

Umfjöllun um Mjólkurbikar karla í fótbolta.
Víkingur og KR mætast í kvöld í undanúrslitum Mjólkurbikars karla í fótbolta en í boði er sæti í bikarúrslitaleiknum á móti KA.
Nú er orðið ljóst að úrslitaleikur Mjólkurbikars karla í fótbolta fer ekki fram í ágúst eins og til stóð, heldur verður hann spilaður laugardaginn 16. september, á Laugardalsvelli.
Ívar Örn Árnason leikmaður KA var himinlifandi eftir að KA tryggði sig í úrslitaleik Mjólkurbikarsins í fyrsta skipti í 19 ár. KA vann sigur á Breiðablik eftir vítaspyrnukeppni í kvöld.
KA er komið í úrslitaleik Mjólkurbikars karla eftir frækinn sigur gegn Breiðabliki á Greifavellinum á Akureyri í dag. Staðan var 2-2 eftir venjulegan leiktíma þar sem KA jafnaði með síðustu spyrnu leiksins. Liðin skoruðu svo sitt hvort markið í framlengingu áður en KA hafði betur í vítaspyrnukeppni.
KA og Breiðablik mætast í dag í fyrri undanúrslitaleiknum í Mjólkurbikar karla í fótbolta, á Greifavellinum á Akureyri.
KR er komið í undanúrslit Mjólkurbikarsins eftir sigur á Stjörnunni í kvöld í framlengdum leik. Rúnar Kristinsson, þjálfari KR, er einum leik frá úrslitaleiknum en hans lærisveinar eiga þó ærið verkefni fyrir höndum en KR mætir Víkingum á útivelli í undanúrslitum.
KR er komið í undanúrslit Mjólkurbikars karla eftir 2-1 sigur á Stjörnunni á Meistaravöllum í kvöld. Ægir Jarl Jónasson skoraði sigurmark KR undir lok fyrri hálfleiks framlengingar og skaut KR-ingum í undanúrslit bikarsins þar sem þeir mæta Víkingum í Fossvogi.
KA varð í dag þriðja liðið til að tryggja sig í undanúrslit Mjólkurbikars karla eftir 2-1 sigur á Grindavík á Akureyri. Jakob Snær Árnason skoraði sigurmark leiksins á 88. mínútu eftir að Grindvíkingar höfðu komið til baka í síðari hálfleik.
Birgir Baldvinsson, leikmaður KA, spilaði í vinstri bakvarðarstöðunni og skoraði fyrsta mark leiksins í 2-1 sigri KA á Grindavík í 8-liða úrslitum Mjólkurbikarsins á Greifavellinum á Akureyri í dag. Birgir var kampakátur strax eftir leik sér bikarúrslitin í hyllingum.
Breiðablik er komið í undanúrslit Mjólkurbikars karla í knattspyrnu eftir 3-1 sigur á FH. Staðan var jöfn þegar venjulegur leiktími var að renna sitt skeið en Blikar kláruðu dæmið í blálok leiksins.
Breiðablik vann í kvöld torsóttan 3-1 sigur á FH í 8-liða úrslitum Mjólkurbikars karla í knattspyrnu. Liðið er því komið í undanúrslit og stefnir á bikarinn. Gísli Eyjólfsson, leikmaður Blika, var sáttur með sigurinn að lokum. Gísli sat á bekknum í fyrri hálfleik en kom inná í hálfleik.
Víkingur frá Reykjavík vann 2-1 sigur á Þór Akureyri á Þórsvellinum í dag. Víkingar skoruðu mörkin snemma í sitthvorum hálfleiknum en Þórsurum tókst að jafna í fyrri hálfleik. Arnar Gunnlaugsson, þjálfari Víkings, var nokkuð brattur eftir leik og fannst gaman að koma í Þorpið.
Í fjórða skiptið í röð verða bikarmeistarar Víkings í pottinum þegar dregið verður í undanúrslit Mjólkurbikarsins eftir 2-1 sigur á Lengjudeildarliði Þórs fyrir norðan í dag. Baráttuglaðir Þórsarar gáfu toppliði Bestu deildarinnar hörkuleik en það dugði ekki til.
Dregið var í átta liða úrslitum Mjólkurbikars karla í fótbolta í hádeginu en sextán liða úrslitin kláruðust í gærkvöldi.
Knattspyrnumaðurinn Óskar Örn Hauksson, leikmaður Grindavíkur, minnti rækilega á sig í gær er hann skoraði gullfallegt mark gegn Bestu deildar liði Vals, með skoti fyrir aftan miðju.
Víkingar þurftu að hafa fyrir hlutunum gegn Lengjudeildarliði Gróttu í 16-liða úrslitum Mjólkurbikarsins í knattspyrnu í dag. Breiðablik og KA verða í pottinum þegar dregið verður í 8-liða úrslit á morgun.
Lengjudeildarlið Grindavíkur gerði sér lítið fyrir í dag og sló Val úr Mjólkurbikarnum í knattspyrnu eftir öruggan sigur á Origo-vellinum.
FH er komið í átta liða úrslit Mjólkurbikars karla eftir 2-1 sigur á Njarðvík sem leikur í Lengjudeildinni.
Þór Akureyri varð í kvöld fyrsta liðið til að tryggja sér sæti í átta liða úrslitum Mjólurbikars karla í knattspyrnu eftir 3-1 sigur gegn Leikni.
Þrír Bestu deildar-slagir verða í sextán liða úrslitum Mjólkurbikars karla í fótbolta. Dregið var í hádeginu.
HK og Grótta voru síðustu liðin til að tryggja sig áfram í 16-liða úrslit Mjólkurbikarsins í fótbolta.
Víkingur Reykjavík, Grindavík, Þór Akureyri og Fylkir tryggðu sér í dag farseðilinn í 16 liða úrslit Mjólkubikars karla í fóbolta.
Njarðvík og FH tryggðu sér í dag sæti í 16 liða úrslitum Mjólkubikars karla í fótbolta.
Öllum leikjum kvöldsins í 32-liða úrslitum Mjólkurbikars karla í knattspyrnu er nú lokið. Þróttur Reykjavík lagði Fram í Úlfarsárdal, Valur „marði“ neðri deildarlið RB, Stjarnan og Keflavík fóru áfram eftir framlengda leiki.
Breiðablik, KR og KA fóru nokkuð örugglega áfram í 16-liða úrslit Mjólkurbikars karla í knattspyrnu. Þá vann Leiknir Reykjavík dramatískan sigur.
Óskar Hrafn Þorvaldsson hefur farið heldur óvenjulega leið til að koma í veg fyrir að hægt verði að leka byrjunarliði Breiðabliks í Fjölni fyrir bikarleik liðanna. Hann birti það einfaldlega á Twitter-síðu sinni.
Dregið var í 32-liða úrslit Mjólkurbikars karla í fótbolta í höfuðstöðvum KSÍ í hádeginu í dag. Einn Bestu deildarslagur er á dagskrá.
Það hefur verið nóg að gera í Mjólkurbikar karla í fótbolta í dag en 13 leikir fóru fram í 64 liða úrslitum bikarsins í dag.
Grindavík, Þróttur, Þór, Kári, Grótta og KFA tryggðu sér öll sæti í þriðju umferð Mjólkurbikarsins eftir sigra í dag.
Ekkert verður af fyrsta heimaleikjabanninu í sögu íslensks fótbolta, sem Víkingur Reykjavík átti að sæta, því áfrýjunardómstóll KSÍ hefur fellt úrskurð þess efnis úr gildi.