Dýr

Gullrós kom með fimm lömb annað árið í röð
Ærin Gullrós er líklega með frjósömustu kindum landsins því hún bar fimm lömbum í gær og hún átti líka fimm lömb síðasta vor. Níu ára stelpa, sem á Gullrós hefur gefið einu lambanna nafnið Ósk og svo eru hún að leita af nöfnum á hin fjögur lömbin.

Fara með hvalveiðileyfi til EFTA
Náttúruverndarsamtök Íslands hafa vísað veitingu hvalveiðileyfis til Hvals hf. til eftirlitsstofnunar EFTA. Lögfræðingur samtakanna segist telja að leyfið stangist á við Evrópureglur og vonar að stofnunin bregðist hratt við.

Einn látinn og 23 saknað eftir flóðhestaárás
Eins árs drengur er látinn og 23 er saknað eftir að flóðhestur réðst á bát í Malaví í gær og hvolfdi honum. Björgunarsveitir leita að fólkinu en litlar líkur eru taldar á því að nokkur finnist á lífi.

Reyndi að setja hundinn undir stýri til að sleppa við handtöku
Lögregluþjónar í bænum Springfield í Colorado í Bandaríkjunum stöðvuðu um helgina ökumann fyrir of hraðan akstur. Þegar lögregluþjónn nálgaðist bílinn sá hann ökumanninn færa sig yfir í farþegasætið og setja hund sem var í bílnum í ökumannasætið.

Slapp með skrekkinn frá hákarlaárás
Sjóstangveiðimaður komst í hann krappan undan ströndum Honolulu í Havaí á dögunum. Scott Haraguchi hafði nýverið veitt fisk á kajak og var að undirbúa sig fyrir að kasta aftur, þegar tígrisháfur synti að honum á miklum hraða og beit duglega í kajakinn.

„Allir“ eru að kaupa sér hænuunga
Eftirspurn eftir hænuungum hefur sjaldan eða aldrei verið eins mikil og nú enda hefur hænsnaræktandi á Suðurlandi ekki undan að fylla útungunarvélar sína af eggjum og taka í kjölfarið á móti spriklandi ungum og afhenda víða um land.

„Ansi dýrt áhugamál hjá einum karli“
Lögmaður Náttúruverndarsamtaka Íslands segir einsýnt að stöðva þurfi hvalveiðar Íslendinga hið snarasta, ekki eingöngu vegna þess að fjárhagslegt tap er af þeim heldur einnig vegna gríðarlegra jákvæðra áhrifa hvala á loftslagið.

Heyrnarlaus kind með 270 þúsund fylgjendur
Kindin Sunna er án nokkurs vafa frægasta kind Íslands því hún á sér tvö hundruð og sjötíu þúsund fylgjendur á Instagram. Ástæðan er sú að Sunna er heyrnarlaus og hagar sér alls ekki eins og kind heldur miklu frekar eins og gæludýr.

Áform um nýja selalaug sett á ís
Borgaryfirvöld hafa ákveðið að fresta framkvæmdum við nýja selalaug í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum um óákveðinn tíma. Framkvæmdir hófust síðasta haust og búið var að grafa stærðarinnar holu þar sem laugin átti að vera. Nú verður fyllt upp í holuna.

Gekk fram á „sæskrímsli“ í fjörunni við Geldinganes
Leiðsögumaðurinn Björn Júlíus Grímsson gekk fram á það sem líkist risastórri syndandi margfætlu í fjörunni við Geldinganes í gær. Hann grínast með að um „sæskrímsli“ hafi verið að ræða. Líffræðingur segir að þarna sé á ferðinni sérlega glæsilegt eintak af burstaormi.

Segir mjög góðan rökstuðning þurfa ef halda á áfram hvalveiðum
Matvælaráðherra segir mjög góðan rökstuðning þurfa til þess að hvalveiðar verði stundaðar áfram en reglugerð um veiðarnar rennur út eftir yfirstandandi veiðitímabil. Sönnunarbyrðin hvíli á þeim sem vilja halda veiðunum til streitu.

Hrossinu rænt á Vestfjörðum í annarri tilraun
Lögreglan á Vestfjörðum hefur til rannsóknar hrossaþjófnað á bóndabæ í Arnarfirði. Um er að ræða sama hross og gert var tilraun til að ræna í fyrrinótt.

Dýralæknafélag Íslands segir ráðherra bera að stöðva hvalveiðar tafarlaust
Dýralæknafélag Íslands segir skýrslu Matvælastofnunar um velferð hvala við veiðar sýna með óyggjandi hætti að sú aflífunaraðferð sem notuð sé og samykkt brjóti gegn meginmarkmiðum laga um velferð dýra.

Reyndi að ræna hrossi af bæ á Vestfjörðum
Lögreglan á Vestfjörðum var kölluð til í gærkvöldi á bóndabæ þar sem hross hafði verið fjarlægt án heimildar eiganda.

Kristján sakar Matvælastofnun um villandi framsetningu
Kristján Loftsson, forstjóri Hvals hf., gagnrýnir Matvælastofnun og nýja skýrslu um veiðar á stórhvelum hér við land harðlega. Hann segir ýmislegt í skýrslunni matskennt og að sjómenn séu beinlínis svertir í henni með villandi framsetningu á atburðarrás.

Diljá býr í Húsdýragarðinum
Fyrstu lömb sumarsins í Húsdýragarðinum komu í heiminn í dag og eitt þeirra hefur nú þegar hlotið viðeigandi nafn í ljósi tímasetningarinnar. Hún ber að sjálfsögðu nafnið Diljá í höfuðið á Eurovisionfara Íslands.

Orðlaus yfir svörum vegna aðbúnaðar hrossa á Vestfjörðum
Dýravelferðarsinni segir ólíðandi að Matvælastofnun hafi ekki gripið til aðgerða vegna endurtekinna tilkynninga um slæman aðbúnað hrossa á bæ í Arnarfirði. Þegar hún skoðaði aðstæður um helgina var hross fast í girðingu og lögregla kölluð að bænum. Eigandinn segir að stofnunin hafi gert sér að aflífa eitt hrossanna, hin séu í góðu haldi.

ESA segir reglur um vernd dýra brotnar með blóðmerahaldi
Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) segir Íslendinga brjóta gegn reglum EES um vernd dýra sem notuð eru í vísindaskyni með blóðmerahaldi. Stofnunin sendi formlegt áminningarbréf til Íslands í dag þar sem kallað er eftir því að reglunum verði fylgt.

Hunda- og kattahald í fjölbýlishúsum
Í lögum um fjöleignahús er kveðið á um að hunda- og kattahald í fjöleignarhúsi sé háð samþykki 2/3 hluta eigenda sem hafa sameiginlegan inngang eða stigagang. Þá segir að þegar hvorki er um sameiginlegan inngang né stigagang að ræða er samþykkis annarra eigenda ekki þörf fyrir hunda- og kattahaldi í húsinu.

Hafa greint skæða fuglaflensu í stokkönd
Skæð fuglaflensa H5N1 hefur greinst í stokkönd sem fannst í húsagarði í Garðabæ í lok mars. Um er að ræða fyrstu skæðu fuglaflensuna sem greinist hér á landi á þessu ári. Sömuleiðis hefur verið tilkynnt um óútskýrðan fjöldadauða í ritum á síðustu vikum.

Segir það ekki satt að hún geti afturkallað leyfið
Matvælaráðherra segir það ekki rétt að hún geti afturkallað hvalveiðileyfi Hvals hf. sem er í gildi út þetta ár. Ekki liggur fyrir hvort leyfið verði endurnýjað á næsta ári.

Gætu dregið ríkið fyrir dóm vegna aðgerðaleysis
Náttúruverndarsamtök skoða nú hvort þau geti dregið íslenska ríkið fyrir dómstóla fyrir aðgerðaleysi í hvalveiði- og loftslagsmálum. Lögmaður Náttúruverndarsamtaka Íslands segir undiröldu gegn hvalveiðum allt öðruvísi nú en undanfarin ár.

„Þetta hlýtur að teljast óásættanlegt“
Ný skýrsla Matvælastofnunar um velferð hvala og hvalveiðar er sláandi að sögn matvælaráðherra. Nú fer að hefjast síðasta vertíð núverandi leyfistímabils og ráðherra telur að skoða þurfi málin vel áður en nýtt leyfi verður gefið út.

Umbæru aldrei slíka meðferð á öðrum dýrategundum
Lögmaður Náttúruverndarsamtaka Íslands segir að Íslendingar myndu aldrei sætta sig við að aðrar dýrategundir væru látnar sæta sömu meðferð og hvalir eins og lýst er í nýrri skýrslu Matvælastofnunar um hvalveiðar. Ráðherra sé skylt að afturkalla veiðileyfi á grundvelli hennar.

Álka sem fannst á Spáni talin vera frá Íslandi
Lögreglan í Mazagon á Spáni fangaði á dögunum álkufugl sem fundist hafði við stendur bæjarins. Talið er líklegt að fuglinn hafi flogið suður um höf frá Íslandi, enda finnst meirihluti allra álka í heiminum hérlendis.

Týndist á Hellu og fannst í bílakjallara í Reykjavík
Kötturinn Beygla hvarf frá Hellu fyrir rúmum tíu dögum síðan. Í gær fannst Beygla í bílakjallara í Reykjavík og verður henni komið aftur heim á næstu dögum. Fannst Beygla tæplega níutíu kílómetrum frá heimili sínu.

„Hann getur ekki gert neinum mein og er besti vinur allra“
„Ég gæti ekki ímyndað mér að lifa án hans,“ segir dóttir konu sem tók að sér hund systur sinnar sem lést úr krabbameini. Nágrannar eru ósáttir við veru hundsins í húsinu þrátt fyrir að þeir búi ekki á sama stigagangi. Enginn hefur borið fyrir sig ofnæmi né ónæði.

Gæsirnar mun færri en í venjulegu ári
Mun færri gæsir virðast hafa lagt leið sína hingað til lands í vor en í venjulegu ári, í það minnsta á Suðausturlandi

Líkamsleifar týnds manns fundust í krókódíl
Líkamsleifar ástralsks manns sem týndist fundust í krókódíl. Maðurinn hvarf er hann var að veiða með vinum sínum í þjóðgarði í norðanverðri Ástralíu. Leit að manninum hafði staðið yfir í tvo daga þegar líkamsleifarnar fundust í krókódílnum.

Berjast fyrir að halda hundi sem hjálpaði systur í krabbameinsbaráttu
Systir konu sem lést úr krabbameini sér fram á að missa hundinn sem var henni við hlið í dauðastríðinu. Málið er komið fyrir kærunefnd húsamála.