Ástin og lífið

Stjörnulífið: Árshátíð RÚV, frumsýningar og tímamót
Sumarið gekk loksins formlega í garð í síðustu viku og af samfélagsmiðlum að dæma tóku landsmenn því fagnandi. Mikið var um veisluhöld um helgina en fyrirtæki á borð við RÚV og Bestseller héldu stórar árshátíðir.

Simone Biles og Jonathan Owens gengin í það heilaga
Bandaríska fimleikagoðsögnin og heimsmeistarinn Simon Biles er gengin í það heilaga ásamt NFL leikmanninum Jonathan Owens.

Magnús Ver trúlofaði sig á stórafmælinu
Íslenski kraftajötuninn Magnús Ver Magnússon á stórafmæli í dag. Hann er sextugur og til þess að gera tilveruna enn sætari fór hann á skeljarnar í gær og bað kærustunnar sinnar vaxtaræktarkonunnar Monicu Bega. Hún sagði að sjálfsögðu já.

„Mikil sorg en samt svo mikil gleði“
Nýbakaðir foreldrar stúlku með Downs-heilkenni, líklega fyrsta barnsins sem fæðist með heilkennið á Íslandi í rúm tvö ár, segja fæðinguna hafa kallað fram erfiðar tilfinningar. Móðurina grunaði að ekki væri allt með felldu á meðgöngu en heilbrigðiskerfið hafi ekki hlustað á áhyggjur hennar. Dóttir þeirra sé þó, þegar allt kemur til alls, fullkomin.

Sölvi Tryggva kominn á fast
Hlaðvarpsstjórnandinn Sölvi Tryggvason hefur fundið ástina í örmum Estherar Kaliassa.

Rúrik nældi sér í suðræna Sóleyju
Fyrirsætan og knattspyrnukappinn fyrrverandi Rúrik Gíslason og Sóley Birna Horcajada Guðmundsdóttir eru nýtt par. Þetta hefur Vísir eftir heimildum sínum.

Hugrún Halldórsdóttir komin á fast
Fjölmiðlakonan og fegurðardísin Hugrún Halldórsdóttir hefur lengi verið á meðal eftirsóttustu kvenna landsins. Hún hefur nú fundið ástina í örmum Vals Hrafns Einarssonar tæknistjóra hugbúnaðarfyrirtækisins Stokks Software, en þau störfuðu lengi saman á Stöð 2 og Vísi.

Íbúar á Austurlandi duglegri við að ganga í hjúskap
Alls gengu 4.416 einstaklingar í hjúskap hér á landi árið 2022. 39,2 prósent þeirra gerðu það hjá Þjóðkirkjunni. Íbúar á Austurlandi voru líklegri en aðrir til að ganga í hjúskap á árinu. Íbúar á höfuðborgarsvæðinu voru duglegri að ganga frá lögskilnaði en aðrir.

Stjörnulífið: ABBA-dívur, utanlandsferðir og Bubbi í fantaformi
Sólarlandaferðir, tónleikar og árshátíðir voru nokkuð áberandi á samfélagsmiðlum í liðinni viku. Veðrið lék við okkur hér á Íslandi en samt sem áður voru fjölmargir sem leituðu út fyrir landsteinana.

Í kossaflensi einu og hálfu ári eftir sambandsslitin
Svo virðist vera sem ástin sé búin að kvikna aftur hjá tónlistarfólkinu Shawn Mendes og Camilla Cabello þar sem þau sáust kyssast á Coachella tónlistarhátíðinni í gær. Það vakti mikla athygli fólks sökum þess að Mendes og Cabello hættu saman fyrir um einu og hálfu ári síðan.

Makamissir: Tilkynntu trúlofunina á Facebook og hann lést nokkrum stundum síðar
Það gekk allt upp eins og í sögu: Þau kynntust á Tinder, smullu saman þegar þau hittust. Urðu eiginlega strax kærustupar.

Fór einhleyp í brúðkaupsferð til Íslands
Lacie Gooch er ung kona frá Nebraska sem varð fyrir áfalli þegar unnusti hennar sagði henni upp, degi fyrir brúðkaupið. Parið hafði ráðgert að fara í brúðkaupsferð til Íslands, sem fyrrum tengdaforeldrar Lacie höfðu greitt fyrir. Lacie stóð nú uppi ein, en ákvað að taka til sinna ráða.

Pétur Jóhann nú fyndnasti afi landsins
Fjölmiðlamaðurinn og grínistinn Pétur Jóhann Sigfússon varð afi á dögunum þegar lítið stúlkubarn kom í heiminn miðvikudag fyrir páska.

Sögð vera byrjuð saman á ný
Parið Millie Court og Liam Reardon stóðu uppi sem sigurvegarar í sjöundu þáttaröð raunveruleikaþáttanna Love Island. Síðasta sumar hættu þau saman en nú, níu mánuðum síðar, eru þau sögð vera byrjuð að rugla saman reitum á ný.

Stranger Things stjarna trúlofuð syni Bon Jovi
Leikkonan Millie Bobby Brown og leikarinn Jake Bongiovi eru trúlofuð ef marka má nýja Instagram færslu Brown.

Kylie Jenner orðuð við heimsfrægan leikara
Raunveruleikastjarnan og athafnakonan Kylie Jenner og leikarinn Timothée Chalamet eru sögð vera að stinga saman nefjum. Frá þessu greina slúðurmiðlar vestanhafs en orðrómurinn fór á kreik eftir að þau mættu saman á tískusýningu fyrr á árinu.

Stjörnulífið: Bumbumyndir, búbblur og Bubbi í brauðtertugerð
Páskahelgin er að baki og nutu vonandi sem flestir sín vel. Fjölmargir nutu páskanna á skíðum, á meðan aðrir skelltu sér til Ísafjarðar á Aldrei fór ég suður eða höfðu það huggulegt uppi í bústað.

Fór frá Íslandi til Víetnam í leit að blóðmóður sinni
Þann 25. mars síðastliðinn fór Iris Dager af landi brott. Áfangastaðurinn var Hanoi, höfuðborg Víetnam þar sem hún dvelur nú. Aðdragandinn að ferðalaginu er búinn að vera langur og tilgangur ferðarinnar er skýr: Iris vill finna blóðmóður sína sem gaf hana frá sér fyrir þremur áratugum.

Skiljanlegt að við gleymum aldrei fyrstu ástinni okkar
Eitt það dásamlegasta sem við upplifum er ástin. Sem reyndar getur líka verið það erfiðasta sem við upplifum líka. Eða í það minnsta ef við lendum í ástarsorg eða eitthvað gengur ekki upp.

Katrín Halldóra og Hallgrímur eiga von á barni
Leik- og söngkonan Katrín Halldóra Sigurðardóttir og Hallgrímur Jón Hallgrímsson, trommuleikari Sólstafa, eiga von á sínu öðru barni saman.

Hættur með unnustunni
Rupert Murdoch er sagður vera hættur með unnustu sinni, Ann Lesley Smith, en þau trúlofuðu sig fyrir viku síðan. Ekkert verður því úr fimmta brúðkaupi hins 92 ára gamla fjölmiðlamóguls.

María Rut og Ingileif eignuðust dóttur
Hjónin Ingileif Friðriksdóttir, sjónvarps- og fjölmiðlakona, og María Rut Kristinsdóttir, kynningarstýra UN Women, hafa eignast stúlku

Lína Móey og Sigurður eiga von á barni
Lína Móey Bjarnadóttir, framkvæmdastjóri Leigumanna ehf., og Sigurður Karlsson, framkvæmdastjóri iCert, eiga von á barni.

Þrjátíu og fjögur stefnumót í nítján löndum
Þegar Loni James lagði af stað í heimsreisu fyrir rúmu ári síðan var hún með einfalt markmið: Að fara á stefnumót með nýjum aðila í hverju landi sem hún heimsótti. Síðan þá hefur hún farið á alls þrjátíu og fjögur fyrstu stefnumót í nítján mismunandi löndum.

Stjörnulífið: Ástin, aprílgöbb og afmæli aldarinnar
Viðburðarík vika er nú að baki og báru árshátíðir og afmæli þar hæst. Verðlaunavertíðin er ennþá í fullum gangi því Íslensku hljóðbókaverðlaunin voru veitt síðasta miðvikudag.

Egill Fannar og Íris Freyja ástfangin í Róm
Athafnamaðurinn Egill Fannar Halldórsson og fegurðardrottningin Íris Freyja Salguero eru byrjuð saman.

Bað kærustunnar sinnar á nærbuxunum um miðja nótt
Oleksandr Zinchenko, leikmaður Arsenal, segist hafa boðið upp á versta bónorð allra tíma þegar hann bað kærustu sína um að giftast sér.

Nefndu stúlkuna Nóru Náð
LXS raunveruleikastjarnan og dansarinn Ástrós Traustadóttir og frumkvöðullinn Adam Karl Helgason nefndu stúlkubarn sitt, sem fæddist í febrúar, Nóru Náð Adamsdóttur í dag.

Kaley Cuoco orðin móðir
Leikkonan og Íslandsvinkonan Kaley Cuoco er orðin móðir. Hún og kærasti hennar, Tom Pelphrey, eignuðust sitt fyrsta barn á fimmtudaginn.

Ekki komin í nýtt samband: „Er að slökkva elda alls staðar“
„Við erum búin að vera vinir lengi en hittumst fyrst sem eitthvað meira vinir fyrir minna en viku,“ segir Hafdís Björg í viðtali á FM957 í dag þar sem hún tjáir sig um frétt Smartlands á mbl.is sem greinir frá því að hún og Kristján Einar séu nýtt par. Ritstjóri Smartlands hafnar því að hafa farið með rangt mál í fréttinni.