„Það þýðir bara að ríkisstjórnin er sprungin“ Þingmenn stjórnarandstöðunnar hafa ítrekað kallað eftir því undanfarið að þing verði kallað saman. Þingflokksformaður Miðflokksins segir neitun stjórnarflokkanna þess efnis til marks um það að stjórnin sé hreinlega sprungin. 10.7.2023 11:00
Þriðjungur laxa í Breiðdalsá blandaður eldislaxi Niðurstöður rannsóknar Hafrannsóknastofnunar benda til þess að villtur íslenskur lax og eldislax af norskum uppruna hafi blandast saman í nokkrum mæli. Eldri erfðablöndun greindist til að mynda í 32 prósent seiða í Breiðdalsá. 10.7.2023 10:51
Viðkvæmir neytendur sjóði vatn vegna gruggs í vatnsbóli Í kjölfar jarðskjálftans í gærkvöldi hefur grugg aukist í vatnsbóli Veitna í Grábrókarhrauni. Aukning gruggs getur minnkað vatnsgæði og því eru viðkvæmir neytendur beðnir um að sjóða neysluvatn til drykkjar í varúðarskyni. 10.7.2023 09:50
Segir jörðina liðast í sundur á Reykjanesi Bandarískur áhrifavaldur, sem er búsettur hér á landi, segir jarðskjálfta á Reykjanesi í gær vera það ógnvænlegasta sem hann hefur upplifað á landinu. Þá deilir hann mynd af stærðarinnar holu sem myndaðist á vegi á svæðinu. 10.7.2023 07:51
Staða kvenna í fangelsum verri en karla Fyrirkomulag við afplánun kvenna hér á landi er almennt til þess fallið að gera stöðu þeirra lakari samanborið við karlfanga. Þetta kemur fram í ítarlegri skýrslu umboðsmanns Alþingis um stöðu kvenna í fangelsum landsins. 7.7.2023 15:26
Mál málanna á mannamáli Lindarhvoll og leyndarhyggjan í kringum greinargerð setts ríkisendurskoðanda um starfsemi félagins hafa verið milli tannanna á fólki undanfarið. En hvað er Lindarhvoll og hvers vegna vildi forseti Alþingis alls ekki að greinargerðin yrði birt? 7.7.2023 13:09
Kópavogsbæ gert að greiða syni Þorsteins Hjaltested 1,4 milljarða Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt Kópavogsbæ til að greiða Magnúsi Pétri Hjaltested, syni Þorsteins Hjaltested heitins 1,4 milljarða króna ásamt vöxtum í deilum um Vatnsendaland. 7.7.2023 13:03
Röst leysir Baldur af hólmi Vegagerðin hefur samið við Torghatten Nord um kaup á ferjunni Röst. Skipið tekur að óbreyttu við ferjusiglingum á Breiðafirði í haust og leysir þar með ferjuna Baldur af hólmi. Til stóð upphaflega að leggja af ferjusiglingar um Breiðafjörð í vor. 7.7.2023 10:15
„Enn annar metmánuðurinn hjá Play“ Flugfélagið Play flutti 160.979 farþega í júnímánuði, sem er langmesti farþegafjöldi sem fluttur hefur verið á einum mánuði hjá félaginu. 7.7.2023 09:51
Samkeppniseftirlitið vill ekki fella niður sátt við Símann Samkeppniseftirlitið telur ekki að sala Símans á Mílu og breyttar markaðsaðstæður Símans réttlæti það að sátt, sem gerð var árið 2013 verði felld úr gildi. Sáttin felur meðal annars í sér aðskilnað heild- og smásölu Símans og bann við samkeppnishamlandi samningum. 7.7.2023 08:56