

Lögreglumál
Fréttir af verkefnum lögreglunnar á Íslandi.

Maðurinn sem myrti Freyju áður verið dæmdur fyrir morð
Karlmaðurinn sem játað hefur að hafa myrt Freyju Egilsdóttur í Malling á Jótlandi hefur áður verið dæmdur fyrir morð. Árið 1996 hlaut hann dóm fyrir morðið á annarri barnsmóður sinni, en sonur þeirra var þá tveggja ára gamall.

„Hún var vinsæl og vinamörg, við erum í algjöru áfalli“
Vinir Freyju Egilsdóttur sem fannst látin á heimili sínu í nótt segja mikla sorg ríkja í Malling þar sem hún bjó. Þeir tóku þátt í leit að henni í gær, ásamt fjölmennu lögregluliði. Kerti og blóm hafa streymt að heimili hennar í dag.

Garðkönnu kastað í rúðu á heimili varaborgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins í nótt
Skemmdarverk voru unnin á heimili Ólafs Kr. Guðmundssonar, varaborgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, í nótt. Þetta staðfesti hann í samtali við Vísi en vildi ekki tjá sig frekar um málið.

Líkama látna líklega velt yfir handriðið og kastað
Við rannsókn á dauða manns sem lést eftir fall af svölum fjölbýlishúss í Grafarholti 8. desember 2019, komust sérfræðingar að þeirri niðurstöðu að „utanaðkomandi“ kraftur hefði orðið til þess að maðurinn fór fram af.

Hélt grunuðum þjófi þar til lögregla kom
Um klukkan hálffjögur í nótt var óskað eftir aðstoð lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu þar sem þjófi var haldið í Hafnarfirði.

Fyrrverandi lögreglumaður grunaður um skotárásina á bíl borgarstjóra
Maðurinn sem nú er í gæsluvarðhaldi grunaður um að hafa skotið úr byssu á bíl Dags B. Eggertssonar er fyrrverandi lögreglumaður.

Vara við svikaskilaboðum sem virðast koma frá Skattinum
Lögreglan á Austurlandi varar við sviksamlegum SMS-skilaboðum þar sem óprúttnir aðilar fara undir fölsku flaggi og reyna að leiða viðtakendur skilaboðanna inn á falska heimasíðu Skattsins.

Skotárásin rannsökuð sem valdstjórnarbrot
Skotárás sem gerð var á bíl Dags B. Eggertssonar borgarstjóra fyrir tæpum tveimur vikum er rannsökuð sem brot gegn valdstjórninni.

Síbrotagæsla vegna fjársvika á Facebook
Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurðaði um helgina karlmann um þrítugt í síbrotagæslu til 26. febrúar. Var það gert að kröfu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu vegna rannsóknar á meintum fjársvikum mannsins.

Grunaður um að hafa kveikt í bíl
Upp úr klukkan hálftólf í gærkvöldi var tilkynnt um eld í bíl í Austurbænum. Samkvæmt dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu var einn einstaklingur handtekinn grunaður um að hafa kveikt í bílnum. Var hann færður í fangageymslu í þágu rannsóknar málsins.

Gæsluvarðhald framlengt þar sem maðurinn er talinn hættulegur
Gæsluvarðhaldi yfir öðrum manninum, sem grunaður er um að hafa skotið með riffli á bíl borgarstjóra og inn um rúður á skrifstofu Samfylkingarinnar, hefur verið framlengt til föstudags.

Sigmundi Davíð hafa borist morðhótanir og hann óttaðist um líf sitt
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins segist hafa fengið að kenna á því vegna þátttöku í stjórnmálum. Meðal annars var ráðist á hann af mikilli hörku.

Of margir í pottinum á Akureyri og aðgengi að lauginni lokað
Lögreglan á Norðurlandi eystra hélt úti sérstöku eftirliti með veitingastöðum og hótelum hvað varðar sóttvarnir um helgina. Þá hafði lögreglan afskipti af sundlaugargestum í Sundlaug Akureyrar eftir að tilkynning barst um að heldur þétt væri setið í heita pottinum og var aðgengi að sundlauginni lokað það sem eftir lifði dags að kröfu lögreglu.

Aldrei eins mörg vopnuð útköll
Sérsveitin hefur aldrei sinnt eins mörgum vopnuðum útköllum og á síðasta ári. Sigríður Björk Guðjónsdóttir ríkislögreglustjóri segir heiftuga umræðuna hafa áhrif. Hún hefur sjálf fengið hótanir í starfi sínu.

Grunaðir um líkamsárás og vopnalagabrot
Tilkynnt var um líkamsárás í Árbæ upp úr klukkan ellefu í gærkvöldi, að því er fram kemur í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Þrír menn voru handteknir grunaðir um árásina og brot á vopnalögum.

Samfylkingin í Reykjavík fordæmir árásirnar
Stjórn Samfylkingarfélagsins í Reykjavík fordæmir þær árásir sem starfsstöðvar stjórnmálaflokka á Íslandi hafa orðið fyrir síðustu misserin sem og skotárás sem gerð var á einkabíl borgarstjóra.

Sá skotför í stofuglugganum: „Mér datt hins vegar ekki í hug að hlaupa grátklökkur í fjölmiðla um þetta“
„Ég fékk mörg nafnlaus hótunarbréf, sum með hvítu dufti, að mér var veist á almannafæri, og skotför sáust eitt sinn í einum stofuglugganum heima hjá mér. Mér datt hins vegar ekki í hug að hlaupa grátklökkur í fjölmiðla um þetta.“

Of snemmt að segja til um hvort hafa þurfi áhyggjur
Sigríður Björk Guðjónsdóttir ríkislögreglustjóri segir að frekari upplýsingar þurfi að liggja fyrir áður en ákvarðanir um hertar öryggisráðstafanir verða teknar, í kjölfar skotárásarinnar á bíl borgarstjóra og húsnæði stjórnmálaflokkanna. Hún segir of snemmt að segja til um hvort hafa þurfi áhyggjur.

VG fordæmir skotárásirnar
Flokkráðsfundur Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs fordæmir árásir við heimili borgarstjóra og höfuðstöðvar stjórnmálasamtaka.

Sextugur karlmaður í gæsluvarðhald vegna skotárásarinnar
Karlmaður um sextugt var í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag úrskurðaður í tveggja daga gæsluvarðhald, eða til 1. febrúar, vegna gruns um aðild að skotárásinni á bíl borgarstjóra um síðastliðna helgi.

Tveir verið handteknir í kjölfar skotárásarinnar
Tveir karlmenn hafa verið handteknir í tengslum við skotárásina á bíl Dags B. Eggertssonar borgarstjóra. Sá fyrri var handtekinn um miðja viku en á heimili hans fannst töluvert magn skotvopna, líkt og fréttastofa greindi frá í dag. Sá síðari er á fimmtugsaldri og var handtekinn í gær.

Segja ásakanir um sóttvarnabrot ósanngjarnar, ósannar og „hreinlega ærumeiðandi“
Hópur bachatadansara, sem sakaður var um að hafa brotið sóttvarna- og áfengislög á þriðjudag, segir ekkert til í þeim ásökunum sem honum voru borin á hendur.

Einn handtekinn með tvo riffla í tengslum við skotárásina á bíl borgarstjóra
Einn hefur verið handtekinn í tengslum við skotárásina á bíl borgarstjóra um síðastliðna helgi. Töluvert magn af skotvopnum var haldlagt á heimili hans, þar af tveir rifflar.

Vatn í Jökulsá fór yfir vatnshæðarþröskuldinn
Í kringum miðnætti í nótt fór vatnshæð í Jökulsá á Fjöllum yfir vatnshæðarþröskuldinn, 520 sentimetra. Vatnshæðin hefur hækkað hægt og rólega síðan um klukkan þrjú síðdegis í gær.

Kafnandi konu bjargað með Heimlich-aðferðinni
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fékk um klukkan hálf tíu í gærkvöldi útkall á veitingahús í miðborg Reykjavíkur vegna konu sem gat ekki andað eftir að matur festist í hálsi hennar.

Eiginleg sakamálarannsókn ekki hafin vegna kæru Samherja
Karl Ingi Vilbergsson, lögreglustjórinn á Vestfjörðum, segir að enn sé verið að afla gagna frá Seðlabankanum vegna kæru Samherja og Þorsteins Más Baldvinssonar á meintum brotum nokkurra þáverandi starfsmanna Seðlabankans í tengslum við rannsókn á ætluðum brotum Samherja á lögum og reglum um gjaldeyrismál.

Óhugnanlegt hvað árásirnar hafa vakið lítil viðbrögð
„Við tölum um íslensk stjórnmál sem ónýt og um stjórnmálamenn sem gjörspillt illmenni og þetta endar bara í ofbeldi. Það svo stutt þarna á milli. Það er ofboðslega sorglegt að við skulum vera að missa samfélagið í þessa átt. Af því að þetta var ekki svona,“ segir Kristrún Heimisdóttir lögfræðingur.

Lögreglan leitar manns
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir að ná tali af manninum á meðfylgjandi mynd. Er það vegna máls sem er til rannsóknar hjá embættinu.

„Orðræðan er mjög harkaleg og oft hatursfull“
„Ég fordæmi þessa árás og finnst hún alvarleg, því þarna er verið að beita skotvopnum fyrir utan heimili stjórnmálamanns. Ég lít þetta alvarlegum augum,“ segir Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra um skotárás á bíl borgarstjóra um liðna helgi sem lögregla hefur til skoðunar.

Borgarstjóri fellur ekki undir lög um vernd æðstu stjórnar
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra segist hafa rætt við og fundað með Sigríði Björk Guðjónsdóttur ríkislögreglustjóra vegna skotárásar á bíl Dags B. Eggertssonar borgarstjóra sem lögregla hefur til rannsóknar. Áslaug Arna lítur málið alvarlegum augum.