Pabbar markaskoraranna mættust í Trópídeildinni Landsliðsmennirnir þrír sem skoruðu fyrir Ísland í 4-0 sigrinum gegn Liechtenstein í undankeppni HM í fótbolta í gær eru allir af miklum fótboltaættum. Pabbar þeirra léku allir í Trópídeildinni á Íslandi sumarið 1994. 12.10.2021 11:01
Atson heillaði Grindvíkinga Bandaríkjamaðurinn Travis Atson mun leika með körfuknattleiksliði Grindavíkur í vetur. Fyrsti leikur hans gæti orðið gegn KR í næstu viku. 12.10.2021 10:42
Misskildi hrópin og skoraði þess vegna Mohamed Elyounoussi, framherji Southampton, skoraði bæði mörk Noregs í gærkvöld þegar liðið vann mikilvægan sigur á Svartfjallalandi, 2-0. Seinna markið má segja að hann hafi skorað óvart, eftir að hafa misskilið köll af hliðarlínunni. 12.10.2021 09:30
Enn mögulegt að Ísland komist á HM í Katar Eins ótrúlega og það kann að hljóma þá er enn mögulegt að íslenska karlalandsliðið í fótbolta komist á HM í Katar. Möguleikinn er vissulega mjög, mjög fjarlægur en riðillinn sem Ísland leikur í er einstaklega jafn. 12.10.2021 08:00
Elín Jóna valin í úrvalsliðið Ísland á fulltrúa í úrvalsliði fyrstu tveggja umferðanna í undankeppni Evrópumóts kvenna í handbolta. Elín Jóna Þorsteinsdóttir stóð sig betur en markverðirnir í hinum 23 liðunum að mati EHF. 12.10.2021 07:31
Umfjöllun: Ísland - Liechtenstein 4-0 | Lyklabörnin léku sér að Liechtenstein Ísland vann eins auðveldan og þægilegan sigur og hugsast getur í alþjóðlegum nútímafótbolta þegar liðið lagði Liechtenstein að velli, 4-0, í síðasta heimaleik sínum í undankeppni HM karla í Katar. 11.10.2021 21:15
Vanda kallar eftir stuðningi við landsliðið unga sem leikur í kvöld Vanda Sigurgeirsdóttir, nýr formaður Knattspyrnusambands Íslands, hefur biðlað til stuðningsmanna um að standa undir nafni og mæta á Laugardalsvöll í kvöld til að styðja við bakið á íslenska karlalandsliðinu gegn Liechtenstein í síðasta heimaleik þess á árinu. 11.10.2021 15:01
Máttarstólpar heiðraðir á Laugardalsvelli í kvöld Tveir af máttarstólpunum í karlalandsliði Íslands í fótbolta á stærstu sigurstundum í sögu þess verða heiðraðir á Laugardalsvelli í kvöld. 11.10.2021 13:30
„Verða að fá að velja það sjálfir hvort að þeir syngi, syngi inni í sér, eða sleppi því“ Birkir Bjarnason segir að ekki sé hægt að saka endurnýjað og gjörbreytt landslið Íslands í fótbolta um stemnings- eða andleysi. Það sé ekki ástæðan fyrir 1-1 jafnteflinu við Armeníu á föstudag. 11.10.2021 12:00
Ferðuðust til tunglsins til að spila leiki íslenska fótboltasumarsins Á meðan að KA-menn þurftu að ferðast samtals um 8.500 kílómetra til að spila leiki sína í efstu deild karla í fótbolta í sumar þurftu Íslandsmeistarar Víkings aðeins að ferðast 1.000 kílómetra. Liðin á Austfjörðum þurftu þó að ferðast lengst allra þetta fótboltasumar. 11.10.2021 09:32