

Sjávarútvegur

Stjórn Sjómannafélagsins sakar Heiðveigu Maríu um ærumeiðingar
Stjórn Sjómannafélags Íslands harmar í yfirlýsingu að hafa fengið að sitja undir ýmsum ásökunum af hálfu Heiðveigar Maríu.

Bæjarstjórn Bolungarvíkur segir óvissu í fiskeldi vera ólíðandi
Það er óásættanlegt að rekstrargrundvelli fyrirtækja á Vestfjörðum, sem og annars staðar á Íslandi, sé kippt undan þeim eins og staðan er nú í íslensku fiskeldi segir bæjarstjórn Bolungarvíkur í nýrri bókun.

Segir stjórn Sjómannafélagsins vilja losna við sig með klækjum og fantaskap
Heiðveig María segir stjórn SÍ hafa breytt lögum sem komi í veg fyrir framboð hennar.

Umhverfisáhrif og byggðasjónarmið í hatrammri umræðu um fiskeldi
Rýnt í þau gögn sem liggja fyrir frá opinberum stofnunum um umhverfisáhrif stækkunar laxeldis í Patreksfirði og Tálknafirði, sem og skýrslur Hafrannsóknastofnunar um erfðablöndun eldisfiska við íslenska laxastofna.

Ráðlagði lestur á úrskurðinum svo „farið væri rétt með“ en fór sjálf með rangt mál
Björt Ólafsdóttir, fyrrverandi umhverfis- og auðlindaráðherra, virðist fara ranglega með forsendur niðurstöðu úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála í grein sem birtist eftir hana í Fréttablaðinu í morgun.

Segja að ef nægum þrýstingi sé beitt víki umhverfisvernd
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landssambandi veiðifélaga en lýsir sambandið einnig furðu sinni á því að hafa á engu stigi fengið að hafa umsögn um umrædda lagasetningu.

Hafið í framvarðarlínu loftslagsbreytinga
Lítið er vitað um áhrif súrnunar sjávar á fiska. Vitað er að hafið í kringum Ísland súrnar hraðar en hlýrri höf sunnar í heimi. Breskur sérfræðingur segir Íslendingum að taka mark á eigin mælingum sem séu einstakar.

Byggðaþróun á Vestfjörðum verið snúið við með laxeldi
Gagnrýni á laxeldi hér á landi hefur að langmestu leyti snúist um náttúruvernd. Hins vegar verður ekki horft fram hjá því að laxeldi hefur gjörbreytt stöðu Vestfjarða síðustu ár.

Fiskeldisfrumvarpið samþykkt með öllum greiddum atkvæðum
Frumvarp sjávarútvegs-og landbúnaðarráðherra um rekstrarleyfi fiskeldisfyrirtækja til bráðabirgða var samþykkt um hálf tólf leytið i kvöld með 45 atkvæðum. Sex þingmenn sátu hjá.

Stefnt að skjótri afgreiðslu fiskeldisfrumvarps
Beita þurfti afbrigðum til að koma frumvarpi sjávarútvegsráðherra til fyrstu umræðu á Alþingi í dag og var það samþykkt með 53 samhljóða atkvæðum.

Landvernd skorar á fyrrverandi framkvæmdastjóra
Stjórn Landverndar skorar á umhverfis- og auðlindaráðherra auk sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra að virða niðurstöðu úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála.

Óttar Yngvason biðst afsökunar á orðum sínum
Óttar kveðst óska þess að hann hefði orðað hugsanir sínar betur.

12,3 milljarða salan á Ögurvík blásin af
Útgerðarfélag Reykjavíkur (ÚR), sem áður hét Brim, hefur tekið ákvörðun um að hætta við söluna á Ögurvík til HB Granda.

Lögmaður náttúruverndarsamtaka segir stjórnvöld brjóta lög með frumvarpinu
Ríkisstjórnin hyggst leggja fram frumvarp sem myndi heimila ráðherra fiskeldismála að veita fyrirtækjum rekstrarleyfi til bráðabirgða.

Ráðherra vill veita rekstrarleyfi til bráðabirgða
Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, kynnti frumvarp er snýr að rekstrarleyfi til bráðabirgða í fiskeldi á aukafundi ríkisstjórnarinnar í hádeginu.

Aukafundur hjá ríkisstjórn vegna laxeldismála
Ráðherrar hafa verið að streyma inn í stjórnarráðið hver á fætur öðrum.

Neyðarástand bregðist stjórnvöld ekki við
Ljóst þykir að ákvörðun úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála muni hafa neikvæð áhrif á uppbyggingu laxeldis.

Formenn stjórnarflokkanna funduðu með fulltrúum sveitarfélaganna um fiskeldismál
Formenn stjórnarflokka ríkisstjórnarinnar funduðu í gær með bæjarstjóra Vesturbyggðar og oddvita Tálknafjarðarbæjar. Tilefni fundarins var að ræða stöðuna sem nú er uppi hjá fiskeldisfyrirtækjum í sveitarfélögunum tveimur en úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála ógilti fyrr í vikunni rekstrarleyfi fyrirtækjanna til fiskeldis á Vestfjörðum. Sveitarstjórnarmenn sveitarfélaganna sátu einnig fundinn.

Ráðherra segir Óttar fara með staðlausa stafi í umræðu um fiskeldi
Sigurður Ingi Jóhannsson segir að lögmann náttúruverndarsamtaka og veiðiréttarhafa fara með rangt mál í umræðu um fiskeldi á Vestfjörðum.

Heiðveig María segir forystu sjómanna hafa brugðist
Fyrsta konan til að bjóða sig fram til forystu í Sjómannafélagi Íslands gagnrýnir núverandi forystu fyrir að koma illa undirbúna að gerð kjarasamninga og standa sig ekki í stykkinu í vöktun löggjafar sem snertir hagsmuni sjómanna.

Bjarni segir óvissuástandið á Vestfjörðum með öllu óviðunandi
Fjármála- og efnahagsráðherra segir að það óvissuástand sem hafi skapast hefur á Vestfjörðum í kjölfar úrskurðar úrskurðarnefndar um umhverfis- og auðlindamál sé með öllu óviðunandi.

Telur að frumvarp um veiðigjöld myndi hvata til að skerða hlut sjómanna
Það að greiða veiðigjöld af afla þremur árum eftir að hann er veiddur er léttvægt vandamál og kallar ekki eitt og sér á lagabreytingu á veiðigjöldum.

Hafna frestun réttaráhrifa eftir sviptingu starfsleyfis
Úrskurðar- og auðlindanefnd vísaði frá kröfu fiskeldisfyrirtækja um frestun réttaráhrifa.

Skemmdir á Frosta meiri en talið var í fyrstu
Skipstjórinn á Frosta ÞH er ekki bjartsýnn á að skipið komist til veiða í bráð eftir að eldur kom upp í vélarrúmi skipsins á þriðjudag.

Starfsleyfi laxeldisfyrirtækja felld úr gildi
Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hefur fellt úr gildi starfsleyfi laxeldisfyrirtækjanna Arctic Sea Farm og Fjarðarlax fyrir samtals 17.500 tonna ársframleiðslu á laxi í sjókvíum á Patreksfirði og Tálknafirði.

Fumlaus viðbrögð komu í veg fyrir að eldur breiddist út
Yfirvélstjóri á Frosta sem hlaut brunasár segir Slysavarnaskóla sjómanna hafa sannað gildi sitt. Varðskipið Týr er væntanlegt með Frosta í togi til Hafnarfjarðar í fyrramálið.

Virðist byggja á mistökum opinberra stofnanna segir ráðherra
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra segir ýmislegt benda til þess að úrskurðir sem fella úr gildi rekstarleyfi tveggja laxeldisfyrirtækja á Vestfjörðum byggi á mistökum. Verið sé að bera saman epli og appelsínur og ekki hafi verið tekið tillit til hagsmuna samfélagsins fyrir vestan.

Telja fiskeldi verða fyrir „fordæmalausri og ósvífinni hagsmunabaráttu fámennra hópa auðmanna“
Sveitarfélög á Vestfjörðum fordæma úrskurð um að fella leyfi til fiskeldis úr gildi.

Helmingur fór í fjárfestingar
Sjávarútvegsfyrirtæki vörðu nær helmingi af EBITDA-hagnaði sínum árið 2017 í fjárfestingar.

„Sjávarútvegur virðist vera notaður sem pólitískt bitbein”
Útgerðarmaður á smábát í Reykjavík segir að nú þegar þurfi að bregðast við til að koma í veg fyrir að veiðigjald geri útaf við minni útgerðir og stuðli að frekari samþjöppun í sjávarútvegi. Allir séu tilbúnir að greiða gjald fyrir aðgang að auðlindinni, en það þurfi að vera sanngjarnt.