Áfengi

Málið runnið undan rifjum „afdankaðrar ríkisstofnunar“
Forsvarsmenn netverslunarinnar Sante, sem höndlar með áfengi, hafa engar áhyggjur af því að mál tveggja áfengisnetverslanna séu komin á borð ákærusviðs Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Mál tveggja áfengisnetverslana komin á borð ákærusviðs
Rannsókn Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á kærum á hendur tveimur netverslunum sem selja áfengi er lokið. Mál þeirra eru nú á borði ákærusviðs embættisins.

Áfengið innan seilingar
Coca Cola, eitt verðmætasta vörumerki heims um áratuga skeið, náði framúrskarandi árangri með ákaflega einfaldri hugmyndafræði. Ofuráhersla á dreifingu, að vera ætíð innan seilingar (e. within arm‘s reach).

Lýðheilsuhugsjónin
Varhugaverð þróun hefur átt sér stað undanfarin misseri í sölu og afhendingu áfengis hér á landi í formi netsölu. Um einkasölufyrirkomulag með áfengi á smásölustigi gilda lög. Markmið þeirra er að skilgreina umgjörð um smásölu áfengis sem byggist m.a. á bættri lýðheilsu, samfélagslegri ábyrgð og vernd ungs fólks.

Þörf á fleiri lögreglumönnum á djammið í Reykjavík
Agnes Hlynsdóttir í Samtökum reykvískra skemmtistaðaeigenda og rekstrarstjóri skemmtistaðarins Lemmy segist verða vör við meira ofbeldi og vopnaburð á djamminu. Þá sé einnig töluvert um ungt fólk sem sé að reyna að smygla sér ölvað inn á skemmtistaði. Hún segir þurfa átak og meiri viðveru lögreglu í miðbænum.

Þrettán ára börn ósjálfbjarga vegna drykkju á Menningarnótt
Börn niður í þrettán ára þurftu að nýta sér þjónustu miðbæjarathvarfsins svokallaða vegna ölvunar á menningarnótt. Sérfræðingur segir dæmi um að börn hafi verið ósjálfbjarga af drykkju, sum snemma dags. Drykkja unglinga hafi aukist og að börn sæki í sterkt áfengi á borð við landa.

Aðgerðir heilbrigðisstétta og aðgerðaleysi lífeyrissjóða
Lögum samkvæmt er smásala áfengis á vegum ÁTVR. Ekki annarra. Netverslun með áfengi er hins vegar sögð lögleg ef um raunverulega netverslun er að ræða og þá frá öðru ríki.

Skora á yfirvöld að bregðast við aukinni netsölu áfengis
Svokölluð breiðfylking félaga heilbrigðisstétta og forvarnarsamtaka skora á yfirvöld að bregðast við aukinni netsölu á áfengi. Fylkingin hefur miklar áhyggjur af fyrirhugaðri áfengissölu í Hagkaupum sem á að hefjast á næstu dögum.

Krefjast þess að ráðherra dragi fyrirmæli sín til lögreglu til baka
Eigendur netverslunarinnar Sante.is hafa sent fjármálaráðherra bréf þar sem gerðar eru alvarlegar athugasemdir við „óeðlileg afskipti ráðherra af lögreglurannsókn.“ Í bréfinu er þess krafist að fyrirmæli ráðherrans til lögreglunnar verði dregin til baka og að ráðuneytið fjarlægi bréfið sem hann sendi lögreglunni af opinberum vefsvæðum.

Áfengisdrykkja ekki áberandi vandamál á Alþingi
Forsætisráðherra og fjármálaráðherra telja áfengisdrykkju ekki vera vandamál á Alþingi. Ólíklegt sé að fólk geti komist upp með það á átta flokka Alþingi sem sé ávallt í beinni útsendingu að fara drukkið í ræðupúlt Alþingis.

„Fullþaulsetnir“ á veitingastöðum á lokadegi þings
Forseti Alþingis mun ítreka það við þingflokksformenn að menn gæti sín í sambandi við áfengisneyslu. Ákveðnir þingmenn hafi verið „fullþaulsetnir“ á veitingastöðum á lokadegi þingsins í júní.

Jódísi ofbýður áfengisneysla á Alþingi
Jódís Skúladóttir, þingkona Vinstri grænna, segist hafa gert athugasemd innan forsætisnefndar Alþingis vegna áfengisneyslu þingmanna við þinglok í vor. Hún segir það ekki boðlegt að þingmenn skuli standa í ræðustól á Alþingi Íslendinga undir áhrifum áfengis. Það sé gríðarleg vanvirðing við land og þjóð.

Lýst yfir hættustigi vegna áfengisdrykkju
Hættustigi vegna áfengisdrykkju var nýlega lýst í svari heilbrigðisráðherra á Alþingi um áfengisneyslu og -fíknar Íslendinga.

Opið bréf til stjórnarformanns Haga
Ágæti Eiríkur. Bakkar þú upp þá frétt sem fór í loftið á visir.is í fyrradag, um að Hagkaup ætli að hefja sölu áfengis á næstu dögum?

„Það er öllum brögðum beitt til að koma vörunum sem víðast“
Lára Guðrún Sigurðardóttir læknir segir sárvanta meira fjármagn til að koma í veg fyrir neyslu nikótíns. Neysla á nikótínpúðum og rafsígarettum hafi aukist síðustu ár.

Hefja sölu áfengis á næstu tveimur vikum
Undirbúningur Hagkaupa á netsölu áfengis er á lokametrunum og er búist við að hún hefjist á næstu tveimur vikum. Meiri tíma hefur tekið að hefja söluna en búist var við í upphafi að sögn framkvæmdastjóra. Ósætti ráðherra vegna málsins hafði ekki áhrif þar á.

Stjórnvöld sofi á verðinum meðan Svens sæki í börnin
Eyrún Magnúsdóttir fjölmiðlakona og íbúi í Bústaðahverfi segir níkótínsölumenn starfa nær óáreitta í skjóli sofandi stjórnvalda hér á landi. Hún segir Bústaðaveg brátt verða Níkótínstræti vegna opnunar nýrrar verslunar Svens í Grímsbæ. Hún spyr hvort leigutekjur Reita, sem séu að mestu í eigu lífeyrissjóða, séu mikilvægari en áform níkótínsala um að ná fótfestu í skólahverfi.

Bústaðavegur verður Nikótínstræti — þökk sé Reitum og lífeyrissjóðunum
Nikótínpúðar eru ein af þessum vafasömu vörum sem hafa dúkkað upp í veröld unga fólksins hér á landi á síðustu árum. Seljendur púðanna auglýsa þá grimmt, en alltaf undir því yfirskini að verið sé að auglýsa púða án nikótíns. Auglýsingar fyrir þessa púða eru undantekningalaust baðaðar ferskleika, allt er hreint og tært.

Drykkjufólk er ekki bara leiðinlegt
Í eina tíð var í tísku að reykja. Alls staðar var reykt, inni á skemmtistöðum, í flugvélum, kvikmyndahúsum, á skrifstofum og í kringum börn svo að fátt eitt sé nefnt. Það þótti eðlilegt að bjóða upp á sígarettur í veislum í heimahúsum og búa um þær i staukum, líkt og þær væru saltstangir.

Fólk keyri ekki fyrr en tólf tímum eftir síðasta sopa
Lögreglan á Suðurlandi hvetur fólk til þess að láta góðan tíma líða eftir að það hefur drukkið áður en það sest undir stýri. Yfirleitt sé talað um að lágmarki tólf tíma eftir síðasta sopa.

Við viljum geta skálað fyrir Rapyd-lausum Vínbúðum!
Núna þegar ein annasamasta helgi ársins hjá Vínbúðunum er í uppsiglingu þá langar okkur að minna fólk á að Vínbúðirnar nota ennþá þjónustu ísraelska greiðslumiðlunarfyrirtækisins Rapyd þegar borgað er með greiðslukortum. Eini greiðslumöguleikinn annar er reiðufé.

Slepptu við þynnkuna og vertu hress alla helgina!
After Party frá New Nordic getur verið einföld og náttúruleg lausn gegn timburmönnum en það inniheldur öfluga blöndu sem hjálpar til við að vinna á móti vökvatapinu sem á sér stað í líkamanum við áfengisneyslu og draga úr þreytu og vanlíðan daginn eftir.

„Þurfum að grípa inn í ekki seinna en strax“
Steinunn Þórðardóttir öldrunarlæknir og formaður læknafélags Íslands segir ævi Íslendinga hafa lengst en góðum árum ekki fjölgað í takt. Það er að segja, lokaspretturinn er lengri en ekkert þægilegri.

Afstaða Sjálfstæðismanna á skjön við lýðheilsustefnu stjórnvalda
„Standa þarf vörð um íslenska forvarnarmódelið og gagnreynda áfengisstefnu sem m.a. felst í takmörkun á aðgengi með því að viðhalda einkasölufyrirkomulagi ríkisins,“ segir í nýrri skýrslu heilbrigðisráðherra um áætlun um framkvæmd lýðheilsustefnu til fimm ára.

Selja fyrsta bjórinn ekki fyrr en í ágúst
Einhver bið er eftir því að Hagkaup hefji netsölu á áfengi. Fyrirhugað var að hægt yrði að panta áfengi og sækja hjá verslunarrisanum í síðasta mánuði. Framkvæmdastjórinn segir undirbúning á síðustu metrunum, en pappírsvinna og sumarfrí verði til þess að ekkert verði af sölunni fyrr en í ágúst.

Útilokar ekki rétt til reykinga á hjúkrunarheimilum
Réttur starfsmanna til reyklauss vinnuumhverfis útilokar ekki að íbúa hjúkrunarheimilis sé veitt undanþága til að reykja inni á eigin herbergi ef aðstæður leyfa. Umboðsmaður Alþingis telur þó ekki forsendur til að gera athugasemdir við ákvörðun sveitarfélags sem meinaði íbúa að reykja inn á herbergi sínu.

Etanól í glansumbúðum
Eitt af því sem vakti athygli mína þegar ég flutti til Bretlands fyrst, 19 ára gömul, var frjálsleg áfengisneysla þjóðarinnar. Við höfum jú öll heyrt um breska pöbbamenningu sem Íslendingar reyndu stíft að koma á eftir 1. mars 1989 en þarna varð ég vitni að því að vikuleg matarinnkaup venjulegrar, miðstéttarfjölskyldu innihéldu 6-8 flöskur af hvítvíni og nokkrar kippur af bjór.

Sex fyrirtæki sektuð vegna nikotínauglýsinga
Neytendastofa hefur sektað sex fyrirtæki fyrir brot gegn auglýsingabanni á nikotínvörum. Fyrirtækin sex eru Djákninn, FVN, Gryfjan, Innflutningur og dreifing, Nicopods og SH Import. Sektirnar eru frá 100 þúsund krónum að 400 þúsund.

Áfengisumræða?
Undanfarið hafa átt sér stað endurteknar umræður um verslun með áfengi. Í þessum áfanga má segja að ÁTVR hafi slegið tóninn og ýmsir sungið með, þ. á m. stjórnmálamenn, hver með sínu nefi.

FA gagnrýnir reglugerð Willums Þórs harðlega
Ljóst er að þeir hjá Félagi atvinnurekenda vita vart hvort þeir eiga að hlæja eða gráta vegna ákvæðis í drögum að reglugerð Willums Þórs Þórssonar heilbrigðisráðherra þess efnis að pakka beri inn öllu tóbaki í einsleitar umbúðir.