
„Mikill heiður að vera treyst fyrir svona stóru verkefni“
Kraftur, stuðningsfélag ungs fólks sem greinst hefur með krabbamein og aðstandenda þeirra tók nýverið höndum saman við skartgripalínuna Vera Design. Í kjölfarið hannaði Vera Design nýja fallega skartgripalínu fyrir Kraft og mun allur ágóði renna til félagsins.