Fréttir

Fréttamynd

Ungir sjálfstæðismenn verja skattaupplýsingar

Ungir Sjálfstæðismenn reyndu að koma í veg fyrir að fólk skoðaði skattskrána á skrifstofu Skattstjórans í Reykjavík í dag, þegar álagning skatta á landsmenn var gerð opinber. Í ályktun sem stjórn Sambands ungra sjálfstæðismanna sendi frá sér í dag er talað um opinberun gagnanna sem ósóma.

Innlent
Fréttamynd

Íslensk stjórnvöld vilja tafarlaust vopnahlé í Líbanon

Valgerður Sverrisdóttir, utanríkisráðherra, hefur í dag ritað Tzipi Livni, utanríkisráðherra Ísraels, bréf þar sem hún lýsir yfir áhyggjum af ástandinu í Líbanon. Hún segir það viðhorf íslenskra stjórnvalda að gerð verði tafarlaus krafa um vopnahlé og eyðileggingu Líbanons hætt.

Innlent
Fréttamynd

Tveir bifhjólamenn teknir á yfir 140 km hraða

Tuttugu og einn ökumaður var tekinn fyrir hraðakstur í Reykjavík á síðasta sólarhring. Í tilkynningu frá lögreglunni segir að í þeim hópi hafi verið tveir bifhjólamenn sem óku á yfir 140 km hraða þar sem leyfilegur hámarkshraði er 60 km. Ekki þurfi að hafa mörg orð um svona akstursmáta sem sé stórhættulegur. Bifhjólamenn héldu baráttufund í Laugardalshöll í gærkvöldi en þrír úr þeirra röðum hafa dáið í umferðarslysum á árinu. Lögreglan segir það því kaldhæðni örlaganna að lögreglan skuli stöðva för tveggja bifhjólamanna fyrir ofsaakstur, nokkru eftir að fyrrnefndum fundi lauk. Lögreglan tekur þó fram að meginþorri bifhjólamanna sé til fyrirmyndar og virði umferðarlög. En eins og oft vilji vera sé misjafn sauður í mörgu fé og þeir setji blett á allan hópinn.

Innlent
Fréttamynd

Hæsta íbúðarhús á Íslandi mun rísa í vetur

Framkvæmdir eru hafnar við hæsta íbúðarhús landsins við Skúlagötu í Reykjavík. Jarðvegsvinna er hafin við annan áfanga Skuggahverfisins, en fimm fjölbýlishús verða byggð í þessum áfanga. Það hæsta verður 62 metrar á hæð og 20 hæðir. Húsin verða svipuð þeim sem þegar hafa risið í Skuggahverfinu. Á hverri hæð verða um tvær stórar íbúðir með mikilli lofthæð. Útsýni úr íbúðunum verður með því besta sem gerist hér á landi. Sala á íbúðum þessa áfanga hefst ekki fyrr en á næsta ári en þegar hefur orðið vart við mikinn áhuga á þeim. Félagið 101 Skuggahverfi áætlar einnig að hefjast handa við þriðja áfanga Skuggahverfisins innan næstu tveggja ára.

Innlent
Fréttamynd

Samgönguráðherra mun skoða nýja skýrslu um jarðgöng til Eyja

Samgönguráðherra hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna nýrrar skýrslu um jarðgöng til Vestmannaeyja sem unnin var fyrir Ægisdyr, félag áhugamanna um jarðgöng milli lands og Eyja, og var birt í gær. Samgönguráðuneytið vill taka fram að unnið sé að framtíðarlausnum í samgöngumálum Vestmannaeyja o skýrsla Ægisdyra verði skoðuð.

Innlent
Fréttamynd

Vinstri grænir skora á stjórnvöld

Þingflokkur Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs skorar á íslensk stjórnvöld að gera allt sem í þeirra valdi stendur til að stöðva frekari manndráp og eyðileggingu í Líbanon.

Innlent
Fréttamynd

Blair og Bush funda um stríðið í Líbanon

Ísraelski herinn hélt áfram loftárásum sínum á norðurhluta Líbanons í morgun. Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, hélt til fundar við George Bush, forseta Bandaríkjanna, í dag til að ræða átökin í Mið-Austurlöndum.

Erlent
Fréttamynd

Fundu skreyttan kamb frá sturlungaöld

Skreyttur kambur frá sturlungaöld fannst við fornleifauppgröft í Kolkuósi í Skagafirði í gær. Kamburinn er afar heillegur, tvöfaldur og settur saman með bronsnöglum en að öðru leyti gerður úr beini. Á honum er hringlaga skreyting sem er dæmigerð fyrir skreytilist 13. aldar.

Innlent
Fréttamynd

Meira selt en keypt

Innlendir fjárfestar seldu erlend verðbréf fyrir 6,5 milljarða krónur meira en þeir keyptu í júní. Þetta er 15 milljarða krónu viðsnúningur á þessu fjármagnsflæði frá sama tíma í fyrra, samkvæmt greiningardeild Glitnis banka.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Svíar um fjórðungur nýnema í læknisfræði

Svíar eru um fjórðungur allra þeirra sem fá inngöngu í læknanám í Danmörku í haust. Fréttavefur danska ríkissjónvarpsins greinir frá því að rúmlega 1.100 manns munu verða teknir inn í læknanám í haust í Danmörku. Mörgum þykir hlutfall Svía vera hátt en Í Kaupmannahöfn munu Svíar verða rúmlega 40% nýnema í læknanáminu. Ástæður þessa eru að íbúum landa Evrópusambandsins eru frjálst að sækja um skólavist í öðru landi en heimalandi sínu.

Erlent
Fréttamynd

Aldrei meiri vöruskiptahalli

Vörur voru fluttar út fyrir 22,3 milljarða króna í júní en vörur voru fluttar inn fyrir 38,1 milljarð króna. Vöruskipti vöru því óhagstæð um 15,7 milljarða króna og er það mest vöruskiptahalli í einum mánuði, samkvæmt útreikningum Hagstofunnar.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Hreindýrshaus fannst í ruslatunnu

Hreindýrshaus, skinn og lappir fundust í ruslatunnu við Freysnes í Öræfum á miðvikudagsmorgun. Fréttavefurinn Horn.is greinir frá því að reglur Umhverfisstofnunar banni stranglega að farið sé með úrgang hreindýra yfir í Öræfin, en Jökulsá á Breiðamerkursandi myndar sauðfjárveikivarnarlínu og skal fella þau dýr sem yfir ána fara.

Innlent
Fréttamynd

Falsaðar Evrur

Lögreglan í Reykjavík varar við útlendingi sem virðist reyna að koma fölsuðum evrum í umferð. Þetta er lágvaxinn karlmaður sem talar bjagaða ensku. Hann er dökkur yfirlitum og er líklega með gleraugu.

Innlent
Fréttamynd

Ók á tré

Ökumaður og farþegi hans slösuðust þegar bíll þeirra hafnaði á tré á mótum Suðurgötu og Hringbrautar, við hornið á gamla kirkjugarðinum í nótt. Hvorugur er alvarlega slasaður, en ökumaðurinn, sem var á vestuleið eftir Hringbraut, ók fyrst upp á miðju hringtorgsins, þaðan sem bíllinn kastaðist á tréð.

Innlent
Fréttamynd

Gengi lækkar hjá Landsbankanum og KB banka

Þrátt fyrir mjög góð hálfsársuppgjör KB banka og Landsbankans, hafa báðir bankarnir lækkað í verði síðan tölurnar voru birtar. Gengi á bréfum í KB banka hefur lækkað um 3% og um 1% í Landsbankanum.

Innlent
Fréttamynd

Fimmtán þúsund manna varalið kallað út

Ekkert dró úr átökum milli Ísraelshers og Hizbollah skæruliða í suðurhluta Líbanon í nótt. Ísraelsher hefur nú kallað út um fimmtán þúsund hermenn úr varaliði sínu til að taka þátt í átökunum.

Erlent
Fréttamynd

Mældist á 165 km hraða

Vélhjólamaður mældist á 165 kílómetra hraða á Reykjanesbraut á móts við Smáralind í gærkvöldi, þar sem hámarkshraði er 70 kílómetrar á klukkustund. Hann virti stöðvunarmerki Kópavogslögreglunnar að vettugi, sem reyndi ekki einu sinni að veita honum eftirför, heldur hafði samband við lögregluna í Hanfarfirði um að gera honum fyrirsát.

Innlent
Fréttamynd

Dreifa fimmtán þúsund smokkum

Læknanemar á vegum Ástráðs sem er forvarnarstarf læknanema ætla ekki að láta sig vanta um Verslunarmannahelgina og ætla að dreifa út um fimmtán þúsund smokkum.

Innlent
Fréttamynd

Minntust látinna bifhjólamanna

Bifhjólafólk hittist í Laugardalshöllinni í kvöld til að ræða bætta umferðarmenningu. Tveggja látinna bifhjólamanna var minnst á fundinum.

Innlent
Fréttamynd

Hafa ekki heimild fyrir árásum

Evrópusambandið tilkynnti nú undir kvöld að Ísraelar færu villu vegar ef þeir teldu sig hafa heimild fyrir áframhaldandi árásum á Líbanon eftir fund utanríkisráðherra í Róm í gær. ESB segir að árásirnar verði að hætta tafarlaust en Ísraelar eru ekki á þeim buxunum.

Erlent
Fréttamynd

Kjósa í fyrsta sinn

25 milljónir íbúa Austur-Kongó fá nú um helgina að kjósa sér forseta í fyrsta sinn. Fyrir fáeinum árum geisaði styrjöld í landinu sem kostaði tæpar fjórar milljónir mannslífa.

Innlent
Fréttamynd

Sex hundruð látnir í Líbanon

Ísraelska ríkisstjórnin túlkar niðurstöðu ráðstefnunnar um stríðið í Líbanon, sem fram fór í Róm í gær, sem samþykki alþjóðasamfélagsins fyrir áframhaldandi hernaði. Líbönsk yfirvöld telja að sex hundruð manns liggi í valnum eftir árásirnar.

Innlent
Fréttamynd

Vill banna tengivagna

Formaður samgöngunefndar Alþingis vill að flutningabílum verði bannað að aka með tengivagna. Hann segir að strandflutningar hafi lagst af áður en vegirnir voru tilbúnir fyrir aukna þungaflutninga. Nauðsynlegt sé að fara yfir gjaldskrár hafna til að reyna að ná hluta flutninganna aftur í skipin.

Innlent
Fréttamynd

Zeppelin fundið

Pólski sjóherinn hefur fundið þýska flugvélamóðurskipið Graf Zeppelin á sjávarbotni. Það hefur verið týnt í tæp sextíu ár og hafa örlög þess verið hjúpuð leyndardómi.

Innlent
Fréttamynd

Þráðlaus borg

Samfylkingin í Reykjavík vill að borgin beiti sér fyrir að þráðlausu netsambandi verði komið á í Reykjavík. Dagur B. Eggertsson segir tillöguna í takt við tölvuvæðingu Íslendinga og vel raunhæfa.

Innlent