Fréttir
Mótmælendur ákærðir Í dag voru þingfestar í héraðsdómi Austurlands fjórar ákærur á hendur nítján manns sem mótmælt hafa virkjunarframkvæmdum við Kárahnjúka og byggingu álvers Alcoa á Reyðarfirði að undanförnu. Innlent 17.8.2006 17:43
Seðlabankastjóri setur ekki lög Seðlabankastjóri hefur ekki vald til stefnumótunar varðandi Íbúðalánasjóð, segir Kristinn H. Gunnarsson, þingmaður Framsóknarflokksins. Hann segir að Framsóknarmenn muni standa fast á því að ákvæði í stjórnarsáttmála um sjóðinn standi. Innlent 17.8.2006 17:15
Bænastund í Safnaðarheimilinu í Sandgerði Klukkan sex í kvöld hefst bænastund í Safnaðarheimilinu í Sandgerði til að minnast þeirra tveggja sem létust í bílslysi í gærkvöldi rétt fyrir utan Sandgerði. Innlent 17.8.2006 17:28
Nafn stúlkunnar sem lést í gær Stúlkan sem lést í umferðarslysi á Kjalarnesi í gær hét Linda Björg Rafnsdóttir, til heimilis að Klukkurima 49 í Grafavogi. Hún var sextán ára gömul. Innlent 17.8.2006 17:20
Slapp vel eftir útafkeyrslu Kona var flutt með sjúkrabíl á slysadeild Landspítalans í Fossvogi eftir útafkeyrslu um klukkan tvö í dag. Slysið átti sér stað á Reykjanesbrautinni rétt austan við Voga. Konan var ein í bílnum. Að sögn vakthafandi læknis á slysadeild er konan ekki mikið slösuð og á heimleið. Bíllinn er mikið skemmdur og var fluttur burt með kranabíl. Innlent 17.8.2006 17:12
Spá lægri verðbólgu á næsta ári Greiningardeild KB banka spáir því að vísitala neysluverðs í september hækki um 0,8 prósent og muni 12 mánaða verðbólga því lækka úr 8,6 prósentum í 7,8 prósent. Deildin telur líklegt að toppnum á verðbólguskotinu hafi verið náð og muni verðbólgan lækka snemma á næsta ári. Viðskipti innlent 17.8.2006 16:54
Afkoma Sears yfir væntingum Eignarhaldsfélagið Sears Holding, sem rekur þriðju stærstu smávörukeðju Bandaríkjanna, hagnaðist um 294 milljónir Bandaríkjadala, jafnvirði 20,3 milljarða íslenskra króna, á öðrum ársfjórðungi. Þetta er 83 prósenta aukning á milli ára og langt umfram væntingar fjármálasérfræðinga. Viðskipti erlent 17.8.2006 16:40
Hagfræðingar Alþýðusambandsins telja ríkið bera ábyrgð Hagfræðingar Alþýðusambandsins telja ríkisvaldið bera mikla ábyrgð á þenslunni í efnahagslífinu, með því að hafa ekki dregið úr framkvæmdum á sama tíma og ráðist var í stórfellda uppbyggingu stóriðju. Innlent 17.8.2006 15:13
Indverjar bora eftir olíu í Afríku Stjórnvöld á Indlandi hafa hug á að verja sem nemur 1 milljarði bandaríkjadala eða rúmum 69 milljörðum íslenskra króna í olíuleit-, vinnslu og námagröft á Fílabeinsströndinni á vesturströnd Afríku á næstu fimm árum. Viðskipti erlent 17.8.2006 14:52
Kögun tapaði 429 milljónum Kögun hf., dótturfélag Dagsbrúnar, tapaði 429 milljónum króna á fyrri helmingi ársins. Á sama tímabili í fyrra skilaði fyrirtækið 223 milljóna króna hagnaði. Rekstur samstæðunnar er að mestu í samræmi við áætlanir stjórnenda að undanskildum fjármagnsliðum en 9,5 prósenta veiking krónunnar á tímabilinu hafði veruleg áhrif á fjármagnsliði fyrirtækisins. Viðskipti innlent 17.8.2006 13:17
Játaði á sig morðið Bandarískur maður, sem handtekinn var í Tælandi í nótt, hefur játað að hafa verið valdur að dauða sex ára gamallar fegurðardrottningar í Bandaríkjunum fyrir áratug. Hann segir slys hafa valdið dauða stúlkunnar. Málið er eitt umtalaðasta morðmál í Bandaríkjunum síðari ár. Erlent 17.8.2006 12:13
Hariri harðorður Ísraelskt herlið er nú að yfirgefa hluta af Suður-Líbanon og eftirlætur líbönsku herliði og alþjóðlegum friðargæsluliðum að gæta vopnahlés milli Hisbollah og Ísraelshers. Leiðtogi stærsta flokkabandalagsins á líbanska þinginu segir Sýrlandsforseta hafa hvatt til uppreisnar í Líbanon með ræðu sinni í vikunni. Erlent 17.8.2006 12:09
14 mótmælendur kærðir Álfyrirtækið Alcoa í Reyðarfirði hefur formlega kært 14 mótmælendur, sem ruddust inn á lokað athafnasvæði fyrirtækisins í gærmorgun til að mótmæla framkvæmdum þar. Skaðabótakröfur gætu numið allt að 40 milljónum króna. Innlent 17.8.2006 12:04
Bílslys í rannsókn Rannsóknanefnd umferðaslysa, tvö lögregluembætti og rannsóknamenn tryggingafélaga rannsaka tildrög bílslysanna tveggja , sem urðu í gær, þar sem tveir karlmenn og ein stúlka létust. Innlent 17.8.2006 12:01
Allir ráðherrar Sjálfstæðisflokksins þekkjast boð Ómars Ragnarssonar Allir ráðherrar Sjálfstæðisflokksins hafa þegið boð Ómars Ragnarssonar um að skoða Kárahnjúkasvæðið undir leiðsögn Ómars, að sögn Morgunblaðsins. Þá hafa yfirmenn NFS, Ríkisútvarpsins og Blaðsins einnig þekkst boð Ómars, en frestur til að þiggja það rann út í gær. Innlent 17.8.2006 10:07
Varar við íshellunum við Hrafntinnusker Kunnur göngugarpur og höfundur leiðsögubóka ráðleggur göngufólki að hætta sér ekki í íshellana við Hrafntinnusker þar sem erlendur ferðamaður lést í gær. Hann segir að fólk verði að vera við öllu búið í ferðum um hálendi Íslands. Innlent 17.8.2006 10:12
Kona í haldi eftir vandræði í flugvél Kona er í haldi lögreglu eftir að hún var til vandræða í flugvél bandaríska United flugfélagsins á leiðinni frá Lundúnum til Washingtonborgar í gær. Vélinni var snúið til Boston eftir að konan neitaði að hlýða fyrirmælum áhafnarinnar í flugvélinni og þurfti að binda hana niður aftast í vélinni. Erlent 17.8.2006 10:03
Alþjóðasamtök flugumferðarstjóra hafa áhyggjur af vaktakerfi Alþjóðasamtök flugumferðastjóra lýsa áhyggjum vegna nýs vaktakerfis íslenskra flugumferðastjóra. Flugumferðarstjórar hafa neitað að vinna yfirvinnu frá því nýtt vaktakerfi var innleitt hjá Flugmálastjórn um miðjan marsmánuð. Innlent 17.8.2006 09:57
Snörp lækkun á olíuverði Heimsmarkaðsverð á hráolíu lækkaði fjórða daginn í röð í fyrstu viðskiptum dagsins á helstu fjármálamörkuðum og hefur verðið ekki verið lægra í tæpa tvo mánuði. Viðskipti erlent 17.8.2006 10:45
Skarst á kviðarholi Sjómaður um borð í íslenskum togara skarst á kviðarholi á sjöunda tímanum í gærkvöldi, þegar togarinn var að veiðum á Halamiðum, út af Vestfjörðum. Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti hann og mun sjómaðurinn ekki í lífshættu. Innlent 17.8.2006 09:53
Morðið á JonBenet upplýst Bandarískur maður var handtekin í Taílandi í nótt en grunur leikur á um að hann hafi myrt sex ára gamla fegurðardrottningu árið 1996. Málið þykir eitt umtalaðasta morðmál seinni tíma í Bandaríkjunum. Erlent 17.8.2006 09:48
Símtöl í þjónustuver OR hljóðrituð Öll símtöl við þjónustuver Orkuveitu Reykjavíkur eru hljóðrituð, meðal annars til þess að vernda öryggi starfsmanna, að sögn Eiríks Hjálmarssonar upplýsingafulltrúa Orkuveitunnar, í viðtali við Fréttablaðið. Innlent 17.8.2006 09:45
Lokað fyrir umferð í suðurátt eftir Vesturlandsvegi Vegna malbikunar verður lokað fyrir umferð í suðurátt eftir Vesturlandsvegi, þjóðvegi númer eitt, frá Grundartangavegi að Akrafjallsvegi við Hvalfjarðargöng í dag og næstu tvo daga. Innlent 17.8.2006 09:42
Krónan styrkist Krónan styrktist um liðlega eitt prósent eftir tilkynningu Seðlabankans um stýrivaxtahækkun í gær. Hún hefur nú styrkst um átta prósent frá því í lok júní. Innlent 17.8.2006 09:21
Góð afkoma hjá tryggingarisa Hagnaður svissneska tryggingarisans Zurich Financial Services nam 910 milljónum evra, jafnvirði 81,5 milljörðum íslenskra króna, á öðrum ársfjórðungi sem er 14,9 prósenta aukning á milli ára. Þetta er umfram væntingar en búist var við 840 milljóna króna hagnaði. Viðskipti erlent 17.8.2006 09:42
ASÍ og SA segja stýrivaxtahækkun misráðna Bæði Alþýðusamband Íslands og Samtök atvinnulífsins telja vaxtahækkun Seðlabanka Íslands í gær misráðna. Seðlabanki Íslands hækkaði stýrivexti um 0,5 prósentustig, í 13,5%. Í kjölfarið hækkaði Landsbankinn vexti og síðar Sparisjóðirnir og Glitnir. Innlent 17.8.2006 09:14
Maður í haldi vegna nauðgunartilraunar Maður á þrítugsaldri viðurkenndi við yfirheyrslur hjá lögreglunni í Reykjavík í gær að hafa gert tilraun til að nauðga ungri konu, þegar hún var á leið til vinnu sinnar í Breiðholti aðfaranótt fimmtudags, fyrir viku. Árásin var hrottaleg. Ekki liggur fyrir hvort krafist verður gæsluvarðhaldsúrskurðar yfir manninum. Innlent 17.8.2006 09:12
Ísraelar yfirgefa hluta Suður-Líbanons Ísraelskt herlið er nú að yfirgefa hluta af Suður-Líbanon og eftirlætur líbönsku herliði og alþjóðlegum friðargæsluliðum að gæta vopnahlés milli Hisbollah og Ísraelshers. Erlent 17.8.2006 08:41
Hald lagt á fíkniefni og vopn Sex menn á þrítugsaldri voru handteknir í sameiginlegri aðgerð lögreglunnar í Hafnarfirði og Kópavogi, eftir að talsvert af fíkniefnum og vopn fundust við húsleilt í gærkvöldi. Innlent 17.8.2006 08:39
Þrír létust í umferðarslysum Þrír létust í umferðarslysum í gær. Tuttugu og tveggja ára karlmaður, sem var farþegi í sendibíl, sem lenti í hörðum árkestri við fólksbíl á Garðskagavegi , rétt utan við Sandgerði um sjöleitið í gærkvöldi, lést skömmu eftir að sjúkraflutningamenn komu með hann á Slysadeild Landsspítalans. Ökumaður sendibílsins er talinn hafa látist samstundis. Innlent 17.8.2006 08:30