

Ólympíuleikar 2024
Fréttir af Ólympíuleikunum sem fram fóru í París í Frakklandi dagana 26. júlí til 11. ágúst 2024.

Þorir ekki heim eftir bikinímyndir en gæti komist á ÓL
Íranska íþróttakonan Saman Soltani hefur haldið sig frá heimalandi sínu síðustu átján mánuði, eftir að hafa birt myndir af sér í sundfötum á samfélagsmiðlum, enda gæti hún lent í fangelsi við heimkomu.

Banna Ólympíumeistaranum að taka þátt í ÓL í París
Rússneski glímumaðurinn Abdulrashid Sadulayev verður ekki meðal keppenda á Ólympíuleikunum í París í sumar þar sem hann fær ekki að keppa í undankeppninni í Aserbaísjan um helgina.

„Þetta er sorgardagur“
Einn allra besti handboltamaður allra tíma, Mikkel Hansen, tilkynnti í dag opinberlega á blaðamannafundi að hann myndi leggja skóna á hilluna í sumar. Nikolaj Jacobsen, landsliðsþjálfari Danmerkur, vill ekki lofa því að Hansen muni fyrst spila á Ólympíuleikunum í París.

Áttatíu prósent óttast hryðjuverkaárás á Ólympíuleikunum í sumar
Frakkar hafa gripið til stóraukinna varúðarráðstafana í aðdraganda Ólympíuleikanna í París sumar. Viðvörunarstig er nú eins hátt og það getur verið.

Ólympíureikningur Frakka hækkar mikið
Franskir skattborgarar þurfa að greiða enn hærri upphæð fyrir Ólympíuleikana í París en búist var við.

Enn fúll yfir ráðningu Dags og telur að hann vinni ekki verðlaun
Þó að Króatar, bæði leikmenn og stuðningsmenn, virðist almennt hæstánægðir með ráðningu Dags Sigurðssonar þá er einn þeirra enn mjög ósáttur. Sá vildi starf Dags.

„Breytir eiginlega öllu fyrir mig“
Efasemdir um réttmæti ráðningar Dags Sigurðssonar sem landsþjálfara Króatíu í handbolta eru á bak og burt. Óskabyrjun hans með liðið opnar á möguleika fyrir framhaldið.

Meinuð þátttaka í setningarhátíð Ólympíuleikanna
Alþjóða Ólympíunefndin hefur tekið stóra ákvörðun hvað varðar þá íþróttamenn frá Rússlandi og Hvíta Rússlandi sem fá að taka þátt í Ólympíuleikunum í París í sumar.

Dagur slær öll met í vinsældum: „Öllum sama um hvaðan hann er“
Dagur Sigurðsson hefur gjörsamlega slegið í gegn sem nýr landsliðsþjálfari Króata í „þjóðaríþrótt“ þeirra, handbolta. Bjartsýni ríkir um að hann komi liðinu aftur í allra fremstu röð.

Dreifa smokkum meðal íþróttafólksins á ÓL í París
Það verður engin tveggja metra regla viðhöfð lengur þegar Ólympíuleikarnir verða haldnir í París í sumar.

Kornabörn þurfa sér sæti á ÓL: „Vissum ekki einu sinni að barnið væri á leiðinni“
Foreldrar ungabarna kvarta yfir reglubreytingu í kringum Ólympíuleikana í París þar sem börnunum verður meinaður aðgangur nema búið sé að greiða fyrir miða í sér sæti.

Dagur svo gott sem búinn að koma Króötum á Ólympíuleikana
Dagur Sigurðsson og lærisveinar hans í króatíska karlalandsliðinu í handbolta eru komnir með annan fótinn á Ólympíuleikana í París eftir sterkan þriggja marka sigur gegn Alfreð Gíslasyni og lærisveinum hans í þýska landsliðinu í dag, 30-33.

Í fyrsta sinn verða jafnmargar konur og karlar á Ólympíuleikunum
Ólympíuleikarnir í París í sumar verða sögulegir leikar þegar kemur að jafnrétti kynjanna. Þetta verða nefnilega fyrstu Ólympíuleikar sögunnar þar sem jafnmargar konur og karla keppa.

Dagur gat strax sungið þjóðsönginn og kallaður Sigurdssonić
Króatar eru ánægðir með Dag Sigurðsson eftir fyrsta leik króatíska handboltalandsliðsins undir hans stjórn, þegar liðið vann afar mikilvægan sex marka sigur gegn Austurríki í ólympíuumspilinu.

Lærisveinar Arons misstu frá sér leikinn og ÓL-draumurinn er veikur
Bareinska landsliðið tapaði með minnsta mun á móti Brasilíu í kvöld, 24-25, í öðrum leik sínum í umspili um tvö laus sæti á á Ólympíuleikunum í París í sumar.

Alfreð Gísla og strákarnir hans byrja vel í ÓL-umspilinu
Þýska handboltalandsliðið vann öruggan tólf marka sigur á Alsír, 41-29 í fyrsta leik sínum í umspili um tvö laus sæti í handboltakeppni Ólympíuleikanna í París næsta sumar.

Fagnar ráðningu Dags: „Mjög gott dæmi hjá Króötunum“
Alfreð Gíslason fagnar ákvörðun Dags Sigurðssonar að hætta með japanska landsliðið í handbolta og taka við því króatíska. Þeir félagar munu leiða saman hesta sína í vikunni.

Dagur kenndi Króötum íslenskt orð, valdi Cindric og fær eina æfingu með Duvnjak
Á morgun er fyrsti leikur króatíska handboltalandsliðsins undir stjórn Dags Sigurðssonar og segja má að það sé hálfgerður úrslitaleikur, við Austurríki, um sæti á Ólympíuleikunum í París í sumar.

Stefnir til Parísar og tekur í gikkinn milli þess sem hann mundar hamarinn
Haglabyssuskyttan Hákon Þór Svavarsson setur stefnuna á að komast inn á Ólympíuleikana í París. Við hittum hann á dögunum og fengum að kynnast honum í leik og starfi.

Margrét Erla Maack með magadans fyrir þýska handboltalandsliðið
Henry Birgir Gunnarsson, Stefán Árni Pálsson og Valur Páll Eiríksson fóru yfir það helsta sem gerðist í vikunni í hlaðvarpsþættinum Besta sætið.

Getur ekki horft á myndir af sjálfri sér frá því í fyrra
Þríþrautarkonan Guðlaug Edda Hannesdóttir fór í gegnum erfiða tíma á síðasta ári en hún lærði líka margt á því. Hún deilir nú ráðum fyrir fólk í svipaðri stöðu.

Fimm ára bann fyrir að þvinga íþróttakonu til að yfirgefa ÓL
Hvít-rússneski frjálsíþróttaþjálfarinn Jurij Moisevich má ekki koma nálægt íþróttinni næstu fimm árin.

Kennir kynlífi með kærastanum um fall á lyfjaprófi
Franska skylmingakonan Ysaora Thibus er ekki búin að gefa upp vonina um að keppa á Ólympíuleikunum á heimavelli í sumar.

Mascherano um viðræður við Messi: Ekki auðvelt fyrir hann
Javier Mascherano, þjálfari Ólympíuliðs Argentínumanna, segist hafa rætt við Lionel Messi um að Messi spili með liðinu á Ólympíuleikunum í París í sumar.

Dagur kom á óvart og sleppti stórstjörnu
Dagur Sigurðsson hefur nú valið sinn fyrsta landsliðshóp sem þjálfari króatíska landsliðsins í handbolta. Mesta athygli vekur að hann skyldi ekki velja eina stærstu stjörnuna, Luka Cindric, í 21 manns hóp sem á að tryggja Króatíu sæti á Ólympíuleikunum.

Þjóðverjar veðja á Alfreð næstu árin en setja fyrirvara
Þýska handknattleikssambandið tilkynnti í dag um nýjan samning við Alfreð Gíslason sem verður áfram þjálfari þýska karlalandsliðsins út febrúar 2027.

Japanirnir fengu sjokk þegar Dagur sagði þeim fréttirnar
Dagur Sigurðsson segir að forráðamenn japanska handknattleikssambandsins hafi fengið áfall þegar hann tilkynnti þeim að hann ætlaði sér að færa sig um set og taka við króatíska landsliðinu.

„Ég er að fara í ljónagryfjuna“
Ljóst er að pressan verður mikil á Degi Sigurðssyni sem fyrsta erlenda þjálfara landsliðs Króatíu í handbolta. Dagur er maðurinn sem Króatar treysta á að færi þeim Ólympíuleika í sumar og velgengni á heimavelli á HM í janúar.

Dagur fær íslenskan reynslubolta til að hjálpa sér
Dagur Sigurðsson þarf að hafa snör handtök sem nýr landsliðsþjálfari Króatíu í handbolta því eftir hálfan mánuð ætla Króatar að tryggja sér sæti á Ólympíuleikunum í París í sumar. Hann fær íslenskan reynslubolta og gamlan lærisvein til að hjálpa sér.

Dagur kynntur til leiks: „París er draumurinn og það eina sem skiptir máli“
Dagur Sigurðsson hefur verið kynntur sem nýr þjálfari króatíska karlalandsliðsins í handbolta. Fyrsta verkefni hans er að koma Króatíu á Ólympíuleikana í sumar.