Fréttir
Nýr ritstjóri á Nýju Lífi Heiðdís Lilja Magnúsdóttir hefur verið ráðin sem ritstjóri á tímaritinu Nýju Lífi. Heiðdís Lilja er píanókennari að mennt en hefur starfað hjá Nýju Lífi síðastliðin fimm ár. Innlent 17.7.2006 15:32
Ungur maður kærður fyrir nauðgun Sextán ára stúlka hefur kært ungan mann fyrir að hafa nauðgað sér í bíl í Reykjavík í nótt og þrjá vini hans fyrir að hafa ekki komið sér til hjálpar, en þeir voru í bílnum. Innlent 17.7.2006 15:27
Esso hækkar bensínverð Olíufélagið Essó hækkaði verð á bensínlítra um 3,80 krónur í morgun og kostar lítrinn nú í sjálfsafgreiðslu tæpar 133 krónur. Innlent 17.7.2006 15:10
Lánshæfismat Íbúðalánasjóðs lækkar Alþjóðlega matsfyrirtækið Standard & Poor's hefur lækkað lánshæfismat Íbúðalánasjóðs til langs tíma úr AA+ í AA-. Um leið er lánshæfismatið fært af athugunarlista þar sem það hafði áður verið sett með neikvæðum horfum. Horfur í íslenskum krónur eru stöðugar, að mati fyrirtækisins. Viðskipti innlent 17.7.2006 14:57
Á leið til Damaskus að sækja Íslendinga og aðra Norðurlandabúa Vél frá flugfélaginu Air Atlanta Icelandic er á leið til Damaskus að sækja Íslendinga og aðra Norðurlandabúa. Vélin, sem er í eigu Avion Group og tekur rúmlega 450 manns í sæti, leggur af stað frá London rúmlega 10 í kvöld. Innlent 17.7.2006 14:19
Farsæl lending Discovery geimskutlunnar Discovery-geimskutlan lenti heilu og höldnu í Kennedy-geimferðamiðstöðinni í Flórída klukkan rétt eftir klukkan eitt, eftir þrettán daga ferðalag til alþjóðlegu geimstöðvarinnar. Erlent 17.7.2006 13:51
Reglur við Þingvallavatn hertar Umhverfisráðherra hefur með reglugerð hert til muna reglur um umgengni við Þingvallavatn. Gerðar eru strangari kröfur en almennt er, hvað varðar frárennsli frá byggingum og lagningu og viðhald vega. Þá eru gerðar ýtarlegar kröfur til ræktunarframkvæmda og notkunar áburðar í landbúnaði við vatnið og hvers kyns fiskeldi í eða við vatnið verður bannað. Innlent 17.7.2006 13:20
Hlaup byrjað úr Grænalóni Hlaup er byrjað úr Grænalóni, vestanvert á Skeiðarársandi og verður þess væntanlega vart undir Núpsvatnabrú. Hlaup úr Grænalóni eru tíð, gerast jafnvel jafnvel tvisvar á ári. Innlent 17.7.2006 13:11
Flóðbylgja á Jövu Í það minnsta áttatíu eru látnir eftir að flóðbylgja reið yfir Jövu eftir jarðskjálfta upp á 7,2 stig sem varð í Indlandshafi í morgun. Stjórnvöld á Indlandi hafa gefið út flóðbylgjuviðvörun á Andaman- og Níkóbareyjum, sem eru austur af Súmötru, en þar fórust tugþúsundir í flóðbylgjunni miklu á annan í jólum 2004. Erlent 17.7.2006 12:52
Kjararáð skipað Skipaður hefur verið nýr úrskurðaraðili, kjararáð, sem ætlað er að ákveða laun og starfskjör alþingismanna, ráðherra og dómara og annarra ríkisstarfsmanna sem ekki eru ráðnir til starfa með hefðbundnum hætti vegna eðli starfanna eða samningsstöðu. Innlent 17.7.2006 11:16
MP banki aðili að kauphöllum í Eystrasaltsríkjum Stjórnir kauphallanna í Tallin í Eistlandi, Riga í Lettlandi og Vilníus í Litháen hafa samþykkt aðild MP banka að kauphöllunum. Bankinn er fyrsta íslenska fjármálafyrirtækið með aðild að þessum kauphöllum. Innlent 17.7.2006 10:56
Olíuverð nálægt 78 dölum á tunnu Heimsmarkaðsverð á olíu lá við 78 dali á tunnu í fyrstu viðskiptum dagsins á helstu mörkuðum og stendur verðið nálægt sögulegu hámarki. Ástæðan fyrir svo háu verði skrifast fyrst og fremst á loftárásir Íslaelsmanna á Líbanon en árásir skæruliðahópa á olíuvinnslustöðvar erlendra fyrirtækja í Nígeríu og vaxandi spenna vegna kjarnorkuáætlunar Írana á einnig hlut að máli. Viðskipti erlent 17.7.2006 10:03
MP Fjárfestingarbanki í Eystrasalti MP Fjárfestingarbanki verður fyrsta íslenska fjármálafyrirtækið með aðild að kauphöllunum í Tallinn í Eistlandi, Ríga í Lettlandi og Vilníus í Litháen. Stjórnir kauphallanna hafa samþykkt aðild fjárfestingarbankans sem verður þar með tólfta fjármálafyrirtækið með aðild að öllum mörkuðum Eystrasaltsríkjanna. Viðskipti innlent 17.7.2006 09:54
Umhverfisráðherra hvetur til afnáms á skaðlegum niðurgreiðslum Jónína Bjartmarz umhverfisráðherra hvatti til afnáms á niðurgreiðslum sem geta haft skaðleg áhrif á umhverfið og til aukinnar þátttöku atvinnulífsins í baráttu gegn loftslagsbreytingum á fundi evrópskra umhverfisráðherra í Turku í Finnlandi. Innlent 17.7.2006 09:47
Verðmæti útfluttra sjávarafurða dróst saman Verðmæti sjávarafurða til útflutnings á síðasta ári nam 112 milljörðum króna en það er 5,7 prósentum minna en árið á undan. Verðið hélst lítið breytt á heildina litið í íslenskum krónum og dróst framleiðslan, mæld á föstu verði ársins 2004, því saman um 5,6 prósent. Viðskipti erlent 17.7.2006 09:42
Alþjóðlegt friðargæslulið til Líbanon Kofi Annan, aðalritari Sameinuðu þjóðanna og Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, hvetja nú til að alþjóðlegt friðargæslulið verði sent til Líbanons til að freista þess að stöðva sprengingar Hezbollah í Ísrael. Segja þeir að þetta sé árangursríkast til friðar, því ef næst að binda endi á sprengingar í Ísrael, hafi Ísraelar ekki lengur ástæðu til að ráðast á Líbanon Erlent 17.7.2006 09:34
Fjórir handteknir vegna nauðgunarkæru Lögreglan í Reykjavík hefur handtekið fjóra unga karlmenn vegna nauðgunarkæru. Ung kona kærði nauðgun upp úr miðnætti og var flutt í neyðarmóttöku fyrir fórnarlömb nauðgana á Landsspítalanum. Jafnframt hófst rannsókn, sem leiddi til handtakanna. Lífsýni hafa verið tekin úr mönnunum og verða þeir svo yfirheyrðir í dag. Verknaðurinn átti sér stað í heimahúsi. Á þessari stundu eru frekari málsatvik óljós, að sögn lögreglu. Innlent 17.7.2006 09:26
Íslenskt götuheiti í Svartfjallalandi Stjórnmálaflokkur í Svartfjallalandi hefur lagt fram tillögu um að breyta götuheiti þar í landi. Ætlunin er að gatan beri heiti eftir Íslandi en með því á að heiðra Íslendinga fyrir að hafa fyrstir orðið til þess að viðurkenna Svartfjallaland sem sjálfstætt ríki í maí á þessu ári. Erlent 17.7.2006 09:06
Íslenskar kartöflur Fyrstu nýju kartöflurnar úr sunnlenskum görðum koma á markað á höfuðborgarsvæðinu í dag. Það verða Premier kartöflur , sem Birkir Ármannsson í Vestur Holti í Þykkvabæ, byrjaði að taka upp í morgun. Innlent 17.7.2006 08:32
Stjórnsýsluúttekt gerð á Strætó Gerð verður rekstrar- og stjórnsýsluúttekt á Strætó að beiðni borgaryfirvalda. Borgarfulltrúi í stjórn fyrirtækisins segir meirihlutann í borgarstjórn hafa verið upplýstan um þjónustuskerðingu fyrirtækisins. Innlent 16.7.2006 18:16
Engar rútuferðir á morgun Íslensk kona ásamt fjögurra mánaða ungabarni og eiginmanni sínum er ein þeirra sex Íslendinga sem enn eru strandaglópar í Beirút. Íslendingarnir voru komnir upp í rútu í hádeginu í dag þegar þeim var vísað út og sagt að Norðmenn gengju fyrir. Enn er óvíst um að Íslendingarnir komist áleiðis heim á morgun. Innlent 16.7.2006 17:33
Öryggisráðið dragi fæturna Forseti Líbanon sakar Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna um að draga fæturna í stað þess að grípa til aðgerða til að stöðva loftárásir Ísraela í Líbanon. Hann segir þetta með vilja gert til að gefa Ísrael meiri tíma til að knésetja Líbanon. Erlent 16.7.2006 17:27
Segir borgaryfirvöld velja einkabílinn. Formaður Stúdentaráðs Háskóla Íslands segir þjónustuskerðingu Strætó bitna illilega á námsmönnum. Ráðamenn í borginni velji einkabílinn fyrir borgarbúa. Innlent 16.7.2006 18:26
Einn leiðtoga Rauðu kmeranna liggur fyrir dauðanum Einn af herforingjum Rauðu kmeranna í Kambódíu liggur nú í dauðadái og eiga læknar ekki von á bata. Ta Mok hlaut viðurnefnið slátrarinn í þjóðernishreinsunum khmeranna i Kambódíu á áttunda áratugnum, sem eru með þeim verstu sem áttu sér stað í heiminum á síðustu öld. Óttast er að flestir ábyrgðarmanna þjóðarmorðanna verði látnir áður en næst að dæma þá fyrir glæpina sem þeir frömdu, en réttarhöld yfir þeim hafa enn ekki hafist. Málin hafa þó mjakast í rétta átt í mánuðinum þegar embættismenn voru kosnir til að skipuleggja réttarhöldin yfir þeim. Erlent 16.7.2006 15:41
Fundur ríkja sunnan Sahara Nokkur hundruð manns eru nú saman komin í Goa í Malí til að kljást við ýmis vandamál sem hrjá Afríkuríki sunnan Sahara-eyðimerkurinnar. Fundurinn er settur á sama tíma og fundur átta helstu iðnríkja heims til þess að vekja athygli á ýmsum umræðuefnum sem forsvarsmenn ráðstefnunnar segja ekki hljóta neina umfjöllun á G8-fundinum, svo sem vopnuð átök sunnan Sahara, eyðni, skuldastaða Afríkuríkja og viðskiptahættir vestrænna fyrirtækja í Afríku. Erlent 16.7.2006 15:28
Leiðtogi Hezbollah sagður slasaður Ísraelsk sjónvarpsstöð heldur því nú fram að Nasrallah, leiðtogi Hezbollah-samtakanna, hafi slasast í loftárásum Ísraelsmanna. Þetta hefur hins vegar ekki enn fengist staðfest frá yfirvöldum en vitað er að sprengjuárásir Ísraela hafa meðal annars beinst gegn höfuðstöðvum Hezbollah. Erlent 16.7.2006 15:12
Flugvél send til Sýrlands Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra hefur tekið ákvörðun um að senda flugvél til Damaskus í Sýrlandi til að flytja þaðan Norðurlandabúa sem eru á flótta frá Líbanon. Að sögn Valgerðar er vélin 472 sæta og mun væntanlega leggja af stað seinnipartinn á morgun. Sex Íslendingar eru enn strandaglópar í höfuðborginni Beirút þar sem Norðmenn voru látnir ganga fyrir í rútur sem áttu að flytja fólkið frá borginni. Innlent 16.7.2006 15:54
Fluttur frá Borgarnesi til Reykjavíkur eftir líkamsárás Maður var fluttur á slysadeild Landspítala-Háskólasjúkrahúss í Fossvogi í nótt eftir líkamsárás. Atvikið átti sér stað á Mótel Venus fyrir utan Borgarnes. Áverkar mannsins virtust miklir í fyrstu en við skoðun í Fossvogi reyndist hann ekki mikið skaddaður heldur einungis með glóðarauga og bólgið andlit. Búið er að útskrifa manninn. Innlent 16.7.2006 15:10
Smáskífa Nylon selst vel í Bretlandi Fyrsta smáskífa hljómsveitarinnar Nylon í Bretlandi endaði í 29. sæti sölulistans eftir vikuna. Smáskífan "Losing a Friend" kom í verslanir á mánudag og var uppseld í stórum hluta verslana í miðborg London sama dag. Meðal þeirra sem þurftu að láta í minni pokann fyrir Nylon flokknum eru meðlimir hljómsveitarinnar Red Hot Chili Peppers sem einnig gáfu út smáskífu í vikunni. Innlent 16.7.2006 15:07
Fjölmenn mótmæli í Indónesíu gegn árásum Ísraela Þúsundir manna komu saman á götum Jakarta, höfuðborgar Indónesíu í dag til að mótmæla árásum Ísraela á Líbanon og palestínsku sjálfstjórnarsvæðin. Margir báru spjöld sem sögðu Ísrael stunda hryðjuverk en aðrir báru palestínska fána. Ísraelski fáninn var fótum troðinn til að sýna fyrirlitningu mótmælendanna á ríkinu. Mótmælin eru þau stærstu í Indónesíu síðan árásir Ísraela á Líbanon hófust á miðvikudaginn. Indónesía hefur lengi stutt Palestínu að málum og neitar að viðurkenna Ísraelsríki. Erlent 16.7.2006 13:50