Fréttamaður

Sólrún Dögg Jósefsdóttir

Sólrún er fréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Sverja af sér sam­særis­kenningar um klónaðan Carrey

Skipuleggjendur César-kvikmyndahátíðarinnar, sem haldin er ár hvert í París, hafa slegið á sögusagnir um að Jim Carrey, stórleikari og heiðursverðlaunahafi hátíðarinnar, hafi ekki verið viðstaddur hana. Samsæriskenningar um að leikarinn hafi fengið eftirhermu til að mæta í hans stað á hátíðina hafa dreifst um netheima síðustu daga.

Björgunar­sveitir ferja heil­brigðis­starfs­fólk í og úr vinnu

Björgunarsveitir hafa verið kallaðar út á nokkrum stöðum á Austurlandi síðdegis og í kvöld meðan appelsínugul veðurviðvörun hefur staðið yfir. Útköllin snúa fyrst og fremst að því að tryggja samgöngur og koma heilbrigðisstarfsfólki til og frá vinnu. 

Íranir mót­mæla á ný

Stúdentar við háskóla víðs vegar um Íran hafa staðið fyrir mótmælum gegn klerkastjórninni í dag. Mótmælin eru þau fyrstu síðan mótmælahrinunni, sem hófst í lok desember og áætlað er að hafi kostað þrjátíu þúsund manns lífið, lauk. 

Metfjöldi gesta tvo daga í röð

Um 3.400 manns lögðu leið sína í Hlíðarfjall á Akureyri í dag og nánast jafnmargir í gær. Stjórnendur telja aðsóknina þá mestu frá upphafi talninga og reikna með að helgin verði sú stærsta í sögu skíðasvæðisins.

Minnst tólf farist í snjó­flóðum á einum mánuði

Að minnsta kosti fimm létu lífið í snjóflóðum sem féllu víða um austurríska sambandslandið Tíról í dag og í gær. Þung snjókoma og sterkir vindar hafa riðið yfir landshlutann undanfarna daga. 

Yfir­gefinn apaungi finnur huggun í apabangsa úr Ikea

Japanski makakíapinn Punch, sem býr í dýragarði utan Tókýó, er einn frægasti api heims um þessar mundir. Myndskeið af honum og órangútantuskudýri úr Ikea, óvæntu tvíeyki, dreifast sem eldur í sinu um netmiðla. 

„Held hann hafi ekki fattað hvað hann fór rétt að“

Unglingspiltur kom í veg fyrir stórtjón þegar eldur kviknaði í rafmagnstöflu á heimili hans í Selási gær. Móðir hans segir atvikið hafa vakið hana til umhugsunar um hve gríðarmikilvægar eldvarnir á heimilum eru.

Til skoðunar að taka Andrew úr erfðaröðinni

Breska ríkisstjórnin íhugar að leggja fram frumvarp sem felur í sér að Andrew Mountbatten-Windsor, fyrrverandi Bretaprins, verði sviptur erfðarétti sínum að bresku krúnunni þegar yfirstandandi lögreglurannsókn á máli hans er lokið.

Sjá meira