Viðskipti innlent

Sjávarútvegssveitarfélög vilja hlutdeild í tekjum að auðlindanýtingu í sjávarútvegi til að mæta loðnubresti

Jóhann K. Jóhannsson skrifar
Sveitarfélagið Hornafjörður er eitt þeirra sveitarfélaga sem loðnubrestur bitnar á.
Sveitarfélagið Hornafjörður er eitt þeirra sveitarfélaga sem loðnubrestur bitnar á. Vísir/Vilhelm

Líkt og fram kom í hádegisfréttum Bylgjunnar í gær ríkir ekki mikil bjartsýni um að loðna finnist í öðrum leiðangri rannsóknarskipsins Árna Friðrikssonar og fjögurra annarra skipa á Íslandsmiðum.

Loðnubrestur tvö ár í röð hefur mikil áhrif á þjóðarbúið, sveitarfélög og fyrirtæki sem ríkra hagsmuna hafa að gæta.

Ein ástæða þess að peningastefnunefnd Seðlabankans lækkaði vexti um 0,25 prósentur í gær er lakari hagvöxtur heldur en gert hafði verið ráð fyrir, sem fyrst og fremst má rekja til erfiðrar stöðu útflutningsatvinnugreina.

Stjórn Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga samþykkti í fyrra að vinna samantekt á heildaráhrifum loðnubrests í þeim sveitarfélögum sem loðnubrestur hafði mest áhrif á og var unnið úr upplýsingum frá fimm sveitarfélögum.

„Að þetta skuli vera annað árið í röð sem þetta gerist er sínu alvarlegra. Við tókum saman minnisblað í fyrra þar sem við áætluðum að tekjutap sveitarfélaganna, sem urðu harðast úti þá, um 500 milljónir. Þetta er gríðarlegt högg að fá þetta annað árið í röð,“ segir Gauti Jóhannesson, formaður Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga.

Gauti segir áríðandi að stjórnvöld komi að borðinu og ræði lausnir fyrir þau sveitarfélög sem loðnubrestur bitnar harðast á.

„Það sem að spilar stóra rullu í þessu málið er að tækifæri fyrir þeirra sveitarfélaga sem fyrir þessu verða til að afla annarra tekna, til að vega á móti þessu tapi, er takmörkuð og það eru fá tækifæri fyrir íbúa til að finna aðra atvinnu við hæfi,“ segir Gauti og bætir við að samtökin hafi upplýst ráðherra um stöðu mála.

„Samtök sjávarútvegssveitarfélaga hafa haldið á lofti kröfunni um að sjávarútvegssveitarfélög fái hlutdeild í tekjum að auðlindanýtingu í sjávarútvegi til margra ára, einmitt til þess að geta tekist á við þessar sveiflur sem svo sem óumflýjanlegar í rekstri sem byggir á nýtingu auðlindarinnar og til að byggja upp fjölbreyttara atvinnulíf,“ segir Gauti Jóhannesson, formaður Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×