Fréttir

Fréttamynd

Hálfs árs fangelsi fyrir pyntingar

Bandarískur herdómstóll dæmdi í gær bandarískan hermann í sex mánaða fangelsi fyrir pyntingar á föngum við Abu Ghraib fangelsið. Hin 27 ára gamla Sabrina Harman tengdi meðal annars rafmangssnúrur við fanga og vöktu myndir af því óhug um alla heimsbyggðina. Saksóknarar kröfðust þriggja ára fangelsis en dómstólnum þótti hálft ár nægileg refsing.

Erlent
Fréttamynd

Málverkum stolið af kaffihúsi

Tveimur málverkum sem stolið var af kaffihúsinu Langa Manga á Ísafirði um helgina var skilað í dag. Fyrra málverkinu var stolið á föstudagskvöldið og því seinna á laugardagskvöldið en bæði kvöldin var uppákoma á kaffihúsinu og húsfyllir. Að sögn ráðamanna Langa Manga verður ekki gripið til frekari aðgerða vegna þjófnaðarins þar sem sá sem í hlut á sá að sér og sendi myndirnar til baka í pósti frá Reykjavík.

Innlent
Fréttamynd

Sandgerði tælir til sín íbúa

Bæjarstjórn Sandgerðisbæjar ýtti úr vör markaðsátaki í gær með það að markmiði að fjölga íbúum bæjarins. Nú búa fjórtánhundruð manns í Sandgerði og setur bæjarstjórnin sér það markmið að fjölga íbúum um fjögurhundruð á næstu misserum og að íbúarnir verði orðnir tvöþúsund innan fimm ára.

Innlent
Fréttamynd

Ebola-veirunnar vart í V-Kongó

Ebola-veirunnar hefur aftur orðið vart í Vestur-Kongó og hafa níu manns látist af hennar völdum frá apríllokum. Frá þessu greindi Alþjóðaheilbrigðisstofnunin í dag. Veiran fannst í norðvesturhluta landsins en þar létust um 150 manns af sömu orsökum fyrir tveimur árum.

Erlent
Fréttamynd

Reknir og vikið af vinnustaðnum

Þeir eru að vinna eftir einhverri mannauðsstefnu þar sem allir eiga að falla svo vel inn í liðið að þeir sem ekki falla alveg inn í þetta eru bara látnir fara," segir Gylfi Ingvason, trúnaðarmaður starfsmanna ALCAN í álverinu við Straumsvík.

Innlent
Fréttamynd

Efnahagur Kína á fleygiferð

Fjöldi íslenskra fyrirtækja hefur á undanförnum dögum gert samninga við kínversk fyrirtæki enda er efnahagur Kína á fleygiferð. Það er þó ekki hlaupið að því að hefja viðskipti þar í landi.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Formannsslagur og framtíðarsýn

Stefán Jón Hafstein, formaður framkvæmdastjórnar Samfylkingarinnar, telur að framtíðarsýn og hugmyndafræði jafnaðarmanna hafi ekki notið sín sem skyldi í baráttunni um formannsstólinn í Samfykingunni undanfarna mánuði. Hann kveðst ganga lengra í ályktunum en framtíðarhópur flokksins og skilgreinir sig sem róttækan endurskoðunarsinna.

Innlent
Fréttamynd

Ráðherra gangi erinda Norðlendinga

Ýmislegt virðist vera að gerast í álmálum þessa dagana. Alcoa hefur lýst yfir áhuga á að reisa álver á Norðurlandi og verið er að stofna félög bæði með og á móti stóriðju í Eyjafirði. Sjálfstæðismenn á Suðurnesjum eru ósáttir við iðnaðarráðherra en þeir telja ráðherrann eingöngu ganga erinda Norðlendinga.

Innlent
Fréttamynd

Mannskætt bílslys á Nýja-Sjálandi

Átta manns létust og einn slasaðist alvarlega þegar sendibifreið með alls níu ferðamenn og vörubíll skullu saman á Nýja-Sjálandi í morgun. Ökumaður vörubílsins slasaðist þó ekki og var hann færður á lögreglustöðina þar sem hann var yfirheyrður. Mikil rigning var þegar slysið varð og því hált og segir lögreglan það hafa orsakað slysið. Þetta er alvarlegasta bílslys á Nýja-Sjálandi síðan árið 1995.

Erlent
Fréttamynd

Flugi til San Francisco seinkað

Tveggja tíma seinkun verður á fyrsta flugi Flugleiða til San Francisco sem fara átti í loftið klukkan 16.40. Ástæðan er sú að breytingar á innréttingum vélarinnar sem gerðar voru á Írlandi tóku lengir tíma en áætlað var. Haft er ofan af fyrir farþegum með lúðrasveitarleik, kórsöng Flugfreyjukórsins og fleirum. Meðal farþega eru forsætisráðherra og borgarstjórinn í Reykjavík, en þau munu taka þátt í sérstakri hátíðardagskrá í San Francisco.

Innlent
Fréttamynd

Kolmunnaafli yfir 100 þúsund tonn

Kolmunnaafli íslenskra skipa á vertíðinni fór yfir hundrað þúsund tonnin í fyrradag þegar Hólmaborg SU landaði tæpum tvö þúsund tonnum á Eskifirði.

Innlent
Fréttamynd

Deilt um fjögur 19. aldar hús

Meirihluti borgarstjórnar samþykkti á fundi sínum í gær að vísa tillögu Ólafs M. Magnússonar, borgarfulltrúa F-lista, um að dregnar verði tilbaka heimildir til að rífa niður fjögur 19. aldar hús við Laugaveg til skipulagsráðs Reykjavíkurborgar. Allir fulltrúar R-listans samþykktu þetta gegn mótatkvæði Ólafs, sem telur að með þessu sé í raun verið að vísa málinu frá eins og gert hafi verið í mars síðastliðnum.

Innlent
Fréttamynd

ÍE prófar nýtt asmalyf

Íslensk erfðagreining greindi frá því í dag að hafnar séu lyfjaprófanir af öðrum fasa á nýju tilraunalyfi fyrirtækisins við asma og að fyrsti sjúklingurinn hafi þegar hafið lyfjatöku. Lyfið hefur áhrif á starfsemi ensíms sem erfðarannsóknir Íslenskrar erfðagreiningar hafa sýnt fram á að tengist líffræðilegum orsökum asma. Lyfið var upphaflega þróað við öðrum sjúkdómi af öðru lyfjafyrirtæki.

Innlent
Fréttamynd

Þyngdin látin ráða niðurstöðu

"Málið er að því leyti óvenjulegt hvaða eiginleikar umsækjandans um ættleiðingaleyfi, eru látnir ráða niðurstöðu dómsmálaráðuneytisins. Það er fyrst og fremst þyngdin," sagði Ragnar Aðalsteinsson hæstaréttarlögmaður um mál konunnar sem fékk ekki að ættleiða barn vegna ofþyngdar hennar, samkvæmt úrskurði dómsmálaráðuneytisins.

Innlent
Fréttamynd

Sagður franskur götutónlistarmaður

Pólskur látbragðsleikari segir að dularfulli píanóleikarinn, sem skaut upp kollinum í Bretlandi fyrir mánuði, sé götutónlistarmaður frá Suður-Frakklandi.

Erlent
Fréttamynd

Á von á meira lýðræði í Kína

Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands telur að Kína muni taka upp lýðræðislega stjórnarhætti innan tíðar. Hann ræddi við nemendur í Peking-háskóla í dag og minnti þá á að valdið væri þeirra.

Innlent
Fréttamynd

Erlendum körlum fjölgar eystra

Íbúum Austurlands fjölgaði um 4,6 prósent í fyrra og er það meiri fjölgun en í nokkrum öðrum landshluta, samkvæmt tölum Hagstofu Íslands. Næst mest fjölgaði fólki á höfuðborgarsvæðinu eða um 1,3 af hundraði.

Innlent
Fréttamynd

Zarqawi hafi viljað fleiri árásir

Bandaríska herstjórnin í Írak segir að hryðjuverkamaðurinn Abu Musab al-Zarqawi hafi fyrirskipað aukningu á bílasprengjuárásum á fundi sem haldinn var í Sýrlandi.

Erlent
Fréttamynd

Skotinn eftir árás með öxi

Lögreglumenn í Larvik í Noregi skutu í dag til bana mann sem ógnaði þeim með kjötöxi. Maður hringdi til lögreglunnar í Larvik síðdegis og sagði að verið væri að ógna sér með hnífi. Þegar lögreglumenn mættu á staðinn reyndu þeir að fá hnífamanninn til þess að leggja vopnið frá sér. Þegar hann sinnti því ekki beittu þeir piparúða.

Erlent
Fréttamynd

Al-Zarqawi kyndir undir ófriðarbál

Uppreisnarmenn skutu undirhershöfðingja í íraska innanríkisráðuneytinu til bana í gær. Hátt settir bandarískir erindrekar í landinu segja að ofbeldisalda undanfarinna vikna sé hryðjuverkamanninum Abu Musab al-Zarqawi að kenna.

Erlent
Fréttamynd

Eignatengslum breytt vegna tilboðs

Dæmi eru um að hópar sem gerðu tilboð í Símann hafi breytt eignatengslum til að standast skilyrði útboðsins. Kögun sóttist ekki eftir útboðsgögnum eftir að einkavæðingarnefnd mat að fyrirtækið uppfyllti ekki sett skilyrði.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Valdahlutföllin að breytast

Ársfundur Alþjóðahvalveiðiráðsins hefst í næstu viku. Ríki sem hlynnt eru hvalveiðum hafa sótt í sig veðrið á undanförnum misserum og ætla sér stóra hluti á fundinum. Íslenska sendinefndin varar þó við of mikilli bjartsýni.

Erlent
Fréttamynd

Æ fleiri börn í öryggisbúnaði

Á hverju ári slasast 35 til 40 börn 6 ára og yngri sem farþegar í bílum. Í nýrri könnun Landsbjargar, Lýðheilsustöðvar og Umferðarstofu á öryggisbúnaði leikskólabarna í bílum kemur í ljós að ástandið hefur batnað til muna undanfarinn áratug. Árið 1997 voru 32 prósent barna ekki með neinn öryggisbúnað í bílnum þegar þeim var ekið í leikskólann en í ár var þetta hlutfall 5,3 prósent.

Innlent
Fréttamynd

Enn skjálftar út af Reykjanesi

Nokkur skjálftavirkni er enn suður af Reykjanesi, rúmri viku eftir að hún hófst. Síðasta sólarhring hefur verið þar um tugur skjálfta, sá öflugasti 3,2 á Richter. Sem fyrr urðu þeir við Eldeyjarboða á Reykjaneshrygg. Þegar skjálftahrinan hófst af miklum krafti fyrir viku töldu sérfræðingar á Veðurstofu Íslands þá ekki boða eldgos eða aðrar hamfarir.

Innlent
Fréttamynd

Segir kínverska ráðamenn hræsnara

Einar K. Guðfinnsson, formaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins, er lítt hrifinn af auknum samskiptum íslenskra ráðamanna við Kínastjórn. Hann segir á heimasíðu sinni að það sé óskaplega hræsnisfullt tal þegar kínverskir ráðamenn lofi forseta Íslands öllu fögru í mannréttindamálum.

Innlent
Fréttamynd

Hryðjuverkaleiðsögn á heimasíðum

Uppreisnarmenn í Írak halda úti heimasíðum þar sem ungum mönnum er leiðbeint hvernig sé auðveldast að fremja hryðjuverk og valda sem mestu manntjóni. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu bandaríska varnarmála ráðuneytisins sem send hefur verið til yfirmanna bandaríska hersins í Írak.

Erlent
Fréttamynd

Ræddi mannréttindi við Hu Jintao

Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands átti viðræður við Hu Jintao, forseta Kína, í Höll alþýðunnar í dag. Ólafur Ragnar sagði í samtali við fréttamenn eftir fundinn að viðræðurnar hefðu verið mjög gagnlegar. Honum hefði komið á óvart hversu vel forseti Kína hefði verið inni í málum þeirra íslensku fyrirtækja sem bar á góma í viðræðunum.

Erlent
Fréttamynd

Grunaður um skipulagða þrælasölu

Karlmaður á fimmtugsaldri sem ferðaðist hingað til lands með fjórum ungmennum var handtekinn á Keflavíkurflugvelli í gær. Maðurinn hefur verið með þau á ferðalagi í tvo mánuði og var á leiðinni til Orlando. Grunur leikur á því að um skipulagða þrælasölu sé að ræða.

Innlent
Fréttamynd

Niðurskurðarstofnun skorin niður

Tékknesk yfirvöld, sem vinna nú að því að einfalda stjórnsýslu og draga úr skrifræði í kjölfar þess að járntjaldið féll, hafa byrjað á vitlausum enda ef svo má segja. Fjörutíu starfsmönnum stofnunar sem gera átti kerfið skilvirkara og draga úr útþenslu þess hefur nefnilega verið sagt upp.

Erlent
Fréttamynd

Játning liggur ekki enn fyrir

Játning mannsins sem stakk annan mann til bana með hnífi í Hlíðarhjalla í Kópavogi á sunnudag liggur enn ekki fyrir. Að sögn Friðriks Smára Björgvinssonar, aðstoðaryfirlögregluþjóns í Kópavogi, hafa engar yfirheyrslur farið fram í dag, nú sé verið að vinna úr þeim gögnum sem hefur verið aflað. Hann gat ekki sagt fyrir um hvenær yfirheyrslur hæfust en maðurinn situr í gæsluvarðhaldi á Litla-Hrauni.

Innlent