LeBron boðar aðra Ákvörðun Stigahæsti leikmaður í sögu NBA-deildarinnar í körfubolta, LeBron James, boðar stóra tilkynningu á samfélagsmiðlum í dag. Einhverjir telja að hann ætli að greina frá því hvenær skórnir fari á hilluna. 7.10.2025 07:02
Dagskráin í dag: Stórleikur að Hlíðarenda Önnur umferð Bónus deildar kvenna í körfubolta hefst í kvöld með þremur leikjum. Þeir verða allir sýndir beint á sportrásum Sýnar en þar verður ýmislegt annað á boðsstólnum. 7.10.2025 06:00
„Skil ekki hvernig má kýla einhvern í andlitið?“ Sérfræðingar Stúkunnar segja að KA hafi verið stálheppið að fá ekki á sig vítaspyrnu gegn Vestra í Bestu deild karla í gær. 6.10.2025 23:45
Hafa fengið áttatíu prósent stiga í boði með Gunnar í byrjunarliðinu Hetjurnar í Íslandsmeistaraliði Víkings eru margar en fáir eru því mikilvægari en færeyski varnarmaðurinn Gunnar Vatnhamar. Tölfræðin sýnir það svart á hvítu. 6.10.2025 22:45
Aron Rafn hetja Hauka gegn Val og Fjölnir henti Stjörnunni úr leik Haukar sigruðu Val eftir vítakastkeppni, 39-38, í sextán liða úrslitum Powerade-bikars karla í handbolta í kvöld. Aron Rafn Eðvarðsson átti frábæran leik í marki Hauka. Fjölnir, sem leikur í Grill 66 deildinni, gerði sér lítið fyrir og sló Stjörnuna úr leik með sigri á heimavelli, 38-35. 6.10.2025 22:37
Bikarmeistararnir sluppu með skrekkinn Bikarmeistarar Fram unnu Víking, sem leikur í Grill 66 deildinni, með tveggja marka mun, 39-41, í tvíframlengdum leik í sextán liða úrslitum Powerade-bikars karla í handbolta. Leikurinn fór fram á heimavelli Víkinga í Safamýrinni þar sem Framarar léku í mörg ár. 6.10.2025 21:32
Fótboltaiðkendur með fatlanir kíktu á landsliðsæfingu Strákarnir í íslenska fótboltalandsliðinu fengu góða heimsókn á fyrstu æfingu sína fyrir leikina mikilvægu sem framundan eru í undankeppni HM 2026. 6.10.2025 20:35
Unnu síðustu átján mínúturnar með tíu mörkum Þrátt fyrir að vera fimm mörkum undir þegar tæpar átján mínútur voru eftir vann Afturelding ÍBV, 27-22, í sextán liða úrslitum Powerade-bikars karla í handbolta. 6.10.2025 19:35
Elvar stigahæstur í fyrsta deildarleiknum með nýja liðinu Íslenski landsliðsmaðurinn í körfubolta, Elvar Már Friðriksson, lét mikið að sér kveða þegar Anwil Wloclawek vann stórsigur á Gliwice, 93-58, í pólsku úrvalsdeildinni í kvöld. 6.10.2025 18:43
Niðurbrotin Eygló keppir ekki á HM Eygló Fanndal Sturludóttir keppir ekki á heimsmeistaramótinu í ólympískum lyftingum vegna meiðsla. 6.10.2025 17:45