Ragnar ekki valinn í fyrsta hóp eftir hlé Landsliðsmiðvörðurinn Ragnar Sigurðsson var ekki valinn í fyrsta leikmannahóp FC Köbenhavn í dönsku úrvalsdeildinni eftir hléið vegna kórónuveirufaraldursins. 31.5.2020 13:30
„Samband mitt við Sindra er mjög gott“ – Dómarinn ekki með gult spjald „Ég á í góðu sambandi við mína gömlu liðsfélaga,“ segir Gonzalo Zamorano, leikmaður Víkings Ó., en mikill hiti var í leiknum þegar hann mætti sínu gamla liði ÍA í vináttuleik í gær. Rauða spjaldið fór á loft og dómarinn vildi flauta leikinn af í kjölfarið. 31.5.2020 12:45
PSG keypti Icardi - Klásúla til að angra Juventus Argentínski framherjinn Mauro Icardi var í dag kynntur sem fullgildur leikmaður PSG eftir að hafa verið á láni hjá félaginu frá Inter Mílanó. Inter ákvað að selja hann en setti ákveðin skilyrði inn í samninginn til að styrkja sína stöðu. 31.5.2020 11:15
Lewandowski jafnaði metið sitt en getur hann náð Müller? Robert Lewandowski hefur aldrei skorað fleiri mörk en á þessari leiktíð eða alls 43 mörk í öllum keppnum, eftir að hann skoraði tvö marka Bayern München í 4-0 sigri á Fortuna Düsseldorf í gær. 31.5.2020 10:30
Kompany gæti snúið aftur til Man. City Vincent Kompany yfirgaf Manchester City síðasta sumar eftir ellefu tímabil hjá félaginu en hann gæti snúið aftur sem aðstoðarþjálfari. 31.5.2020 09:45
Rautt spjald og dómarinn vildi flauta af á Akranesi | Rosalegt innkast skilaði KA sigri | Myndbönd Það er grunnt á því góða á milli ÍA og Víkings Ó. ef marka má æfingaleik liðanna á Akranesi í dag, í fótbolta karla, þar sem dómarinn virtist vilja flauta leikinn af eftir ljót brot og mikinn æsing í báðum liðum. KA vann Fylki á Akureyri, 1-0. 30.5.2020 16:56
Hefðbundnar æfingar hjá spænskum liðum á mánudag Liðin í efstu tveimur deildum Spánar í fótbolta mega frá og með næsta mánudegi æfa eins og þau gerðu áður en að kórónuveirufaraldurinn setti allt úr skorðum. 30.5.2020 16:30
Formúlan hefst í byrjun júlí Fyrstu kappakstrarnir á nýju tímabili í Formúla 1 munu fara fram í Austurríki 5. og 12. júlí. Austurrísk stjórnvöld hafa samþykkt það. 30.5.2020 16:00
Augsburg niður um tvö sæti án Alfreðs Augsburg, lið Alfreðs Finnbogasonar, hefur dregist niður í fallbaráttu þýsku 1. deildarinnar í fótbolta í fjarveru íslenska landsliðsframherjans. Liðið tapaði 2-0 fyrir Herthu Berlín á útivelli í dag. 30.5.2020 15:35
Úr norsku C-deildinni í Arsenal Arsenal hefur gengið frá samningi við norska táninginn George Lewis eftir að hann var til reynslu hjá félaginu um tveggja vikna skeið í mars. 30.5.2020 15:00