Hinsegin

Falskar spár um heimsendi voru kornið sem fyllti mælinn
Örn Svavarsson gekk úr söfnuði Votta Jehóva á þrítugsaldri. Hann segir kornið sem fyllti mælinn hafa verið fölsk spá um heimsendi. Hann segir söfnuðinn byggja einhverjar skoðanir sínar á hlutum sem eru alls ekkert í Biblíunni líkt og haldið er fram.

Guðleg leiðsögn Vottanna er í raun hugarfóstur afturhaldskurfa í NY
Þessa dagana má sjá stiklu á netinu sem Vottar Jehóva vilja kalla kennsluefni, en er ekkert annað en áróður fyrir ansi fornri og satt að segja brenglaðri trúarhugmynd.

„Mig langar næstum að gubba yfir þetta“
Formaður allsherjar-og menntamálanefndar Alþingis segir það vera ömurlegt að fordómafullum boðskap sé haldið að börnum í Vottum Jéhóva. Umdeilt kennslumyndband sé hreint út sagt ógeðslegt. Hún segir það mikið inngrip að svipta trúfélag sóknargjöldum en finnst ástæða til að fylgjast með þróuninni hjá Norðmönnum í þessum efnum.

Finnur til með börnum safnaðarins sem búi við „þetta ofbeldi“
Fyrrverandi Vottur Jehóva segist finna til með börnum safnaðarins vegna kennslumyndbands Votta, „Einn maður, ein kona.“ Myndbandið hefur sætt harðri gagnrýni en það virðist ýja að því að hinsegin fólk geti ekki komist í „Paradís.“

Sláandi og sorglegt að sjá hatur framsett á sakleysislegan hátt í barnaefni
Umdeilt kennslumyndband Votta Jehóva þar sem samkynhneigð er rædd hefur sætt mikilli gagnrýni. Myndbandið hefur lengi verið sýnt börnum innan safnaðarins. Stofnandi Hinseginleikans segir hatur matreitt ofan í börnin og þau beri það síðan með sér í sitt nærumhverfi. Óásættanlegt sé að trúfélag sem ríkið styrki dreifi hatri í skjóli trúfrelsis. Lög landsins verði að eiga um þau líka.

Bein útsending: Maður, manneskja, man eða menni?
Eiríkur Rögnvaldsson flytur þriðja fyrirlestur hádegisraðar RIKK – Rannsóknastofnunar í jafnréttisfræðum við Háskóla Íslands á haustmisseri 2022 en yfirskrift raðarinnar er sú sama og á vormisseri: Hinsegin Ísland í alþjóðlegu samhengi. Fyrirlestur Eiríks nefnist „Maður, manneskja, man eða menni?“ og mun hann fjalla um merkingu orðsins maður í sögulegu samhengi og vandkvæði á að nota það í kynhlutlausri merkingu.

Fyrirliði Feyenoord vildi ekki vera með regnbogaband
Orkun Kökcü, leikmaður Feyenoord, neitaði að vera með fyrirliðaband í regnbogalitum í leik liðsins gegn AZ Alkmaar í hollensku úrvalsdeildinni um helgina.

Kynsegin fólk fær sinn eigin flokk í stærstu hlaupum Íslands
Íþróttabandalag Reykjavíkur ætlar að opna fyrir skráningar fyrir kynsegin þátttakendur í hlaupaviðburðum bandalagsins á næsta ári. Um er að ræða hlaup á borð við Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka, Laugavegshlaupið og Miðnæturhlaup Suzuki. Veitt verða verðlaun í þremur flokkum í fyrsta sinn.

Tveir skotnir til bana við skemmtistað hinsegin fólks í Bratislava
Tveir eru látnir eftir skotárás fyrir utan skemmtistað hinsegin fólks í slóvakísku höfuðborginni Bratislava í gærkvöldi.

Vilja gera kynsegin fólki kleift að breyta eftirnafni án breyttrar kynskráningar
Nokkrir stjórnarandstöðuþingmenn vilja sjá breytingar á mannanafnalögum til að bæta stöðu kynsegin fólks. Þeir leggja meðal annars til að fólki verði leyft að breyta eftirnöfnum sínum án þess að það sé búið að breyta kynskráningunni.

Harry Kane staðráðinn í að brjóta reglu FIFA á HM í Katar
Harry Kane ætlar ekki að láta reglur Alþjóða knattspyrnusambandsins stoppa sig á HM í Katar í næsta mánuði.

Börn eru að kalla eftir hjálp
Mörgum brá við umfjöllun í Kastljósi í gær þar sem heyra mátti upptöku af skilaboðum þar sem börn voru að áreita einstakling fyrir að vera hinsegin. Svívirðingarnar og rangfærslurnar sem börnin létu hafa eftir sér á upptökunni voru átakanlegar. Margir halda eflaust að svona skilaboð séu undantekningar, en svo er ekki. Ljót skilaboð, áreiti og skammir eru hluti af daglegu lífi margra barna og mörg upplifa að þau geti ekki leitað til neins eftir hjálp.

Segir Casillas vera aumkunarverðan
Beth Fisher, blaðamaður hjá breska blaðinu The Guardian, vandar Iker Casillas ekki kveðjurnar eftir nýjustu tíðindi dagsins.

Casillas grínast með að koma út úr skápnum: „Ég vona að þið virðið mig“
Iker Casillas, fyrrum markvörður Real Madrid, setti inn færslu á Twitter í dag þar sem hann segist vera samkynhneigður. Casillas eyddi síðar færslu sinni.

Samkynhneigður maður afhöfðaður á Vesturbakkanum
Einn er í haldi palestínsku lögreglunnar vegna morðs á 25 ára gömlum samkynhneigðum karlmanni. Lík mannsins fannst afhöfðað í Hebron á Vesturbakkanum. Samtök hinsegin fólks í Ísrael segja að honum hafi borist hótanir vegna kynhneigðar sinnar.

Scooby-Doo persóna kemur út úr skápnum
Persónan Velma Dinkley úr þáttunum um hundinn snjalla Scooby-Doo og vini hans í félaginu Ráðgátur hf. er komin út úr skápnum. Í nýrri kvikmynd um fimmmenningana verður Velma ástfangin af annarri kvenpersónu.

Taka þurfi á upplýsingaóreiðu um hinsegin fólk: „Við verðum að fá allt samfélagið með okkur“
Starfshópur forsætisráðherra gegn hatursorðræðu kemur til með að skila niðurstöðum sínum fyrir lok árs en framkvæmdastjóri Samtakanna 78 segir upplýsingaóreiðu þeirra helsta óvin um þessar mundir. Stjórnvöld geti gert meira til að bregðast við og samfélagið allt þurfi að taka þátt.

Full ástæða til að halda áfram að kortleggja hatursorðræðu á Íslandi
Fulltrúar frá á þriðja tug hagsmunasamtaka hafa sótt fundi starfshóps forsætisráðherra gegn hatursorðræðu en formaður hópsins segir ljóst að ákveðnir hópar komi verr út en aðrir. Þó erfitt sé að meta hvort hatursorðræða fari beinlínis vaxandi hér á landi sé full ástæða til að halda vinnunni áfram.

Kennir gagnkynhneigðum um slæmt gengi kvikmyndarinnar
Miðasala fyrir nýju kvikmyndina Bros gekk heldur dapurlega um helgina en Billy Eichner, leikstjóri, höfundur og einn aðalleikari myndarinnar, segir það ekki við myndina sjálfa að sakast, heldur gagnkynhneigt fólk sem mætti ekki.

Samherji Viggós kom út úr skápnum
Lucas Krzikalla, leikmaður Leipzig í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta, greindi frá því um helgina að hann væri samkynhneigður.

Kæra á hendur Arnari felld niður
Lögreglurannsókn á meintri hatursorðræðu Arnars Sverrissonar sálfræðings hefur verið felld niður.

Hinsegin fólk óttast um hag sinn undir róttækri hægristjórn
Orðræða og stefnuskrár tveggja róttækra hægriflokka sem unnu sigur í ítölsku þingkosningunum um helgina vekja ugg á meðal hinsegin fólks í landinu. Líklegasta forsætirsáðherraefnið hefur sagst óvinur „LGBT-þrýstihópsins“ og „kynjaðrar hugmyndafræði“.

Hjónabönd samkynhneigðra verða lögleg á Kúbu
Kúbverjar gengu að kjörborðinu í gær þar sem kjósendur greiddu atkvæði um hvort gera ætti hjónabönd samkynhneigðra lögleg í landinu. Nú þegar búið er að telja um 95 prósent atkvæða er ljóst að þau verði gerð lögleg.

„Fjallar að miklu leyti um þetta ferli mitt að verða ástfangin af konu”
Hljómsveitin Vök hefur látið til sín taka í útgáfumálum á þessu ári og sendir nú frá sér sína þriðju plötu sem nefnist einfaldlega VÖK. Eins og kom fram á Vísi fyrr í dag mun VÖK koma fram á Iceland Airwaves í ár.

Í það minnsta átta þjóðir munu spila með regnbogaarmbönd í Katar
Fjölmargir hafa lýst yfir áhyggjum yfir réttindum hinsegin fólks í Katar í aðdraganda heimsmeistaramóts karla í fótbolta sem fer þar fram í vetur. Í það minnsta átta þátttökuþjóðir munu sýna réttindabaráttu hópanna samstöðu á mótinu.

Í upphafi þingvetrar
Við upphaf nýs þingvetrar er að mörgu að hyggja, bæði hér heimafyrir og á alþjóðavísu. Efnahagsmálin munu koma til að vega þungt. Það er nauðsynlegt að ná tökum á verðbólgunni. Sem betur fer er atvinnuástand gott og allar mælingar sýna að heimilin standa almennt vel.

Til átaka kom vegna gleðigöngu og 64 mótmælendur handteknir
Til átaka kom á milli serbnesku lögreglunnar í Belgrad og tveggja hægri sinnaðra mótmælendahópa þegar gleðiganga var farin. Tíu lögreglumenn eru slasaðir eftir átökin og 64 mótmælendur sagðir handteknir.

Vilja tafarlaust grípa til aðgerða: Ungum dreng ítrekað sagt að drepa sig vegna kynhneigðar
Mannréttinda- og ofbeldisvarnarráð hefur miklar áhyggjur af stöðu hinsegin barna og ungmenna í skóla- og frístundastarfi en umræddur hópur verður oft fyrir aðkasti innan og utan veggja skólans.

Fórnarlambanna minnst í regnbogalest í Osló
Fjöldi fólks hefur safnast saman í miðborg Oslóar til að minnast fórnarlamba byssumanns á hinsegin skemmtistað í borginni í sumar og til að fagna fjölbreytileikanum. Talsverður viðbúnaður er hjá lögreglu vegna regnbogalestarinnar svokölluðu til að tryggja öryggi gesta og þátttakenda.

FO vettlingar styðja við hinsegin verkefni UN Women
40 hinsegin einstaklingar sitja fyrir á öllu Fokk ofbeldi herferðarefninu í ár. Þessir einstaklingar eru andlit FO.