Fréttir
Birkir Jón og Kristinn H. draga framboð til ritara til baka Framsóknarþingmennirnir Birkir Jón Jónsson og Kristinn H. Gunnarsson hafa báðir dregið framboð sitt til ritara Framsóknarflokksins til baka. Þeir hvetja kjósendur á flokksþingi til að velja Sæunni Stefánsdóttur í embætti ritara svo ein kona verði í framvarðarsveit flokksins. Eftir í kjöri eru því Sæunn og Haukur Logi Karlsson. Innlent 19.8.2006 13:28
Guðni endurkjörinn Guðni Ágústsson, landbúnaðarráðherra, var endurkjörinn varaformaður Framsóknarflokksins á flokksþingi sem stendur nú sem hæst. Þar með lagði hann mótframbjóðanda sinn, Jónínu Bjartmarz, umhverfisráðherra. Guðni fékk 60,91% atkvæða en Jónína 36,54%. 841 voru á kjörskrá, 718 greiddu atkvæði eða 85,4%. Innlent 19.8.2006 12:59
28 flúðu úr fangelsi í Belgíu 28 fangar flúðu úr Termond fangesli í austurhluta Flanders í Belgíu í nótt og í morgun. Sex þeirra hafa þegar fundist en hinna er enn leitað. Erlent 19.8.2006 12:32
Jón Sigurðsson er formaður Framsóknarflokksins Jón Sigurðsson, iðnaðar- og viðskiptaráðherra,er nýr formaður Framsóknarflokksins. Þetta var tilkynnt á flokksþingi Framsóknar sem stendur sem hæst í Reykjavík. Hann hlaut rúm 54% atkvæða og hafði þar betur en andstæðingar hans Siv Friðleifsdóttir, heilbrigðisráðherra, og Haukur Haraldsson. Innlent 19.8.2006 11:24
Látinna leitað eftir eldgos Björgunarmenn leita nú 30 manna sem enn er saknað eftir að eldfjallið Tungurahua í Ekvador gaus á fimmtudaginn. Einn lést í gosinu svo vitað sé, fimmtugur karlmaður, sem sagður er hafa snúið aftur til síns heima til að sækja sjónvarpið sitt. Erlent 19.8.2006 11:01
Formannskjör í Framsóknarflokknum hafið Flokksþing Framsóknarflokksins stendur núna sem hæst og hófs formannskosning fyrir rúmum hálftíma síðan. Úrslit verða kynnt kl. 11:30 og verður sýnt beint frá því á NFS. Innlent 19.8.2006 10:56
Börðust í návígi í Bekaa-dal Skæruliðar Hizbollah börðust í návígi við sérsveitarmenn Ísraelshers í Bekaa-dal í Austur-Líbanon snemma í morgun. Að minnsta kosti einn hermaður féll. Herliðið var sent þangað til að koma í veg fyrir flutning vopna til skæruliðanna. Erlent 19.8.2006 10:49
Höfuðkúpu- og kjálkabeinsbrotnaði Maður höfuðkúpubrotnaði og var fluttur meðvitundarlaus á slysadeild eftir að félagi hans réðst á hann í heimahúsi í Skerjafirði í gærkvöld. Hann komst þó fljótt til meðvitundar en er auk höfuðkúpubrotsins, kjálkabeinsnbrotinn og með brotinn augnbotn og augntóft. Ekki er ljóst hvað gerðist en að sögn lögreglu voru þrjú vitni að árásinni. Innlent 19.8.2006 09:42
Pinochet sviptur friðhelgi Augusto Pinochet, fyrrverandi einræðisherra Chile, á yfir höfði sér ákærur vegna skattsvika sem talið er að nemi jafnvirði tæplega tveggja milljarða íslenskra króna. Hæstiréttur Chile ákvað í dag að svipta Pinochet friðhelgi vegna málsins. Pinochet, sem er níræður, hefur ekki verið sóttur til saka fyrir ákærur um mannréttindabrot vegna heilsubrests. Hann er sagður þjást af vægum vitglöpum sem eru afleiðing nokkurra smávægilegra heilablóðfalla. Erlent 18.8.2006 22:47
Vopnahlé rofið? Ísraelskar herþotur, þyrlur og mannlaus loftför flugu yfir Bekaa-dal í Austur-Líbanon og norðurhluta landsins í kvöld. Að sögn Reuters-fréttastofnunar var engum sprengjum varpað líkt og haldið var fram í erlendum miðlum fyrr í kvöld. Skotið var á vélarnar úr loftvarnarbyssum en engin þeirra varð fyrir skoti og skothríðinni var ekki svarað. Ísraelsher hefur ekki viljað tjá sig um atburði kvöldsins. Ísraelskum herflugvélum er flogið margsinnis í gegnum líbanska lofthelgi. Erlent 18.8.2006 22:45
Jón Baldvin hafnaði myndun vinstri stjórnar 1995 Jón Baldvin Hannibalsson, þáverandi formaður Alþýðuflokksins hafnaði myndun vinstri stjórnar árið 1995 að sögn Halldórs Ásgrímssonar, fráfarandi formanns Framsóknarflokksins. Innlent 18.8.2006 22:28
Guðni skýtur á R-listann Frambjóðendur til varaformanns Framsóknarflokksins fóru vítt í ræðum sínum. Guðni sakaði samfylkingarmenn í R-listanum fyrir að hafa stolið heiðrinum af störfum Framsóknarmanna og skaut á Actavis í umræðu um hátt verðlag. Jónína Bjartmarz eignaði framsóknarmönnum það besta í ríkisstjórnarsamstarfinu og talaði fyrir verndun Íbúðalánasjóðs. Innlent 18.8.2006 22:12
Hugmynd um kláf upp á Gleiðarhjalla Fæðst hefur sú hugmynd á Ísafirði að byggja kláf upp á Gleiðarhjalla sem liggur fyrir ofan bæjinn. Innlent 18.8.2006 22:11
Vinstri stjórn afskrifuð 1995 Jón Baldvin Hannibalsson, þáverandi formaður Alþýðuflokksins, afskrifaði samstarf vinstri flokka í stjórn eftir alþingiskosningarnar 1995, og kaus heldur áframhaldandi samstarf við Sjálfstæðisflokkinn. Af því varð ekki heldur myndaði Sjálfstæðisflokkurinn samsteypustjórn með Framsóknarflokknum. Þetta kom fram í máli Halldórs Ásgrímssonar í ræðu sinni á flokksþingi Framsóknarflokksins í dag. Innlent 18.8.2006 22:02
Grímur Atlason tók við embætti bæjarstjóra í Bolungarvík í gær Grímur Atlason, nýráðin bæjarstjóri í Bolungarvík tók formlega við embætti í gærkvöldi. Innlent 18.8.2006 21:53
Framsóknarkonur fagna framboðum Landssamband Framsóknarkvenna hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem því er fagnað að konur bjóði sig fram í öll forystusæti Framsóknarflokksins. Á það er bent að þetta er í fyrsta sinn sem kona býður sig fram í formannssæti Framsóknarflokksins. Innlent 18.8.2006 18:44
Bush hvetur Frakka til að senda aukið lið Bush Bandaríkjaforseti sagði í dag að hann vonaðist til að Frakkar myndu senda fleiri friðargæsluliða til Líbanon en fulltrúar þeirra hafa sagt að einungis tvö hundruð manna herlið verði sent. Þetta væri þvert á það sem áður var talið en yfirlýsingar Frakka bentu til að þeir yrðu hryggjarstykkið í fimmtán þúsund manna alþjóðlegu herliði í Suður-Líbanon. Erlent 18.8.2006 18:26
Morðinginn framseldur um helgina Yfirvöld í Tælandi vonast til þess að hægt verði að framselja Bandaríkjamanninn John Mark Karr um helgina. Maðurinn var handtekinn í gær og hefur játað að haf orðið sex ára stúlku að bana í Boulder í Colorado í Bandaríkjunum fyrir tíu árum. Málið hefur legið sem mara á fjölskyldu stúlkunnar, JonBenet Ramsey, og hafa foreldra hennar jafnvel verið grunaðir um aðild að ódæðinu. Erlent 18.8.2006 18:23
Sprengjuhótun í vél Excel Farþegavél á vegum lággjaldaflugfélagsins Excel, sem er í eigu Avion Group, var beint á flugvöllinn í Brindisi á Suður-Ítalíu í dag vegna sprengjuhótunar. Miði fannst í vélinni þar sem sagði að sprengju væri að finna um borð. Vélin, sem er af gerðinni Boeing 767, var á leið frá Gatwick-flugvelli á Englandi til Egyptalands. Erlent 18.8.2006 18:18
Bíll í ljósum logum Bíll stendur í ljósum logum ofan Búrfellsvegar í Grímsnesi. Slökkvilið er komið á staðin og vinnur að því að slökkva eldinn. Ekki er vitað um eldsupptök. Innlent 18.8.2006 19:00
Vitni óskast Lögreglan í Keflavík óskar eftir að komast í samband við unga stúlku sem var ein af fyrstu vegfarendum sem komu að umferðarslysinu skammt utan við Sandgerði á miðvikudagskvöld, þar sem tveir menn létust. Einnig óskar lögreglan eftir að ná tali af fólki sem hugsanlega varð vitni að slysinu eða var komið á vettvang þess áður en lögregla og björgunarlið komu á slysstað. Fólk getur haft samband við lögregluna í Keflavík í síma 420 2400 eða fengið samband í gegnum Neyðarlínuna í síma 112. Innlent 18.8.2006 18:17
Hegningarhúsið stenst ekki undanþáguskilyrði Hegningarhúsið við Skólavörðustíg er og hefur verið á undanþágu hjá heilbrigðisyfirvöldum í mörg ár. Ekki er hægt að fara að skilyrðum fyrir undanþágunni vegna yfirfullra fangelsa. Aðgerðir til að fjölga fangaplássum eru stopp vegna ákvörðunar stjórnvalda um að fresta framkvæmdum. Innlent 18.8.2006 18:50
Menningarnótt verður hátíð smærri viðburða Menningarnótt í Reykjavík, sem haldin verður í ellefta sinn á laugardag, verður hátíð smærri viðburða. Engir stórtónleikar verða á hafnarbakkanum þetta árið en hins vegar verður flugeldasýningin í lok dagskrár stærri en nokkru sinni fyrr og að þessu sinni er skotið úr varðskipinu Ægi. Innlent 18.8.2006 19:03
Verðbólga 6,3% Verðbólga á Íslandi mældist 6,3% á tímabilinu júlí 2005 til júlí síðast liðinn. Á þessu tólf mánaða tímabili var verðbólga á Íslandi nærri fjórum prósentustigum hærri en meðaltalið á Evrópska efnahagssvæðinu, þar sem hún var að meðaltali 2,3 prósent á sama tímabili. Innlent 18.8.2006 18:13
Jafnt fylgi Samfylkingar og vinstri grænna Samfylking og Vinstri hreyfingin-grænt framboð eru nær jöfn að fylgi samkvæmt könnun Gallups. Könnunin var gerð til að kanna stuðning formannsefna Framsóknarflokksins en þar kemur fram fylgi flokkanna ef gengið væri til kosninga nú. Innlent 18.8.2006 18:07
Oftrú á samstarfinu við Bandaríkin voru mistök Halldór Ásgrímsson, fráfarandi formaður Framsóknarflokksins segir mikið starf framundan í öryggis- og varnarmálum. Þar sem Bandaríkjamenn hafi ákveðið einhliða að fara með allt sitt lið og búnað frá Íslandi, þurfi Íslendingar að styrkja samband sitt við Evrópu. Sjálfstæðiflokkurinn hafi farið fremst þeirra sem hafa haft oftrú á samstarfinu við Bandaríkin og skynsamir menn á þeim bæ hljóti að sjá að nú þarf að skoða margt í nýju ljósi. Innlent 18.8.2006 18:12
Siv nýtur meiri stuðnings en Jón Siv Friðleifsdóttir nýtur mun meira fylgis en Jón Sigurðsson samkvæmt nýrri könnun Gallup fyrir stuðningsmenn Sivjar. Formannskjör fer fram á morgun. Innlent 18.8.2006 18:00
Lögregla lýsir eftir vitnum Lögreglan í Keflavík óskar eftir að komast í samband við unga stúlku sem var ein af fyrstu vegfarendum sem komu að umferðarslysinu skammt utan við Sandgerði á miðvikudagskvöld, þar sem tveir menn létust. Einnig óskar lögreglan eftir að ná tali af fólki sem hugsanlega varð vitni að slysinu eða var komið á vettvang þess áður en lögregla og björgunarlið komu á slysstað. Fólk getur haft samband við lögregluna í Keflavík í síma 420 2400 eða fengið samband í gegnum Neyðarlínuna í síma 112. Innlent 18.8.2006 16:57
Spá 5 milljarða króna hagnaði á árinu Hagnaður Icelandic Group nam 223 milljónum króna á fyrri helmingi árs. Hagnaður fyrirtækisins á öðrum fjórðungi ársins nam 125 milljónum króna. Hátt hráefnisverð hafði meðal annars neikvæð áhrif á afkomu framleiðslufyrirtækja samstæðunnar á fyrri helmingi ársins en stefnt er að því að Icelandic Group skili 5 milljarða króna hagnaði á árinu. Viðskipti innlent 18.8.2006 16:28
Taprekstur hjá SS Samstæða Sláturfélags Suðurlands tapaði 24,8 milljónum króna á fyrstu sex mánuðum ársins. Þetta er nokkur umsnúningur frá síðasta ári þegar félagið skilaði 182 milljóna króna hagnaði. Í uppgjöri félagsins segir að aðstæður á kjötmarkaði hafi einkennst af skort á nær öllum kjöttegundum. Reiknað er með því að framboð aukist á næstu sex mánuðum og muni velta félagsins vaxa við það. Viðskipti innlent 18.8.2006 15:29
Bankastjóri Íslandsbanka: „Ég samdi við Brynju strax á fyrsta alvöru stefnumótinu...“ Atvinnulíf