Suðurland fær meðbyr „Maður getur aldrei sagt af eða á í svona málum, væri bjánalegt að staðfesta eitt eða annað enda er það með þennan bransa eins og með svo margt annað að hlutirnir breytast ansi hratt," segir leikarinn Stefán Karl Stefánsson. Bíó og sjónvarp 15. desember 2006 15:30
Sprengingar og sverðaglamur í ársbyrjun Jack Bauer heldur áfram að bjarga heiminum og menn berast enn á banaspjótum í Róm í nýjum þáttaröðum 24 og Rome sem hefja göngu sína í Bandaríkjunum í upphafi árs. Þættirnir munu skila sér hratt og örugglega til Íslands þannig að aðdáendur þeirra geta farið að hlakka til. Bíó og sjónvarp 15. desember 2006 14:45
Samtal við listasöguna Sýningin Frelsun litarins verður opnuð í Listasafni Íslands í dag. Um er að ræða tímamótasýningu á verkum frönsku expressjónistanna, eða fauvistanna, og geta gestir nú í fyrsta sinn barið augum verk málara á borð við Renoir og Matisse hér á landi. Menning 15. desember 2006 14:15
Stelpurnar, Strákarnir og Svínasúpan fá gulldisk Nýútkomnir DVD-diskar með grínþáttunum Stelpunum, Strákunum og Svínasúpunni hafa náð þeim áfanga að hafa selst í yfir 5 þúsund eintökum. Af því tilefni verður leikurum og aðstandendum þessara skemmtilegu grínþátta, sem sýndir voru á Stöð 2, afhentir gulldiskar á morgun laugardag. Einnig fær Mæðrastyrksnefnd afhendar gjafir. Bíó og sjónvarp 15. desember 2006 14:13
Ræna Donald Trump Á næsta ári verður tekin upp ný kvikmynd sem skartar engum öðrum en þeim Eddie Murphy og Chris Rock í aðalhlutverki. Rock og Murphy munu leika húsverði í Trump Tower sem leggja á ráðin um að ræna húsráðandann sjálfan, Donald Trump. Bíó og sjónvarp 15. desember 2006 14:00
Peter Boyle látinn Leikarinn Peter Boyle, sem er þekktastur í seinni tíð fyrir að leika pabbann Frank Barone í gamanþættinum Everybody Loves Raymond, er látinn, 71 árs að aldri. Bíó og sjónvarp 15. desember 2006 13:45
Lay Low á Akureyri Laugardagskvöldið 16. desember verða haldnir tónleikar á Græna Hattinum á Akureyri, þar sem fram kemur hin margrómaða tónlistarkona Lay Low og heimamaðurinn Ívar Bjarklind ásamt hljómsveit. Tónlist 15. desember 2006 13:35
Lítið um tilraunamennsku Stórir tónleikapakkar og veglegar endurútgáfur eru mest áberandi þegar tónlistarmynddiskar ársins 2006 eru skoðaðir. Trausti Júlíusson tékkaði á nokkrum af mest seldu diskum ársins. Tónlist 15. desember 2006 13:00
Jólalegur kokteill Nemendur Kramhússins efna til Jólagleði í Borgarleikhúsinu á morgun og sýna margslungnar listir sínar. Leyndir hæfileikar fá þar að njóta sín og munu stíga á svið hversdagsstjörnur úr hinum íslenska veruleika. Menning 15. desember 2006 12:30
Hátíðlegir jólatónar í Hafnarfirði Kór Flensborgarskólans heldur hátíðartónleika sína í hinum nýja og glæsilega sal Flensborgarskólans, Hamarssal á morgun kl. 16. Sérstakir gestir tónleikanna verða söngvarinn Páll Óskar og hörpuleikarinn Monika Abendroth. Stjórnandi er Hrafnhildur Blomsterberg. Tónlist 15. desember 2006 12:15
Algjört prump Rockstar Supernova ættu allir landsmenn að þekkja en hérna er á ferðinni hljómsveitin úr raunveruleikaþáttunum vinsælu. Það var Lukas Rossi sem fór með sigur af hólmi og þurfti hann Magni okkar að bíta í súrt. Tónlist 15. desember 2006 12:00
Enginn dregur stein í efa Þjóðskáld á tímamótum, degi hallar. Skáld sem fylgt hefur ljóðvinum á heillandi ferðalagi hálfrar aldar um innland íslenskrar náttúru og sögu - þar sem stórhuga maðurinn leitar átta í skjálfandi smæð (29). Menning 15. desember 2006 11:15
Dúkkurnar voru strippklúbbur fræga fólksins Hvað eiga Charlize Theron, Cameron Diaz og Drew Barrymore sameiginlegt? Fyrir utan að vera leikkonur í Hollywood hafa þær allar dansað og sungið með stúlknahljómsveitinni Pussycat Dolls. Tónlist 15. desember 2006 11:00
Dj Jerry spilar Plötusnúðurinn Dj Jerry þeytir skífum í jólapartíi á Barnum á laugardag. Dj Jerry er hluti af Kits-uné-útgáfunni sem sérhæfir sig í elektró- og danstónlist. Hann er fastaplötusnúður á Kitsuné-kvöldunum í París auk þess sem hann spilar á Boom Box-kvöldunum í London. Upphitun verður í höndum Dj Casanova og byrjar stuðið upp úr 23.00. Aðgangseyrir er enginn. Tónlist 15. desember 2006 10:30
Babel fékk flestar tilnefningar Tilnefningar til Golden Globe-verðlaunanna voru tilkynntar í gær. Fjölþjóðlega kvikmyndin Babel, sem skartar leikurunum Brad Pitt og Cate Blanchett, fékk flestar tilnefningar, alls sjö talsins. Bíó og sjónvarp 15. desember 2006 09:30
Árslistarnir að tínast til Menningarsíðan Metacritic hefur tekið saman helstu árslista tónlistartímarita og vefmiðla yfir bestu plötur ársins 2006. Frumraun ensku strákanna í Arctic Monkeys er þar áberandi, en hún hlaut Mercury-verðlaunin sem besta plata ársins í september. Tónlist 15. desember 2006 09:00
Árlegir tónleikar Tónleikar til styrktar Styrktarfélagi krabbameinssjúkra barna fara fram í Háskólabíói í áttunda skiptið 28. desember næstkomandi. Rjómi íslenskra tónlistarmanna leggur málefninu lið á ári hverju, en skipulagning hefur frá upphafi verið í höndum umboðsmanns Íslands, Einars Bárðarsonar. Allir tónlistarmenn og aðrir sem að tónleikunum koma gefa vinnu sína, en Háskólabíó leggur til húsnæðið. Tónlist 15. desember 2006 08:30
Á stærstu tónlistarráðstefnu heims Lay Low spilar í Cannes í Frakklandi á Midem 2007 sem er stærsta tónlistarráðstefnu heims. Var henni boðið að spila á um 1.000 manna tónleikum fyrir fagfólk úr tónlistargeiranum. Tónlist 14. desember 2006 17:30
Uppsprengt verð á minningartónleika Díönu Góðgerðartónleikar til minningar um Díönu prinsessu eru þegar orðnir að fórnarlambi svartamarkaðsbraskara sem nú selja miða á uppsprengdu verði. Tónlist 14. desember 2006 17:30
Undurfögur og heillandi Skúli Sverrison er kannski ekki þekktasti tónlistarmaður þjóðarinnar en hann er svo sannarlega með þeim farsælustu. Samstarf við bæði Blonde Redhead og Laurie Anderson sanna það. Sería er fyrsta sólóbreiðskífa Skúla sem er gefin út hérlendis en hana er ákaflega erfitt að tengja við einhverja ákveðna tónlistarstefnu. Mætti þó kannski lýsa sem tregafullu avant-garde poppi. Tónlist 14. desember 2006 17:15
Syngur í hálfleik Tónlistarmaðurinn Prince mun koma fram í leikhléi á Super Bowl-úrslitaleiknum í bandarísku ruðningsdeildinni í Miami þann 4. febrúar. Prince hefur verið önnum kafinn að undanförnu við að troða upp í klúbbnum sínum 3121 í Rio í Las Vegas. Tónlist 14. desember 2006 16:45
Tóku upp Heroin Tveir meðlimir Weezer hafa tekið upp lagið Heroin eftir The Velvet Underground fyrir kvikmyndina Factory Girl. Um er að ræða gítarleikarann Brian Bell og trommarann Patrick Wilson. Tónlist 14. desember 2006 16:45
Sungið á aðventu Kammerkórinn Vox academica fagnaði tíu ára afmæli sínu í haust sem leið og af því tilefni verða árlegir aðventutónleikar kórsins með sérstökum hátíðablæ. Á tónleikum annað kvöld mun kórinn flytja verkin Magnificat eftir Johann Sebastian Bach og Messías eftir George Friedrich Händel. Tónlist 14. desember 2006 16:30
Stærsta hljóðver á Íslandi Önundur Hafsteinn Pálsson vinnur að því að opna hljóðver í yfirgefnu lýsishúsi á snjóflóðasvæðinu á Flateyri. Tónlist 14. desember 2006 16:15
Útgáfu fagnað á Domo Saxófónleikarinn Jóel Pálsson heldur útgáfutónleika á Domo- bar í kvöld ásamt hljómsveit og fagnar þar útgáfu disksins Varps. Eru tónleikanir hluti af tónleikaröð jazzklúbbsins Múlans sem nú hefur hreiðrað um sig á þessum öndvegis tónleikastað. Tónlist 14. desember 2006 16:00
Sorglegasta lagið Samkvæm,t nýrri rannsókn er lag hljómsveitarinnar The Verve, The Drugs Don"t Work, líklegast til að kalla fram tár hjá fólki. Tónlist 14. desember 2006 16:00
Rappkóngar Íslands Forgotten Lores er búin að vera í fremstu röð í íslenska rappinu síðustu ár. Fyrsta platan þeirra, Týndi hlekkurinn, sem kom út fyrir þremur árum, er ein af bestu íslensku rappplötunum. Síðan hún kom út hefur sveitin vakið verðskuldaða athygli fyrir öfluga frammistöðu á sviði, m.a. á Airwaves, en á tónleikum koma þeir fram með fullmannaða hljómsveit (FL Group). Tónlist 14. desember 2006 14:30
Ólíkindatólin í akademíunni Þó að enn séu tæpir tveir mánuðir þar til tilkynnt verður hverjir eru tilnefndir til Óskarsverðlaunanna eru fjölmiðlungar þegar farnir að spá í spilin fyrir stóra daginn. Bíó og sjónvarp 14. desember 2006 14:15
Óborganlegir textar Grallararnir í Baggalúti hafa í gegnum árin gefið út eitt jólalag fyrir hver jól á heimasíðu sinni við miklar vinsældir. Þar hafa þeir gert óborganlega íslenska jólatexta við þekkt erlend lög. Tónlist 14. desember 2006 14:00
Úrkynjuð aðventa Tónleikar, bókmenntavaka og almenn aðventugleði verður á ölkránni Grand rokk kl. 21 í kvöld en þar leiða saman hross sín máttug öfl úr íslensku menningarlífi og keyra saman kollum svo úr verður enn einn mikill og mikilfenglegur listfengur áreksturinn. Fram koma hljómsveitirnar Reykjavík! og Skakkamanage ásamt Pétri Ben, Mr. Sillu & Mongoose og mögulega FM Belfast. Tónlist 14. desember 2006 13:30