Hópurinn sem mætir Sviss: Kristján heldur sæti sínu Guðmundur Guðmundsson hefur ákveðið hvaða sextán leikmenn hann ætlar að treysta á í leiknum gegn Sviss á HM í handbolta í Egyptalandi. 20.1.2021 11:46
„Þvílíka fyrirmyndin fyrir alla strákana“ Bjarni Fritzson lofaði Alexander Petersson, fyrrverandi samherja sinn í landsliðinu, í hástert í HM-útgáfu af Seinni bylgjunni á Stöð 2 Sport. 20.1.2021 11:17
Elvar verður lærisveinn Guðmundar í Þýskalandi Landsliðsmaðurinn Elvar Örn Jónsson heldur til Þýskalands eftir yfirstandandi keppnistímabil en hann hefur samið við Melsungen. 20.1.2021 10:10
Hættulegur leikur fyrir Íslendinga: „Hann er þeirra Óli Stef“ „Þessi leikur verður hættulegur fyrir Íslendinga. Ef allir eru heilir og frískir hjá Svisslendingum eru þeir til alls líklegir,“ segir Aðalsteinn Eyjólfsson sem þekkir afskaplega vel til mótherja Íslands á HM í handbolta í dag. 20.1.2021 09:46
„Ekkert gruggugt í gangi“ „Það er í rauninni ekkert gruggugt í gangi,“ segir Aron Pálmarsson, landsliðsfyrirliði í handbolta, sem hefur nú tjáð sig eftir að Tomas Svensson gaf í skyn að eitthvað annað en meiðsli hefði ráðið því að hann færi ekki með Íslandi á HM í Egyptalandi. 19.1.2021 16:47
Gummi lá yfir gamla lærisveininum í alla nótt „Andy Schmid er náttúrulega frábær leikmaður og einn sá besti sem ég hef nokkurn tímann þjálfað. Ég veit alveg hvað hann getur og allir leikmennirnir mínir líka. Það verður hörkuverkefni að eiga við hann.“ 19.1.2021 16:30
Dagur með Japan á ókunnum slóðum Dagur Sigurðsson er kominn með Japan í milliriðla á HM í handbolta í Egyptalandi. Það sem meira er, liðið tekur þangað með sér eitt stig eftir jafntefli við Króatíu. 19.1.2021 15:59
Vinnum Sviss og Frakkland eða Noreg Sérfræðingarnir í Sportinu í dag voru sammála um að Ísland ætti að vinna Sviss í milliriðlinum á HM í handbolta, en ósammála um möguleika liðsins gegn Frakklandi og Noregi. 19.1.2021 15:00
Umfjöllun: Ísland - Marokkó 31-23 | Öruggt gegn grófum mótherjum Íslendingar áttu ekki í vandræðum með að vinna Marokkó, 31-23, í lokaleik sínum í F-riðli heimsmeistaramótsins í handbolta í Egyptalandi. Þar með fer Ísland með tvö stig áfram í milliriðla mótsins. 18.1.2021 22:08
„Veit ekki af hverju þeir eru með þessi brot, viljandi“ „Þeir eru mjög óhefðbundnir og það var eiginlega óþægilegt að spila á móti þeim varnarlega, því maður vissi aldrei hvað þeir voru að fara að gera. Það var því gott að vinna þá og gott að gera það af öryggi,“ sagði Viggó Kristjánsson eftir 31-23 sigur Íslands gegn Marokkó á HM í kvöld. 18.1.2021 21:50