Fréttamaður

Freyja Þórisdóttir

Freyja er fréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

For­ystu­menn láti stór orð falla sér og sínum mál­stað til fram­dráttar

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra telur að deilur sem upp komi í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu sem þjóðin standi frammi fyrir þann 29. ágúst séu ekki af því tagi að landsmenn láti tilfinningarnar bera sig ofurliði. Þvert á móti sé tilfinningahiti fólks almennt minni en gengur og gerist í kosningum.

Klukkan hvað þarf að vera kominn út til að missa ekki af almyrkvanum?

Almyrkvinn 12. ágúst 2026 gengur yfir vestasta og þéttbýlasta svæði landsins, yfir Vestfirði, Snæfellsnes, höfuðborgarsvæðið og Reykjanesskaga. Hann nemur fyrst land á Íslandi við Straumnesvita á Hornströndum sautján mínútur í sex að kvöld til en þar stendur hann yfir í tæpa eina og hálfa mínútu. Myrkvinn stendur lengst yfir við Látrabjarg eða í tvær mínútur og þrettán sekúndur. 

Fyrir fólk sem búi á almyrkvaslóðinni sé nóg að „vera úti í garði og upp­lifa allt“

Almyrkvi á sólu mun ganga yfir Norðurslóðir þann 12. ágúst en liðin eru 72 ár síðan síðast sást til almyrkva frá Íslandi og hefur mikið kapp verið lagt á að miðvikudagurinn gangi sem best fyrir sig. Eitt sem er þó úr okkar höndum er veðrið en Stjörnu-Sævar segir skýjaðan almyrkva vera stórkostlegan þrátt fyrir að það sé þá ekki hægt að fylgjast með tunglinu ganga fyrir sólina. Þá séu gæludýr í engri hættu og grillkjöt geti með engu móti orðið óætt af völdum sólargeisla.

Þurfa dýr að vera með sólmyrkvagleraugu þann 12. ágúst?

Það er tiltölulega fyrirsjáanlegt hver viðbrögð mannfólks verða þann 12. ágúst þegar tunglið hylur sólina algjörlega og við upplifum örstutta nótt. Sumir munu reka upp stór augu, aðrir skella upp úr og einhverjir munu án efa fella tár. Hvernig dýr munu bregðast við er hins vegar ekki eins augljóst.

Þjóðin þekki ekki annað en öryggisvernd frá Banda­ríkjunum

Bogi Ágústsson telur marga landsmenn vera að hluta til í afneitun varðandi breyttan heim og að sú vernd sem við höfum hlotið frá Bandaríkjunum blindi fólk fyrir því að Evrópa gæti verið valkostur. Neikvæð niðurstaða þjóðaratkvæðagreiðslu þann 29. ágúst myndi þýða að ekkert verði af framhaldi aðildarviðræðna við Evrópusambandið sem fram fóru árin 2009-2013.

Ljónið, Karls­vagninn og reiki­stjörnur gætu stolið senunni þann 12. ágúst

Þann 12. ágúst næstkomandi munu augu allra landsmanna beinast að himni, eða í það minnsta flestra. Þegar næturmyrkur skellur á löngu fyrir sólsetur gæti fólk komið auga á í það minnsta fjórar reikistjörnur og næstum því eins mörg stjörnumerki. Einhverjir munu eflaust freistast til að slíta augun af almyrkvanum til að virða eitt eða fleiri þeirra fyrir sér.

Brotaþolar fluttir á slysa­deild og allar á­rásirnar til rann­sóknar

Sjö líkamsárásir rötuðu á borð lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í gær og í nótt, sem þykir heldur mikið, en fjöldi fólks var samankominn í miðborginni vegna Hinsegin daga sem fóru fram í vikunni. Nokkrir voru fluttir til aðhlynningar á slysadeild en ekki liggur fyrir hversu alvarlegar árásirnar voru.

Fræg feðgin snæddu kvöld­mat á Horninu

Bandaríski leikarinn Jason Bateman, sem er einna þekktastur fyrir leik sinn í gamanþáttunum „Arrested Development“, var meðal gesta á veitingastaðnum Horninu um helgina. Hann var þar ásamt dóttur sinni Francescu Nora en hann á tvær dætur með eiginkonu sinni, leikkonunni og kvikmyndaframleiðandanum Amandu Anka.

Sjá meira