Bann við hríðskotarifflum fellt úr gildi tíu dögum fyrir fjöldamorðið Umdæmisdómari í Colorado í Bandaríkjunum felldi úr gildi bann borgaryfirvalda í Boulder við hríðskotarifflum aðeins tíu dögum fyrir fjöldamorðið sem var framið með slíku skotvopni í gær. Vopnaður árásarmaður skaut tíu manns til bana í stórmarkaði. 23.3.2021 12:24
Þjóðverjar skella í lás yfir páskana Sóttvarnaaðgerðir í Þýskalandi verða framlengdar um þrjár vikur og hertar verulega yfir páskana. Ástæðan er þriðja bylgja kórónuveirufaraldursins sem gengur nú yfir Þýskaland og ýmis önnur Evrópuríki. 23.3.2021 11:44
Kynsvall og misnotkun í ástralska þinghúsinu Einn háttsettur ráðgjafi áströlsku ríkisstjórnarinnar hefur þegar verið látinn taka poka sinn eftir að myndbönd af kynsvalli starfsfólks í þinghúsinu voru birt í gær. Kona sem vann fyrir ríkisstjórnina segist hafa verið nauðgað af samstarfsmanni en hún hafi verið beitt þrýstingi um að tilkynna það ekki lögreglu. 23.3.2021 11:03
Gætu lagt fjársektir á þá sem reyna að ferðast frá Englandi Breska ríkisstjórnin ætlar að leggja hundruð þúsunda króna sekt á Englendinga sem reyna að ferðast til útlanda fyrir lok júní. Sektirnar eru hluti af hertum aðgerðum breskra stjórnvalda á landamærunum vegna kórónuveirufaraldursins. 23.3.2021 10:32
Milljarður á ári aukalega til að ná hertum loftslagsmarkmiðum Ríkisstjórnin segist ætla að verja einum milljarði króna aukalega ári í framlög til loftslagsmála næstu tíu árin til þess að mæta hertum markmiðum Íslands um samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda. Til stendur að herða aðgerðirnar í landnotkun, landbúnaði og samgöngum. 23.3.2021 09:22
Telja AstraZeneca hafa notað úrelt gögn við rannsókn vestanhafs Bandarísk yfirvöld telja að niðurstöður úr umfangsmikilli rannsókn á kórónuveirubóluefni AstraZeneca í Bandaríkjunum hafi stuðst við „úrelt gögn“. Því hafi fyrirtækið mögulega gefið ófullkomna mynd af virkni bóluefnisins. 23.3.2021 08:41
Staðfestir höfnun á innflutningi fugla sem voru aflífaðir fyrir þremur árum Tæpur þremur árum eftir að á þriðja hundrað skrautfuglar voru aflífaðir að kröfu Matvælastofnunar hefur atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið staðfest ákvörðun stofnunarinnar um að hafna innflutningi á fuglunum. 22.3.2021 16:41
ESB beitir refsiaðgerðum vegna Úígúra og valdaránsins í Búrma Evrópusambandið ákvað í dag að beita fjóra kínverska embættismenn og ellefu yfirmenn í her Búrma refsiaðgerðum vegna mannréttindabrota gegn Úígúrum í Kína annars vegar og valdaránsins í Búrma hins vegar. 22.3.2021 16:10
Mikill eldsvoði í flóttamannabúðum róhingja Þúsundir róhingja eiga nú engan stað til að halla höfði sínu vegna mikil eldsvoða sem blossaði upp í flóttamannabúðum þeirraí sunnanverðu Bangladess í dag. Hundruð tjalda hafa orðið eldinum að bráð og er óttast að fólk hafi farist. 22.3.2021 14:45
Ikea sakað um að njósna um starfsfólk og viðskiptavini Réttarhöld yfir dótturfyrirtæki Ikea í Frakklandi og fyrrverandi stjórnendum þess hefjast í dag. Fyrirtækið og stjórnendurnir eru sakaðir um að hafa notað gagnagrunn lögreglu til þess að njósna um starfsfólk sitt og viðskiptavini um marga ára skeið. 22.3.2021 14:16