
Íþróttir

Formúlu 1 ökumaðurinn Kobayashi vill færa Japönum von og jákvæðar fréttir
Japaninn Kamui Kobayashi hjá Sauber Formúu 1 liðinu kveðst vilja ná hagstæðum úrslitum í fyrsta Formúlu 1 móti ársins í Ástralíu 27. mars, til að færa landsmönnum sínar einhverjar jákvæðar fréttir á erfiðum tímum.

Button afskrifar ekki þriðja sigurinn í röð í Ástralíu
Jenson Button hjá McLaren mætir í fyrsta Formúlu 1 mót ársins 27. mars í Ástralíu með McLaren liðinu, ásamt Lewis Hamilton. Hann hefur unnið sama mót tvö síðustu ár á Albert Park brautinni í Melbourne. Button og Hamilton ræddu málin í fréttatilkynningu frá McLaren sem var birt á autosport.com í dag.

Webber á heimavelli í fyrsta mótinu og meistarinn Vettel spenntur að keppa á ný
Formúlu 1 meistaralið Red Bull er tilbúið í titilvörnina, sem hefst í fyrsta Formúlu 1 mótinu í Ástralíu 27. mars. Ekið verður á afmarkaðri götubraut í borginni Melbourne og nefnist brautarstæðið Albert Park.

Sauber Formúlu 1 liðið ætlar að sýna japönsku þjóðinni stuðning
Formúlu 1 lið Sauber verður merktir í fyrsta móti ársins í Ástralíu með sérstakri kveðju til japönsku þjóðarinnar vegna hinna hörmulega atburða sem hafa átt sér stað í landinu að undanförnu. Japaninn Kamui Kobayashi er annar ökumanna Sauber liðsins.

Schumacher er vongóður um að geta keppt til sigurs í einhverjum mótum
Michael Schumacher ekur með Mercedes Formúlu 1 liðinu í ár, eins og í fyrra, en hann mætti til leiks á ný eftir þriggja ára hlé 2010. Í dag segist hann njóta þess að keppa með Mercedes, en keppnislið hans sendi frá sér viðtal við kappann, sem birtist á autosport.com í dag og neðan er hluti þess í lauslegri þýðingu.

Alonso: Mikilvægast að vera með snöggan bíl
Fernando Alonso hjá Ferrari telur að það lið og ökumaður sem er með fljótasta bílinn næli í meistaratitilinn í ár. Hann hefur ekki trú á því að tilkoma nýs dekkjaframleiðanda verði afgerandi hvað útkomu bílanna varðar, en vandasamara gæti orðið að taka ákvarðanir varðandi þjónustuáætlanir en í fyrra.

Stofnandi Idol stjörnleitarinnar ráðinn umboðsmaður Lewis Hamilton
Bretinn Simon Fuller, sem er maðurinn á bakvið Idol stjörnuleitina sem er m.a. sýnd á Stöð 2 og fyrirtæki hans, XIX Entertainment er umboðsaðili fyrir Formúlu 1 ökumanninn Lewis Hamilton. Greint var frá þessu á autosport.com í gær.

Ragna tapaði naumlega og er úr leik í Sviss
Ragna Ingólfsdóttir, Íslandsmeistari í einliðaleik kvenna í badminton, er úr leik á opna svissneska meistaramótinu. Ragna lék gegn Carolina Marin frá Spáni sem er í 67. sæti heimslistans og tapaði Ragna naumlega eftir að hafa unnið fyrstu lotuna 21-19.

Kostelic sigraði í samanlögðum árangri
Króatinn Ivica Kostelic hefur nú þegar tryggt sér sigur í samanlögðum árangri á heimsbikarmótunum í alpagreinum á skíðum þrátt fyrir að fimm mót séu enn eftir á keppnistímabilinu.

Vettl framlengdi samning við Red Bull til loka ársins 2014
Þýski Formúlu 1 heimsmeistarinn Sebastian Vettel hefur framlengt samning sinn við Formúlu 1 lið Red Bull til loka ársins 2014. Red Bull sendi frá sér staðfestingu um málið í dag.

Rosberg fljótastur í bleytunni á Spáni
Síðaasti æfingadagurinn Formúlu 1 liða í Katalóníu brautinni í dag á Spáni nýttist ekki sérlega vel, þar sem mikill rigning varð til þess að lítið var ekið um brautina, þó fjögur lið væru á staðnum. Nico Rosberg á Mercedes náði besta tíma dagsins, en slagurinn um besta tíma var raunverulega síðustu 15 mínúturnar af æfingatíma dagsins þegar veðrið skánaði, eftir því sem sagði í frétt á autosport.com í dag.

Schumacher: Bíllinn þróaður skref fyrir skref
Michael Schumacher náði besta tíma allra ökumanna á Katalóníu brautinni á Spáni í dag, á æfingu Formúlu 1 keppnisliða og liðsfélagi hans hjá Mercedes, Nico Rosberg var með þriðja besta tíma.

Schumacher náði besta tíma vetrarins í Katalóníu
Michael Schumacher náði besta tíma á æfingu Formúlu 1 liða á Katalóníu brautinni á Spáni í dag. Mercedes bíll hans reyndist 0.365 sekúndum sneggri um brautina, en Ferrari Fernando Alonso.

Hispania afhjúpaði 2011 keppnisbílinn
Hispania Formúlu 1 liðið afhjúpaði formlega 2011 keppnisbíl sinn á Katalóníu brautinni á Spáni í dag. Ökumenn liðsins í ár eru Tonio Liuzzi frá Ítalíu og Narain Karthikeyan frá Indlandi. Bíllinn hafði áður verið sýndur á vefsíðu liðsins.

Nýliðinn Sergio Perez stal senunni
Sergio Perez frá Mexíkó, sem er nýliði í Formúlu 1 sló öllum við á Katalóníu brautinni á Spáni í dag, á æfingum Formúlu 1 keppnisliða. Hann náði besta tíma á Sauber bíl, sem er með Ferrari vél.

Vettel með besta tíma sem hefur náðst á Katalóníu brautinni á árinu
Sebastian Vettel hjá Red Bull náði besta aksturstímanum á öðrum degi æfinga Formúlu 1 liða á Katalóníu brautinni á Spáni í dag.

Liuzzi ráðinn sem ökumaður Hispania
Tonio Liuzzi frá Ítalíu var í dag staðfestur sem ökumaður Hispania Formúlu 1 liðsins og þar með er búið að fylla öll 24 sæti ökumanna fyrir þetta keppnistímabil.

Mark Webber fljótastur í Katalóníu
Ástralinn Mark Webber á Red Bull var sneggstur allra í dag á fyrsta degi æfinga af fimm, sem Formúlu 1 lið verða við æfingar á Katalóníu brautinni á Spáni.

Mótshaldarar í Barein fá frest til 1. maí
FIA hefur gefið Formúlu 1 mótshöldurum í Barein frest þangað til 1. maí til að ákveða hvort Formúlu 1 mót getur farið fram í landinu eður ei. Mótið átti að vera á dagskrá 13. mars, en var fellt niður vegna pólitísks ástands í landinu.

Klien vonast eftir síðasta Formúlu 1 ökumannssætinu
Austurríkismaðurinn Christian Klien er að vonast eftir að komast að hjá Hispania Formúlu 1 liðinu spænska, sem á enn eftir að ráða einn ökumann til starfa. Indverjinn Narain Karthikeyan er þegar ökumaður liðsins. Klien sagði í frétt á autosport.com að umboðsmaður sinn, Roman Rummenigge sé í stöðugu sambandi við stjórnendur Hispania liðsins.

Brawn segir Mercedes um sekúndu á eftir toppbílunum
Ross Brawn, yfirmaður Mercedes Formúlu 1 liðsins telur að bílar liðsins séu um sekúndu lakari í hverjum eknum hring, en toppbílarnir, en keppnislið hafa æft á Spáni á árinu og lið hafa því fengið samanburð. Brawn sagði þetta í frétt á BBC Sport.

Serena Williams greindist með blóðtappa í lunga
Tenniskonan Serena Williams var á mánudaginn flutt með hraði á sjúkrahús en hún greindist með blóðtappa í lunga. Williams, sem er 29 ára gömul, fór strax í aðgerð í Los Angels og segir talsmaður hennar að hún sé á góðum batavegi.

Yfirmanni dekkjaframleiðandans líst vel á bleyta brautir með gerviregni
Paul Hembrey, yfirmanni Pirelli dekkjaframleiðandans finnst sú hugmynd Bernie Ecclestone áhugaverð, að bleyta hugsanlega einhver Formúlu 1 mót með með sérútbúnu vatnsúðakerfi, eða gerviregni ef svo má segja.

Vettel býst við 3-4 þjónustuhléum í Formúlu 1 mótum
Formúlu 1 heimsmeistarinn Sebastian Vettel spáir því að fleiri þjónustuhlé verði í Formúlu 1 mótum ársins miðað við fyrri tíð, vegna þess hvernig keppnisdekkin frá Pirelli virka. Keppnislið og ökumenn þeirra hafa æft mikið á nýju dekkjunum fyrir Formúlu 1 á nokkrum æfingum á Spáni.

Japanskur bílaframleiðandi í samstarf við meistaralið Red Bull
Japanski bílaframleiðandinn Infinity, sem er í eigu Nissan og Formúlu 1 lið Red Bull hafa gert með sér samstarfssamning og mun Infinity auglýsa á bílum Red Bull á þessu ári og hugmyndin er að aðilarnir tveir muni starfa sama á tæknilega sviðinu í framtíðinni. Vefsíðan autosport.com greinir frá þessu í dag.

Dýrkeypt klúður - milljarða keppnissundlaug reyndist of stutt
Ólympíuleikarnir fara fram í London sumarið 2012 og eru Bretar langt komnir með uppbyggingu á þeim íþróttamannvirkjum sem á að nota á leikunum. Ýmis æfingamannvirki hafa einnig verið byggð víðsvegar um landið og þar má nefna glæsilega æfinga – og keppnissundlaug í Portsmouth.

Alonso spáir baráttu fimm liða um titilinn
Fernando Alonso hjá Ferrari spáir því að fimm lið verði framarlega í flokki á þessu Formúlu 1 keppnistímabili, en telur að ný dekk sem verða notuð á þessu ári geti valdið toppliðunum erfiðleikum. Fyrsta mót ársins verður í Ástralíu 27. mars og að venju eru keppt bæði um titil ökumanna og bílasmiða.

Ross Brawn seldi eignarhlut sinn til Mercedes
Framkvæmdarstjóri Mercedes Formúlu 1 liðsins, Ross Brawn hefur selt hlut sinn í Mercedes liðinu til Mercedes og fjórir aðrir hluthafar hafa gert slíkt hið sama. Brawn verður áfram framkvæmdarstjóri liðsins, en ökumenn Mercedes eru Michael Schumacher og Nico Rosberg.

Perez: Einn besti dagur lífs míns
Sergio Perez frá Mexíkó spretti úr spori á Sauber Formúlu 1 bíl á laugardaginn í heimabæ sínum Guadalajara. Perez er nýliði í Formúlu 1 og er talið að milli 150.000-200.000 manns hafi fylgst með kappanum í heimabænum.

UMFÍ auglýsir eftir mótshöldurum fyrir landsmót 50 ára og eldri
Stjórn ungmennafélags Íslands hefur ákveðið að halda skuli landsmót UMFÍ fyrir 50 ára og eldri. Nú er auglýst eftir mótshöldurum en áætlað er að fyrsta mótið fari fram í júní næstkomandi.