Fréttir
Yukos úrskurðað gjaldþrota Rússneska olíufélagið Yukos hefur verið úrskurðað gjaldþrota. Félagið var stærsti olíuframleiðandi í Rússlandi þar til stofnandi Yukos var ákærður fyrir ýmis fjársvik fyrir þremur árum. Erlent 1.8.2006 22:28
Börn sem leggja aðra í einelti lenda á glapstigu Börn sem leggja önnur börn í einelti eru líklegri til að lenda á glapstigu. Þetta segir Þorlákur H. Helgason sem vinnur að svokölluðu Olweusar-verkefni hjá Kennaraháskóla Íslands. Rannsókn sem unnin var í efsta bekk grunnskóla í Stokkhólmi sýnir að börn og unglingar sem leggja aðra í einelti eru margfalt líklegri til að fremja afbrot. Einnig eru þau líklegri til að reykja daglega, neyta eiturlyfja og drekka. Innlent 1.8.2006 21:58
B6 vítamín gegn Parkinsons? Neysla B6 vítamíns virðist minnka líkurnar á að fá Parkinsons-sjúkdóminn. Því meira B6 vítamín, því betra. Hollensk rannsókn bendir til þess að neysla B6 vítamíns minnki líkurnar á Parkinsons. Parkinsons er sjúkdómur sem stafar af því að magn boðefnisins dópamíns minnkar hratt í heilanum. Dópamín er notað til að stjórna hreyfingum líkamans. Erlent 1.8.2006 21:56
Mikill verðmunur á nikótínlyfjum Verð á nikótínlyfjum hefur hækkað töluvert frá því í janúar samkvæmt nýlegri könnun Neytendasamtakanna. Veðhækkunin nemur allt að tuttugu og fjórum prósentum í sumum apótekum. Innlent 1.8.2006 21:52
Búið að slökkva eldinn Allt tiltækt slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út um klukkan átta í kvöld vegna elds í blokk við Kársnesbraut í Kópavogi. Eldurinn hafði kviknað í íbúð á efstu hæð en hún var þá mannlaus. Betur fór en á horfðist í fyrstu en um minniháttar bruna var að ræða og gekk slökkvistarf greiðlega. Ekki er vitað með tjón að svo stöddu en lögregla fer með rannsókn málsins. Líklegt þykir að um íkveikju hafi verið að ræða. Innlent 1.8.2006 20:57
Eldur í íbúðablokk á Kársnesbraut Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út rétt í þessu vegna elds í íbúðablokk við Kársnesbraut í Kópavogi. Slökkviliðsmenn eru komnir á staðinn en svo virðist sem um minniháttar bruna sé að ræða. Nokkur reykur er í íbúðinni en slökkviliðsmenn eru að störfum. Einn var í íbúðinni þegar eldurinn kom upp en honum varð ekki meint af. Nokkrar nærliggjandi íbúðir voru rýmdar þegar eldurinn kom upp en ekki reyndist þörf á að rýma alla blokkinni. Innlent 1.8.2006 20:28
Um 4.600 manns eiga bókaðar ferðir til Eyja Um 4.600 manns eiga bókaðar ferðir til Vestmannaeyja um næstu helgi. Fréttavefurinn Suðurland.is greinir frá því að flestir farþeganna eigi bókað far með Herjólfi til Eyja eða rúmlega 3.000 manns. Um 940 farþegar munu fljúga með Flugvfélagi Vestmannaeyja og þá eiga um 600 manns bókað flug til Eyja með Landsflugi en Landsflug mun fljúga frá Reykjavík, Höfn í Hornafirði og Sauðárkróki. Innlent 1.8.2006 19:16
Ekki gerð krafa um tafarlaust vopnahlé Útvötnuð yfirlýsing um átökin í Líbanon varð afrakstur neyðarfundar utanríkisráðherra Evrópusambandsríkjanna í Brussel í dag. Andstaða Breta og Þjóðverja kom í veg fyrir kröfu um tafarlaust vopnahlé. Erlent 1.8.2006 17:58
Sr. Elínborg ráðin afleysingaprestur í Grindavík Sr. Elínborg Gísladóttir hefur verið ráðin afleysingaprestur í Grindavík. Fréttavefurinn Víkurfréttir.is greinir frá því að sr. Elínborg muni gegn starfinu til loka maí á næsta ári í fjarveru sr. Jónu Kristínar Þorvaldsdóttur sem varð forseti bæjarstjórnar eftir kosningarnar í vor. Elínborg hefur áður gegnt starfi afleysingaprests, í Ólafsfirði í þrjú ár og í Grafarvogskikrju í 17 mánuði. Hún er fædd árið 1959, lauk embættisprófi 1998 og hlaut prestsvígslu árið 2001. Innlent 1.8.2006 17:58
Heimilt að semja við Eykt Félagsmálaráðuneytið hefur úrskurðað að fyrrverandi meirihluta í bæjarstjórn Hveragerðis hafi verið heimilt að semja við Eykt um uppbyggingu á nýju hverfi í bænum. Innlent 1.8.2006 18:08
Kaupþing banki selur hlut í Exista Kaupþing banki hefur selt 6,1% hlut í Exista til alls níu lífeyrissjóða á Íslandi. Þessi hluti samsvarar um 30% af heildareign bankans í félaginu. Innlent 1.8.2006 17:59
Líðan mannsins eftir atvikum Líðan unga mannsins, sem slasaðist alvarlega á Sandgerðisvegi í gærkvöldi þegar bíll hans fór útaf og bílbeltið slitnaði, er eftir atvikum góð. Hann er undir eftirliti lækna á gjörgæslu Landspítalans en hann er mikið slasaður. Hann er þó ekki í öndunarvél en hann verður áfram undir eftirliti lækna næstu daga. Hann var einn í bílnum og kastaðist út úr honum eftir að beltið slitnaði. Lögregla og Rannsóknanefnd bílslysa rannsaka tildrög slyssins, og af hverju bílbeltið slitnaði. Innlent 1.8.2006 17:57
BSRB stefnir bæjarstjórn Snæfellsbæjar BSRB hefur ákveðið að stefna bæjarstjórn Snæfellsbæjar, verði uppsagnir sex starfsmanna sundlauga og íþróttahúsa í sveitarfélaginu ekki dregnar til baka. Uppsagnirnar standa í tengslum við skipulagsbreytingar en BSRB segir kjarasamninga kveða skýrt á um að slíkar breytingar geti átt sér stað án þess að fólki sé sagt upp störfum. Innlent 1.8.2006 17:52
Tíu ár frá því að Ólafur Ragnar var kjörinn forseti Í dag eru tíu ár síðan Ólafur Ragnar Grímsson tók formlega við embætti forseta Íslands. Það má segja að hver merkisdagurinn reki hvorn annan í þessari viku hjá forsetanum því í gær fékk Dorrit Mousaieff forsætisfrú íslenskan ríkisborgararétt. Innlent 1.8.2006 17:51
Í athugun að fjölga Íslendingum á Sri Lanka Sænska utanríkisráðuneytið hefur nú ákveðið að draga alla friðargæsluliða sína frá Sri Lanka. Erlent 1.8.2006 17:49
Methagnaður viðskiptabankanna Methagnaður er á rekstri viðskiptabankanna á þessu ári, en fyrstu sex mánuði ársins nam hagnaðurinn rúmlega 72 milljörðum króna. Glitnir hefur aldrei skilað meiri hagnaði og hagnaður KB banka og Landsbanka er meiri en á sama tíma í fyrra. Innlent 1.8.2006 17:31
1200 öryrkjar missa lífeyrisbæturnar 1. nóvember Um 1200 öryrkjar munu að líkindum missa allar lífeyrisbætur sínar þann 1. nóvember næstkomandi eftir sérstaka tekjuathugun Greiðslustofu lífeyrissjóða. Bætur 1100 manns til viðbótar skerðast á sama tíma. Innlent 1.8.2006 17:11
Mikið álag á Reiknistofu bankanna Mikið álag hefur verið á Reiknisstofu bankanna frá því í gærkvöldi, en í dag eru stærstu mánaðarmót ársins vegna greiðslna hins opinbera á vaxtabótum og ofgreiddum sköttum. Innlent 1.8.2006 15:28
Sturla hyggst höggva á hnútinn Sturla Böðvarsson, samgönguráðherra, ætlar að fá utanaðkomandi aðila til að skoða nýtt vaktafyrirkomulag flugumferðarstjóra í flugstjórnarmiðstöðinni á Reykjavíkurflugvelli. Flugumferðarstjórar funduðu með ráðherra í morgun, en þeir hafa neitað að vinna yfirvinnu frá því nýtt vaktafyrirkomulag tók gildi í vor. Innlent 1.8.2006 13:11
Stýrivextir hafa lítil áhrif á þenslu Stýrivaxtahækkanir Seðlabankans hafa lítil áhrif á þenslu í þjóðfélaginu. Þetta segir Árni Mathiesen fjármálaráðherra. Hann segir Seðlabankann vinna að því að finna áhrifaríkari leið til að slá á þensluna. Þrátt fyrir að stýrivextir Seðlabankans hafi hækkað mikið á þessu ári þá virðist ekkert lát vera á þenslu í þjóðfélaginu. Innlent 1.8.2006 13:11
Umfangsmikil GSM uppbygging Og Vodafone í Eyjafirði Og Vodafone hefur nú lokið umfangsmikilli uppbyggingu á GSM kerfi fyrirtækisins á ákveðnum svæðum í Eyjafirði. Uppbyggingin hófst við Sörlagötu á Akureyri í febrúar á þessu ári en lauk við Klauf/Hrafnagil um helgina. Innlent 1.8.2006 14:05
Flugumferðarstjóri þvingaður til vinnu veikur Flugumferðarstjóri á Reykjavíkurflugvelli, sem tilkynnti sig veikan í gærmorgun, var úrskurðaður vinnufær af trúnaðarlækni og í framhaldinu sagt að mæta til vinnu. Formaður Félags íslenskra flugumferðarstjóra segir atburðinn fáheyrðan og stórhættulegan. Innlent 31.7.2006 22:49
Slasaðist alvarlega eftir útafakstur Ökumaður á tvítugsaldri var fluttur alvarlega slasaður á slysadeild Landspítalans eftir útaf akstur á Sandgerðisvegi um klukkan hálf sjö í kvöld. Ökumaður var einn í bílnum. Hann mun hafa kastast út úr ökutækinu eftir að bílbelti slitnaði. Tildrög slyssins eru ókunn en lögreglan í Reykjanesbæ fer með rannsók þess. Ekki liggja fyrir frekari upplýsingar um líðan mannsins að svo stöddu. Innlent 31.7.2006 22:03
Sala jókst um 85% milli ára Sala Össurar á öðrum ársfjórðungi þessa árs nam 4,8 milljörðum íslenskra króna. Söluaukningin jókst um 85% frá öðrum árstjórðungi árið 2005, mælt í Bandaríkjadölum. Þá var söluaukning vegna innri vaxtar 8%. Jón Sigurðsson, forstjóri Össurar, segir að aukning í sölu á stoðtækjum hafi verið umfram væntingar og sala á spelkum og stuðningsvörum hafi verið í takt við áætlanir. Innlent 31.7.2006 21:35
Brýnt að veita fjármagni til fornleifarannsókna Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra segir brýnt að veita fjármagni til fornleifarannsókna svo hægt sé að ljúka þeim. Hún telur ástæðu til að styrkja Forneleifasjóð þar sem Kristnuhátíðarsjóðs njóti ekki lengur við. Innlent 31.7.2006 20:47
Ekkert vopnahlé í Líbanon í bráð Olmert, forsætisráðherra Ísraels, segir að ekkert verði af vopnahléi í Líbanon í bráð. Forseti Egyptalands segir hættu á að friðarferlið í Mið-Austurlöndum öllum verði að engu ef árásum á Suður-Líbanon verði ekki hætt. Erlent 31.7.2006 18:55
Réðist með ofbeldi inn á skrifstofur Bónusvideo Karlmaður á þrítugsaldri réðst inn á skrifstofur Bónusvídeós í Hafnarfirði í dag, barði tvær konur og reyndi að ræna töskum með peningum í. Hann var yfirbugaður af vegfarendum eftir að hafa stokkið út um glugga í meira en fjögurra metra hæð. Innlent 31.7.2006 18:30
Fleiri ísraelskir hermenn kallaðir til þjónustu Ísraelar halda áfram loftárásum sínum í Suður-Líbanon, þrátt fyrir heit um að gefa Líbönum grið í tvo sólarhringa. Varnarmálaráðherra Ísraels boðar einnig aukinn landhernað í Líbanon. Að sögn yfirmanna í Ísraelsher er loftárásunum í dag ætlað að styðja við landhernað í Taibe í Suður-Líbanon. Erlent 31.7.2006 18:17
RARIK hf. tekur formlega við á morgun Hlutafélagið RARIK hf. tekur formlega við allri starfsemi Rafmagnsveitna ríkisins á morgun, fyrsta ágúst. Á stofnfundi hlutafélagsins í dag var kjörið í fimm manna stjórn og ákveðið ganga til samninga við Tryggja Þór Haraldsson í stöðu forstjóra RARIK hf. Tryggvi Þór hefur verið settur rafmagnsveitustjóri undanfarin misseri. Innlent 31.7.2006 17:52
Jarðhitinn sparar okkur 30 milljarða árlega í hitakostnað Jarðhitinn á Íslandi sparar þjóðarbúinu 30 milljarða árlega í upphitun húsa. Brenna þyrfi 800 þúsund tonnum af jarðeldsneyti á ári, ef kynda ætti allan húsakost landsmanna upp með olíu. Jarðvarminn á Íslandi er þannig jafnvel verðmætari en fólk gerir sér grein fyrir að mati Sigurðar Friðleifssonar hjá Orkusetri. Innlent 31.7.2006 17:42