur farið langan veg frá því hún fæddist í Suðurríkjunum á tímum aðskilnaðarstefnunnar. Hún varð fyrst kvenna þjóðaröryggisráðgjafi Bandaríkjaforseta og verður nú fyrst þeldökkra kvenna til að taka við starfi utanríkisráðherra Bandaríkjanna. </font /></b />

Ungverjar fara frá Írak um áramót
Ungverska þingið hefur hafnað tillögum ríkisstjórnarinnar þar í landi um að framlengja veru 300 friðargæsluliða í Írak um 3 mánuði. Friðargæsluliðarnir eiga að fara heim til Ungverjalands í lok ársins, en ríkisstjórnin var á því að nauðsynlegt væri að framlengja dvölina fram yfir kosningar í Írak, sem fara eiga fram í upphafi næsta árs.

Til marks um aukna hörku BNA
Skiptar skoðanir eru um það hvort Condoleezza Rice sé heppilegur arftaki Colins Powells í stöðu utanríkisráðherra Bandaríkjanna. Sumir kvíða skiptunum fyrir hönd heimsins meðan aðrir telja að hún skilji mikilvægi varna Íslands.

Óttast að Hassan sé látin
Eiginmaður Margaretar Hassan, hjálparstarfsmanns í Írak, óttast að mannræningjar hafi tekið hana af lífi. Hann segist hafa upplýsingar um myndband sem sýni hana myrta. Margaret Hassan var á sextugsaldri, fædd í Dublin en hafði búið hálfa ævi sína í Írak.

Ráðist gegn vígamönnum í Mosul
Á annað þúsund bandarískir og íraskir hermenn réðust gegn vígamönnum í Mosul til að koma á kyrrð í borginni. Vígamenn réðust á lögreglustöðvar í borginni meðan athygli Bandaríkjahers beindist að mestu að Falluja og náðu lögreglustöðvunum á sitt vald.

Rice tekur við af Powell
Condoleezza Rice er sögð verða næsti utanríkisráðherra Bandaríkjanna, eftir að Colin Powel sagði af sér. Rice hefur verið þjóðaröryggisráðgjafi í stjórnartíð George Bush og er náinn vinur fjölskyldu forsetans. Hún er talin tilheyra herskárri armi stjórnarinnar, en Powell aftur á móti hinum hófsamari.

700 kíló falin í smokkfiski
Lögreglan í perú gerði í dag upptæk rúm 700 kíló af kókaíni, sem komið hafði verið fyrir í frosnum risasmokkfiski, sem átti að flytja til Mexikó og þaðan til Bandaríkjanna. Umbúðir efnisins voru þaktar pipri, til að villa um fyrir fíkniefnahundum. Talið er að unnt hefði verið að fá vel á annan milljarð króna fyrir efnið í götusölu. Sjö menn voru handteknir vegna málsins.

Stríðsglæpir í Fallujah?
Bandarískir og íraskir herforingjar segjast endanlega hafa náð borginni Falluja á sitt vald, en mannréttindasamtökin Amnesty International fullyrða að Bandaríkjamenn hafi framið stríðsglæpi í borginni.

Bretar banna reykingar á börum
Breska ríkisstjórnin íhugar nú að banna reykingar á flestum opinberum stöðum, þar með talið börum og veitingahúsum. Ef tillögur stjórnarninnar verða samþykktar verður bannað að reykja á um 90% allra breskra bara. Reykingar hafa þegar verið bannaðar á Írlandi og í Noregi.

Ætla ekki að opinbera skýrslur
Skýrslur um heilsu Jassers sáluga Arafats dagana áður en hann lést, verða ekki birtar nema fjölskylda hans gefi samþykki fyrir því. Þetta segir utanríkisráðherra Frakklands. Fyrr í dag fór forsætisráðherra Palestínu, Ahmed Qurei, fram á það að Frakkar gerðu skýrslurnar opinberar,

Verja gjörðir hermannsins
Félagar hermannsins sem sást skjóta særðan óvopnaðan írakskan fanga verja gjörðir hans í dag. Myndband sem tekið var af manninum sýna hann lyfta rifli sínum og taka írakan af lífi. Félagar hans segja hann líklega hafa þjáðst af átakaálagi í erfiðum aðstæðum; hann hafi fengið í sig skot daginn áður og misst félaga sinn.

ETA-liðar handteknir
Spænska lögreglan handtók sautján meinta meðlimi basknesku aðskilnaðarhreyfingarinnar ETA í árásum á nokkra staði í fjórum héruðum í norðurhluta Spánar, Baskahéruðunum þremur og Navarra. Handtökurnar eru framhald af aðgerðum gegn ETA, alls hafa verið handteknir 32 meintir ETA-liðar á innan við mánuði.
Jólakort í tölvunni
Danski Pósturinn býður fólki að búa til jólakortin sín í tölvunni, skrifa jólakveðju og senda kortið rafrænt til Póstsins sem prentar út á pappír og kemur honum hratt og örugglega til viðtakenda. Pósturinn hefur á boðstólum ýmsar gerðir af jólakortum á netinu, en fólk getur líka sótt eigin ljósmyndir.

Fyrsti sökudólgurinn fyrir dóm
Í dag mætir fyrsti sakborningurinn af þeim sem ákærðir eru fyrir hryðjuverkin í Madrid í mars fyrir dóm á Spáni. Hann er 16 ára gamall og er gefið að sök að hafa flutt sprengiefnin sem notuð voru til árásarinnar. Drengurinn á yfir höfði sér átta ára fangelsisdóm fyrir sinn þátt í málinu.
Mildi að enginn lést í lestarslysi
Ástralska lögreglan telur mikla mildi að enginn skyldi hafa látist þegar lest með 163 farþegum fór út af sporinu við bæinn Bundaberg um 400 kílómetra norður af Brisbane.
Stefnir í verkfall hjá flugfreyjum
Stærstu samtök flugfreyja og flugþjóna í Bandaríkjunum (AFA) ætla að sækja eftir verkfallsheimild meðal félagsmanna sinna.

Tölvunotkun getur valdið gláku
Mikil tölvunotkun getur leitt til gláku, sérstaklega hjá þeim sem eru nærsýnir. Þetta kemur fram í niðurstöðum nýrrar rannsóknar, þar sem 10 þúsund japanskir skrifstofustarfsmenn voru athugaðir. Í ljós komu mikil tengsl milli tölvunotkunar, nærsýni og gláku.

Slagsmál á tónlistarverðlaunum
Átök brutust út og einn maður var stunginn á tónlistarverðlaunum tímaritsins Vibe, sem sérhæfir sig í R&B- og rapptónlist. Átökin brutust út þegar veita átti rapparanum Dr. Dre verðlaun fyrir ævistarf sitt. Að sögn sjónarvotta lenti Dre sjálfur í hringiðu slagsmálanna, þar sem stólum var hent, hnefahögg gengu manna á milli og verður þakkarræða hans því að bíða betri tíma.
Umdeilt dráp í mosku
Bandaríski herinn er að rannsaka hvers vegna bandarískur hermaður skaut Íraka sem lá særður inni í mosku í Falluja.

Rice hreppti hnossið
Condoleeza Rice tekur við af Colin Powell sem utanríkisráðherra Bandaríkjanna og er búist við opinberri yfirlýsingu þessa efnis strax í dag. Davíð Oddsson, utanríkisráðherra, hittir Powell síðar í dag.

Hamas og Jihad neita vopnahléi
Mahmoud Abbas, leiðtogi Frelsissamtaka Palestínu og einn líklegasti eftirmaður Arafats á forsetastóli, bað í gær herskáa Palestínumenn að hætta öllu ofbeldi þar til kosningar fara fram 9. janúar.

Dráp vekur reiði meðal Araba
Myndbandsupptaka sem sýnir þegar bandarískur hermaður skýtur særðan og vopnlausan íraskan uppreisnarmann til bana hefur vakið mikla reiði í Arabaheiminum. Bandaríkjaher rannsakar atvikið.

Yfir 100 slasast í lestarslysi
Yfir hundrað manns slösuðust þegar hraðlest fór út af sporinu í austurhluta Ástralíu í morgun. Um borð í lestinni voru 157 farþegar en stór hluti þeirra var eldra fólk. Farþegarnir voru flestir sofandi þegar slysið átti sér stað og kastaðist fólk til í vögnunum en sjö af níu vögnum losnuðu frá lestinni. Verið er að rannsaka hvað olli slysinu.

Hassan tekin af lífi
Íraskir gíslatökumenn hafa myrt Margaret Hassan, stjórnanda hjálparsamtakanna CARE, samkvæmt arabísku sjónvarpsstöðinni Al-Jazeera. Sjónvarpsstöðin sagðist í gær vera með myndbandsupptöku af morðinu undir höndum en birti hana ekki.

Fá ekkert fyrir stuðninginn
Jacques Chirac, frakklandsforseti, segir Breta ekki hafa fengið neitt fyrir stuðning sinn við innrásina í Írak. Chirac, sem ræddi við breska fréttamenn í gær, sagði það ekki í eðli Bandaríkjamanna um þessar mundir að endurgjalda greiða.
Munntóbak er krabbameinsvaldandi
Notkun munntóbaks eykur áhættuna á krabbameini í munni og briskirtli um allt að 67%, að því er ný könnun sem gerð var í Noregi hefur leitt í ljós. Könnunin var gerð á vegum Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar og niðurstaða hennar gengur þvert á aðrar kannanir sem gerðar hafa verið um munntóbak, þar sem talið var að það fylgdi því ekki aukin krabbameinsáhætta að nota slíkt tóbak.

Vopnasölubann á Fílabeinsströndina
Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna hefur lagt bann við vopnasölu til stjórnvalda á Fílabeinsströndinni. Samþykkt öryggisráðsins fylgir í kjölfar árása stjórnarhermanna á franska hermenn sem voru við friðargæslu í landinu.
Táningur dæmdur í hryðjuverkamáli
Spænskur táningur hefur verið dæmdur til sex ára vistar í unglingafangelsi fyrir þátt hans í hryðjuverkaárásunum í Madríd 11. mars síðast liðinn. Táningurinn, sextán ára piltur, var fundinn sekur um að hafa flutt sprengiefni frá norðanverðum Spáni til hryðjuverkamannanna sem gerðu árásirnar.