Fréttir ársins 2018

Ljósmyndir ársins 2018
Sýning íslenskra blaðaljósmyndara opnaði í Smáralind í dag. Við opnunina voru ljósmyndurum veitt verðlaun fyrir bestu myndir ársins 2018.

Þetta mun gerast á Íslandi árið 2019
Ed Sheeran, kjarabarátta, nýframkvæmdir og vegtollar.

JóiPé og Króli með mest spilaða lag og mest seldu plötu ársins 2018
Á toppi Tónlistans fyrir allt árið 2018 trónir platan Afsakið hlé með JóaPé og Króla, og á toppi Lagalistans fyrir sama ár er lagið Í átt að tunglinu með þeim félögum.

Agla María og Valgarð íþróttafólk Kópavogs
Knattspyrnukonan Agla María Albertsdóttir og fimleikamaðurinn Valgarð Reinharðsson eru íþróttafólk Kópavogs árið 2018 en kjörið var kunngjört á íþróttahátíð Kópavogs í kvöld.

Framundan 2019: Nýtt fullvalda ríki, HM í knattspyrnu, Brexit og 30 ár frá falli Berlínarmúrsins
Vísir hefur tekið saman brot af því markverðasta sem verður á dagskrá á erlendum vettvangi á árinu 2019 sem er nú gengið í garð.

Þetta var vinsælasta myndbandið á YouTube árið 2018
Miðillinn YouTube er einn sá allra stærsti í heiminum í dag og horfa margar milljónir á vinsælustu myndböndin á síðunni.

Dansárið 2018: Listræn tjáning kvenna
Sesselja G. Magnúsdóttir skrifar um listdansárið 2018 en margar afar áhugaverðar sýningar voru á dagkrá. Hún segir íslenskan dansheim hvíla á herðum kvenna.

Ellý spáir í 2019: Eins og elskandi faðir
Upp er runnið nýtt ár með óræð örlög, ástir og ævintýr. Spákonan Ellý Ármanns leit til gamans í tarotspil sín til að sjá hvað nýja árið ber í skauti sér fyrir þjóðina og nokkra nafntogaða Íslendinga.

Hitamál ársins: Hátíðarfundur á Þingvöllum, hjúkrunarkona í kjól og Banksy
Mál líðandi stundar vekja eins og gengur mismikla athygli og viðbrögð hjá almenningi. Sum mál verða stærri en önnur og lifa í umræðunni í vikur, jafnvel mánuði.

Merkustu fornleifafundir ársins 2018
Líkt og fyrri ár var talsvert um merka fornleifafundi á nýliðnu ári – fundi sem setja hlutina í nýtt samhengi og kollvarpa ef til vill fyrri hugmyndum um hvernig við höfum litið á mannkynssöguna til þessa.

Landsmenn tístu um Áramótaskaupið
Áramótaskaupið fékk misgóðar móttökur eins og jafnan en áhorfendur voru duglegir að setja inn færslur á Twitter á meðan á því stóð

Gleðilegt nýtt ár kæru lesendur
Vísir sendir lesendum sínum nær og fjær – til sjávar og sveita – bestu óskir um farsælt nýtt ár.

Sólveig Anna valin maður ársins af fréttastofunni
Sólveig Anna Jónsdóttir er valin maður ársins 2018 af fréttastofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar fyrir óvænta, einarða og hvassa verkalýðsbaráttu.

Formenn skiptust á skotum um Klaustursmálið
Kryddsíldin 2018 hófst á því að Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, sagðist hafa átt fjölda sambærilegra funda og þann sem tekinn var upp á Klaustur Bar í síðasta mánuði.

Bára Halldórsdóttir maður ársins: „Mér finnst ég vera að gera eitthvað gott“
Bára Halldórsdóttir fötlunaraktívisti er maður ársins 2018 að mati hlustenda Bylgjunnar og lesenda Vísis.

Íslenska bíóárið 2018: Lof mér að falla stærri en vinsælustu myndir síðustu ára
Íslenska bíóárið gert upp.

Þessir Íslendingar kvöddu á árinu 2018
Margir þjóðþekktir Íslendingar kvöddu þennan heim á árinu sem senn er á enda, þar á meðal einn ástsælasti leikari þjóðarinnar, heimsfrægt tónskáld, fyrrverandi ráðherra og eitt fremsta ljóðskáld þjóðarinnar.

Svona skiptust stigin í kjörinu á Íþróttamanni ársins
Samtök íþróttafréttamanna kusu Íþróttamann ársins í 63. skipti í ár og var valið kunngjört við hátíðlega athöfn í Hörpu. Knattspyrnukonan Sara Björk Gunnarsdóttir hlaut nafnbótina þetta árið.

„Loksins“ vann Sara titilinn
Nýkrýndur Íþróttamaður ársins Sara Björk Gunnarsdóttir sagðist loksins hafa unnið stóra titilinn eftir að hafa verið á meðal tíu efstu oftar en nokkur íþróttakona.

Sara Björk er Íþróttamaður ársins 2018
Knattspyrnukonan Sara Björk Gunnarsdóttir er íþróttamaður ársins 2018. Þetta er í fyrsta skipti sem Sara Björk hlýtur nafnbótina.

Landsliðið í golfi er lið ársins 2018
Landslið Íslands í golfi, sem vann gull á EM í Glasgow í ágúst, er lið ársins að mati Samtaka íþróttafréttamanna.

Kristján Andrésson er þjálfari ársins
Kristján Andrésson er þjálfari ársins að mati Samtaka íþróttafréttamanna. Kristján þjálfar sænska karlalandsliðið í handbolta.

Þetta stóð upp úr í tískuheiminum 2018
Það var margt sem gerðist í tískuheiminum á árinu. Miklar breytingar hafa átt sér stað og háværustu raddirnar að þessu sinni töluðu um kynferðisofbeldi, alvöru loðfeld, hertogaynjuna Meghan og mikilvægi þess að tískuhús sýni fjöl

Íslandsvinir ársins: Buslað í Bláa lóninu, „magnaður dagur“ Ronaldo og kóngafólk í kuldanum
Á meðal þeirra sem ferðast hafa til Íslands á árinu eru stjörnur úr heimi leiklistar, tónlistar, íþrótta og viðskipta – sumar konungbornar, aðrar ekki.

Með tögl og hagldir í íslenskum sjávarútvegi
Álitsgjafar Markaðarins segja að með kaupum á ríflega þriðjungshlut í HB Granda hafi Guðmundur Kristjánsson, viðskiptamaður ársins, komið sér í lykilstöðu í einu öflugasta sjávarútvegsfyrirtæki landsins. Kapallinn hafi gengið upp.

Fjárfesting í skuldabréfum WOW air í útboði félagsins verstu viðskipti ársins
Kaup á skuldabréfum WOW air í útboði flugfélagsins í september eru verstu viðskipti ársins að mati dómnefndar Markaðarins. Fjármögnunin, um átta milljarðar króna, er sögð engan veginn hafa dugað flugfélaginu og komið allt of seint.

Sala CCP viðurkenning fyrir íslenskt hugvit
Álitsgjafar Markaðarins segja söluna á CCP til Pearl Abyss fela í sér viðurkenningu á því uppbyggingarstarfi sem hafi verið unnið innan fyrirtækisins. Salan sé engin tilviljun. Um er að ræða stærstu sölu á íslensku tæknifyrirtæki frá upphafi.

2018 versta árið á mörkuðum í áratug
Þúsundir milljarða dala gufuðu upp á alþjóðlegum hlutabréfamörkuðum á árinu. Heimsvísitala hlutabréfa féll í fyrsta sinn í áratug um tveggja stafa prósentutölu. Ríkisskuldabréf lækkuðu víðast hvar í verði. Fjárfestar óttast verðhækkanir á næsta ári.

Reiðufé gaf hvað mest af sér á árinu 2018
Ávöxtunin nam 1,8 prósentum en til samanburðar var ávöxtun bandarískra ríkisskuldabréfa 0,3 prósent.

Sannar að þetta "eitthvað annað“ er til
Framkvæmdastjóri CCP segir að þrautseigja sé listin við nýsköpun. Aldrei kom til greina að gefast upp. Hann lærði auðmýkt á tveggja áratuga uppbyggingarstarfi. Óskilgreind afkvæmi CCP séu um allar jarðir.