Ferðast í sextán tíma af bekknum í bikarúrslitaleikinn Pablo Punyed er nú á heimleið frá El Salvador til Íslands og ætti að vera mættur í tæka tíð til að spila með Víkingi gegn ÍA í úrslitaleik Mjólkurbikarsins á laugardaginn. 14.10.2021 07:31
Margir úrslitaleikir fram undan Þrjú lið hafa nú tryggt sér sæti á heimsmeistaramóti karla í fótbolta í Katar sem fram fer í nóvember og desember á næsta ári. Fram undan eru því leikir upp á líf og dauða í mörgum riðlum í undankeppninni í Evrópu. 13.10.2021 16:01
Heimir mögulega að taka við Stjörnunni Heimir Hallgrímsson, fyrrverandi landsliðsþjálfari, segist hafa átt í viðræðum við fjölmörg félög en vildi ekki tjá sig um orðróminn þess efnis að hann gæti verið að taka við Stjörnunni. 13.10.2021 13:12
Aron snýr aftur til leiks Aron Pálmarsson, landsliðsfyrirliði í handbolta, er að komast í gang eftir að hafa meiðst í upphafi leiktíðar. Búast má við því að hann spili með Aalborg í Meistaradeild Evrópu í dag. 13.10.2021 12:30
Aníta og Óskar stýra Fram Knattspyrnudeild Fram hefur ráðið þau Anítu Lísu Svansdóttur og Óskar Smára Haraldsson sem þjálfara kvennaliðs félagsins til næstu tveggja ára. Þau munu einnig þjálfa 4. flokk kvenna hjá félaginu og vinna að uppbyggingu kvennaknattspyrnunnar hjá Fram. 13.10.2021 11:21
Ungverskar bullur réðust að lögreglu á Wembley Ungverskar fótboltabullur réðust að lögreglumönnum á Wembley í gærkvöld á landsleik Englands og Ungverjalands í undankeppni HM í fótbolta. 13.10.2021 11:02
Blikar mæta stórliði sem var ekki til í fyrra Blikakonur mæta liði eins þekktasta knattspyrnufélags heims í kvöld í öðrum leik sínum í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu. Kvennalið Real Madrid varð hins vegar ekki til fyrr en í fyrrasumar. 13.10.2021 08:00
Umbi Haalands fundar með City Mino Raiola, umboðsmaður markaskorarans Erlings Haaland, mun hefja viðræður við Manchester City í janúar varðandi möguleikann á að Norðmaðurinn fari til enska félagsins næsta sumar. 13.10.2021 07:31
Fótboltamenn krefjast greiðslu fyrir notkun upplýsinga um þá Ýmis fyrirtæki nýta sér upplýsingar um hæð og þyngd knattspyrnumanna, meðalfjölda marka sem þeir skora í leik, spilaðar mínútur, fiskaðar vítaspyrnur og margt fleira. Nú krefjast hundruð knattspyrnumanna í Bretlandi þess að þeim sé greitt fyrir notkun á gögnum um þá. 12.10.2021 15:00
AS líkir Andra Lucasi við Haaland Spænska stórblaðið AS segir að Andri Lucas Guðjohnsen minni um margt á Erling Braut Haaland og muni mögulega leika sinn fyrsta leik fyrir aðallið Real Madrid í vetur. 12.10.2021 13:31
Hugsanleg veggjöld á Reykjanesbraut og Suðurlandsvegi: „Þessi áform mega ekki ná fram að ganga“ Innlent