Nafn komið á nýja plötu Næsta plata bresku hljómsveitarinnar Kaiser Chiefs mun heita Yours Truly, Angry Mob og er hún væntanleg 26. febrúar. Tónlist 12. janúar 2007 09:30
Orð eins árs Haldið verður upp á eins árs afmæli hip hop-þáttarins Orð á Barnum í kvöld. Fyrsti árslisti þáttarins, sem er á dagskrá Flass 104,5, var fluttur í síðasta þætti og samanstóð hann af 25 bestu plötum ársins 2006 og 34 bestu lögunum. Tónlist 12. janúar 2007 09:15
Steinunn í Florida Steinunn Þórarinsdóttir á verk á listaverkamessunni í Palm Beach 3 Contemporary Art Fair í Flórida.Það eru um níutíu gallerí sem þar sýna og er Samuel Osborne galleríið í Mayfair sem höndalr alla jafna með verk Steinunnar sem sýnir þar syðra. Menning 12. janúar 2007 08:15
Söngleikjafár á fjölunum á næstunni Fimm íslenskir söngleikir eru væntanlegir á fjalirnar í vor og haust og má því með sanni segja að söngleikjafár ríði nú yfir landið. Tónlist 12. janúar 2007 08:00
Tónleikum frestað Tónleikum sænsku hljómsveitarinnar Peter, Bjorn & John, sem áttu að fara fram hér á landi 27. janúar, hefur verið frestað til 31. mars vegna óviðráðanlegra orsaka. Tónlist 12. janúar 2007 07:45
Tvö lög frumflutt Hljómsveitin Manic Street Preachers frumflutti nýverið tvö lög á tónleikum í Manchester. Sveitin hefur ekkert starfað síðan þeir James Dean Bradfield og Nicky Wire hófu sólóferil en ætlar nú að reyna fyrir sér á nýjan leik eftir tveggja ára hlé. Platan Send Away the Tigers er væntanleg í vor og lofa þeir félagar góðri endurkomu þar sem ferskleikinn verður í fyrirrúmi. Tónlist 12. janúar 2007 07:30
Ætlar ekki að gefast upp Tónlistarmaðurinn og annar af meirihlutaeigendum húsnæðis Tónlistarþróunarmiðstöðvarinnar, Danny Pollock, játar að allt líti út fyrir að efnaðir menn ætli sér að kaupa húsnæðið, eins og kom fram í Fréttablaðinu í gær. Tónlist 12. janúar 2007 06:45
Ítölsk-íslensk veisla í kvöld Ítölsk-íslensk raftónlistarveisla verður haldin í Stúdentakjallaranum í kvöld. Fram koma Evil Madness, Fabrizio Modonese Palumbo og Paul Beauchamp. Tónlist 12. janúar 2007 04:00
Garðar Thór bjartasta vonin í Bretlandi Breska tímaritið Classic FM Magazine gerir ferli stórsöngvarans Garðars Thórs Cortes góð skil í febrúarhefti sínu og segir hann vera björtustu vonina í óperuheiminum um þessar mundir, eða „Hot Property“. Tónlist 12. janúar 2007 02:30
Byggingalist í ráðhúsinu Það er ekki á hverjum degi sem almenningi gefst kostur á að sjá sæmilegt yfirlit um íslenska byggingarlist en nú gefst slíkt tækifæri: Sýning um byggingarlist á Íslandi á síðustu árum verður uppi í Tjarnarsal, Ráðhússins í Reykjavík frá föstudeginum 12. til 28. janúar. Menning 12. janúar 2007 02:00
Aldrei of seint fyrir Noruh Bandaríska tónlistarkonan Norah Jones gefur út sína þriðju sólóplötu 29. janúar næstkomandi. Platan nefnist Not Too Late og hefur að geyma þrettán glæný lög. Tónlist 12. janúar 2007 00:30
Wilson Muuga: samkomulag kynnt í hádeginu Samkomulag á milli íslenska ríkisins og eigenda Wilson Muuga um aðgerðir til að fjarlægja flak Wilson Muuga úr Hvalsnessfjöru verður kynnt við strandstað í hádeginu í dag. Wilson Muuga, sem setið hefur fastur í fjöruborðinu síðan 19. desember, verður sen ... Bíó og sjónvarp 12. janúar 2007 00:01
Regnskogahasar Það er heldur betur sláttur á Mel Gibson í Apocalypto sem á ýmislegt sameiginlegt með fyrri leikstjórnarverkefnum hans, Braveheart og The Passion of the Christ. Helsti snertiflöturinn er grafískt ofbeldið sem hann veltir sér upp úr af miklum áhuga og list. Gagnrýni 12. janúar 2007 00:01
Vinsælustu lög Ladda Tvöföld safnplata með Ladda, Hver er sinnar kæfu smiður, kemur út á mánudag. Á plötunum tveimur er að finna öll vinsælustu lögin í flutningi Ladda og spanna þau langan feril hans. Tónlist 11. janúar 2007 17:00
Unnur Birna leikur í bíómynd Unnur Birna Vilhjálmsdóttir, fyrrum alheimsfegurðardrottning, hefur tekið að sér hlutverk í kvikmyndinni Stóra planið í leikstjórn Ólafs Jóhnnessonar en tökur á henni hefjast í apríl á þessu ári. Þetta er fyrsta kvikmyndahlutverk Unnar Birnu en móðir hennar, Unnur Steinsson, lék eins og frægt er orðið í sjónvarpsmyndinni „Þegar það gerist“ eftir Hrafn Gunnlaugsson. Bíó og sjónvarp 11. janúar 2007 16:00
Sólarljóð í myndum Listmálarinn, blaðamaðurinn, ritstjórinn og ferðabókahöfundurinn Gísli Sigurðsson hefur gefið Garðabæ, þar sem hann býr, myndröð eftir sjálfan sig sem gerð er eftir Sólarljóðum. Menning 11. janúar 2007 14:30
Syngja meðan heilsan leyfir Hin níutíu og sex ára gamla Ólöf Sigurrós Ólafsdóttir, kölluð Sigurrós, lætur háan aldur ekki aftra sér og mætir reglulega á hálfsmánaðarlegar söngvökur hjá Félagi eldri borgara ásamt Bergdísi Kristjánsdóttur, heimsóknavini Sigurrósar frá Rauða krossinum. Tónlist 11. janúar 2007 14:30
Skuggahliðar Los Angeles Bandaríski glæpasagnahöfundurinn James Ellroy hefur haldið merkjum gömlu meistara harðsoðnu hefðarinnar á lofti með glæsibrag í verkum sínum þar sem drungalegur „film noir“ andi svífur yfir vötnum. Bíó og sjónvarp 11. janúar 2007 14:00
Fyrsta ást Hilmis Snæs Leikritið Dagur Vonar, var fyrsta ást Hilmis Snæs Guðnasonar í leikhúsinu. Hann sá verkið fyrir 20 árum í Iðnó og ákvað eftir þá upplifun að gerast leikari. Hilmir leikstýrir þessu verki í kvöld í Borgarleikhúsinu. Viðtalið verður birt í heild sinni í Íslandi í dag á Stöð2 í kvöld. Bíó og sjónvarp 11. janúar 2007 13:55
Síðustu sýningar Örfáar sýningar eru eftir af söngleiknum Footloose sem sýndur er í Borgarleikhúsinu. Verkið byggist á dansmyndinni Footloose eftir Dean Pithcford sem kom út árið 1984. Bíó og sjónvarp 11. janúar 2007 13:30
Scorsese tilnefndur Martin Scorsese hefur hlotið sína sjöundu tilnefningu til leikstjóraverðlaunanna Directors Guild of America, fyrir mynd sína The Departed. Bíó og sjónvarp 11. janúar 2007 12:45
Regnskógarpíslir Gibsons Stórmyndin Apocalypto eftir Mel Gibson verður frumsýnd á Íslandi í dag. Hér hverfur hann aftur um 500 ár eða svo og segir blóði drifna sögu um ástir og örlög þegar hillir undir lok hinnar fornu menningar Maja. Gibson tók Apocalypto upp í regnskógum Mexíkó og gaf sig, eins og áður, allan í verkið. Bíó og sjónvarp 11. janúar 2007 12:30
Færeysk list í Hafnarborg Á sýningunni „Einsýna List“ eru verk eftir sex færeyska listamenn og verður hún opnuð í Hafnarborg kl. 17 í dag. Einn þeirra, Astri Luihn, segir að þjóðirnar tvær geti lært margt hver af annarri. Menning 11. janúar 2007 11:45
Fékk stjörnuglampa í augun Jörundur Ragnarsson hefur verið ráðinn í stórt hlutverk í sjónvarpsþáttunum Næturvaktin við hlið Jóns Gnarr og Pétur Jóhans Sigfússonar en þættirnir gerast á bensínstöð í Reykjavík þar sem Jón og Pétur ráða ríkjum. Bíó og sjónvarp 11. janúar 2007 11:30
Endurlit og framsýni Leikfélag Reykjavíkur fagnar 110 ára afmæli sínu í dag en það er eitt elsta starfandi menningarfélag landsins. Leikfélagið starfaði óslitið í Iðnó við Vonarstræti þar til árið 1989 er öll starfsemi félagsins fluttist í Borgarleikhúsið sem Reykjavíkurborg byggði í samvinnu við félagið sem nú annast rekstur þess. Tilgangur félagsins var og er að vekja áhuga á góðri leiklist og sýna sjónleiki í Reykjavík. Bíó og sjónvarp 11. janúar 2007 11:15
Blekkingar Nolans Leikstjórinn Christopher Nolan er með áhugaverðari leikstjórum sem starfar í Hollywood um þessar mundir og þó hann sé aðeins 37 ára gamall hefur hann fest sig rækilega í sessi með myndunum Memento, Insomnia og ekki síst Batman Begins þar sem hann færði leikaranna Christian Bale í búning Leðurblökumannsins og blés nýju lífi í þessa fornfrægu myndasöguhetju. Bíó og sjónvarp 11. janúar 2007 10:00
Bítlatexti á uppboð Handskrifaður texti við Bítlalagið While My Guitar Gently Weeps verður seldur á uppboði í Bandaríkjunum næstkomandi mánudag. Tónlist 11. janúar 2007 09:00
Von á góðu Ian McEwan er með nýja skáldsögu í undirbúningi sem kemur út í Bretlandi á vormánuðum; On Chesle Beach. Laugardagur hans kom út í frábærri þýðingu Árna Óskarssonar fyrir hátíðir og hefur víðast hvar fengið góða dóma. Nýja skáldsaga McEwan gerist árið 1962 og lýsir sambandi hjóna. Menning 10. janúar 2007 16:30
Morrissey keppir í Eurovision Fulltrúi Englendinga í Evrópsku söngvakeppninni í maí gæti orðið af ólíklegra taginu. Allt útlit er fyrir að það verði Morrissey, sem keppi fyrir Englands hönd í Eurovision. Morrissey, sm er 47 ára, er best þekktur sem aðalsöngvari The Smiths, hinna myrku meistara breska indie-rokksins á níunda áratugnum. Sólóferill Morrisseys hefur frekar verið á uppleið að undanförnu. BBC, breska ríkisútvarpið, sem sér um að velja þátttakendur Englands í söngvakeppninni, hefur staðfest að það sé í viðræðum við Morrissey um að hann semji of flytji lag Englands í keppninni, sem verður haldin í Helsinki í Finnlandi í maí í vor. Tónlist 10. janúar 2007 15:40
10.000 mellur dönsuðu fyrir Gere Ef einhver hefði sagt þér að Richard Gere ætti eftir að standa upp á sviði og belja slagorð meðan tíuþúsund vændiskonur dönsuðu fyrir framan hann, hefði þér verið vorkunn þótt þú hefðir ekki trúað því. Það er þó nákvæmlega það sem gerðist í Mumbai, á Indlandi, í dag. Lífið 10. janúar 2007 15:21