Kynslóð ungskálda Ljósmyndasýningin ,,Skrásetning kynslóðar“ verður opnuð í Borgarbókasafninu í Grófarhúsi á morgun kl. 17. Þar sýnir Björn M. Sigurjónsson portrett af ungum íslenskum rithöfundum og listamönnum. Menning 14. desember 2006 13:15
Hlið hugleiðslunnar Andakt tónlistar er flestum kunn, hljómarnir í kórnum, söngur í kirkjunni. Vaxandi geiri í vestrænni tónlist dregur dám af helgi tónlistar í ýmsum öðrum trúarbrögðum og hvarflar síðan aftur í forna kirkjulega tónlist Evrópu. Tónlist 14. desember 2006 13:00
Gunnar sækir á nýjar lendur Það stefnir í nýjan flutning á Brynjólfsmessu Gunnars Þórðarsonar á mánudagskvöld í Grafarvogskirkju. Diskur með verkinu er kominn út á kostnað höfundar og á jóladag verður ríkissjónvarpið með verkið á dagskrá. Brynjólfsmessan er stórt verk. Það er helgað minni Brynjólfs biskups og er önnur tilraun Gunnars til að takast á við stór form tónverka. Tónlist 14. desember 2006 12:30
Gjöf til barnanna í landinu Úrval verka Vilborgar Dagbjartsdóttur kemur út hjá forlaginu JPV með yfirskriftinni Fugl og fiskur. Í bókinni eru ljóð og sögur Vilborgar handa börnum sem komið hafa út á árabilinu 1955-2005, fallega myndskreytt af listakonunni Önnu Cynthiu Leplar. Menning 14. desember 2006 12:00
Fyrsta platan í 33 ár Hljómsveitin fornfræga, The Stooges, ætlar að gefa út sína fyrstu plötu í 33 ár, þann 20. mars á næsta ári. Mun hún fylgja henni eftir með tónleikaferð um heiminn. Tónlist 14. desember 2006 11:45
Framtíðinni breytt Denzel Washington leikur alríkislögreglumann sem fær undarlegt tækifæri til þess að breyta framtíðinni, í Deja Vu, nýjustu spennumynd leikstjórans Tony Scott. Bíó og sjónvarp 14. desember 2006 11:45
Flugeldasýning frá Guðbergi Árið 2006 ætlar að verða bókmenntaárið mikla. Það er sé til þess litið að útdeilendur Gullmiðans gátu fundið fimm ný skáldverk sem þeir vilja meina að sé betri en 1 ½ bók – Hryllileg saga eftir Guðberg Bergsson. Því hér er um flugeldasýningu að ræða. Guðbergur verður bara betri með árunum. Menning 14. desember 2006 11:15
Fjalakötturinn endurreistur Kvikmyndaklúbburinn Fjalakötturinn rís úr öskustónni fljótlega eftir áramót ef allt gengur að óskum. Kvikmyndaunnendur þurfa því ekki lengur að bíða langeygir eftir næstu kvikmyndahátíð til að berja augum þær myndir sem liggja utan ráðandi strauma. Bíó og sjónvarp 14. desember 2006 10:45
Eragon berst gegn hinu illa á drekabaki Ævintýramyndin Eragon verður frumsýnd á heimsvísu á föstudaginn og þar með lýkur langri bið aðdáenda bóka Christopher Paolini eftir því að sjá hetjuna Eragon og drekann Saphiru lifna við á hvíta tjaldinu. Bíó og sjónvarp 14. desember 2006 10:30
Vill gera framhald Gamanleikarinn Ben Stiller undirbýr nú framhald myndarinnar Zoolander ásamt góðvini sínum, Owen Wilson. Fyrri myndin, sem þeir félagar léku saman í, naut mikilla vinsælda. Fjallaði hún um karlfyrirsætur og ævintýri þeirra. Meðal leikara voru Will Ferrell, Milla Jovovich, Christine Taylor og Jerry Stiller. Bíó og sjónvarp 14. desember 2006 10:15
Kraftur í doktornum Hljómsveitin Dr. Spock verður ekki sökuð um að hafa slegið slöku við á tónleikum sínum í Kaupmannahöfn á föstudag. Krafturinn sem býr í bandinu flæddi óbeislaður út úr hátölurunum og dundi á eyrum tónleikagesta. Tónlist 14. desember 2006 10:00
Búlgarska sinfóníuhljómsveitin í íslenskri bíómynd „Ég er ennþá að, fer í nótt og er umvafinn nótnapappír í hljóðverinu," segir Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson sem er í óða önn að leggja lokhönd á tónverk sitt fyrir kvikmyndina Astrópíu. Sinfóníuhljómsveit Búlgaríu mun leika undir í myndinni. Bíó og sjónvarp 14. desember 2006 09:30
Unnið gegn jólastressinu Það verður rólegheitastemning í Hafnarfjarðarkirkju í kvöld en þar verður boðið upp á ókeypis tónleika í jólaamstrinu. Tónleikarnir bera yfirskriftina „Jólasöngvar“ en skipuleggjandi þeirra, Antonía Hevesi, hefur staðið að sambærilegum jólatónleikum fyrir jólin síðan hún hóf störf sem organisti við kirkjuna. Antonía hættir sem organisti um áramótin og eru þetta því síðustu „Jólasöngvar“ hennar að sinni. Tónlist 13. desember 2006 18:00
Trúin á spurningarmerkið Ljóðið skín í skammdeginu á Fróni og nú sendir Einar Már frá sér bók sem gefur fyrri bókum hans ekkert eftir, ljóðum jafnt sem prósa. Fantagóð semsé. Djarfur, hvass, fyndinn og ögrandi - jafnt í orði sem erindi. Síbryðjandi vísdómsjaxl með djúpa rót í kvikunni. Menning 13. desember 2006 17:30
Tónlistarmenn sækja fram Forystusveit íslenskra tónlistarmanna kallar eftir hugmyndum um heiti á hátíðisdegi sem helgaður verði íslenskri tónlist. Þeir vilja hefja til vegs íslenskt tónlistarsumar og nýta þessi tímamörk til frekari sóknar íslenskra tónlistarmanna heima og erlendis. Tónlist 13. desember 2006 17:15
Tónleikaferð lokið Hljómsveitin U2 lauk nýverið Vertigo-tónleikaferðalagi sínu um heiminn með vel heppnuðum tónleikum á Hawaii. Sérstakir gestir sveitarinnar voru Billy Joe Armstrong úr Green Day og rokksveitin Pearl Jam. Tónlist 13. desember 2006 17:00
Söngvar Ragnheiðar og Hauks Ragnheiður Gröndal er raddfögur kona. Hún hefur á síðustu misserum átt nokkra merkilega ópusa á diskum, raunar báða eftir Megas. Nú hefur hún sent frá sér metnaðarfullt verk sem kenna ætti við þau systkinin, hana og Hauk, sem syngur ekki síður í þessu safni þjóðlaga en hún, á klarinett og bassetthorn. 12 tónar gefa safnið nýja út. Þar útsetja systkinin með Huga Guðmundssyni tónskáldi þekkt íslensk lög. Tónlist 13. desember 2006 16:45
Skammtur af Degi Hljómdiskurinn Dauðaskammtur sem er samstarfsverkefni tónlistarmannsins Þórs Eldon og ljóðskáldsins Dags Sigurðarsonar hefur nú verið endurútgefinn hjá forlaginu Smekkleysu. Dauðaskammtur kom upprunalega út á vordögum undir heitinu Túnglskinsmjólk en það upplag seldist upp á skömmum tíma. Tónlist 13. desember 2006 16:30
Seinustu á árinu Hljómsveitin Ghost-igital, sem var nýverið tilefnd til þrennra íslenskra tónlistarverðlauna, heldur tónleika á Sirkus á miðvikudag. Tónlist 13. desember 2006 16:15
Rokkplata ársins? Ég verð að viðurkenna að ég hafði lítið heyrt í Gavin Portland þegar ég setti þessa plötu í spilarann. Og ég veit ekki mikið um þessa sveit annað en að hún er skipuð meðlimum úr harðkjarnasveitunum Fighting Shit og Brothers Majere og að þetta er ein af hljómsveitunum hans Þóris, My Summer As A Salvation Soldier. Tónlist 13. desember 2006 16:00
Raggi Bjarna á jólaplötu Brooklyn Fæv Fyrsta plata hljómsveitarinnar Brooklyn Fæv, Góð jól, er komin út. Á plötunni eru þekktir jólasmellir sem Brooklyn Fæv gera að sínum með rödduðum söng án undirleiks. Íslenskir textar hafa verið gerðir við nokkur af eldri lögunum og á Bragi Valdimar Skúlason heiðurinn af þeim. Tónlist 13. desember 2006 15:45
Plata Dylans valin best Fyrsta plata Bob Dylan í fimm ár, Modern Times, er besta plata ársins að mati tónlistartímaritsins Rolling Stone. Tónlist 13. desember 2006 15:30
Miðasalan hafin Miðasala á tónleika bandarísku rokksveitarinnar Incubus í Laugardalshöll 3. mars er hafin. Incub-us heldur á næsta ári í tónleikaferð um Norður-Ameríku, Evrópu og Asíu til að fylgja eftir plötunni Light Grenades. Tónlist 13. desember 2006 15:00
Megas í meðförum Söngkonan Magga Stína og hennar liðtæka hljómsveit halda tvenna tónleika á næstunni, annað kvöld verða listir leiknar á kaffihúsinu Græna hattinum á Akureyri og á föstudagskvöld troða hljómlistarmennirnir upp á Domo bar við Þingholtsstræti í Reykjavík. Tónlist 13. desember 2006 14:45
Þakka fyrir að vera á lífi Tökur eru nú hafnar á Duggholufólkinu fyrir vestan. Ari Kristinsson er leikstjóri myndarinnar sem hann segir vera jólamynd í ítrasta skilningi. „Þetta er barna- og fjölskyldumynd sem við ætlum okkur að frumsýna um næstu jól.“ Bíó og sjónvarp 13. desember 2006 13:00
Heimsþekktir gestir úr austri Kammerkór Tretjakov-listasafnsins í Moskvu heldur tónleika í Dómkirkjunni í Reykjavík næstkomandi föstudag og flytur þar rússneska kirkju- og jólatónlist. Tónlist 13. desember 2006 13:00
Günter Grass rétt sáttarhönd Rithöfundurinn og Nóbelsverðlaunahafinn Günter Grass opnaði nýverið myndlistarsýningu í Slésíska safninu (Schlesisches Museum) í Görlitz í Þýskalandi. Menning 13. desember 2006 12:45
Gibson á toppinn Kvikmyndin Apocalypto í leikstjórn Mel Gibson fór beint á toppinn á bandaríska aðsóknarlistanum eftir fyrstu frumsýningarhelgina. Myndin fjallar um Maya-indíána í Mið-Ameríku og er töluð á mállýsku þeirra. Bíó og sjónvarp 13. desember 2006 12:30
Finnst gaman að leika sér Hjónin Arngrímur Marteinsson og Ingibjörg Sveinsdóttir hafa í nógu að snúast um þessar mundir. Það er þó ekki hefbundið jólastress sem herjar á hjúin, því þau ferðast um borgina endilanga til að halda tónleika – bæði með hljómsveitinni Vinabandinu og sem dúettinn Hjónabandið. Tónlist 13. desember 2006 11:45