Óvíst hvort útflutningstakmarkanir hafi áhrif á Ísland Utanríkisráðuneytið segist ekki hafa fengið neinar upplýsingar sem gefi tilefni til að ætla að fyrirhugaðar útflutningstakmarkanir Evrópusambandsins á bóluefni gegn kórónuveirunni hafi áhrif á afhendingu bóluefnis hingað. 24.3.2021 13:58
Stefnir í enn eitt þráteflið í Ísrael Horfur eru á því að fylking hægriflokka undir forystu Benjamíns Netanjahú, forsætisráðherra, nái ekki meirihluta þingsæta í kosningunum sem fóru fram í Ísrael í gær. Jafnvel gæti svo farið að lítill flokkur arabískra íslamista verði í oddastöðu þegar endanlegar niðurstöður liggja fyrir. 24.3.2021 13:03
Skutu sjö ára barn til bana í Búrma Lögreglumenn herforingjastjórnarinnar í Búrma (Mjanmar) eru sagðir hafa skotið sjö ára gamla stúlku til bana við húsleit á heimili hennar í borginni Mandalay. Stúlkan er talin yngsta fórnarlamb blóðugrar herferðar stjórnarinnar gegn öllu andófi í landinu. 24.3.2021 12:14
ESB hyggst takmarka útflutning á bóluefni Ríki utan Evrópusambandsins þurfa sérstakt leyfi til þess að fá að flytja inn bóluefni gegn kórónuveirunni þaðan samkvæmt hertum takmörkunum sem búist er við að verði kynntar í Brussel í dag. Takmarkanirnar eru taldar koma harðast niður á Bretlandi og Bandaríkjunum. 24.3.2021 10:55
Berlusconi á sjúkrahúsi Silvio Berlusconi, fyrrverandi forsætisráðherra Ítalíu, hefur legið á sjúkrahúsi frá því á mánudag. Ekki hefur verið greint frá því hvað plagar Berlusconi en ekki er gert ráð fyrir að hann geti komið fram opinberlega á næstunni. 24.3.2021 10:21
Stefnt á að opna nýjan ungbarnaleikskóla í Bríetartúni í ár Pláss verður fyrir sextíu börn á aldrinum tólf mánaða til þriggja ára á nýjum ungbarnaleikskóla í Bríetartúni sem Reykjavíkurborg ætlar að taka í notkun fyrir lok þessa árs. Opnun leikskólans er liður í áformum borgaryfirvalda um að fjölga plássum svo hægt sé að bjóða börnum allt frá tólf mánaða aldri leikskólavist. 24.3.2021 09:15
Framlög til loftslagsmála lækka þrátt fyrir auka milljarð Gert er ráð fyrir að framlög til loftslagsmála verði hátt í fjórum milljörðum krónum lægri árið 2026 en þau eru í ár í nýrri fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar til næstu fimm ára. Stjórnarandstöðuþingmaður segir áætlunina „plástur“ rétt fyrir kosningar. 24.3.2021 09:01
Rýma Geldingadal: Gasmengun í dældum gæti nálgast lífshættuleg gildi Nágrenni eldgossins í Geldingadal verður rýmt klukkan 17:00 í dag en Veðurstofan varar við því að hættulegar gastegundir geti safnast fyrir í lægðum og dældum þegar veður lægir. Styrkur gassins þar gæti verið lífshættulegur. 23.3.2021 15:06
Fimmtán lík hafa fundist eftir eldsvoðann í flóttamannabúðunum Björgunarfólk hefur fundið að minnsta kosti fimmtán lík í brunarústum flóttamannabúða róhingja í sunnanverðu Bangladess. Þúsundir tjalda brunnu í eldsvoða sem kviknaði í búðunum í gær og fleiri en fjögur hundruð manns er enn saknað. 23.3.2021 13:20
Bann við hríðskotarifflum fellt úr gildi tíu dögum fyrir fjöldamorðið Umdæmisdómari í Colorado í Bandaríkjunum felldi úr gildi bann borgaryfirvalda í Boulder við hríðskotarifflum aðeins tíu dögum fyrir fjöldamorðið sem var framið með slíku skotvopni í gær. Vopnaður árásarmaður skaut tíu manns til bana í stórmarkaði. 23.3.2021 12:24