

Ólympíuleikar 2024
Fréttir af Ólympíuleikunum sem fram fóru í París í Frakklandi dagana 26. júlí til 11. ágúst 2024.

Býður sig fram til Íþróttamannanefndar IOC fyrstur Íslendinga
Sundamaðurinn Anton Sveinn McKee verður fyrsti íslenski afreksíþróttamaðurinn sem býður sig fram til Íþróttamannanefndar Alþjóðaólympíunefndarinnar.

Send heim af Ólympíuleikunum fyrir að reykja
Fyrirliði japanska fimleikalandsliðsins keppir væntanlega ekki á Ólympíuleikunum í París eins og til stóð. Hún var nefnilega gripinn við að reykja.

Má ekki ræða við leikmenn í einrúmi vegna ásakana um kynferðisofbeldi
Bruce Mwape, þjálfari kvennaliðs Sambíu í knattspyrnu, má ekki vera með leikmönnum liðsins í einrúmi á Ólympíuleikunum vegna ásakana um kynferðisofbeldi. Mwape neitar sök.

Mongólár þykja best klæddir á Ólympíuleikunum í París
Fólk er farið að telja niður í setningarhátíð Ólympíuleikanna í París sem verður eftir rétt rúma viku þegar íþróttafólkið mun sigla eftir Signu í stað þess að ganga inn á Ólympíuleikvanginn.

Enn ein stjarnan slítur krossband í hné
Þýska landsliðskonan Lena Oberdorf, miðjumaður Bayern München, missir af Ólympíuleikunum sem fram fara í París sem og meirihluta komandi tímabils eftir að slíta krossband í hné gegn Austurríki.

Ætla sér inn á Ólympíuleikana með hjálp dómstóla
Sex ósáttir íþróttamenn frá Svíþjóð munu leitar réttar síns vegna þess að þeir voru ekki valdir í Ólympíulið Svíþjóðar fyrir leikana í París.

Betri leið til að velja keppendur inn á Ólympíuleika
Ólympíuleikarnir í París hefjast eftir tvær vikur. Fimm Íslendingar taka þátt, sem er vel, þótt mörg okkar myndi eflaust gleðjast ef þau yrðu örlítið fleiri. Er það má síðan spyrja sig: Er er kerfið til að velja fólk inn á Ólympíuleikanna mögulega ekki nægilega sanngjarnt og gegnsætt?

Borgarstjóri Parísar synti í Signu: „Ekkert of hættulegt“
Parísarbúar gera nú allt til þess að sannfæra allan heiminn um það að það sé í lagi að synda í ánni Signu. París segir að takist hafi að hreinsa skítugu ána þeirra fyrir Ólympíuleikana.

Stefnir á úrslit í París: „Þjóðarstoltið er langmest á Ólympíuleikunum“
Anton Sveinn McKee er á leið á sína fjórðu Ólympíuleika þar sem hann keppir í hundrað og tvö hundruð metra bringusundi. Hann stefnir á að komast í úrslit á leikunum í París. Anton segir mikinn heiður að keppa fyrir hönd Íslands á stærsta íþróttamóti heims.

Tólf ár á milli fjórðu og fimmtu Ólympíuleika hennar
Ástralska körfuboltakonan Lauren Jackson er á leiðinni á Ólympíuleikana í París en hún var valin í tólf manna Ólympíulandslið Ástrala.

Franski ráðherrann synti í Signu tveimur vikum fyrir ÓL í París
Margir hafa áhyggjur af bakteríum og óhreinindum í ánni Signu í París en þar mun meðal annars Guðlaug Edda Hannesdóttir keppa í þríþraut á Ólympíuleikunum í París.

Var fyrst í kúluvarpi til að fá pásu frá handboltanum en er nú komin á ÓL
Mosfellingurinn Erna Sóley Gunnarsdóttir verður fyrsti kvenkyns kúluvarpari sem keppir fyrir Íslands hönd á Ólympíuleikunum en hún er á leið til Parísar seinna í þessum mánuði.

Met í miðasölu á Ólympíuleikum
Ólympíuleikarnir í París hefjast seinna í þessum mánuði en það hefur þegar verið slegið met í miðasölu á keppnisgreinar þeirra.

Guðlaug Edda og Hákon fánaberar Íslands á Signu
Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands hefur valið þau Guðlaugu Eddu Hannesdóttur og Hákon Þór Svavarsson til að vera fánaberar Íslands á setningarhátíð Ólympíuleikanna í París 2024.

Kawhi vildi spila á Ólympíuleikunum en var sendur heim
Kawhi Leonard mun ekki spila með bandaríska landsliðinu á Ólympíuleikunum þrátt fyrir að hafa jafnað sig af meiðslum og treyst sér til að fara.

Elísabet aðeins einu sæti frá Ólympíuleikunum: „Virkilega svekkjandi“
Sleggjukastarinn Elísabet Rut Rúnarsdóttir átti frábært tímabil en því miður hennar vegna þá endaði tímabilið í byrjun júlí en ekki á Ólympíuleikunum í París í ágúst.

Hans syrgir pabba sinn en fer 42 ára á ÓL
Hans Óttar Lindberg er óvænt á leiðinni á Ólympíuleikana í París, 42 ára gamall. Það skiptast á skin og skúrir hjá þessum íslenskættaða handboltamanni sem á dögunum missti pabba sinn, Tómas Erling Lindberg Hansson.

Ísland á pari við San Marínó og Mónakó en langt á eftir Kýpur
Aðeins þrjár Evrópuþjóðir koma til með að eiga færri keppendur en Ísland á Ólympíuleikunum í París í sumar. Ísland á fimm keppendur líkt og San Marínó, Mónakó og Malta.

Tuttugu fylgja fimm keppendum Íslands á Ólympíuleikana í París
Ísland mun eiga fimm keppendur á Ólympíuleikunum í París og voru þeir ásamt fylgdarliði kynnt til leiks á sérstökum fjölmiðlafundi í gær í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal.

Eftir alla erfiðleikana ætlar Edda að brosa mikið og njóta
Það er löng og erfið leið fyrir íþróttafólk að tryggja sér sæti á Ólympíuleikunum í dag og það verður alltaf erfiðara og erfiðara að komast þangað.

Giannis á leið á sína fyrstu Ólympíuleika
Grikkland, Brasilía, Spánn og Púertó Ríkó voru síðustu fjórar þjóðirnar til að tryggja sér sæti í körfuboltakeppni Ólympíuleikanna í París.

Töpuðu rétt eftir risasigurinn
Lærimeyjar Þóris Hergeirssonar í norska kvennalandsliðinu í handbolta mættu heims-og ólympíumeisturum Frakka í annað sinn á þremur dögum í kvöld, og urðu að sætta sig við tap.

Sex Ólympíufarar koma frá Palestínu
Alls taka sex Palestínumenn, þar af ein kona, þátt á Ólympíuleikunum sem fram fara í París í sumar.

„Vonbrigði“ að aðeins fari fimm frá Íslandi á Ólympíuleikana
Afreksstjóri Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands segir það vonbrigði að eins og staðan sé í dag bendi allt til þess að Íslands eigi aðeins fimm fulltrúa á Ólympíuleikunum í París í sumar. Á sama tíma sér hann hins vegar endalausa möguleika í íþróttahreyfingunni hér á landi.

„Ég var án djóks skoppandi“
„Ég var að vinna í miðasölunni á Landsmóti hestamanna þegar það var hringt í mig, klukkan 10 í morgun, og ég fékk að vita að ég væri að fara á Ólympíuleikana,“ segir himinlifandi Erna Sóley Gunnarsdóttir, kúluvarpari, eftir gleðitíðindi dagsins.

Luka og Giannis geta tekið Ólympíudrauminn frá hvorum öðrum
Luka Doncic og Giannis Antetokounmpo, tveir af bestu leikmönnum NBA-deildarinnar í körfubolta, mætast með landsliðum sínum í undanúrslitum forkeppni Ólympuleikanna þar sem tap þýðir að Ólympíudraumurinn er úti.

Erna Sóley keppir á Ólympíuleikunum í París
Erna Sóley Gunnarsdóttir, kúluvarpari, hefur fengið boð um þátttöku á Ólympíuleikunum í París í sumar en Alþjóðaólympíunefndin staðfesti svo í dag. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands núna í morgun.

Góð fyrirheit fyrir ÓL í París: Fékk úthlutað lukkunúmerinu
Guðlaug Edda Hannesdóttir verður fyrsti Íslendingurinn til að keppa í þríþraut á Ólympíuleikum og nú þegar styttist í leikana þá fékk hún góðar fréttir.

Keppinautur Antons í stóru lyfjahneyksli sem komið er á borð FBI
Bandarísk lögregluyfirvöld eru með til rannsóknar mál 23 kínverskra sundmanna, þar á meðal ólympíumeistara og heimsmethafa, sem féllu á lyfjaprófi en fengu samt að halda áfram að keppa eins og ekkert hefði í skorist.

Stelpurnar hans Þóris völtuðu yfir ólympíumeistarana
Norska kvennalandsliðið í handbolta, undir stjórn Þóris Hergeirssonar, virðist vera á réttri braut nú þegar styttist í Ólympíuleikana í París. Liðið vann stórsigur á ríkjandi ólympíumeisturum Frakka í kvöld, 34-22.