Bikarmeistararnir komu sér í hattinn FH lenti tvívegis undir gegn Fylki í 32-liða úrslitum Valitors-bikarkeppni karla en vann svo 3-2 sigur í framlengdum leik. Íslenski boltinn 27. maí 2011 11:15
Húsvíkingar létu Blika hafa fyrir hlutunum Breiðablik er komið áfram í sextán liða úrslit Valitors-bikarsins eftir 2-1 sigur á Völsungi frá Húsavík í gær. Blikar voru mun sterkari í byrjun leiksins en voru á endanum heppnir að sleppa við framlengingu. Íslenski boltinn 27. maí 2011 10:00
Tryggvi verður með öfluga grímu á andlitinu gegn Víkingum Tryggvi Guðmundsson varð fyrir alvarlegum meiðslum í leiknum gegn Keflavík á dögunum þar sem kinnbein brotnaði á þremur stöðum. Framherjinn ætlar ekki að láta þessi meiðsli stöðva sig og hefur hann hug á því að leika næsta leik ÍBV gegn Víkingum í Vestmannaeyjum á sunnudaginn. Tryggvi mun leika með öfluga hlífðargrímu á andlitinu og eins og sjá má á myndinni. Íslenski boltinn 27. maí 2011 09:45
Heimir: Sýndum karakter sem hefur vantað „Þetta var ekki auðveldur sigur, en við vorum að spila á móti virkilega öflugu Fylkisliði,“ sagði Heimir Guðjónsson, þjálfari FH, eftir sigurinn í kvöld. Íslenski boltinn 26. maí 2011 23:36
Gylfi: Ömurlegt að tapa þessum leik „Það er auðvita ömurlegt að tapa þessum leik, sérstaklega þar sem við höfðum ágætis tök á honum framan af,“ sagði Gylfi Einarsson, leikmaður Fylkis, eftir ósigurinn gegn FH í kvöld. Íslenski boltinn 26. maí 2011 23:29
Freyr: Frábær sigur sem kemur okkur í gang „Þetta var ótrúlega ljúft að hafa klárað leikinn,“ sagði Freyr Bjarnason, leikmaður FH, eftir sigurinn í kvöld. Íslenski boltinn 26. maí 2011 23:22
Óli Þórðar: Áttum að klára þetta í venjulegum leiktíma „Ég er virkilega svekktur eftir þennan leik, en við áttum auðvita að klára þennan leik í venjulegum leiktíma,“ sagði Ólafur Þórðarsson, þjálfari Fylkis, eftir tapið gegn FH í kvöld. Íslenski boltinn 26. maí 2011 23:12
Bjarki: Var farinn að fljúga í large-treyjunni Hinn smái en knái miðjumaður Völsungs, Bjarki Baldvinsson, var magnaður í leiknum gegn Blikum í Valitorbikarnum í kvöld. Bjarki var hundfúll að hafa tapað leiknum sem fór 2-1 fyrir Blika. Íslenski boltinn 26. maí 2011 22:52
Ólafur: Vorum sjálfum okkur verstir Ólafur Kristjánsson, þjálfari Breiðabliks, hélt leikmönnum sínum lengi inn í klefa áður en hann kom fram að ræða við fjölmiðlamenn. Hann vildi þó ekki viðurkenna að hafa verið að lesa sínum mönnum pistilinn. Íslenski boltinn 26. maí 2011 22:19
Jóhann: Við getum verið stoltir Jóhann Kristinn Gunnarsson, þjálfari Völsungs, sagðist vera stoltur af sínu liði í kvöld en einnig svekktur að hafa ekki náð jöfnunarmarki sem hann taldi sitt lið hafa átt skilið. Íslenski boltinn 26. maí 2011 22:10
Rafn Andri: Völsungarnir eru með sprækt lið Rafn Andri Haraldsson kom Blikum á bragðið gegn Völsungi í kvöld og átti ágætis leik í liði Blika sem máttu hafa mikið fyrir sigrinum. Íslenski boltinn 26. maí 2011 22:01
Hrannar Björn: Þetta er mjög fúlt Hrannar Björn Steingrímsson átti fínan leik í liði Völsungs í kvöld sem tapaði naumlega, 2-1, gegn Íslandsmeisturum Breiðabliks. Hrannar skoraði mark Völsungs í leiknum og var það smekklega gert. Íslenski boltinn 26. maí 2011 21:54
Víkingar í basli með KV Pepsi-deildarlið Víkings er komið áfram í 16-liða úrslit Valitors-bikarkeppninnar eftir að hafa lent í basli með 3. deildarlið KV. Íslenski boltinn 26. maí 2011 21:17
Keflavík skoraði fimm á Egilsstöðum Keflvíkingar eru komnir áfram í 16-liða úrslit Valitor-bikarkeppni karla eftir öruggan 5-0 sigur á Hetti á Egilsstöðum. Íslenski boltinn 26. maí 2011 19:22
Miðstöð Boltavaktarinnar - allt á einum stað Íþróttavefur Vísis býður lesendum sínum á að fylgjast með öllum leikjum kvöldsins í Valitor-bikarkeppni karla samtímis. Íslenski boltinn 26. maí 2011 18:30
Umfjöllun: Freyr Bjarnason skallaði FH-inga áfram í bikarnum FH-ingar komust í kvöld í 16-liða úrslit Valitor-bikar karla í knattspyrnu eftir sigur á Fylki í framlengdum leik, en leiknum lauk með 3-2 sigri Fimleikafélagsins. Staðan var 2-2 eftir venjulegan leiktíma, en Freyr Bjarnason, leikmaður FH, skoraði sigurmarkið. Íslenski boltinn 26. maí 2011 17:50
Umfjöllun: Auðveldur sigur Þórs á Fáskrúðsfirðingum Þórsarar sigruðu Leikni frá Fáskrúsfirði frekar auðveldlega 5-0 í Boganum á Akureyri í kvöld. Leikurinn var í raun aldrei spennandi, til þess voru yfirburðir Pepsí-deildarliðsins of miklir. Íslenski boltinn 26. maí 2011 17:46
Umfjöllun: Völsungar velgdu Blikum undir uggum 2. deildarlið Völsungs kom skemmtilega á óvart í kvöld er liðið sótti Íslandsmeistara Breiðabliks heim. Blikar unnu 2-1 sigur en Völsungarnir voru svekktir eftir leik og máttu vera það enda voru þeir klaufar að skora ekki fleiri mörk. Íslenski boltinn 26. maí 2011 17:42
Breiðablik gæti þurft að spila í varabúningi á heimavelli Íslandsmeistarar Breiðabliks taka á móti 2. deildarliði Völsungs í Valitor-bikarnum í kvöld. Sú einkennilega staða gæti komið upp að Blikar yrðu að leika í varabúningi sínum á heimavelli. Íslenski boltinn 26. maí 2011 13:30
Ég set pressu á sjálfan mig Kristinn Steindórsson skoraði þrennu í 3-1 sigri Breiðabliks á Fylki í 5. umferð Pepsi-deild karla og er besti leikmaður umferðarinnar að mati Fréttablaðsins. Leik Þórs og FH var frestað fram í júní og er hann að sjálfsögðu ekki með í samantekt Fréttablaðsins. Íslenski boltinn 26. maí 2011 08:00
Besta byrjun nýliða í áratug Nýliðar ÍBV í Pepsi-deild kvenna hafa vakið mikla athygli með því að byrja Íslandsmótið á því að vinna 5-0 sigra á bæði Þór/KA og Aftureldingu í fyrstu tveimur umferðunum. Íslenski boltinn 26. maí 2011 06:00
Rúnar: Aldrei spurning eftir annað markið Rúnar Kristinsson, þjálfari KR, sagðist aldrei hafa verið í rónni fyrr en KR komst í 0-2 á móti Stjörnunni en KR vann leik liðanna í Valitor-bikarnum, 0-3. Íslenski boltinn 25. maí 2011 22:16
Daníel: Vildi ekki láta mig detta eins og stelpa Daníel Laxdal, fyrirliði Stjörnunnar, var ekki par sáttur við dómara leiksins að hafa ekki dæmt á Baldur Sigurðsson þegar hann var sloppinn í gegnum vörn KR eftir rúmlega 20 mínútna leik í kvöld. Íslenski boltinn 25. maí 2011 22:06
Dofri: Æskudraumur að rætast Hinn ungi leikmaður KR. Dofri Snorrason, átti mjög fínan leik með KR sem lagði Stjörnuna í Garðabænum, 0-3. Dofri var sterkur í vörninni og átti magnaða spretti fram. Úr einum slíkum sprett skoraði hann sitt fyrsta mark fyrir meistaraflokk félagsins. Íslenski boltinn 25. maí 2011 21:58
Gunnlaugur: Úrvalsdeildarliðin refsa Gunnlaugur Jónsson, þjálfari KA, sagði að sitt lið hefði átt að skora meira en eitt mark gegn Grindavík í kvöld. Lokatölur voru 1-2 fyrir Suðurnesjaliðið sem er komið áfram í Valitor bikarkeppninni. Íslenski boltinn 25. maí 2011 21:35
Ólafur: Heppnir að vera ekki refsað Ólafur Örn Bjarnason, spilandi þjálfari Grindavíkur, var ánægður með sigur sinna manna á KA í kvöld. Hann stóð sjálfur vaktina í vörninni. Íslenski boltinn 25. maí 2011 21:27
Fram og Valur komust áfram Fjölmargir leikir fóru fram í 32-liða úrslitum Valitor-bikarkeppninnar í kvöld og má sjá úrslit þeirra alla hér fyrir neðan. Íslenski boltinn 25. maí 2011 21:15
ÍBV og BÍ/Bolungarvík áfram í bikarnum Tveir leikir hófust klukkan 18.00 í Valitor-bikarkeppni karla og er þeim báðum lokið. ÍBV og BÍ/Bolungarvík tryggðu sér þá sæti í 16-liða úrslitum keppninnar. Íslenski boltinn 25. maí 2011 20:18
Kristján Örn og félagar slógu Stabæk úr leik Það var spilað í norsku bikarkeppninni í dag og voru nokkrir Íslendingar í eldlínunni. Pálmi Rafn Pálmason skoraði fyrir Stabæk en það dugði ekki til gegn B-deildarliðinu Hönefoss. Íslenski boltinn 25. maí 2011 19:35
Boltavarpið: Stjarnan - KR í beinni Vísir er með beina netvarpslýsingu frá viðureign KR og Stjörnunnar í 32-liða úrslitum Valitors-bikarkeppni karla. Íslenski boltinn 25. maí 2011 18:35