Valskonur meistarar meistaranna fimmta árið í röð Íslands- og bikarmeistarar Vals eru meistarar meistaranna í kvennafótboltanum eftir 3-1 sigur á Þór/KA í Meistarakeppni kvenna í Kórnum í dag. Valskonur voru manni færri síðasta hálftímann í leiknum. Íslenski boltinn 7. maí 2011 16:02
Miðstöð Boltavaktarinnar - allir leikir á einum stað Íþróttavefur Vísis býður lesendum sínum á að fylgjast með öllum leikjum dagsins í Pepsi-deild karla samtímis. Íslenski boltinn 7. maí 2011 15:30
Umfjöllun: Nýliðar Þórs unnu Framara í Laugardalnum Þórsarar fögnuðu fyrstu stigum sínum í Pepsi-deild karla í knattspyrnu í dag þegar þeir lögðu Fram að velli með einu marki gegn engu í Laugardalnum. Óhætt er að segja að Þórsarar hafi stolið stigunum þremur því Framarar voru mun meira með boltann og sköpuðu sér fleiri færi. Barátta Þórsara sem voru tilbúnir að "deyja fyrir klúbbinn“ skilaði sér þó í þremur stigum á meðan Framarar eru stigalausir að loknum tveimur umferðum. Íslenski boltinn 7. maí 2011 15:15
Umfjöllun: Markalaust í Garðabænum Leik Stjörnunnar og Víkings í 2. umferð Pepsi-deildar karla lauk með 0-0 jafntefli í Garðabænum í dag. Víkingar tylla sér með þessu á toppinn en Stjörnumenn ná fyrsta stigi sumarsins. Íslenski boltinn 7. maí 2011 15:15
Umfjöllun: Albert tryggði Fylki sigur í Eyjum Albert Brynjar Ingason skoraði bæði mörk Fylkismanna í 2-1 sigri liðsins á ÍBV á Hásteinsvellinum í Eyjum í 2.umferð Pepsi-deildar karla í dag. Þetta var fyrsti sigur Fylkis í sumar en liðið missti niður 2-0 forystu í fyrstu umferðinni. Íslenski boltinn 7. maí 2011 15:00
Rúnar fann réttu stöðuna fyrir mig Rúnar Kristinsson breytti miklu þegar hann tók við liði KR síðasts sumar og eitt af því sem hann breytti var að færa Kjartan Henry Finnbogason til á vellinum. Rúnar færði hann aðeins aftar á völlinn, en Kjartan Henry hefur samt sem áður raðað inn mörkum í nýrri stöðu. Íslenski boltinn 7. maí 2011 11:30
Víkingur í samstarf við West Brom Víkingur tilkynndi á heimasíðu sinni í dag að félagið hefði gert samstarfssamning við enska úrvalsdeildarfélagið West Bromwich Albion. Íslenski boltinn 6. maí 2011 21:42
Ölgerðin: Það má ekki kalla Peppa Pepsi kallinn Ölgerðin hefur látið hanna lukkudýr Pepsi-deildarinnar og ber hann nafnið „Pepsi-dósin“ og gælunafnið er „Peppi“. KSÍ kynnti kappann sem Peppa Pepsi-karl en það féll ekki í kramið hjá mönnum í Ölgerðinni sem sáu sig tilneydda til að ítreka rétt nafn nýja lukkutröllsins. Íslenski boltinn 6. maí 2011 20:30
Robbie kominn til Grindavíkur Skoski reynsluboltinn og framherjinn Robbie Winters skrifaði undir samning við Grindavík í morgun og gildir samningurinn út þessa leiktíð. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Grindavík. Íslenski boltinn 6. maí 2011 12:15
Björn Jónsson æfir með FH þessa dagana Björn Jónsson, 21 árs gamall Skagamaður og fyrrum leikmaður Heerenveen í Hollandi, æfir þessa dagana með FH-ingum en þetta kemur fram á heimasíðu Stuðningsmanna FH-liðsins, fhingar.net. Íslenski boltinn 6. maí 2011 10:45
Fjalar í Fylkismarkið - Bjarni fingurbrotinn Bjarni Þórður Halldórsson, markvörður Fylkis, er fingurbrotinn og leikur því ekki með liðinu næstu vikurnar. Fjalar Þorgeirsson mun því endurheimta sæti sitt í byrjunarliðinu. Íslenski boltinn 5. maí 2011 22:39
Tommy Nielsen verður með FH á móti Blikum Tommy Nielsen er búinn að ná sér af meiðslunum sem hafa hrjáð hann að undanförnu og verður hann því með FH-liðinu þegar þeir fá Íslandsmeistara Breiðabliks í heimsókn á sunnudaginn. Þetta kemur fram í frétt á Stuðningsmannasíðu FH-inga. Íslenski boltinn 5. maí 2011 10:45
Þórsarar keyrðu heim: Vont en það venst Pepsi-deildar lið Þórs var ekki komið heim fyrr en 4 í nótt eftir leik liðsins gegn Víkingi. Liðið varð að keyra heim með rútu og þetta var ekki síðasta rútuferð liðsins í sumar. Íslenski boltinn 4. maí 2011 16:45
Kjartan Henry fór upp fyrir Rúnar þjálfara í gær Kjartan Henry Finnbogason skoraði tvö mörk fyrir KR í gær í 3-2 sigri á Íslandsmeisturum Breiðabliks í leik liðanna í 1. umferð Pepsi-deildar karla á Kópavogsvellinum. Íslenski boltinn 4. maí 2011 15:30
Stjörnumenn fá til sín annan lánsmann frá Vejle Stjarnan hefur gert lánsamning við danska miðjumanninn Jesper Jensen sem kemur frá Vejle og mun samningurinn gilda út júní. Þetta kemur fram á fótbolti.net. Íslenski boltinn 4. maí 2011 11:30
Pepsimörkin: Markasúpa gærkvöldsins krydduð með Skálmöld Fyrstu umferð Pepsi-deildar karla lauk í gær með tveimur leikjum þar sem að KR-ingar lögðu Íslandsmeistaralið Breiðabliks, 3-2. Víkingar unnu Þór 2-0. Öll mörkin má sjá hér í markasúpunni sem sýnd var í Pepsi-mörkunum á Stöð 2 sport í gær - og súpan er krydduð með tónlist frá hljómsveitinni Skálmöld. Íslenski boltinn 4. maí 2011 09:30
Víkingar nýttu færin í nýliðaslagnum Víkingur er komið með þrjú stig í Pepsi-deild karla eftir sigur á Þór í nýliðaslag í fyrstu umferðinni sem lauk í gær. Íslenski boltinn 4. maí 2011 07:30
KR byrjaði á þremur stigum í Kópavoginum KR-ingar hófu Íslandsmótið þetta árið með því að leggja ríkjandi Íslandsmeistarana á útivelli. KR vann í gær Breiðablik, 3-2. Íslenski boltinn 4. maí 2011 06:00
Gunnar Már: Ætlum að gera heimavöllinn að vígi Gunnar Már Guðmundsson nýjasti liðsmaður Þórsara var að vonum svekktur með tap sinna manna en vildi þó ekki meina að leikur þeirra væri alsæmur. Íslenski boltinn 3. maí 2011 23:11
Páll Viðar: Þeir voru með rétta menn á réttum stað á réttum tíma Páll Viðar Gíslason þjálfari Þórsara var súr eftir tap sinna manna en sá þó nokkra jákvæða punkta í leiks inna manna. Íslenski boltinn 3. maí 2011 23:06
Bjarni Fel.: Ég er aldrei hlutdrægur Goðsögnin Bjarni Felixson var mættur á Kópavogsvöll í kvöld en Bjarni var þar mættur til þess að lýsa leik Breiðabliks og KR í KR-útvarpinu. Íslenski boltinn 3. maí 2011 22:57
Kjartan Henry: Þetta var baráttusigur Kjartan Henry Finnbogason, leikmaður KR, fór mikinn á Kópavogsvelli í kvöld. Hann skoraði tvö mörk og var ekki fjarri því að fullkomna þrennuna er hann átti skot í stöng. Það var þess utan dæmt víti á hann þannig að Kjartan var afar áberandi í leiknum. Íslenski boltinn 3. maí 2011 22:50
Arnar Már: Áttum meira skilið Arnar Már Björgvinsson spilaði sinn fyrsta leik fyrir Breiðablik í efstu deild í kvöld og stóð sig vel. Var ógnandi og fiskaði vítaspyrnu. Íslenski boltinn 3. maí 2011 22:20
Miðstöð Boltavaktarinnar - Allt á einum stað Fyrstu umferð Pepsi-deildar karla lýkur í kvöld með tveimur leikjum. Hægt er að fylgjast með þeim samtímis á Miðstöð Boltavaktarinnar. Íslenski boltinn 3. maí 2011 19:00
Umfjöllun: KR skellti Íslandsmeisturunum Kjartan Henry Finnbogason var stjarna leiks Breiðabliks og KR í kvöld. Hann skoraði tvö mörk, lék vel og fékk þess utan dæmt á sig víti. Það kom ekki að sök því KR vann leikinn, 2-3. Íslenski boltinn 3. maí 2011 18:04
Umfjöllun: Gömlu refirnir kláruðu Þórsara Nýliðarnir Víkingur og Þór mættust í fyrstu umferð Pepsídeildarinnar á Víkingsvelli í gærkvöldi. Víkingar höfðu 2-0 sigur með marki í hvorum hálfleik. Það var lítið sem skildi að liðin nema þó markheppni gömlu refanna í liði þeirra rauðsvörtu úr Fossvoginum. Íslenski boltinn 3. maí 2011 17:39
Sama sagan og í fyrra hjá Fylkismönnum Fylkismenn gengu stigalausir af velli í Kórnum í gærkvöldi þrátt fyrir að yfirspila Grindvíkinga fyrstu 35 mínútur leiksins og komast í 2-0 í leiknum. Eins og svo oft í fyrra misstu Fylkismenn hinsvegar dampinn, fengu á sig þrjú mörk á síðustu 46 mínútum leiksins og töpuðu leiknum 2-3. Íslenski boltinn 3. maí 2011 17:30
Tryggvi með þrettán mörk í ellefu leikjum í 1. umferð Tryggvi Guðmundsson skoraði sigurmark ÍBV á móti Fram í 1. umferð Pepsi-deildar karla í gær en þetta mikilvæga mark hans kom á þriðju mínútu í uppbótartíma. Þetta er langt frá því að vera fyrsta Íslandsmótið hjá Tryggva þar sem hann er á skotskónum í 1. umferð. Íslenski boltinn 3. maí 2011 16:07
Markaveisla úr Pepsi-mörkunum í gærkvöldi Pepsi-deild karla fór af stað í gærkvöldi með fjórum leikjum þar sem að ÍBV, Valur, Keflavík og Grindavík fögnuðu öll góðum sigrum. Í Pepsi-mörkunum á Stöð 2 Sport í gærkvöldi tóku menn saman skemmtilega syrpu með því helsta sem gerðist í leikjunum fjórum í gær. Íslenski boltinn 3. maí 2011 16:00