Varað við vindhviðum á Vestfjörðum Vegagerðin varar við ákveðinni norðaustanátt í kvöld og á morgun með vindhviðum um 25 metra á sekúndu í vindstrengjum á Vestfjörðum, einkum á fjallvegum. 6.8.2026 19:32
„Það bara fannst ekki neitt“ Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins barst rétt fyrir klukkan fimm síðdegis tilkynning um reyk á stigagangi í Asparfelli. Viðbragð slökkviliðs er þó nokkuð þar sem um stórt fjölbýlishús er að ræða. 6.8.2026 17:24
Snör viðbrögð björguðu ellefu ára dreng þegar hoppukastali tókst á loft „Þetta slapp mjög vel,“ segir Arnþór Ingi Hermannsson en sonur hans tókst á loft með hoppukastala í mikilli vindhviðu á bæjarhátíðinni Neistaflugi í Neskaupstað. Arnþór heldur ró sinni meðan hann segir frá atburðinum en lýsing hans er uggvænleg. 6.8.2026 06:25
Þjónusta Verifone og Rapyd lá niðri Fréttastofu bárust í kvöld ábendingar um að greiðslumiðlun hjá bæði Verifone og Rapyd lægi niðri, til að mynda í Laugarásbíói og Sambíóunum. Framkvæmdastjóri Verifone neitar því að bilun hafi átt sér stað og hefur athugasemd hans verið bætt við neðst í þessari frétt. 5.8.2026 23:20
Hnífjafnt í nýrri könnun Ný könnun Gallup sem gerð er fyrir Áfram Ísland-hreyfinguna leiðir í ljós að kjósendur skiptast í tvær jafnar fylkingar þegar spurt er um afstöðu þeirra í komandi þjóðaratkvæðagreiðslu. Átta prósent segjast óákveðin en 46 prósent eru síðan á sitt hvorri hliðinni, já og nei. 5.8.2026 22:10
Mennirnir séu íslenskir og tengist fjölskylduböndum Rannsókn lögreglu vegna andláts í Kópavogi í liðinni viku miðar vel að sögn E. Agnesar Eide, yfirlögregluþjóns rannsóknarsviðs Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, sem verst allra fregna. Karlmaður á fimmtugsaldri var í dag úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald vegna málsins. 5.8.2026 18:44
Dósaþjófur hótaði að bíta húsráðanda Húsráðandi á Seltjarnarnesi lenti illa í dósaþjófi sem ráfaði um garð sinn. Eftir að hafa tilkynnt konuna, sem vígbúin var dósum og öðru slíku, til lögreglu hélt húsráðandi út í garðinn og reyndi að ræða við konuna. Hún brást þá hin versta við og hótaði að bíta hann. 5.8.2026 17:45
Segir lögreglu skrumskæla gamansöm ummæli Sveinn Andri Sveinsson, lögmaður annars hinna ákærðu í hryðjuverkamálinu svokallaða, undirbýr nú bótakröfu á hendur ríkinu. Lögmaðurinn segir kröfuna munu byggja á þeim orðsporshnekki sem hann hafi orðið fyrir og þeim tíma sem skjólstæðingur hans var látinn sæta gæsluvarðhaldi vegna málsins. Bótakrafan mun nema tugum milljóna, að hans sögn. 5.8.2026 01:34
Gistinóttum á hótelum fækkaði milli ára Gistinóttum á hótelum í júnímánuði fækkaði milli ára, eða um 0,4 prósent, samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofu Íslands. Gistinæturnar voru rúmlega 532 þúsund á landsvísu en voru í fyrra 535 þúsund. Mikil umræða hefur verið síðustu mánuði um óvissu í efnahagsmálum og hvort Ísland sé orðið of dýrt fyrir ferðamenn. 4.8.2026 23:32
Landsmönnum fjölgaði um 1.450 á öðrum ársfjórðungi Í lok annars ársfjórðungs 2026 bjuggu 396.500 manns á Íslandi og fjölgaði landsmönnum um 1450 á öðrum ársfjórðungi. Það er Hagstofa Íslands sem greinir frá. 4.8.2026 22:27